Morgunblaðið - 10.10.2002, Síða 4
Keflvíkingar verða meistarar, þaðer alveg klárt mál,“ sagði Svali í
samtali við Morgunblaðið. „Raunar
er rétt að taka fram
að þessar vangavelt-
ur mínar eru miðað-
ar við hvernig liðin
eru skipuð núna.
Maður veit aldrei hvað gerist með er-
lenda leikmenn – hverjir fara eða
koma. Grindvíkingar verða tvímæla-
laust með í meistarabaráttu, þar sem
þeir hafa styrkt leikmannahóp sinn.
Bjarni Magnússon og Guðmundur
Bragason eru komnir til þeirra, auk
þess sem þeir hafa fengið Englend-
ing, sem er nokkuð lunkinn.
Herbert í nýtt hlutverk
Þá verða KR-ingar einnig ofarlega
í deildinni, þó svo að þeir séu búnir að
missa leiðtogann Keith Vassell og
einnig Jón Arnór Stefánsson – og
munar um minna. Hins vegar eru Óð-
inn Ásgeirsson og Skarphéðinn
Ingason komnir til liðs við KR-inga,
þannig að þeir eiga að vera sterkir.
Það mun mikið mæða á Herberti
Arnarsyni, þar sem hann er allt í einu
orðinn leiðtogi í liðinu.
Njarðvík hefur misst
sterka leikmenn
Njarðvíkingar verða í fjórða til
fimmta sæti. Þeir eru búnir að missa
sterka leikmenn, eins og Loga Gunn-
arsson og Brenton Birmingham, og
hafa ekki mannskap til að taka við.
Það kæmi mér virkilega á óvart ef
Njarðvíkingar myndu ekki sækja
einhvern erlendan leikmann þegar
fram í sækir og hver veit nema Teit-
ur Örlygsson hætti við að hætta þeg-
ar líður á tímabilið. Það mun mikið
mæða á Peter Philo í vetur en hann
lék frábærlega í meistaraleiknum um
daginn.
Eggert kominn á ný til ÍR
Ég held líka að ÍR-ingar verði of-
arlega þrátt fyrir að það sé ekki hefð
fyrir því á þeim bæ undanfarin ár að
gera góða hluti í körfunni, ef undan
er skilinn bikarinn sem þeir unnu
fyrir tveimur árum. Hreggviður er
kominn aftur og ef Eiríkur Önund-
arson stendur sig í leiðtogahlutverk-
inu, þá ná þeir langt – en þeir verða
ekki meistarar. Eggert Garðarsson
er kominn heim eftir frábært ár sem
þjálfari Breiðabliks í fyrra og hann
var kosinn þjálfari ársins. Það verður
mikil pressa á honum að standa sig,“
segir Svali.
Hann segir einnig ljóst að botn-
baráttan verði spennandi. „Tinda-
stóll verður trúlega á lygnum sjó í
miðri deild, en maður veit ekki hvað
Írinn gerir hjá þeim. Með fullri virð-
ingu fyrir frábæru tímabili hjá Blik-
um í fyrra þá held ég þeir verði í fall-
baráttu í vetur. Borgarnes, Valur,
Haukar og hugsanlega Hamar verða
að berjast þarna á botninum.
Það er stór spurning hvað Snæfell
gerir. Clifton Bush er góður leikmað-
ur og Hlynur líka ef hann nær að ein-
beita sér að körfuknattleik.
Haukar hafa komið gríðarlega á
óvart í haust en þeir eiga ekki að hafa
mannskap til að koma fólki mikið á
óvart og skjótast ofarlega í deildinni.
Þeir léku til úrslita á Valsmótinu, en
Stjarnan gerði það líka í fyrra og
vonandi er saga hennar ekki fyrir-
boði um hvernig fer fyrir Haukum.
Ég held að neðri hluti deildarinnar
verði alls ekki langt undan efri hlut-
anum. Keflavík og Grindavík verða
efst en ég vona að þau stingi ekki af.
Miðað við þessa spá eru tvö laus sæti
í úrslitakeppninni og um þau verður
hart barist. Það skiptir miklu fyrir
liðin að ná að vinna leiki snemma því
það breytir andanum í liðinu. Ef liðin
byrja á að tapa nokkrum leikjum þá
er oft erfitt að rífa sig upp.
