Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 2

Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 2
ÍÞRÓTTIR 2 B FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin: Ásvellir: Haukar – Breiðablik ..............19.15 Stykkish.: Snæfell – Tindastóll ............19.15 Hlíðarendi: Valur – UMFG ..................19.15 1. deild kvenna: Keflavík: Keflavík – UMFG .................19.15 Kennaraháskóli: ÍS – Haukar ..............20.15 Í KVÖLD HANDKNATTLEIKUR Grótta/KR - KA 23:24 Íþróttamiðstöðin Seltjarnarnesi, 1. deild karla, Esso-deild, miðvikudaginn 9. októ- ber 2002. Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 5:3, 6:6, 8:9, 10:9, 11:13, 11:16, 12:18, 13:20, 14:21, 17:21, 20:22, 21:24, 23:24. Mörk Gróttu/KR: Alexanders Petersons 10, Dainis Tarakanovs 4/1, Davíð Ólafsson 2, Kristján Þorsteinsson 2, Gísli Kristjáns- son 2, Páll Þórólfsson 2/1, Alfreð Finnsson 1. Varin skot: Hlynur Morthens 6 (þar af 3 til mótherja), Kári Garðarsson 6/1 (þar af 1/1 til mótherja). Utan vallar: 4 mínútur. Mörk KA: Arnór Atlason 9/3, Andreus Stelmokas 5, Einar Logi Friðjónsson 4, Jónatan Magnússon 3, Baldvin Þorsteins- son 2, Hilmar Stefánsson 1. Varin skot: Egidijus Petkevicius 16/1 (þar af 4 til mótherja). Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guð- jónsson, ágætir. Áhorfendur: Um 180. Staðan: Valur 5 4 1 0 141:103 9 Haukar 6 4 0 2 180:144 8 Þór 5 4 0 1 140:113 8 KA 5 3 1 1 139:133 7 ÍR 5 3 0 2 151:139 6 HK 5 3 0 2 148:140 6 FH 5 3 0 2 144:138 6 Stjarnan 5 3 0 2 130:136 6 Grótta/KR 6 2 1 3 142:137 5 Afturelding 5 2 0 3 113:131 4 Fram 5 1 1 3 123:139 3 ÍBV 5 1 1 3 114:147 3 Víkingur 5 0 1 4 134:156 1 Selfoss 5 0 0 5 112:155 0 Bikarkeppni kvenna SS-bikarinn, 16-liða úrslit: Fram-2 - Fylkir/ÍR............................... 12:21 KA/Þór - Grótta/KR............................. 25:21 Víkingur - FH ....................................... 23:24  Eftir framlengingu.  Fylkir/ÍR, KA/Þór, FH og Fram eru komin í 8-liða úrslitin en Haukar, ÍBV, Stjarnan og Valur sátu hjá og komust beint þangað. Þýskaland Bikar, 2. umferð, helstu úrslit: Wilhelmshavener - Kiel ....................... 21:23 Minden - N-Lübbecke.......................... 27:28 Magdeburg - Tarp-Wanderup ............ 41:21 Östringen - Wallau-Massenheim ........ 21:23 Potsdam - Lemgo ................................. 20:40 Köthen - Nordhorn............................... 20:37 Leutershausen - Pfullingen................. 22:23 Göppingen - Wetzlar ............................ 23:19 Albstadt - Friesenheim........................ 15:32 Varel - HSV Hamburg ......................... 20:24 DHK Flensburg - Flensburg .............. 18:42 Hemsbach - Grosswallstadt ................ 20:34 Balingen - Willst./Schutterw............... 26:35 Mönchengladbach - Gummersbach .... 24:36 Glauchau - Essen.................................. 14:43 Solingen - Eisenach.............................. 36:30 KÖRFUKNATTLEIKUR Njarðvík - KR 59:77 Íþróttamiðstöðin Njarðvík, 1. deild kvenna, miðvikudaginn 9. október 2002. Gangur leiksins: 2:0, 4:2, 5:6, 7:12, 14:15, 14:19, 16:20, 21:22, 26:32, 29:37, 32:46, 36:46, 39:48, 45:54, 50:62, 53:64, 53:70, 53:74, 59:77. Stig Njarðvíkur: Sacha Montgomery 28, Auður Rósalind Jónsdóttir 8, Guðrún Ósk Karlsdóttir 7, Sæunn Sæmundsdóttir 5, Fjóla Eiríksdóttir 5, Pálína Heiða Gunn- arsdóttir 3, Dianna Björk Jónsdóttir 2, Ásta Mjöll Óskarsdóttir 1. Fráköst: 15 í vörn – 31 í sókn. Stig KR: Gréta Grétarsdóttir 22, Helga Þorvaldsdóttir 14, Hildur Sigurðardóttir 8, Hanna Kjartansdóttir 8, María Káradóttir 8, Guðrún Sigurðardóttir 8, Tinna Sig- mundsdóttir 3, Georgía Kristenssen 2, Sara Smart 2, Hafdís Gunnarsdóttir 2. Fráköst: 11 í vörn – 43 í sókn. Villur: Njarðvík 27 – KR 15. