Morgunblaðið - 08.10.2002, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2002 C 19HeimiliFasteignir
Útreikn-
ingar á
greiðslu-
mati
GREIÐSLUMATIÐ sýnir há-
marksfjármögnunarmöguleika með
lánum Íbúðalánasjóðs miðað við
eigið fé og greiðslugetu umsækj-
enda. Forritið gerir ráð fyrir að
eignir að viðbættum nýjum lánum
s.s. lífeyrissjóðslánum eða banka-
lánum til fjármögnunar útborgun-
ar séu eigið fé umsækjenda og séu
10, 30 eða 35% heildarkaupanna.
Síðan eru hámarksfjármögnunar-
möguleikar hjá Íbúðalánasjóði
reiknaðir út miðað við eigið fé, há-
marksgreiðslugetu til að greiða af
íbúðalánum og vaxtabætur.
Útreikningur á greiðslugetu:
Heildartekjur
-skattar
-lífeyrissjóður og félagsgjöld
-framfærslukostnaður
-kostnaður við rekstur bifreiðar
-afborganir annarra lána
-kostnaður við rekstur fasteign-
ar
=Ráðstöfunartekjur/hámarks-
geta til að greiða af íbúðalánum
Á greiðslumatsskýrslu kemur
fram hámarksgreiðslugeta um-
sækjenda til að greiða af íbúða-
lánum og eigið fé umsækjenda.
Þegar umsóknin kemur til Íbúða-
lánasjóðs fylgir henni yfirlit yfir
greiðslubyrði af yfirteknum og nýj-
um lánum í kauptilboði. Hámarks-
greiðslugeta skv. greiðslumats-
skýrslunni er þá borin saman við
raun greiðslubyrði á kauptilboði og
eigið fé í greiðslumatsskýrslu borið
saman við útborgun skv. kauptil-
boði. Eftir atvikum getur þurft að
reikna vaxtabætur m.v. raunveru-
legt kauptilboð aftur þegar um-
sókn er skilað til Íbúðalánasjóðs.
Verð eignarinnar og samsetning
fjármögnunar getur svo verið önn-
ur en gert er ráð fyrir í greiðslu-
mati eftir því hvaða mögulega
skuldasamsetningu hin keypta eign
býður upp á. Ekki er gert ráð fyrir
að umsækjendur endurtaki
greiðslumatið ef aðrar fjármögn-
unarleiðir eru farnar en gengið er
út frá í greiðslumati.
Tökum dæmi:
Umsækjandi sem er að kaupa
sína fyrstu eign gæti t.d. fengið
greiðslumat sem sýnir hámarks-
verð til viðmiðunar 7.000.000 kr.
miðað við 2.100.000 í eigið fé og há-
marksgreiðslugeta hans væri
40.000 kr. þegar allir kostnaðarlið-
ir hafa verið dregnir frá tekjunum.
Þessi umsækjandi gæti svo
keypt íbúð fyrir 8.000.000 án þess
að fara í nýtt greiðslumat ef for-
sendur hans um eignir og greiðslu-
getu ganga upp miðað við nýja
lánasamsetningu.
Dæmi:
Kaupverð 8.000.000
Útborgun 2.080.000
Fasteignaveðbréf 5.600.000
(70%, greiðslubyrði m.v. 25 ára lán
= 33.000 á mánuði)
Bankalán 320.000 (greiðslubyrði
t.d. 10.000 á mánuði)
Það er ljóst ef kauptilboð, yfirlit
yfir greiðslubyrði yfirtekinna og
nýrra lána í kauptilboði og
greiðslumatsskýrsla er borin sam-
an án þess að farið sé í nýtt
greiðslumat að þessi kaup eru inn-
an ramma greiðslumatsins þrátt
fyrir að stungið hafi verið upp á
7.000.000 íbúðarverði m.v. upphaf-
legar forsendur. Útborgunin er
innan marka eigin fjár hans og
greiðslubyrði lánanna innan marka
greiðslugetunnar.
Fyrsta greiðsla er að jafnaði
talsvert hærri en síðari greiðslur,
hún er á þriðja reglulega gjalddaga
frá útgáfu fasteignaveðbréfsins (sé
um mánaðarlega gjalddaga að
ræða) og samanstendur af einnar
mánaðar afborgun, vöxtum frá
fyrsta vaxtadegi (a.m.k. þrír mán-
uðir) og vísitölu frá grunnvísitölu-
mánuði (a.m.k. þrír mánuðir).
Gjalddagar húsbréfalána Íbúða-
lánasjóðs geta verið mánaðarlega
eða ársfjórðungslega. Hægt er að
breyta gjalddögum lánanna eftir
útgáfu þeirra.
