Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.08.2002, Blaðsíða 4
FÓLK  FRANCESCO Totti, fyrirliði ítalska liðsins Roma, leikur að öllum líkindum ekki knattspyrnu næstu tvo mánuðina þar sem hann meiddist á hné í æfingaleik um helgina. Totti þarf ekki að gangast undir aðgerð en forráðamenn Roma reikna með að hann verði ekki leikfær fyrr en mán- uður er liðinn af keppnistímabilinu á Ítalíu sem hefst 1. september.  ALEX Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, greindi frá því í gær að Patrick Viera, fyrirliði Arsenal, hefði viljað ganga til liðs við United á síðustu leiktíð en forráða- menn Arsenal ekki leyft honum það. Með þessu var hann að svara Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal, sem lét þau orð falla á dögunum að United hefði greitt Leeds of mikið fyrir Rio Ferdinand, en stjórarnir tveir hafa löngum eldað saman grátt silfur.  PAUL Ince, fyrrverandi landsliðs- maður Englands í knattspyrnu, samdi í gær við enska knattspyrnulið- ið Wolves til eins árs og mun því leika með Ívari Ingimarssyni í fyrstu deild- inni á næstu leiktíð. Ince, sem er 34 ára og hefur leikið með Middles- brough síðustu ár, hafnaði nýjum samningi við félagið í vor og kaus þess í stað að róa á önnur mið. Hjá Wolves hittir hann m.a. fyrir fyrrverandi fé- laga sinn hjá Manchester United, Denis Irwin.  ANNAR fyrrverandi landsliðsmað- ur Englands, Paul Merson, hefur gert tveggja ára samning við fyrstu- deildarliðið Portsmouth en hann var á dögunum leystur undan samningi sínum við úrvalsdeildarliðið Aston Villa, sem hann hefur leikið með síð- astliðin fjögur ár.  STUÐNINGSMENN enska úrvals- deildarliðsins Leeds United hafa frestað árlegu kvöldverðarboði sínu þar sem leikmaður ársins hjá félaginu fær verðlaun frá stuðningsmanna- klúbbnum. Ástæðan er sú að Rio Ferdinand varð fyrir valinu en það fór fram áður en Ferdinand gekk til liðs við keppinautana Manchester United. Stuðningsmennirnir telja ekki við hæfi að hann fái verðlaunin eftir félagaskiptin og hyggjast því velja aftur leikmann ársins.  UEFA, Knattspyrnusamband Evr- ópu, hefur kunngjört hverjir koma til greina sem bestu leikmenn og þjálf- arar á síðasta keppnistímabili. Ruud van Nistelrooy hjá Manchester Unit- ed, Raúl Gonzáles hjá Real Madrid og félagi hans Zinedine Zidane berj- ast um titilinn knattspyrnumaður Evrópu og Vincente Del Bosque, þjálfari Real Madrid, Sir Alex Fergu- son, þjálfari Manchester United og Klaus Toppmöller, þjálfari Bayer Leverkusen, eru tilnefndir sem þjálf- arar ársins.  GIANLUIGI Buffon, Juventus, Jerzy Dudek, Liverpool, og Oliver Kahn, Bayern München, keppast um titilinn markmaður ársins og Cafú hjá Roma, Sami Hyypiä hjá Liverpool og Roberto Carlos hjá Real Madrid eru tilnefndir sem varnarmenn ársins.  ÞÁ hafa Michael Ballack, sem lék með Bayer Leverkusen á síðustu leiktíð en gekk til liðs við Bayern München í sumar, Roy Keane hjá Manchester United og Patrick Viera hjá Arsenal koma til greina sem miðjumenn ársins en annaðhvort Raúl, Nistelrooy eða David Trezegu- et hjá Juventus hreppir titilinn sókn- armaður ársins. Úrslitin verða til- kynnt í Mónakó 29. ágúst þegar dregið verður í fyrri umferð riðla- keppni meistaradeildar Evrópu.  ENSKA knattspyrnuliðið West Ham hefur fengið til liðs við sig franska knattspyrnumanninn Edou- ard Cisse frá franska liðinu Paris Saint Germain. Cisse er lánaður til Lundúnaliðsins í eitt ár en liðið á möguleika á að kaupa hann að loknu næsta keppnistímabili. McDowell lék frábærlega síðastadaginn og hann sparaði pútter- inn sem Darren Clarke gaf honum, notaði eitt pútt á tólf holum síðasta daginn. McDowell er greinilega mikið efni, því árangur hans hefur verið einstak- ur. Hann er í skóla í Alabama í Banda- ríkjunum og er þar í efsta sæti yfir kylfinga í háskólum. Hann tók þátt í tólf mótum fyrir skóla sinn og sigraði í helmingi þeirra og meðalskorið hjá drengnum var 69,6 högg sem er betra en Tiger Woods og Luke Donald gerðu en þeir áttu gamla metið. McDowell lék Kungsängen-völlinn á 14 höggum undir pari og höggi þar á eftir kom Trevor Immelman frá S- Afríku. Norðmaðurinn Henrik Björn- stad varð í þriðja sæti ásamt Jeff Sluman. Meðal frægra kylfinga