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Þröstur Ástþórsson. Áhorfendur: Um 100. KNATTSPYRNA Spánn Real Betis - Real Madrid ......................... 1:1  Leik liðanna frá 14. september sem var hætt eftir 43 mínútur vegna bilunar í fljóð- ljósum, var haldið áfram og leiknar þær 47 mínútur sem eftir voru. Raúl jafnaði þá fyr- ir Real Madrid, 1:1. Jóhannes Karl Guð- jónsson var ekki í leikmannahópnum hjá Real Betis. Fyrri hálfleikurinn var í járnum,heimamenn sprækari framan af en hið unga lið KA tók við sér smátt og smátt, vel var farið út á móti Alexanders Petter- sons og þegar hans naut lítt við í sókn- inni virtust aðrir leikmenn ragir við að taka af skarið. Heimamenn gripu fljótlega til þess ráðs að færa hann á miðjuna í sókninni og gafst það svo sem ágætlega. Vörn heimamanna var þó allt í lagi framan af enda gerðu gestirnir að- eins tvö mörk úr fyrstu átta sókn- unum. Arnór Atlason var lengi að finna sig, fyrstu þrjú skotin hans misfórust en hann lét það ekki trufla sig mikið og hélt bara áfram að reyna og það skilaði níu mörk- um þegar upp var staðið. Lokakafli fyrri hálfleiks og upp- haf þess síðari komu heimamönn- um í koll því á þessum kafla gerðu þeir aðeins tvö mörk á móti níu og staðan var orðin 12:18 þegar níu mínútur voru liðnar af síðari hálf- leik. Þá tóku heimamenn leikhlé enda aðeins búnir að gera eitt mark í síðari hálfleik. KA komst í 21:14 og sigur gestanna virtist tryggur. Leikreyndustu menn Gróttu/KR voru ekki alveg á sama máli og Pettersons tók til sinna mála ásamt Davíð Ólafssyni, sem kom inn á í síðari hálfleik og átti fínan leik í horninu. Pettersons gerði sjö mörk í síðari hálfleiknum og það fyrsta þeirra eftir þrettán mínútna leik. Sannarlega glæsileg- ur kafli hjá honum en hefði mátt koma fyrr. KA-menn slökuðu á klónni þeg- ar þeir töldu sigurinn í höfn, gerðu sig seka um kæruleysisleg skot og í vörninni gerðust þeir værukærari en áður og það nýtti Pettersons sér til fullnustu. Á lokakaflanum náðu gestirnir þó áttum áður en það varð um seinan fyrir þá, léku af skynsemi og héldu boltanum eins lengi og dómararnir leyfðu, sem var á stundum dálítið lengi að mati heimamanna. Pettersons fór á kostum í sókn- inni eins og áður segir en hefur oft leikið betur í vörn. Athylgi vakti hversu oft heimamenn skiptu um markvörð. Hlynur Morthens lék lungann af fyrri hálfleik en Kári Garðarsson kom inn á þegar heimamenn fóru úr flatri vörn í 3- 2-1 um tíma. Hann hélt áfram í síðari hálfleik en Hlynur tók vakt- ina er á hann leið og Kári síðan lokakaflan og þá varði hann vel. Hinum megin stóð Petkevicus í markinu allan leikinn og varði lengst af mjög vel. Arnór fann fjöl- ina sína þótt það tæki nokkurn tíma og Andrius Stelmokas var sterkur á línunni og í vörninni. Þar átti Egill Thoroddsen líka fínan leik og Þorvaldur Þorvaldsson læt- ur menn ekki komast upp með neinn óþarfa. Sókn KA er oft skemmtileg því boltinn