Morgunblaðið - 10.10.2002, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 B 3
MICHAEL Ballack og Christoph
Metzfelder geta ekki leikið með
Þjóðverjum í vináttulandsleik gegn
Bosníu í Sarajevo á morgun. Báðir
eru þeir meiddir og setur það strik í
reikning Rudi Völlers, landsliðs-
þjálfara, sem vill með leiknum við
Bosníu búa lið sitt undir viðureign-
ina við Færeyinga í undankeppni
EM á miðvikudaginn í næstu viku.
DAVID Dean, varaforseti stjórnar
Arsenal, segir að áhugi sé fyrir því
að bjóða Arsene Wenger, núverandi
knattspyrnustjóra, sæti í stjórn fé-
lagsins þegar að því kemur að hann
hættir í núverandi starfi sínu. Weng-
er á enn fjögur ár eftir af samningi
sínum. Einnig standi til að gera
Wenger að tæknilegum ráðgjafa fé-
lagsins. „Wenger hefur bylt öllu inn-
an félagsins og breytt því til betri
vegar,“ segir Dean. „Wenger er ein-
faldlega einstakur maður og því höf-
um við áhuga á að hafa hann innan
félagsins svo lengi sem verða má.“
LUCIANO, knattspyrnumaður frá
Brasilíu og leikmaður Chievo á Ítal-
íu, hefur verið úrskurðaður í bann af
ítalska knattspyrnusambandinu fyr-
ir að villa á sér heimildir. Hann hef-
ur undanfarin tvö ár leikið með fé-
laginu undir nafninu Eriberto.
ÍTALSKIR fjölmiðlar fullyrða að
Luciano sé kominn í sjö mánaða
bann en það hefur ekki verið stað-
fest af sambandinu. Hann kvaðst
vera 21 árs þegar hann kom til
Chievo en var þá í raun og veru 25
ára.
NORSKU auðmennirnir Bjørn
Rune Gjelsten og Kjell Inge Røkke
hafa ekki hagnast á kaupum sínum á
hlut í enska knattspyrnufélaginu
Wimbledon fyrir 5 árum. Gjelsten
segir að ef þeim félögum tækist að
selja hlut sinn í dag yrði tapið ekki
undir 5 milljörðum króna. Harla lítil
stemmning er í kringum liðið eftir að
það féll úr ensku úrvalsdeildinni fyr-
ir rúmum tveimur árum og til að
mynda voru aðeins 940 stuðnings-
menn Wimbledon í hópi 3.238 áhorf-
enda á síðasta heimaleik liðsins,
gegn Ipswich um síðustu helgi, en
hann fór fram að Selhurst Park.
FÓLK
Það var fátt í leik heimamannasem minnti á leik liðsins á
sunnudaginn var en liðin mættust
þá í góðgerðarleik
KKÍ. Þá unnu
heimastúlkur og
urðu meistarar
meistaranna. KR-
ingar virðast ekki hafa ætlað að
láta þann atburð henda sig og léku
í alla staði betur og sem ein liðs-
heild, ólíkt andstæðingnum.
Í upphafi leiks gekk þó ekkert
hjá KR. Fyrstu fjórar sóknirnar
fóru út um þúfur. Jafnræði var með
liðunum í fyrsta leikhluta en fljót-
lega sást hvert stefndi. Gestirnir
sigu fram úr og juku forskot sitt
jafnt og þétt. Njarðvíkingar náðu
ekki almennilega saman á vellinum
og mikið munaði um að erlendi
leikmaður liðsins, Sacha Montgom-
ery, var langt frá sínu besta, enda
varla stigin upp úr veikindum. Hún
bætti sig þó í þriðja leikhluta og
skoraði í honum ein 19 stig, þar af
3 þriggja stiga körfur. Aðrir leik-
menn í liði Njarðvíkur stóðu henni
langt að baki í stigaskori.
Í seinni hálfleik reyndu Njarð-
víkurstúlkur að saxa á forskot KR-
inga en það reyndist þeim ofviða í
þetta sinnið.
Hjá KR var Gréta Grétarsdóttir
stigahæst með 22 stig og lék vel í
sókn og vörn. Það sama má segja
um Helgu Þorvaldsdóttur sem átti
góða spretti.
Hjá Njarðvík var það Sacha
Montgomery sem var langstiga-
hæst með 28 stig og var potturinn
og pannan í leik liðsins.
KR sneri
við blaðinu
í Njarðvík
ÍSLANDSMÓTIÐ í körfuknattleik kvenna hófst með leik Njarðvík-
inga og KR-inga í Njarðvík í gærkvöldi. KR hafði betur, 77:59, en
staðan í leikhléi var 37:29, Íslandsmeisturum KR í hag. Hinir tveir
leikirnir í fyrstu umferð verða leiknir í kvöld en þá mætast Keflavík
og Grindavík í Keflavík og ÍS tekur á móti Haukum í íþróttahúsi
Kennaraháskólans.
Kristján
Jóhannsson
skrifar
Blaðamaður staðarblaðsinsFædrelandsvennen, Övind
Holte, hefur tekið saman árangur
liðsins undir stjórn Guðjóns og
kemst að þeirri niðurstöðu að vont
hafi aðeins versnað eftir komu Ís-
lendingsins. Start hefur ekki staðið
eins illa í efstu deild í 33 ár og segir
eftirmaður Guðjóns, Bård Wiggen,
að Start falli að þessu sinni með lítilli
sæmd.