Ég held að mótið verði spennandi,
sérstaklega vegna þess að það eru
talsverðar breytingar. Margir nýir
þjálfarar, nokkrir sterkir leikmann
farnir og aðrir komnir í staðinn, ung-
ir strákar sem nú verða að bera meiri
ábyrgð en áður og þannig mætti
lengi telja.
Erlendu leikmennirnir eiga að
vera sterkir, en það hefur nú verið
sagt áður þannig að maður veit ekki
fyrr en líður á veturinn hvernig þeir
falla inn í lið sín,“ segir Svali.
Svali Björgvinsson spáir í gang mála í úrvalsdeildinni
SVALI Björgvinsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfuknattleik,
segir úrvalsdeildina, Intersportdeildina, sem hefst í kvöld með
þremur leikjum, verða veikari en síðasta vetur. Hann er þó sann-
færður um að það komi ekki að sök því á móti komi að hún verði
jafnari og það sé einmitt það sem fólki vilji sjá, jafna og spennandi
leiki. „Ég er nokkuð lunkinn í að spá, ég hef gert það á haustin und-
anfarin ár og mér sýnist bara að ég hafi alltaf rétt fyrir mér, eða svo
gott sem,“ segir Svali.
Morgunblaðið/Golli
Eiríkur Önundarson, leikstjórnandi ÍR-liðsins.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Keflvík-
ingar verða
meistarar
LUIZ Felipe Scolari sem stýrði
Brasilíumönnum til sigurs á heims-
meistaramótinu í knattspyrnu í sum-
ar verður að öllum líkindum næsti
landsliðsþjálfari Mexíkó. Knatt-
spyrnusamband Mexíkó hefur gert
Scolari tilboð um að þjálfa liðið
næstu fjögur ár og er búist við því að
Scolari þekkist boðið.
LUKE Chadwick er að missa þol-
inmæðina í herbúðum Manchester
United og hefur þessi 22 ára gamli
framherji komið þeim skilaboðum
áleiðis til Alex Ferguson, stjóra
United, að fái hann ekki að spreyta
sig meira með aðalliðinu á komandi
vikum þá vilji hann róa á önnur mið.
Chadwick hefur lítið sem ekkert
spilað með United á þessari leiktíð
og var til að mynda ekki í leikmanna-
hópi liðsins á móti Everton á mánu-
daginn.
DIEGO Forlan hefur ekki verið á
skotskónum síðan hann var keyptur
til Manchester United í fyrravetur
þrátt fyrir allmörg tækifæri með að-
alliði félagsins. Forlan náði sér vel á
strik með varaliði Manchester Unit-
ed gegn Blackburn í fyrrakvöld. Þá
skoraði hann fjögur mörk í 5:0 sigri
United.
ÓLAFUR Stefánsson er í hópi
markahæstu leikmanna í þýsku 1.
deildinni í handknattleik. Ólafur,
sem skoraði 9 mörk á móti Minden
um síðustu helgi, er jafn Kóreu-
manninum Kyung Shin-Yoon með
36 mörk en danski landsliðsmaður-
inn Lars Christiansen hjá Flensburg
er markahæstur með 49 mörk.
BRAGI Magnússon, körfuknatt-
leiksmaður, sem leikið hefur með
Haukum undanfarin ár, er genginn
til liðs við Breiðablik. Þar hittir hann
fyrir fyrrverandi samherja sinn hjá
Haukum, Jón Arnar Ingvarsson
sem í sumar var ráðinn þjálfari Blik-
anna.
DANSKI landsliðsmaðurinn Stig
Töfting, sem er á mála hjá enska úr-
valsdeildarliðinu Bolton, gæti átt yf-
ir höfði sér eins og hálfs árs fangels-
isdóm en réttarhöld yfir honum
hefjast í næstu viku. Töfting er
ákærður fyrir tvær alvarlegar lík-
amsárásir sem áttu sér stað á veit-
ingahúsi í Danmörku þar sem leik-
menn danska landsliðsins slettu úr
klaufunum eftir HM í knattspyrnu í
sumar.