gengur hratt á milli manna og mikil hreyfing er á öllum. Þessi hraði getur þó verið fullmikill fyrir liðið en á lokakaflanum í gær sýndu leikmenn að þeir geta hægt á sér og verið lengi í sókn ef þess þarf með. Endasprettur- inn kom of seint KA-MENN skelltu sér upp í fjórða sæti 1. deildarinnar í handknattleik karla í gærkvöldi með því að leggja Gróttu/KR 24:23 á Seltjarnarnesinu. Norð- anmenn höfðu þægilega stöðu um miðjan síðari hálfleik, 21:14, en heimamenn neituðu að gef- ast upp og náðu að minnka muninn, en ekki nóg að því þeim fannst og KA fagnaði sigri. Skúli Unnar Sveinsson skrifar Jónas þjálfar Þórsara JÓNAS Baldursson var í gær ráðinn þjálfari 1. deildarliðs Þórs í knattspyrnu og er samningur hans við félagið til þriggja ára. Jónas lék með Þór í úrvalsdeildinni í sumar og í 1. deild sumarið þar á undan auk þess að þjálfa annan flokk félagsins bæði árin. Áður en hann kom til félags- ins var hann spilandi þjálfari hjá Dalvík ingum. Þórsarar gerðu einnig samning við annan gamalkunnan félaga sinn, Júlíus Tryggvason um að hann þjálfaði annan flokk félagsins næsta sumar. Júlíus lék með KA í ár en missti af bróðurparti tímabilsins vegna meiðsla. Möguleiki er á að hann spili með Þórsurum á ný. Guðjón Valur með 15 mörk GUÐJÓN Valur Sigurðsson, landsliðsmaður í handknattleik, gerði sér lítið fyrir og skoraði 15 mörk fyrir Essen þegar lið hans vann yfirburðasigur á 3. deildarfélaginu Glauchau, 43:14, í 2. umferð þýsku bikarkeppninnar. Patrekur Jóhannesson, fyrirliði Essen, hafði hinsvegar hægt um sig í þessari flugeldasýningu og skoraði ekki mark. Magdeburg vann 3. deildarlið Tarp-Wanderup auðveldlega, 41:21. Ólafur Stefánsson gerði 3 mörk og Sigfús Sigurðsson var ekki á meðal markaskorara Magdeburg en Alfreð Gíslason þjálfari leyfði varamönnum að spreyta sig óspart í leiknum. Gylfi Gylfason skoraði 3 mörk fyrir Wilhelmshavener sem tapaði fyrir meisturum Kiel, 23:21, í hörkuleik. SKAGAMENN hafa framlengt samning sinn við framherjann Hjört Hjartarson um tvö ár. Hjört- ur er 28 ára gamall. Hann lék alla 18 leiki Akurnesinga í úrvalsdeild- inni í sumar og skoraði 6 mörk en á síðustu leiktíð varð hann marka- kóngur deildarinnar – skoraði 15 mörk. Að sögn Gunnars Sigurðs- sonar formanns Rekstrarfélags meistaraflokks karla eru tveir leik- menn til viðbótar í samningavið- ræðum um nýja samninga – Pálmi Haraldsson og Hálfdán Gíslason, en samningar þeirra renna út á næst- unni. Hjörtur áfram hjá ÍA RÓBERT Gunnarsson hélt upp- teknum hætti í dönsku úrvals- deildinni í gærkvöld þegar hann skoraði 10 mörk fyrir År- hus GF sem sigraði Otterup, 31:28. Róbert hefur skorað 36 mörk í fyrstu sex umferðum deildarinnar og er þriðji markahæsti leikmaður hennar. Þorvarður Tjörvi Ólafsson skoraði 2 mörk fyrir Århus GF í leiknum. Með sigrinum komst lið þeirra Róberts og Tjörva upp að hlið tveggja efstu lið- anna, GOG og Kolding, með 8 stig. Róbert gerði 10 mörk ALEX McLeish, knattspyrnustjóri Glasgow Rangers og fyrrverandi landsliðsmaður Skotlands, tekur undir með mörgum öðrum löndum sínum að Skotar eigi afar erfiðan leik fyrir höndum á Íslandi á laug- ardaginn. „Þetta verður hörkuleikur. Ég lék á Íslandi á sínum tíma og við unnum, 1:0, með marki frá Jim Bett. Það var virkilega erfiður leik- ur og ég tel að íslensk knattspyrna hafi tekið miklum framförum síðan