Guðjón Þórðarson hafði í hyggju
að stoppa í götin í hriplekri vörn liðs-
ins er hann kom til starfa. Hann
breytti leikskipulaginu og setti fimm
menn í vörn. Þessi breyting átti að
skapa traustan grunn fyrir fram-
haldið en skilaði engu. Liðið hefur
fengið á sig 31 mark eftir að Guðjón
tók við eða 3,1 mark að meðaltali.
Wiggen segir að ekki megi skella
skuldinni eingöngu á leikskipulagið,
því leikmenn liðsins hafi lítið sjálfs-
traust og fái mörk á sig í stað þess að
jafna metin.
Versta úrvalsdeildarlið
sögunnar
Uppskeran er því rýr er rýnt er í
stigatöfluna því Guðjón hefur aðeins
náð að krækja í fjögur stig.
Fyrirliði liðsins, Helge Bjønsaas,
segir að Start sé versta úrvalsdeild-
arlið sögunnar, og í viðtali við stað-
arblaðið segir hann að tímabilið hafi
verið „hörmung“ frá upphafi til enda.
Er Bjønsaas var inntur eftir því
hvort Guðjón hafi breytt hlutum til
hins verra segir fyrirliðinn. „Til þess
að skapa vinnufrið í liðinu út leiktíð-
ina kýs ég að svara ekki spurning-
unni,“ segir Bjønsaas. Skortir þig
kjark til þess að svara? spyr blaða-
maðurinn þá. „Guðjón hefur sett upp
ákveðin atriði og plön sem okkur hef-
ur ekki tekist að framkvæma úti á
vellinum,“ sagði fyrirliðinn á diplóm-
atískan hátt.
Takist Start ekki ná í þrjú stig í
næstu tveimur umferðum verður lið-
ið stimplað á afturendann sem slak-
asta úrvalsdeildarlið sögunnar en
Oslóarliðið Skeid náði aðeins 13 stig-
um árið 1997.
Sóknarleikurinn
fær falleinkunn
Leikmannakaup Guðjóns eru
einnig nefnd til sögunnar og þar er
fyrst Ricardas Beniusis nefndur til
sögunnar, auk þeirra Arnold Schwel-
lensattl og Guðna Rúnars Helgason-
ar. Enginn þeirra hefur skorað fyrir
liðið og þeir tveir síðastnefndu hafa
vermt varamannabekk liðsins í und-
anförnum leikjum.
Sóknarleikur liðsins fær einnig
falleinkunn í Fædrelandsvennen.
Liðið hefur skorað átta mörk sl. átta
vikur, og ekkert lið er verra í þeirri
tölfræði á þessum tíma. Alls hefur
liðið skorað 21 mark í deildinni og
bæti liðið ekki við sjö mörkum í
næstu tveimur leikjum er enn eitt
metið þeirra. Sogndal skoraði 26
mörk í efstu deild árið 1998 og er það
met hvað fæst mörkin varðar í 14 liða
deild.
Versta
tímabilið
í sögunni
hjá Start
UNDIR stjórn Guðjóns Þórðarsonar hefur norska liðið Start ekki
náð sér á strik í norsku úrvalsdeildinni, en stefnir þess í stað á að
eignast flest þau met sem fæstir knattspyrnuþjálfarar, leikmenn og
stuðningsmenn kæra sig ekki um að eiga. Guðjón var íslenski
bjargvætturinn sem átti að bjarga Start frá falli í norsku úrvals-
deildinni en í stað þess er liðið fallið og er þetta versta tímabil þess
í efstu deild frá upphafi.
EITT Íslandsmet og þrjú heimsmet
fatlaðra féllu á sprettsundsmóti
ÍBV sem háð var í Eyjum um sl.
helgi. 230 keppendur frá átta fé-
lögum kepptu á mótinu, þar á með-
al Örn Arnarson, sem keppti fyrir
sitt nýja félag í fyrsta sinn, ÍRB, og
Kolbrún Ýr Kristjánsóttir, ÍA.
Örn var í sigursveit ÍRB sem
bætti 11 ára gamalt Íslandsmet í
4x50 metra fjórsundi. Sveitin kom í
mark á 1.48,18 mínútum en sveitina
skipuðu auk Arnar þeir Guðlaugur
Már Guðmundsson, Magnús Sveinn
Jónsson og Birkir Már Jónsson.
Gamla metið var sett í Eyjum árið
1991 af Sundfélagi Suðurness.
Þrjú heimsmet féllu í flokki fatl-
aðra og setti Bjarki Birgisson,
Fjölni, tvö þeirra í 50 og 100 metra
bringusundi. Þá setti Kristín Rós
Hákonardóttir heimsmet í 50 m
skriðsundi.
ÍRB bætti
11 ára met
Morgunblaðið/Kristinn
Arnór Atlason, KA-maður, tekur hér hraustlega á móti Gísla
Kristjánssyni, leikmanni Gróttu/KR, í leiknum í gærkvöld.
u
n
s
k-
r
n
ð
15
g-
ð
si
r