Morgunblaðið - 28.08.2002, Síða 2
ÍÞRÓTTIR
2 B MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Efsta deild kvenna, Símadeild:
Breiðablik – Valur...................................2:2
Guðný Þórðardóttir 44., Erla Arnardóttir
90. – Erna Erlendsdóttir 72., 80.
ÍBV – Stjarnan.........................................2:1
Rachel Hammil 67., Michelle Barr 77. –
Guðrún Guðjónsdóttir 27.
KR – Grindavík........................................9:0
Hólmfríður Magnúsdóttir 15., Hrefna Jó-
hannesdóttir 23., 28., 40., Ásthildur Helga-
dóttir 36., 85., Olga Færseth 49. 88., Þór-
unn Helga Jónsdóttir 66.
Staðan:
KR 12 11 0 1 67:6 33
Valur 12 8 3 1 25:9 27
Breiðablik 12 8 1 3 29:12 25
ÍBV 12 7 1 4 26:15 22
Þór/KA/KS 12 4 0 8 10:31 12
Stjarnan 12 3 2 7 14:28 11
FH 12 2 1 9 8:42 7
Grindavík 12 1 0 11 7:43 3
Markahæstar:
Olga Færseth, KR.................................... 18
Ásthildur Helgadóttir, KR ...................... 16
Hrefna Jóhannesdóttir, KR .................... 14
Margrét R. Ólafsdóttir, Breiðablik ........ 10
Ásgerður H. Ingibergsdóttir, Valur......... 8
Eyrún Oddsdóttir, Breiðablik................... 8
Erna Erlendsdóttir, Valur ........................ 6
Hólmfríður Magnúsdóttir, KR ................. 6
Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV .............. 6
Erla Arnardóttir, Breiðablik..................... 5
Olga Steinunn Stefánsdóttir, FH ............. 5
1. deild kvenna
Undanúrslit, síðari leikur:
Þróttur R. – Tindastóll ...........................6:3
Anna Björg Björnsdóttir 5, Hildur Dagný
Kristjánsdóttir 1. – Helga Einarsdóttir 3.
Þróttur R. mætir Haukum í úrslitaleik
um sæti í úrvalsdeild kvenna.
3. deild karla
8 liða úrslit, síðari leikir:
Fjarðabyggð – Grótta .............................2:2
Guðmundur Guðjónsson 2 – Magnús Guð-
mundsson, Stefán Arnarson.
Fjarðabyggð í úrslit, 4:3 samanlagt.
Reynir S. – Leiknir F. .............................3:2
Smári Guðmundsson 32., Pálmar Guð-
mundsson 75., Eysteinn Guðvarðsson 88. –
Viðar Jónsson 61., Björgvin Hansson 90.
Staðan var samanlagt 3:3 en Leiknir F.
fer í úrslit á mörkum skoruðum á útivelli.
Fjölnir – Vaskur ......................................3:2
Pétur Björn Jónsson 11., Hallur Ásgeirs-
son 72., 79. – Brynjólfur Sveinsson 37.,
Óskar Bragason 41.
Fjölnir í úrslit, 7:2 samanlagt.
Magni – KFS.............................................2:1
Arnviður Björnsson 75., Jóhann Trausta-
son 85. – Sindri Viðarsson 25.
KFS í úrslit, 5:2 samanlagt.
Í úrslitaleikjum um sæti í 2. deild mæt-
ast annars vegar Fjölnir og Fjarðabyggð
og hins vegar KFS og Leiknir F.
Meistaradeild Evrópu
Forkeppni, 3. umferð, síðari leikir:
Fenerbahce – Feyenoord .......................0:2
Shinji Ono 48., Thomas Buffel 88.
Feyenoord áfram, 3:0 samanlagt.
Bayern München – Partizan Belgrad...3:1
Michael Ballack 27., Giovane Elber 71.,
Hasan Salihamidzic 74. – Damir Cakar 72.
Bayen München áfram, 6:1 samanlagt.
Sparta Prag – Genk ................................4:2
Karel Poborsky 56., Jiri Jarosik 60., 64.,
Pavel Mares 84. – Moumoni Dagano 25.,
Wesley Sonck 57.
Staðan var samanlagt 4:4 en Genk kemst
áfram á mörkum skoruðum á útivelli.