2ja herbergja
GRETTISGATA - STÚDÍÓ
Vorum að fá í sölu virkilega fallega stúdíó-íbúð í
hjarta Reykjavíkur. Íbúðin er 48,3 fm að stærð
og er með sérinngangi. Arinn sem er í íbúðinni
setur fallegan svip á íbúðina. Sjón er sögu ríkari.
V. 7,3 m. 5192
SÓLVALLAGATA - HUGGULEG
Falleg 50 fm, lítið niðurgrafin kjallaraíbúð í fal-
legu steinhúsi. Íbúðin er með sérinngangi og er
óvenju rúmgóð. Fallegir skrautlistar í loftum og
gluggum. Nýlegir gluggar og gler. Sérlega góð
staðsetning. V. 7,8 m. 5180
VALLARÁS - STÚDÍÓ
Mjög falleg 45 fm stúdíó-íbúð á 4. hæð í nýlegu
lyftuhúsi. Húsið er klætt að utan og sameign lít-
ur vel út. Svalir í suðvestur. Íbúðin getur af-
hendst fljótlega. V. 7,1 m. 5044
Landsbyggðin
STYKKISHÓLMUR
Einbýlishús við Skólastíg um 112 fm á tveimur
hæðum auk þess bílskúr um 31 fm. Húsið er vel
staðsett. V. 7,2 m. 2947
GEITHÁLS
Tæpir 4 hektarar af skógi vöxnu landi með litlu
sumarhúsi og gróðurhúsi. Tjörn í miðju landi.
Eigandi hefur sett gífurlega vinnu í ræktun
landsins í 25 ár. Tilboð 5132
Fyrirtæki
GISTIHEIMILI - REYKJAVÍK
Höfum til sölu 19 íbúða íbúðahótel þar sem allar
íbúðirnar eru í sama húsi. Íbúirnar eru af stærð-
inni 38 til 68 fm og eru allar samþykktar. Eignin
er ríkulega búin húsgögnum og búðnaði.Góð
viðskiptasambönd bæði innan lands sem utan.
5081
GISTIHEIMILI - REYKJAVÍK
Húsnæðið er um 400 fm með gistirými fyrir 40
manns. Starfsemin rekin allt árið og er með
góðri og vaxandi nýtingu, góð viðskiptasam-
bönd. Húsnæðið er vandað og vel innréttað og
er m.a. með morgunverðarsal og nokkur bað-
herbergi og glæsilegur garður. 1703
Til leigu
LAUFÁSVEGUR - SÉRHÆÐ
Höfum til leigu glæsilega 184 fm sérhæð í ný-
legu steinhúsi við Laufásveg. Íbúðin leigist með
eða án húsgagna. Góð staðsetning og útsýni.
Laus fljótlega. 5175
HVERFISGATA - VERSLUN
Um 60 fm verslunarhúsnæði á götuhæð. Góð
staðsetning neðarlega við Hverfisgötu. Hús-
næðið er steinhús og er með stórum útstillingar-
gluggum. 5100
Atvinnuhúsnæði
AKRALIND
Mjög vel staðsett iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði
um 1100 fm innst í götu. Húsnæðið er á tveimur
hæðum og er nú án milliveggja. Stórar inn-
keyrsludyr og mikil lofthæð á báðum hæðum.
5209
HALLARMÚLI - ÁRMÚLI
Tvær efstu hæðirnar í iðnaðar- og skrifstofuhúsi
alls um 780 fm. Önnur hæðin er í leigu og hin er
laus. Lyfta er í húsinu - gott útsýni. Húsnæði
sem býður upp á mikla möguleika. Góð kjör
bjóðast. 5208
VIÐ BÁTAHÖFN
Á bakkanum við höfnina í Bryggjuhverfinu við
Gullinbrú er glæsilegt skrifstofuhús á fjórum
hæðum en grunnflötur hússins er ca 500 fm.
Sérstæð og falleg staðsetning. Mikið af bíla-
stæðum. Aðstoð veitt við fjármögnun eða leigu.
Húsinu má skipta niður í smærri einingar . 3394
SUÐURHRAUN - LEIGUSAMN-
INGUR
Nýtt fullgert lager- og skrifstofu húsnæði um
525 fm með milliloft. Húsið að innan sem utan
ásamt lóð er fullfrágengið. 5104
BÆJARLIND - LEIGUSAMN-
INGUR
Húsnæðið er um 930 fm á götuhæð með stór-
um gluggum og er einstaklega sýnilegt frá mikilli
umferðargötu. Traustur leigutaki. Ein besta
staðsetningin í Bæjarlind. 5103
LÓNSBRAUT HF.
