Morgunblaðið - 27.06.2002, Page 2
KR – Fylkir
KR-völlur, fimmtudaginn 27. júní
kl. 19.15.
KR og Fylkir hafa mæst tíu sinn-
um í efstu deild og eru hnífjöfn. Hvort
lið h
orðið
Í
ræði
hefu
í Ves
Gr
Þ
og þ
deild
Þá v
Akur
Ak
ÍA
frá f
unni
tefli.
ÍB
því Í
viður
1998
KR-i
L
leikj
Fram
46 le
T
ÍBV
man
fullu
Leikir kv
ÍÞRÓTTIR
2 B FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
2ja daga opið mót
Skráning hafin
í síma 438 1075.
Nánari upplýsingar í símum
897 6279 Ríkharður
og 860 4141 Þorvarður.
á Bárarvelli, Grundarfirði, laugardaginn 29. júní
og Víkurvelli, Stykkishólmi, sunnudaginn 30. júní
KEPPNISFYRIRKOMULAG:
Punktakeppni með 7/8 forgjöf í karla- kvenna-
og unglingaflokki. Alls leiknar 36 holur á 2 dögum
(18 á hvorum velli).
Ræst út frá kl. 9.00 báða dagana.
Vegleg heildarverðlaun fyrir 5 efstu sætin
í hverjum flokki auk teiggjafar
og fjölda nándarverðlauna.
Mótsgjald kr. 2.500
Mótanefndir
GVG og GMS
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla, Símadeild:
KR-völlur: KR - Fylkir ........................19.15
Akranes: ÍA - ÍBV................................19.15
Grindavík: Grindavík - Þór..................19.15
3. deild karla:
Hveragerði: KFS - Ægir ..........................20
Sandgerði: reynir - ÍH..............................19
Hofsós: Neisti - Magni..............................20
Laugavöllur: Efling - Vaskur...................20
Fáskrúðsf.: Leiknir - Huginn/Höttur .....20
Í KVÖLD
ÍG frá Grindavík og ÍV frá Vest-
mannaeyjum hafa hætt við þátttöku
í 1. deild karla í körfuknattleik
næsta vetur. Bæði félög hafa óskað
eftir því að leika í 2. deild í staðinn
og hefur KKÍ heimilað þeim það.
Sæti þeirra tekur Selfoss, sem varð í
næstneðsta sæti 1. deildar síðasta
vetur, og Hrunamenn sem urðu í 3.
sæti 2. deildar.
HAUKUR Ingi Guðnason kom inn
á sem varamaður í liði Keflavíkur í
gær gegn FH. Haukur Ingi hefur
ekkert leikið með liðinu frá því að
hann meiddist í fyrstu umferð Ís-
landsmótsins.
TVEIR leikmenn voru í fyrsta
sinn á ferli sínum í byrjunarliði í
efstu deild í gær er Keflavík og FH
mættust í Reykjanesbæ. Það voru
heimamaðurinn Brynjar Guð-
mundsson og FH- ingurinn Emil
Hallfreðsson.
MARKAHRÓKURINN Guð-
mundur Steinarsson kom inn á sem
varamaður í liði Keflavíkur gegn
FH í gær en hann hefur átt við
meiðsli að stríða á nára frá því í við-
ureign liðsins gegn ÍA.
ERNA Lind Rögnvaldsdóttir
knattspyrnukona er gengin til liðs
við ÍBV frá Grindavík. Erna Lind,
sem hefur leikið 58 leiki í efstu deild,
hefur spilað með Grindavík síðustu
tvö árin en ekkert leikið með liðinu á
þessu tímabili.
ÞRÍR fyrrverandi landsliðsþjálf-
arar eru orðaðir við norska liðið Vik-
ing frá Stavangri, að sögn norska
blaðsins Rogalands Avis. Það eru
Guðjón Þórðarson, Svíinn Bo Jo-
hansson, fyrrverandi landsliðsþjálf-
ari Íslands og Danmerkur og Rich-
ard Möller Nielsen, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Danmerkur og
Finnlands. Þeir Bo og Richard Möll-
er eru einnig á listanum yfir næsta
landsliðsþjálfara Rússlands, ásamt
Egil Drillo Olsen, fyrrverandi
landsliðsþjálfara Noregs. Guðjón er
aftur á móti ekki á „rússneska list-
anum.“
ENSKA úrvalsdeildarliðið New-
castle mun í næstu viku ganga frá
kaupum á Titus Bramble, félaga
Hermanns Hreiðarssonar hjá Ips-
wich. Ipswich hafnaði fyrr í vikunni
tilboði Newcastle í leikmanninn og
sagði það of lágt. Því hækkaði New-
castle tilboðið og er talið að félagið
muni greiða í kringum 6 milljónir
punda, eða um 800 milljónir króna,
fyrir varnarmanninn sem leikið hef-
ur með ungmennalandsliðum Eng-
lands.