Inter Mílanó – Sporting Lissabon .........2:0
Luigi Di Biagio 31., Alvaro Recoba 44.
Inter Mílanó áfram, 2:0 samanlagt.
Manchester United – Zalaegerszeg ......5:0
Ruud van Nistelrooy 6., 76. (víti), David
Beckham 15., Paul Scholes 21., Ole Gunnar
Solskjær 83.
Manch. Utd áfram, 5:1 samanlagt.
Sigurliðin fara í riðlakeppni meistara-
deildarinnar, tapliðin í 1. umferð UEFA-
bikarsins.
Intertoto-keppnin
Síðari úrslitaleikir:
Stuttgart – Lille .......................................2:0
Stuttgart áfram, 2:1 samanlagt.
Fulham – Bologna ....................................3:1
Fulham áfram, 5:3 samanlagt.
Malaga – Villarreal ..................................1:1
Malaga áfram, 2:1 samanlagt.
Stuttgart, Fulham og Malaga unnu sér
sæti í 1. umferð UEFA-bikarsins.
England
Úrvalsdeild:
Charlton – Tottenham ............................0:1
Simon Davies 8. – 26.461.
Arsenal – WBA..............................................
Ashley Cole 3., Lauren 21., Sylvain Wil-
tord 24., 77., Jeremie Aliadiere 90. – Scott
Dobie 51, Jason Roberts 87. – 37.920
1. deild:
Sheffield Utd – Millwall...........................3:1
Wolves – Sheffield Wed...........................2:2
Crystal Palace – Leicester ......................0:0
Reading – Burnley ...................................3:0
2. deild:
Chesterfield – Northampton...................4:0
Crewe – Cheltenham ...............................1:0
3. deild:
Darlington – Carlisle ...............................2:0
Bournemouth – Oxford............................1:1
Bristol Rovers – Swansea .......................3:1
H
le
F
C
lo
u
s
h
h
r
lé
a
r
v
r
r
k
t
M
a
m
k
ir
h
v
H
g
u
le
in
h
C
s
h
g
k
á
C
a
R
ÚRSLIT
Eiganda Wimble-
don hótað lífláti
EIGANDI enska knattspyrnuliðsins Wimbledon á ekki sjö dag-
ana sæla eftir að hann ákvað að flytja heimavöll liðsins til Milt-
on Keynes sem er um 100 km frá því svæði sem Lundúnaliðið
kemur upphaflega frá. Liðið hefur ekki átt fastan samastað í
mörg ár og eru heimaleikir liðsins leiknir á Shelhurst Park.
Eftir að Norðmaðurinn Bjørn Rune Gjelsten tók þessa ákvörð-
un hefur honum verið hótað lífláti og hefur öryggisgæsla verið
efld í nánasta umhverfi hans. Eftir að borgaryfirvöld höfnuðu
því að gera nauðsynlegar breytingar á velli sem Gjelsten hafði
í hyggju að kaupa í nágrenni Wimbledon fyrir um 600 milljónir
ísl. kr. var fátt annað en að færa liðið um set. Stuðningsmenn
liðsins hafa ekki mætt á leiki liðsins í mótmælaskyni að und-
anförnu, og hefur til að mynda verið stofnað nýtt félag með
sama nafni sem leikur í utandeildakeppninni.
Manchester United var ekki ívandræðum með að afgreiða
ungverska liðið Zalaegerszeg í for-
keppni meistaradeildar Evrópu í
gærkvöld. Ungverjarnir unnu
óvæntan sigur í fyrri leiknum, 1:0,
en áttu aldrei möguleika á Old Traf-
ford. Manchester United skoraði
þrívegis á fyrstu 20 mínútunum og
sigraði 5:0
Ruud van Nistelrooy skoraði tvö
markanna og þeir David Beckham,
Paul Scholes og Ole Gunnar Sol-
skjær eitt hver. Scholes var borinn
meiddur af velli og óvíst er hvenær
hann verður leikfær á ný. Auk Unit-
ed tryggðu Bayern München,
Feyenoord, Genk og Inter Mílanó
sér sæti í riðlakeppni meistara-
deildarinnar.
