Morgunblaðið - 14.07.2002, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 2002 C 3
Lyf & heilsa er ungt og framsækið fyrirtæki sem leggur áherslu
á að hafa yfir að ráða hæfu og áhugasömu starfsfólki sem býr
yfir faglegri þekkingu og þjónustulipurð. Það er stefna Lyf &
heilsu að skapa eftirsóknarverða vinnustaði þar sem starfsfólk
er búið undir krefjandi verkefni með markvissri og skipulagðri
þjálfun og að starfsfólk sé metið að verðleikum. Lyf & heilsa
rekur 2 keðjur lyfjaverslana, annars vegar Lyf & heilsu og hins
vegar Apótekarann, alls 26 lyfjaverslanir sem bjóða upp á
fjölbreytt vöruúrval sem stuðlar að heilbrigði og vellíðan.
Hjá Lyf & heilsu starfa um 220 starfsmenn.
Við leitum að kraftmiklum einstaklingum sem geta viðhaft
sjálfstæð vinnubrögð, sýnt frumkvæði, eru metnaðarfullir,
hafa skipulagshæfileika og búa yfir mikilli samstarfshæfni.
Meðal þeirra starfa sem nú eru í boði eru eftirfarandi:
Rekstrarsvið
Framleiðslueftirlitsdeild:
FRAMLEIÐSLUEFTIRLIT
Starfslýsing:
Um er að ræða þátttöku í framleiðsluundirbúningi, framleiðslu-
eftirliti og umsjón með þjálfun auk þátttöku í frekari
uppbyggingu framleiðslunnar.
Hæfniskröfur:
• Lyfjafræði-, efnafræðimenntun
eða önnur hliðstæð menntun.
• Góð enskukunnátta.
• Góð tölvukunnátta.
• Sjálfstæði og metnaður í starfi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
GAGNAVINNSLA
Starfslýsing:
Um er að ræða m.a. þátttöku í framleiðsluundirbúningi,
framleiðslueftirliti og umhverfiseftirliti.
Hæfniskröfur:
• Lyfjatæknimenntun, stúdentspróf eða annað sambærilegt.
• Góð enskukunnátta.
• Góð tölvukunnátta.
• Sjálfstæði og metnaður í starfi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Gæðasvið
Gæðaeftirlitsdeild:
Hlutverk gæðaeftirlitsdeildar snýr að eftirliti með
framleiðsluferlum allt frá móttöku hráefna til fullbúinnar vöru.
Verkefni deildarinnar eru því afar fjölbreytt og samvinna mikil
við aðrar deildir fyrirtækisins. Starfsemi deildarinnar er í örum
vexti og góðir möguleikar eru á þróun í starfi.
SÉRFRÆÐINGUR
Starfslýsing:
Starfið felst m.a. í útgáfu forskrifta, eftirliti með hráefnum,
framleiðsluferlum og gögnum sem tengjast framleiðslu.
Einnig þátttaka í og stjórnun ýmissa sérverkefna.
Hæfniskröfur:
• Háskólanám í lyfjafræði eða sambærilegu.
• Góð enskukunnátta.
• Góð tölvukunnátta.
• Sjálfstæði og metnaður í starfi.
• Nákvæm og öguð vinnubrögð.
GAGNAVINNSLA
Starfslýsing:
Starfið felst í ýmiss konar gagnavinnslu, s.s. skráningu og
yfirlestri skjala. Einnig eru ýmis verkefni vegna eftirlits með
framleiðslu og aðföngum og annað sem tengist fjölbreyttum
rekstri deildarinnar.
Hæfniskröfur:
• Lyfjatæknimenntun, stúdentspróf eða annað sambærilegt.
• Góð enskukunnátta.
• Góð tölvukunnátta.
• Sjálfstæði og metnaður í starfi.
• Nákvæm og öguð vinnubrögð.
Umsóknir óskast sendar til Ráðningarþjónustu Pricewaterhouse-
Coopers merktar „Delta“ fyrir 1. ágúst nk. Upplýsingar veita
Baldur Jónsson hjá PricewaterhouseCoopers í síma 550 5300,
netfang: baldur.g.jonsson@is.pwcglobal.com og Sigríður Björnsdóttir
starfsþróunarstjóri Delta hf. í síma 550 3300,
netfang: sigridurb@delta.is.
Delta hf. er leiðandi fyrirtæki í þróun og sölu samheitalyfja á
alþjóðlegum markaði. Meginstyrkur Delta hf. liggur í öflugu
þróunarstarfi, traustu sambandi við viðskiptamenn og fyrsta flokks
lyfjaframleiðslu. Delta hf. var stofnað árið 1981 og hjá fyrirtækinu
starfa um 550 manns. Árið 2001 var 90% sölu Delta hf. á alþjóðlegum
markaði. Sala á lyfjatengdu hugviti er nú einn af öflugustu
vaxtarbroddum starfseminnar. Delta hf. hefur meira en 200 lyf á skrá
á Íslandi og markaðsleyfi fyrir lyf í yfir 20 löndum.
Laugavegi 95-97 - Kringlunni - Smáralind
Verslunarstjóri
Sölufólk
Leitum eftir jákvæðu og
þjónustulipru starfsfólki í
ofangreind störf í verslanir
okkar í Kringlunni og
Smáralind.
Heilsdags- og hálfsdagsstörf
eru í boði.
Umsóknir berist til Mbl
merkt „V. 2002“