ÍVAR Ingimarsson skrifaði ekki
undir samning við enska 1. deildar-
liðið Wolves í gær eins og búist var
við. Ívar sendi Wolves gagntilboð í
gær og verður því svarað á föstudag.
Ekki ber mikið á mili samningsaðila
en Ívar hefur gert athugasemdir
hvað lengd samningsins varðar.
FÓLK
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla, Símadeild
Keflavík – FH ........................................1:1
Staðan:
Fylkir 7 4 2 1 15:9 14
KR 7 4 1 2 9:7 13
Grindavík 7 3 2 2 12:11 11
Fram 7 2 3 2 12:11 9
Keflavík 7 2 3 2 10:11 9
KA 7 2 3 2 5:6 9
FH 7 2 3 2 9:11 9
ÍBV 7 2 2 3 10:9 8
Þór 7 1 3 3 10:14 6
ÍA 7 1 2 4 10:13 5
Markahæstir:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV.......... 5
Jóhann Þórhallsson, Þór......................... 5
Sævar Þór Gíslason, Fylki ..................... 5
Grétar Ólafur Hjartarson, Grindavík.... 4
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR .......... 4
Steingrímur Jóhannesson, Fylki............ 4
Adolf Sveinsson, Keflavík....................... 3
Andri Fannar Ottósson, Fram ............... 3
Bjarki Gunnlaugsson, ÍA ........................ 3
Ellert Jón Björnsson, ÍA........................ 3
Sigurvin Ólafsson, KR ............................ 3
Tómas Ingi Tómasson, ÍBV ................... 3
Þorbjörn Atli Sveinsson, Fram.............. 3
1. deild karla
Afturelding – ÍR.........................................
Valur 6 5 1 0 15:3 16
Afturelding 7 4 2 1 11:10 14
Leiftur/Dalvík 6 2 3 1 11:7 9
Haukar 6 2 2 2 9:6 8
Víkingur R. 6 2 2 2 7:7 8
Breiðablik 6 2 1 3 12:12 7
Stjarnan 6 2 1 3 9:13 7
ÍR 7 1 3 3 6:12 6
Þróttur R. 6 1 2 3 7:11 5
Sindri 6 1 1 4 5:11 4
3. deild karla
A-RIÐILL:
Fjölnir – HSH........................................2:1
Bruni – Árborg ......................................2:1
Staðan:
KFS 5 5 0 0 18:3 15
Fjölnir 6 4 1 1 17:13 13
Bruni 6 2 2 2 10:13 8
Árborg 6 1 2 3 11:16 5
HSH 6 0 4 2 5:8 4
Ægir 5 0 1 4 5:13 1
B-RIÐILL:
BÍ – Bolungarvík ...................................2:1
Staðan:
Reynir S. 4 3 1 0 19:6 10
Grótta 4 3 0 1 11:7 9
Úlfarnir 4 2 1 1 8:10 7
Deiglan 3 1 1 1 10:6 4
BÍ 4 1 1 2 4:8 4
Bolungarvík 4 0 1 3 10:16 1
ÍH 3 0 1 2 2:11 1
1. deild kvenna A
Fjölnir – HSH........................................6:0
Haukar – ÍR...........................................9:0
Staðan:
Þróttur R. 5 5 0 0 29:2 15
Haukar 5 4 0 1 19:5 12
RKV 5 3 0 2 15:15 9
Fjölnir 5 2 0 3 13:9 6
HK/Víkingur 5 2 0 3 11:15 6
ÍR 5 1 0 4 5:31 3
HSH 4 0 0 4 1:16 0
HM í Japan og Suður-Kóreu
UNDANÚRSLIT:
Brasilía – Tyrkland 1:0
Saitama, Japan, 26. júní:
Mark Brasilíu: Ronaldo 49.
Markskot: Brasilía 18 – Tyrkland 9.
Horn: Brasilía 7 – Tyrkland 8.
Rangstöður: Brasilía 0 – Tyrkland 0.
Gul spjöld: Gilberto, Brasilía 41., Tugay,
Tyrkland 59., Hasan Sas, Tyrkland 89.
Dómari: Kim Milton Nielsen, Danmörku.
Áhorfendur: 61.058.
Lið Brasilíu: Marcos; Cafu, Lucio, Roque
Junior, Edmilson, Roberto Carlos; Gil-
berto Silva, Rivaldo, Kleberson (Belletti
85.); Edilson (Denilson 75.), Ronaldo
(Luizao 68.)
Lið Tyrklands: Rüstü Recber; Bülent
Korkmaz, Fatih Akyel, Alpay Özalan;
Tugay Kerimoglu, Yildiray Basturk (Arif
Erdem 88.), Ergün Penbe, Emre Belöz-
oglu (Ilhan Mansiz 62), Ümit Davala
(Muzzy Izzet 74.); Hakan Sükür, Hasan
Sas.