Junichi Inamoto, hetja Japana í
heimsmeistarakeppninni í sumar,
sló hressilega í gegn með sínu nýja
félagi, Fulham, í gærkvöld. Ina-
moto skoraði öll þrjú mörk Fulham
sem vann Bologna, 3:1, í lokaumferð
Intertoto-keppninnar og tryggði fé-
laginu þar með sæti í fyrstu umferð
UEFA-bikarsins. Stuttgart og
Malaga komust sömuleiðis þangað.
Veisla á
Old Trafford
Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfariKR, var að vonum kát að
leikslokum. „Ég trúi ekki að við
förum að missa nið-
ur þetta markahlut-
fall. Við reiknuðum
með að vinna þenn-
an leik því við viss-
um af möguleikanum ef Valur tap-
aði stigum í Kópavogi og ætluðum
ekki að láta það okkur úr greipum
ganga,“ sagði Vanda eftir leikinn.
Tíu mínútur liðu áður en fyrsta
færi KR kom en þá varði Sara
Ómarsdóttir markvörður úr góðu
færi Olgu Færseth. Ekki stóð á
færum eftir það. Hólmfríður
Magnúsdóttir braut ísinn á 15.
mínútu, Hrefna Jóhannesdóttir
bætti við næstu tveimur áður en
Ásthildur Helgadóttir komst á
blað en Hrefna bætti við þriðja
sínu og fimmta KR 5 mínútum fyr-
ir leikhlé.
Síðari hálfleikur fór að mestu
fram inni í vítateig gestanna en
þeir tóku duglega á í vörninni auk
þess að markvörður þeirra, Sara
Ómarsdóttir, sýndi góð tilþrif.
Hún kom þó ekki í veg fyrir mark
Olgu eftir fjórar mínútur og Þór-
unnar Helgu Jónsdóttur á 66. mín-
útu. Þegar leið á leikinn fóru
Grindvíkingar að feta sig framar
en lokaspretturinn var Vesturbæ-
inga þegar Ásthildur og Olga skor-
uðu sitt markið hvor.
Sigríður Fanney átti náðugan
dag í marki KR, hún fékk þó bolt-
ann 14 sinnum en það voru oftast
félagar hennar að halda henni inni
í leiknum. Oftast tókst KR að
halda einbeitingu sinni og sækja
yfirvegað sem er ágætt þegar yf-
irburðirnir eru miklir.
„Það var alveg nóg að gera hjá
mér,“ sagði Sara, markvörður
Grindavíkur, eftir leikinn. „Ég er
auðvitað ósátt við níu mörk því þó
að við gerðum ekki ráð fyrir að
vinna þennan leik ætluðum við að
sætta okkur við miklu minna.
Reyndar spiluðum við boltanum
betur en við höfum gert áður og
það er jákvætt.“
Blikar tryggðu
KR titilinn
Um leið og Breiðablik tryggðisér annað stigið í viðureign
sinni við Val á Kópavogsvelli í
gærkvöldi tryggði liðið KR Ís-
landsmeistaratitilinn, eða svo gott
sem. Niðurstaða leiksins var því
gríðarleg vonbrigði fyrir Vals-
stúlkur sem eiga nú aðeins mögu-
leika á að ná KR að stigum en
möguleikar liðsins á að jafna
markatölu Vesturbæjarliðsins eru
aðeins stjarnfræðilegar.
Leikur Breiðabliks og KR bar
þess merki hversu mikilvægur
hann fyrir stöðu liðanna á toppi
deildarinnar. Bæði lið fóru varlega
inn í leikinn en Valsstúlkur voru
þó mun ákveðnari í sóknarlotum
sínum og sköpuðu sér nokkur
hættuleg marktækifæri. Það var
því þvert gegn gangi leiksins er
Guðný Þórðardóttir kom Blikunum
yfir á 44. mínútu með laglegu skoti
úr vítateig.
Síðari hálfleikur var svipaður
hinum fyrri Valur sótti mun meira
án þess að koma knettinum í
markið en á 72. mínútu braut Erna
Erlendsdóttir, sem þá var nýkom-
in inn á sem varamaður ísinn fyrir
Val og skoraði með laglegum
skalla. Erna bætti síðan um betur
á 80. mínútu er hún skoraði annað
mark Vals með skoti eftir horn-
spyrnu frá Laufeyju Jóhannsdótt-
ur. Þegar þarna var komið leit allt
út fyrir sigur Vals en Erla S. Arn-
ardóttir rændi þær sigurgleðinni
og tveimur með virkilega laglegu
marki á síðustu mínútu leiksins.
