Morgunblaðið - 28.08.2002, Síða 4
Ermolinskij á Selfoss
SAMKVÆMT heimildum Morgunblaðsins mun Alexander
Ermolinskij þjálfa sameiginlegt lið Selfoss og Laugdæla á
næstu leiktíð í 1. deild karla í körfuknattleik. Selfoss féll úr 1.
deild sl. vor en liðinu var boðið sæti í deildinni á ný eftir að lið
ÍV og ÍG hættu við þátttöku sinna liða.
Ermolinskij hefur komið víða við á ferli sínum og þjálfað
m.a. úrvalsdeildarlið ÍA og Skallagríms jafnframt því sem
hann lék með liðunum. Að auki var hann bikarmeistari með
Grindvíkingum. Margir af reyndari leikmönnum Selfossliðs-
ins eru horfnir á braut í önnur lið og til náms erlendis.
SIGRÚN Fjeldsted, spjótkastari
úr FH, setti um liðna helgi stúlkna-
met í spjótkasti er hún kastaði 49,21
m og bætti fyrra met sitt um 95
sentímetra. Þetta er í fimmta sinn í
sumar sem Sigrún bætir Íslands-
metið í stúlknaflokki.
FJÖLMARGIR Íslendingar fylgd-
ust með íslenska landsliðinu í körfu-
knattleik sem tók þátt í Norður-
landamótinu í körfuknattleik sem
lauk um sl. helgi í Ósló í Noregi. Á
heimasíðu KKÍ er sagt frá því að
knattspyrnumennirnir Ríkharður
Daðason, Tryggvi Guðmundsson og
Jóhann Guðmundsson hafi fylgst
með leikjum liðsins. Jóhann bauð
síðan íslenska hópnum á leik Lyn
gegn Vålerenga sl. laugardag þar
sem Helgi Sigurðsson skoraði sig-
urmarkið. Jóhann lék ekki vegna
meiðsla með Lyn að þessu sinni.
Logi Ólafsson aðstoðarþjálfari Lille-
ström stakk einnig inn nefinu á leik
Íslendinga gegn Svíum.
HINN rétt tæplega fertugi mið-
herji Kevin Willis hefur gert samn-
ing við NBA-liðið San Antonio Spurs
og mun leika með liðinu á næstu leik-
tíð. Willis lék með Houston Rockets
á síðustu leiktíð og skoraði sex stig
að meðaltali og tók jafnmörg fráköst
í 52 leikjum. Willis hefur komið víða
við á 18 ára ferli sínum, Atlanta,
Miami, Golden State, Toronto og
Denver.
REAL Madrid hefur lánað Bras-
ilíumannin Savio Bortolini til
franska liðsins Bordeaux. Hinn 28
ára gamli landsliðsmaður hefur ekki
verið í náðinni hjá Madrid undanfar-
ið ár en hann lék aðeins átta deild-
arleiki með liðinu á síðustu leiktíð.
Bortolini hefur verið á mála hjá
spænska liðinu undanfarin fjögur ár
en hann lék áður með Flamengo í
heimalandi sínu.
LIVERPOOL hefur gefið tyrk-
neska liðinu Galatasaray leyfi til að
tala við Finnann Jari Litmanen.
Tyrkirnir vilja fá Litmanen í sínar
raðir en leikmaðurinn er ósáttur í
herbúðum Liverpool enda hefur
Gerard Houllier, stjóri Liverpool,
gefið honum fá tækifæri með liðinu.
DAMIEN Duff, Írinn snjalli í liði
Blackburn, hefur ákveðið að fram-
lengja samning sinn við félagið og
skrifar hann undir nýja samninginn
eftir leikinn við Liverpool í kvöld.
Duff hefur verið eftirsóttur og Liv-
erpool hefur ítrekað reynt að fá
hann í sínar raðir.
FINNSKI markvörðurinn Antti
Niemi er kominn til Southampton en
Gordon Strachan, stjóri Southamp-
ton, ákvað að snara út 2 milljónum
punda til að kaupa þennan 30 ára
gamla markvörð sem var áður á
mála hjá skosku liðunum Rangers og
Hearts.