Nýlegt húsnæði með stórum innkeyrsludyr-
um og tveim milliloftum. Grunnflötur ca 60
fm en með milliloftum hátt í 100 fm. Góð
lán fylgja. V. 7,3 m. 5221
VANTAR - MIÐBORGIN
1. Leitum að ca 70 til 120 fm verslunarhús-
næði sem hentar fyrir gullsmið á Laugavegi
neðarlega eða Skólavörðustíg.
2. Húsnæði er allt að 100 fm sem hægt
væri að leiga út í pörtum. 3782
EYJAFJARÐASVEIT
Við Grund í Eyjafirði er sérlega skemmtilegt
parhús á 2 hæðum til sölu. Nýlegar innrétt-
ingar. Sérstök staðsetning. V. 8,5 m. 5214
Laufengi - 3ja herb - Grafar-
vogi 85,6 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í 3ja
hæða fjölbýli. Rúmgóð íbúð, með tveimur svefn-
herbergjum, stórri stofu, eldhúsi m/borðkrók og
flísalögðu baðherbergi með stóru sérsmíðuð bað-
kari/sturtu. Linoleum dúkur og flísar á gólfum. Úr
stofu er gengið út á góðar svalir í suður. Verð kr.
10,9 m
Hlíðarhjalli - 4ra herb. -
Kópavogi 116 fm, 4ra herbergja íbúð á 2.
hæð ásamt 25 fm bílskúr í fallegu húsið við Hlíð-
arhjalla í Kópavogi. Stór og rúmgóð stofa, eldhús
með borðkrók við útbyggðan glugga, tvö góð
barnaherbergi og stórt hjónaherbergi. Baðher-
bergi flísalagt í hólf og gólf. Verð kr. 16,4m - Áhv.
8,8 m
Víðiteigur - raðhús *NÝTT Á
SKRÁ* 3ja herbergja, 82,1 fm raðhús á
einni hæð með möguleika á stækkun. 2
rúmgóð svefnherb. með stórum skápum,
baðherb. flísalagt í hólf og gólf, stór
geymsla/þvottahús, rúmgóð stofa og eld-
hús með góðum borðkrók. Eikarparket og
flísar á gólfum. Úr stofu er gengið út á hellu-
lagða verönd og afgirtan suðvestur garð.
Verð kr. 12,7 m
Dvergholt - neðri sérhæð
*NÝTT Á SKRÁ* Björt og rúmgóð 163 fm, 5
herbergja neðri sérhæð með fallegu útsýni.
Eldhús með borðkrók, björt stofa, 4 svefn-
herbergi, baðherbergi með kari, þvottahús
og stórt geymslurými. Íbúðinni fylgir einnig
37 fm vinnuherbergi/geymsla sem gefur
ýmsa möguleika. Stutt í alla þjónustu, skóla
og hesthús. Verð kr. 16,2 m
Helgaland - parhús m/bílskúr
160 fm parhús á tveimur hæðum ásamt 25 fm
innbyggðum bílskúr með stórum garði. Eldhús,
búr, stofa, borðstofa, forstofa og salerni á efri
hæð, 5 svefnherbergi, baðherbergi, góð geymsla
og þvottahús á neðri hæð. Bílastæði hellulagt
m/snjóbræðslu, góð verönd og stór garður í suð-
vestur. Verð kr. 18,9 m
Grundartangi - raðhús Fallegt
80,4 fm, 3ja herbergja raðhús með fallegum
garði í Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í tvö svefn-
herbergi með góðu skápaplássi, baðherbergi
flísalagt í hólf og gólf, stóra geymslu/þvotta-
hús og rúmgóða stofu og eldhús. Fallegur
garður í suður með timburverönd og miklum
gróðri. Verð kr. 13,5m
Merkjateigur - Parhús
m/aukaíbúð 110 fm íbúð í 2ja hæða tví-
býlishúsi ásamt 68 fm ósamþykktri aukaíbúð á
neðri hæð. Efri hæðin sem þarfnast viðhalds,
skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi og 3 svefn-
herbergi. Neðri hæðin er í ágætu ástandi, 3 svefn-
herbergi, baðherbergi, eldhúskrókur og stofa.
Verð kr. 16,2 - Áhv. 9,5 m.
Skriða - einbýli + 1 ha - Kjal-
arnes Einbýlishúsið Skriða, sem staðsett er
undir rótum Esjunnar við Kollafjörð er til sölu.
Húsið sem er 205 fm á 3 hæðum er staðsett á
10.000 fm lóð. Eignin er tilvalin fyrir t.d. áhugafólk
um hestamennsku eða trjárækt. Þetta er einstök
staðsetning með fallegu útsýni. Verð kr. 18,5 m.
Áhv. 9,8 m.