má nefna að Jesper Parnevik varð í 17. sæti á 6 höggum undir pari og Colin Montgomerie lék á fimm höggum undir pari. Beem í stuði Rich Beem var í miklu stuði á The International-mótinu í Bandaríkjun- um, en þar var keppt með punkta- fyrirkomulagi. Hann fékk alls 44 punkta en Steve Lowery varð annar með 43 punkta. Mark Brooks varð þriðji með 33 og Greg Norman og Ernie Els fengu 27. Beem gerði sér lítið fyrir á síðasta hring og fékk sjö fugla og örn á 17. holunni til að knýja fram sigur. Ólafur Már bestur á Nesinu ÓLAFUR Már Sigurðsson úr Keili sigraði á Shoot-out golfmóti NK sem fram fór á mánudaginn. Tíu kylfingar hófu keppni og týndu þeir tölunni hver af öðrum þar til svo var komið að Ólafur Már og Haraldur H. Heimisson úr GR voru tveir eftir. Ólafur Már fékk fugl á holuna en Haraldur par þannig að Ólafur Már fagnaði sigri, en hann fékk fugl á tvær síðustu holurnar. Mótið var nú haldið í sjötta sinn og er greinilega mikill áhugi á því enda fjölmargir áhorfendur sem lögðu leið sína á Nesið til að fylgjast með. DHL-hraðflutningar styrktu mótið en ágóði af því rennur jafnan til góðra mála og að þessu sinni var það foreldrafélag sykursjúkra barna og unglinga sem fékk 250.000 krónur í mótslok. Búast má við spennandi ogskemmtilegri keppni, bæði í karla- og kvennaflokki, enda rjómi íslenskra kylfinga mættur til leiks. Hæsta forgjöf í karlaflokki er 5,3 eins og stendur, en lægsta forgjöf karla er -2,5, en það er Ólafur Már Sigurðsson úr Keili sem er með þessa skemmtilegu forgjöf. Ellefu kylfingar eru með forgjöf fyrir neð- an núll þannig að það verður hart barist á Hellu næstu dagana. Örn Ævar Hjartarson úr Golf- klúbbi Suðurnesja er kominn til landsins til að verja titil sinn og verð- ur með á Hellu. Margir ætla sér ef- laust að ná titlinum frá honum enda leikurinn til þess gerður, að leika á sem fæstum höggum og sigra. Björgvin Sigurbergsson, atvinnu- kylfingur úr Keili, ætlar einnig að vera með, en hann varð fyrst Ís- landsmeistari 1995 þegar leikið var síðast á Hellu. Síðan þá hefur hann tvívegis sigrað, 1999 og 2000. Sigursælustu kylfingar síðari ára verða báðir með í ár, en nokkuð er um liðið síðan Kylfingar aldarinnar á Íslandi, Úlfar Jónsson úr Keili og Karen Sævarsdóttir úr GS, hafa tek- ið þátt í landsmóti. Karen var ósigr- andi á árunum 1989 til 1996 og varð þá Íslandsmeistari átta sinnum í röð og hefur enginn leikið það eftir. Úlfar hefur sex sinnum orðið Ís- landsmeistari, fyrst árið 1986 og síð- ast 1992. Herborg Arnarsdóttir úr GR hef- ur titil að verja í kvennaflokki og mun hún örugglega ekki láta hann af hendi fyrirhafnarlaust. Herborg hef- ur lengi verið í fremstu röð þó ung sé og var oft í öðru og þriðja sæti á stór- mótum en hefur síðustu misseri og ár sýnt að hún hefur getu til að ná alla leið. Á mótinu í ár verða átta karlar sem hafa orðið Íslandsmeistarar 23 sinnum og hjá konunum eru þær sex sem hafa orðið meistarar 14 sinnum. Það kemur nokkuð á óvart að tvo kylfinga vantar meðal keppenda, kylfinga sem hefðu án efa blandað sér í baráttu þeirra efstu. Í kvenna- flokki er það Kristín Elsa Erlends- dóttir úr Keili, en af persónulegum ástæðum getur hún ekki verið með. Hinn er atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson frá Akranesi. Samkvæmt áætlunum hans verður hann hér á landi á meðan landsmótið fer fram en ætlar ekki að vera með. Íslandsmeistari karla, Örn Ævar Hjartarson úr GS, er kominn til landsins til að verja titil sinn. Fjórtán meistar- ar mæta til leiks LANDSMÓTIÐ í golfi hefst á fimmtudaginn á Strandarvelli við Hellu. Fullskipað er í mótið, 150 kylfingar skráðir og 27 í startholunum á biðlista ef einhverjir forfallast og draga sig úr keppni. Konum er heldur að fjölga og eru þær 23 í ár. Morgunblaðið/Golli Sigraði á þriðja móti sínu NORÐUR-Írinn Graeme McDowell sigraði nokkuð óvænt á móti í evrópsku mótaröðinni í golfi um helgina, en mótið var haldið í Sví- þjóð. McDowell gerðist atvinnumaður í júní og þetta var hans þriðja mót í evrópsku mótaröðinni. Með sigrinum varð hann tólfti kylfing- urinn sem sigrar í fyrsta sinn í mótaröðinni í ár, mikið um nýja sigur- vegara í ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.