Erna Erlendsdóttir var sann-
kallaður bjargvættur í liði Vals og
lék þeirra best ásamt þeim Írisi
Andrésdóttur, Dóru Maríu Lárus-
dóttur og Rósu Júlíu Steinþórs-
dóttur.
Björg Ásta Þórðardóttir, sem er
á ný komin í varnarlínu Breiða-
bliksliðsins, var yfirburðamaður í
liði sínu en auk hennar léku þær
Margrét Ólafsdóttir og Anna Þor-
steinsdóttir vel.
Eyjasigur í
slöppum leik
Ekki var skemmtanagildið mikiðí leik ÍBV og Stjörnunnar í
Eyjum í gærkvöldi í 12. umferð úr-
valsdeildar kvenna í
knattspyrnu. Þrátt
fyrir góða byrjun
Stjörnustúlkna í
leiknum voru það
Eyjastúlkur sem báru sigur úr
býtum í arfaslökum leik, 2:1.
Eins og áður sagði voru það
Stjörnustúlkur sem komu grimm-
ari til leiks og náðu að skora fyrsta
mark leiksins á 27. mínútu. Þar
var að verki Guðrún Gunnarsdóttir
eftir vandræðagang í vörn Eyja-
stúlkna. Stjörnustúlkur áttu síðan
hörkufæri þegar skammt lifði hálf-
leiks þegar Heiða Sigurbergsdóttir
átti hörkuskalla í slá eftir horn-
spyrnu.
Ræða þjálfara Eyjastúlkna í
hálfleik hefur haft sitt að segja þar
sem þær komu mun einbeittari til
leiks en í fyrri hálfleik. Þó fengu
þær dæmda á sig vítaspyrnu þegar
Lilja Kjalarsdóttir var felld við
eftir að hafa komist ein inn fyrir
vörn ÍBV. En góður markvörður
Eyjastúlkna í leiknum, Petra
Fanney Bragadóttir, gerði sér lítið
fyrir og varði vítaspyrnu Auðar
Skúladóttur. Sóknarleikur Eyja-
stúlkna þyngdist þegar á leið hálf-
leikinn og uppskáru þær mark á
67. mínútu þegar Rachel Hammil
skoraði eftir moð í teig Stjörnu-
stúlkna. Tíu mínútum síðar gerðu
Eyjastúlkur út um leikinn þegar
þjálfari þeirra, Michelle Barr,
skoraði úr vítaspyrnu. Eyjastúlkur
fengu síðan nokkur tækifæri til að
bæta við en allt kom fyrir ekki.
Síðasta færi leiksins átti síðan
Harpa Þorsteinsdóttir fyrir
Stjörnuna á 86. mínútu, en fast
skot hennar fór rétt yfir.
Petra Fanney Bragadóttir,
markvörður ÍBV, var kampakát í
leikslok. „Við erum komnar með
ágætis tök á Stjörnunni núna og
höfum unnið allar viðureignir lið-
anna í sumar, bæði í deild og bik-
ar. Það var síðan gaman að verja
vítaspyrnu í leiknum en umfram
allt var mikilvægt að sigra í leikn-
um,“ sagði Petra Fanney.
Ásthildur Helgadóttir gerði tvö marka KR í stórsigri liðsins á Grinda
KR-stúlk-
ur nánast
öruggar
FÖGNUÐURINN var ærlegur í Vesturbænum í gærkvöldi – ekki ein-
göngu vegna 9:0 sigurs á Grindavík heldur þegar fréttir bárust úr
Kópavogi að Breiðablik og Valur hefðu gert 2:2 jafntefli. Þar með er
Íslandsmeistaratitill KR því sem næst tryggður en möguleikar Vals úr
sögunni. KR er með sex stiga forskot og jafnmörg stig í pottinum og
þó að KR-stúlkur eigi eftir tvo erfiða leiki, gegn ÍBV og Val, er marka-
tala þeirra +51 mark en Valsstúlkna +16. ÍBV lagði Stjörnuna 2:1.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Skapti Örn
Ólafsson
skrifar