Stóriteigur - raðhús 240 fm rað-
hús á 3 hæðum ásamt 22 fm bílskúr. Á jarð-
hæð er rúmgott eldhús m/borðkrók, stór
stofa og setustofa, og gestasalerni. Á 2. hæð
eru 4 svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara
eru 3 herbergi, auk mikils geymslurýmis. Fal-
legur suðvestur garður. Fallegt hús, mið-
svæðis í Mosfellsbæ. Verð kr. 19,2 m
Helgugrund - Einb. - Kjalar-
nesi 183,4 fm steinsteypt einbýlishús með bíl-
skúr á Kjalarnesi. Góð hönnun. 4-5 svefnherbergi,
stórt eldhús og stofa. Innbyggður bílskúr, innang.
úr þvottahúsi. Húsið afhendist fokhelt m/stuttum
fyrirvara Verð 12 m.
Völuteigur - iðnaðarhúsnæði
Vorum að fá í sölu nýtt iðnaðarhúsnæði á góðum
stað. Hægt að skipta húsnæðinu niður í 125-750
fm bil. Góðar innkeyrsluhurðar, mikil lofthæð og
möguleiki á millilofti. Góð staðsetning við Móa-
stöðina, Reykjagarð og Atlanta. Nánari upplýsing-
ar á skrifstofu.
Svöluhöfði - Einbýlishús Vor-
um að fá í sölu 125,7 fm einbýlishús í bygg-
ingu, ásamt 27,6 fm bílskúr, við Svöluhöfða í
Mosfellsbæ. Húsið verður staðsteypt, á einni
hæð, útveggir verða einangraðir og klæddir
með Jatoba viðarklæðningu og bárujárni.
Húsið afhendist rúmlega fokhelt í janúar
2003.
Hlíðarás - stórt og fallegt
einbýli með tvöf. bílskúr Stórt
og mikið 407 fm einbýlishús á tveimur hæðum
með tvöföldum bílskúr. Fallegt endahús í botn-
langa við óbyggt svæði með gríðarmiklu útsýni
yfir Mosfellsbæ. Íbúðin er 362 fm ásamt 45 fm
tvöföldum bílskúr. Í íbúðinni er arinn og pottur.
Fallegt hús með möguleika á að gera aukaíbúð
á neðri hæð. Verð kr. 29,5 m
Krókabyggð – glæsilegt parhús
*NÝTT Á SKRÁ* Sérlega glæsilegt
186 fm 2 h. parhús ásamt 34 fm
bílsk. með fallegum garði. Á jarð-
hæð er glæsilegt eldhús úr kirsu-
berjavið með góðum Gaggenau
tækjum, stór stofa, setustofa,
þvottahús m/sérútgangi og gesta-
salerni. Á annarri hæð er stórt
hjónaherbergi, þrjú stór barnaher-
bergi og baðherbergi m/sturtu og
baði. Parket og físar á gólfum. Heit-
ur pottur úti á 30 fm svölum. Verð
kr. 24,5 m.
Brattholt – endaraðhús
*NÝTT Á SKRÁ* 131 fm endaraðhús
á 2 hæðum í barnvænum stað í
miðju Mosfellsbæjar. Hjónaherbergi,
eldhús og stórt stofa/borðstofa á 1.
hæð, 2 svefnherbergi, sér þvottahús
og fallegt baðherbergi m/sauna á
jarðhæð. Flísar og parket á gólfu.
Úr stofu er gengið út í lítinn suðurg-
arð. Stutt í alla þjónustu, skóla og
leikskóla. Verð kr. 14,9 m.
Stóriteigur - raðhús m/bílskúr
*NÝTT Á SKRÁ* 118 fm raðhús á
einni hæð ásamt 28 fm bílskúr og
50 fm ósamþykktum kjallara í grónu
hverfi í Mosfellsbæ. Á jarðhæð eru 3
svefnherbergi, eldhús með nýrri
kirsuberja innréttingu, stór stofa
með parketi á gólfi, baðherbergi,
gestasalerni og forstofa. Í kjallara er
stórt vinnurými/leikherbergi, góð geymsla og þvottahús. Rúmgott hús sem
bíður upp á mikla möguleika. Verð kr. 18,2 m - Áhv. 9,4 m.
Klapparhlíð - 4ra herbergja
*NÝTT Á SKRÁ* Sérlega glæsileg
99 fm, 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í
nýju fjölbýli með sérinngangi. Rauð
eik á öllum gólfum en flísar á baði,
þvottahúsi og náttúrusteinn á for-
stofu. Vandaðar mahóní-innréttingar
í eldhúsi og svefnherbergjum. Úr
stofu er gengið út á stórar svalir
með mjög miklu útsýni til Reykjavík-
ur og yfir sundin. Verð kr. 15,9 m,
áhv. 9,3 m húsbréf.