þá. Það segir sitt um það verkefni sem nú bíður landsliðsins. Flestir leikmenn Íslands leika í efstu deildum víðsvegar um Evrópu. Ef skosku landsliðsmennirnir koma heim með eitt eða þrjú stig, verður það virkilega góður árangur,“ segir McLeish á heimasíðu Glasgow Rangers. McLeish spáir hörkuleik KÖRFUKNATTLEIKSSAMBAND Ís- lands hefur samið við Intersport á Ís- landi um að verða aðalstyrktaraðili úr- valsdeildar karla næstu þrjú keppnistímabil. Deildin mun því bera nafn fyrirtækisins, Intersport-deildin, en fyrstu þrír leikir hennar fara fram í kvöld, fimmtudagskvöld. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að nær allir leikir vetrarins hefjast kl. 19.1 en ekki kl. 20 eins og tíðkast hefur hing að til. Körfuknattleiksforystan fetar með þessu í fótspor knattspyrnunnar en þess leiktími var tekinn upp þar á nýliðnu tímabili og flestir leikir úrvalsdeildar karla hófust kl. 19.15. Intersport styrkir úrvalsdeildina  BJÖRGVIN Sigurbergsson, kylf- ingur úr Keili, lék í dag á móti á Europro mótaröðinni. Nokkuð hvasst var í dag og gekk ekki nógu vel hjá kappanum sem lék á 76 höggum, fimm höggum yfir pari. 21 keppandi lék undir pari í gær, bestir voru tveir breskir strákar sem léku hvor um sig á fimm höggum undir pari vallarins.  BJÖRGVIN hitti 12 af 14 braut- um, var tíu sinnum á flöt á réttum höggafjölda og púttaði 32 sinnum. Eftir daginn í dag verður keppend- um fækkað í um fimmtíu og fá þeir að halda áfram og leika til úrslita á föstudaginn. Björgvin er í 82.-97. sæti eftir fyrsta daginn en keppend- ur eru 120 talsins.  ÞAÐ vakti óneitanlega athygli á leik Gróttu/KR og KA í gærkvöldi að þeir tveir sem voru á ritaraborð- inu starfa mikið fyrir handknatt- leiksdeild félagsins og annar þeirra er víst formaður deildarinnar. Rétt er að taka fram að þeir stóðu sig alls ekki illa en þegar svona er ætti HSÍ að reyna að vera með eftirlitsmann á borðinu. Það er óþarfi að bjóða hættunni svona heim.  ÁGÚST Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR, virtist kunna þessu vel, altént nýtti hann sér ritaraborðið meira en eðlilegt getur talist af þjálfara. Þegar hans lið var í sókn kraup hann jafnan við ritaraborðið með annan olnbogann uppi á borð- inu. Þjálfarar liðanna eiga auðvitað ekki að vera þarna og dómararnir eiga að taka á slíku eftir vísbendingu frá þeim sem á ritaraborðinu eru hverju sinni.  KA/ÞÓR sigraði Gróttu/KR, 25:21, í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handknattleik á Akureyri í gærkvöld. Ásdís Sigurðardóttir skoraði 7 mörk fyrir Akureyrarliðið og Inga Dís Sigurðardóttir 6 en Þórdís Brynjólfsdóttir var atkvæða- mest hjá Gróttu/KR með 7 mörk og Eva Hlöðversdóttir kom næst með fjögur mörk.  FH-KONUR komust einnig áfram í bikarnum en þær unnu Víking, 24:23, í framlengdum leik í Víkinni þar sem staðan var 21:21 eftir venju- legan leiktíma. Harpa Vífilsdóttir skoraði 7 marka FH og Björk Æg- isdóttir 6 en Gerður Beta Jóhanns- dóttir skoraði 7 mörk fyrir Víking.  HLYNUR Jóhannesson og félagar í Stord sigruðu Fyllingen, 26:25, í norsku úrvalsdeildinni í handknatt- leik í gærkvöld. Hlynur lék lítið með að þessu sinni en hinn markvörður liðsins átti stórleik og var valinn maður leiksins. Stord er í þriðja sæti, á eftir Runar og Stavanger, með 8 stig. FÓLK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.