TÖFTING, sem er 32 ára gamall,
er sakaður um að hafa slegið flösku í
höfuð framkvæmdastjóra veitinga-
hússins og hafa gengið í skrokk á
eiganda þess. Verði Töfting dæmdur
sekur gæti hann þurft að dúsa á bak
við lás og slá í 18 mánuði en leikmað-
urinn hefur áður komið sér í vand-
ræði utan vallar með drykkjuskap og
líkamsárás.
SOL Campbell varnarmaðurinn
öflugi hjá Arsenal getur ekki leikið
með enska landsliðinu í knattspyrnu
sem mætir Slóvökum í undankeppni
EM í Bratislava á laugardaginn.
Campbell á við magakveisu að stríða
og verður frá í einhverja daga. Þar
með verða Englendingar án mið-
varðanna tveggja en Rio Ferdinand
er á sjúkralistanum og þarf að gang-
ast undir aðgerð á ökkla.
WALTER Schachner, sem vikið
var frá störfum sem þjálfari austur-
ríska liðsins Austria Vin til að hliðra
fyrir Christoph Daum, var í gær ráð-
inn þjálfari Grazer AK, lið Stefáns
Gíslasonar. Schachners bíður erfitt
verkefni því Grazer situr á botni
austurrísku úrvalsdeildarinnar.
QUINTON Fortune S-Afríkubú-
anum í liði Manchester United hefur
verið boðið að framlengja samning
við félagið um fjögur ár. Fortune
hefur gengið illa að vinna sér sæti í
liði „rauðu djöflanna“ enda leikur
hann í sömu stöðu og einn albesti
leikmaður liðsins, Ryan Giggs.
FÓLK
KR-INGAR hafa óskað eftir því að fá
strax leikheimild fyrir Óðin Ásgeirs-
son, körfuknattleiksmanninn sem
kom til þeirra á dögunum frá Þór á
Akureyri. Samkvæmt reglum KKÍ
um félagaskipti þarf að líða einn mán-
uður til að leikmaður verði löglegur ef
hann skiptir eftir 1. september. Óðinn
fær samkvæmt því keppnisleyfi með
KR 27. október en hann skipti þegar í
ljós kom að Þór myndi draga lið sitt
úr keppni í úrvalsdeildinni.
„Okkur þykir mjög ósanngjarnt að
leikmenn sem voru hjá Þór þurfi að
líða fyrir brotthvarf liðsins úr deild-
inni. Það er ekkert til í reglum KKÍ
um svona tilvik og við viljum því láta
reyna á þetta,“ sagði Ingi Þór Stein-
þórsson, þjálfari KR, við Morgun-
blaðið í gær. Þeir Einar Örn Aðal-
steinsson og Sigurður G. Sigurðsson,
sem skiptu úr Þór í Tindastól, eru í
sömu stöðu og Óðinn. Að óbreyttu
verða þeir löglegir þann 30. október.
KR óskar eftir leik-
heimild fyrir Óðin
KEFLVÍKINGAR verða Íslands-
meistarar í körfuknattleik í vet-
ur, bæði í karla- og kvennaflokki,
ef marka má spá þjálfara, for-
ráðamanna og fyrirliða félag-
anna sem birt var í gær. Þeir
vinna yfirburðasigur í karla-
flokki en mjög nauman í kvenna-
flokki, miðað við niðurstöður
könnunarinnar.
Í úrvalsdeild karla, sem í vetur
nefnist Intersport-deildin, féllu
stigin í spánni þannig: Keflavík
419, Njarðvík 365, KR 363,
Grindavík 337, ÍR 271, Haukar
222, Tindastóll 208, Hamar 181,
Snæfell 159, Breiðablik 133, Val-
ur 84 og Skallagrímur 66 stig.
Val og Skallagrím er sem sagt
spáð falli úr deildinni.
„Þessi spá gefur okkur byr í
seglin fyrir veturinn og að sjálf-
sögðu ætlum við okkur að vinna
allta titla sem eru í boði,“ sagði
Guðjón Skúlason, fyrirliði Kefla-
víkur, þegar niðurstaðan lá fyrir.
Keflavík fékk 90 stig í spánni í
1. deild kvenna en KR hlaut 89
stig og því mjótt á mununum.
Grindavík fékk 71 stig, Njarðvík
63, ÍS 39 og nýliðum Hauka var
spáð neðsta sætinu með 27 stig.
Tvöfalt hjá Keflavík?