GEORGE Burley, knattspyrnu-
stjóri Ipswich, var afar óhress með
frammistöðu sinna manna er þeir
töpuðu á heimavelli fyrir Bradford,
2:1, í fyrrakvöld. Sagði hann að ef
þeir ætluðu ekki að leika betur en
þetta gætu þeir gleymt öllum
draumum um að endurheimta sætið í
úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
„Menn verða að gera sér grein fyrir
því að lífið í 1. deild er ekkert auð-
velt, menn verða að berjast fyrir
hverju stigi,“ sagði Burley.
ADAM Scott, kylfingur frá Ástr-
alíu, bar sigur úr býtum á skoska
PGA meistaramótinu í golfi sem lauk
á sunnudag. Scott sigraði með mikl-
um yfirburðum en hann var á ótrú-
legu skori, 26 höggum undir pari
vallarins á 72 holum. Scott lék síð-
asta hringinn á 63 höggum eða níu
undir pari og alls var hann á 262
höggum sem er mótsmet. Scott lauk
mótinu á afar skemmtilegan hátt en
hann fékk örn á 16. holu, fugl á 17.
holu og aftur örn á 18. holu.
FÓLK
Þegar Morgunblaðið sló á þráðinntil Sigfúsar var hann nýkominn
af æfingu en Magdeburg er þessa
vikuna í æfingabúð-
um í austurhluta
Þýskalands til að
búa sig undir átökin.
Liðið hefur verið á
hrakhólum með æfingaaðstöðu en
flóðin miklu í Þýskalandi gerðu tals-
verðan usla í Magdeburg.
„Undirbúningstímabilið hefur
verið mjög strembið en það er bara
hluti af þessu öllu saman. Ég er mjög
þreyttur enda höfum við æft 12–13
sinnum í viku og eðlilega tekur tíma
að venjast svo miklu álagi. Ég finn
þó að þetta er allt að koma hjá mér,“
sagði Sigfús en eins og fólk rekur
minni til vann hann hug og hjarta ís-
lensku þjóðarinnar með frábærri
frammistöðu á EM síðastliðinn vet-
ur.
Reiknarðu með að fá að spila mik-
ið á þínu fyrsta ári?
„Ég geri ráð fyrir að ég verði línu-
maður númer eitt í vetur. Alfreð hef-
ur látið mig spila mestallan tímann í
æfingaleikjunum svo það bendir til
þess að hann ætli að nota mig tölu-
vert í vetur. Það hefur gengið svona
upp og ofan hjá mér og liðinu. Það
hefur verið óttalegur haustbragur á
leik okkar og má kannski kenna því
um að við höfum átt í vandræðum
með æfingaaðstöðu vegna flóðanna.“
Fituprósentan
hefur lækkað
Mér er sagt að Alfreð hafi krafist
þess af þér að þú losaðir þig við
nokkur kíló. Er það rétt?
„Það er alveg rétt og það hefur
gengið vel að tálga sig. Fituprósent-
an hefur lækkað hjá mér. Hún var í
góðu lagi á höndum og fótum en of
mikil á líkamanum eins og hún hefur
alltaf verið. Hún hefur minnkað tölu-
vert og ég mundi segja að það væri
komið meira samræmi í þetta allt
saman. Við erum að vinna í því að
breyta fitunni í vöðva og það tekur
alltaf sinn tíma.“
Hvernig líst þér á ykkar lið í vet-
ur?
„Mér líst mjög vel á það og við eig-
um klárlega að vera í toppbarátt-
unni. Breytingin á liðinu er sú að ég
er kominn fyrir Kervadec og þá er
kominn ungur Pólverji í liðið, miðju-
maður og skytta, sem lofar mjög
góðu. Magdeburg á fullt af ungum og
efnilegum leikmönnum sem fá ef-
laust að láta ljós sitt skína. Rúss-
neski miðjumaðurinn Oleg Kul-
eschov hefur loks náð sér af
meiðslum og það styrkir liðið að fá
hann til baka. Mér sýnist svona í
fljótu bragði að við, ásamt, Kiel,
Lemgo, Essen og Flensborg, verð-
um í baráttunni um titilinn. Ég held
að ef okkur tekst að smyrja lið okkar
vel saman og spila sem liðsheild eigi
önnur lið ekki möguleika gegn okk-
ur. Við erum kannski ekki með besta
byrjunarliðið í deildinni en á löngu
tímabili, þar sem leikið er í deildinni,
bikarnum og í Evrópukeppninni,
höfum við breiddina umfram önnur
lið.“
Þú hlýtur að vera ánægður að fá
að spila með Ólafi og vonast eftir að
hann mati þig jafnvel og hann hefur
gert með landsliðinu?