Brasilía mætir Þýskalandi í úrslitaleik
HM sunnudaginn 30. júní kl. 11. Tyrk-
land mætir Suður-Kóreu í leik um 3.
sætið laugardaginn 29. júní kl. 11.
Markahæstir á HM:
Ronaldo, Brasilía ..................................... 6
Rivaldo, Brasilía ...................................... 5
Miroslav Klose, Þýskaland ..................... 5
Jon Dahl Tomasson, Danmörk............... 4
Christian Vieri, Ítalía.............................. 4
Fyrstu 20 mínúturnar voru aðmestu barningur á miðjunni en
á 21. fékk Boban Ristic góða send-
ingu inn fyrir vörn
ÍR en Símon Gísli
Símonarson í marki
ÍR varði mjög vel
gott skot. Markverð-
inum urðu hins vegar á hrikaleg mis-
tök mínútu síðar þegar boltinn hrökk
inn í vítateig ÍR og Björn Jakobsson
sendi á markvörðinn. Mikið fát kom
á markvörðinn og hann lét boltann
renna inn í markið í stað þess að
spyrna í burtu því ekki mátti hann
taka með höndum. Gestunum var
nokkuð brugðið og Afturelding gekk
á lagið en markvörðurinn stóð fyrir
sínu auk þess að bjargað var á línu.
Á fyrstu mínútum síðari hálfleiks
varði Símon Geir ágæt skot Boban
og Baldvins Hallgrímssonar en síðan
var leikurinn að mestu í höndum ÍR-
inga. Þeir spiluðu vel um völlinn en
tókst ekki að finna glufu í vörn Aft-
ureldingar og reyndu þá ýmist að
spila sig alveg í gegn eða gefa háar
sendingar fyrir markið en þær end-
uðu flestar á hávöxnum heimamönn-
um. Engu að síður skapaðist stund-
um hætta við mark ÍR, mest á 70.
mínútu þegar Bogi Ragnarsson
skaut farmhjá af mjög stuttu færi
eftir snarpa sókn.
„Við vissum að þetta yrði virkilega
erfitt og þetta var fyrst og fremst
vinnusigur,“ sagði Axel Gomez,
markvörður Aftueldingar, eftir leik-
inn. „Við höfum tilhneigingu til að
halda fengnum hlut og bakka ef við
skorum. Svo treystum við bara á
góða markvörslu í lokin en þeir eiga
ekki marktækifæri í leiknum.“ Mos-
fellingar getu vel við stöðu sína unað
með 14 stig eftir 7 leiki og hafa skor-
að einu marki meira en þeir hafa
fengið á sig. „Við erum mjög dugleg-
ir og það er okkar aðalsmerki. Við
ákváðum í mars þegar ljóst var að
við færum upp í fyrstu deild að ná
tuttugu stigum, sem ætti að duga til
að halda sér í deildinni og ræðum þá
ný markmið,“ sagði Axel .
Maður leiksins: Boban Ristic,
Aftueldingu.
Sjálfsmark í
sigri Aftur-
eldingar á ÍR
MOSFELLINGAR slá hvergi af
og komu sér vel fyrir í öðru sæti
deildarinnar með 1:0-sigri á ÍR í
Mosfellsbænum í gærkvöldi.
Markið var heldur slysalegt
sjálfsmark en sigurinn engu að
síður sanngjarn því þótt ÍR væri
meira með boltann eftir hlé
tókst liðinu illa upp með færin.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Ro
Ty
mö
me
ÓVÆNT úrslit urðu í 3. umferð
norsku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu í gær og féllu „Íslendingalið-
in“ Lilleström og Molde úr keppn-
inni. Lilleström tapaði á heimavelli
gegn 1. deildar liðinu Skeid, 1:0.
Gylfi Einarsson og Indriði Sigurðs-
son voru í byrjunarliði Lilleström.
Molde tapaði gegn Hödd á útivelli,
1:0. Bjarni Þorsteinsson var í liði
Molde.
Marel Baldvinsson kom inn á sem
varamaður í liði Stabæk og skoraði
eitt mark í 3:0 sigri liðsins á Nyberg-
sund. Tryggvi Guðmundsson var í
liði Stabæk.
Haraldur Ingólfsson og félagar
hans í Raufoss stóðu í ströngu í
framlengdum leik gegn Bryne. Har-
aldur skoraði eitt marka liðsins í
vítaspyrnukeppni, en Bryne sigraði
5:6. Úrvalsdeildarliðið Sogndal tap-
aði 5:0 gegn Aalesund.
Fjórir leikir eru í kvöld í keppn-
inni og þar leika ma. Rosenborg og
Lyn.
Lille-
ström
tapaði