„Það er ekkert flóknara en það í
mínum huga að Óli er besti hand-
boltamaður í heimi. Við höfum hing-
að til náð vel saman og það verður
engin breyting á því. Kuleschov hef-
ur sömuleiðis gott auga fyrir línunni
en því miður get ég ekki sagt það um
Perunicic. Hann horfir sjaldnast á
línuna og minnir mann á gamla veð-
hlaupahestinn sem horfir beint
áfram.“
Hvaða markmið hefurðu sett þér
með liði Magdeburg í vetur?
„Á sínum tíma setti ég mér það
markmið að komast út og spila og nú
er það orðið að veruleika og af miklu
meiru alvöru en þegar ég fór á sínum
tíma til Spánar. Ég geri ekkert ann-
að en spila og æfa handbolta og ég
ætla mér að halda áfram á þeirri
braut sem ég var á, það er að bæta
mig sem handboltamaður. Miðað við
aðstæður get ég ekkert annað en
bætt mig. Ég vona að ég geti hjálpað
liðinu til að ganga vel og ef það tekst
verð ég sáttur. Ég er rosalega
ánægður hérna í Þýskalandi. Mér
hefur verið mjög vel tekið hjá öllum
sem tengjast Magdeburgarliðinu. Á
Spáni var ég mjög einangraður en
hérna er þetta miklu líkara því sem
er heima,“ sagði Sigfús.
Tekur tíma hjá Sigfúsi
Alfreð Gíslason, þjálfari Magde-
burg, segir að það taki tíma fyrir
Sigfús að ná fótfestu í sterkustu
deild heims og vitnar til þess að Sví-
inn Magnus Wislander, sem yfirgaf
Kiel eftir síðustu leiktíð, og Kerv-
adec, sem farinn er frá Magdeburg,
hafi átti erfitt í fyrstu, en báðir eru
þeir línumenn.
„Fúsi mun fá að spila mikið í vetur
en það tekur sinn tíma fyrir hann að
komast inn í hlutina. Það hefur tekið
flestalla bestu línumennina í deild-
inni hálft ár að ná almennilegri fót-
festu og ég get tekið dæmi um Wis-
lander. Kiel vildi selja hann eftir
hálft ár og allir vita hvernig ferill
hans var hjá Kiel. Kervadec var
sömuleiðis lengi að komast í gang hjá
okkur og staðan hjá Fúsa er svipuð,“
sagði Alfreð við Morgunblaðið.
Magdeburg á erfitt verkefni í upp-
hafi móts en í fyrstu fjórum umferð-
unum mætir liðið Lemgo, Flensburg
og Essen, allt liðum sem spáð er að
fari í toppbaráttuna.
Sigfús Sigurðsson er ánægður í vistinni hjá Magdeburg
Get ekkert ann-
að en bætt mig
Morgunblaðið/Golli
Sigfús Sigurðsson í hörðum slag á línunni með íslenska landsliðinu gegn Makedóníu í vor. Hann
reiknar með því að standa í ströngu með sínu nýja félagi, Magdeburg, næstu mánuði.
KEPPNI í þýsku Bundesligunni í
handknattleik hefst von bráðar
og um aðra helgi verður fyrsta
umferðin leikin. Sigfús Sigurðs-
son, línumaðurinn stóri og
sterki, hefur bæst í hóp þeirra
íslensku leikmanna sem spila í
deildinni og alls verða því átta
Íslendingar í eldlínunni í þessari
sterkustu deild í heimi, sjö leik-
menn og þjálfarinn Alfreð Gísla-
son. Sigfús gekk til liðs við
Magdeburg í sumar frá Val og
honum er ætlað að fylla skarð
franska línumannsins Gueric
Kervadec sem sneri heim til
Frakklands í vor.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar