Morgunblaðið - 30.10.2002, Síða 1

Morgunblaðið - 30.10.2002, Síða 1
2002  MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÁRNI OG TRYGGVI Í LIÐI ÁRSINS Í NOREGI / B3 GUÐNI Bergsson, fyrirliði Bolton, er meiddur í kálfa og leikur ekki með liðinu næstu fimm vikurnar. Guðni gat ekki leikið með Bolton gegn Sunderland á mánudagskvöldið vegna meiðslanna sem í fyrstu var vonast til að væru ekki alvarleg en annað kom í ljós við nánari skoðun í gærmorgun. Þetta er mikið áfall fyr- ir Bolton sem er í neðsta sæti ensku úrvals- deildarinnar því auk Guðna er félagi hans Paul Warhurst einnig meiddur og verður sennilega frá keppni í mánuð. Báðir hafa þeir leikið vel fyrir Bolton það sem af er leiktíð- inni. Framundan eru mikilvægir leikir hjá Bolton þegar það mætir nýliðum úrvalsdeild- arinnar, WBA og Birmingham, og verða Guðni og Warhurst fjarri góðu gamni í þeim viðureignum. Guðni úr leik í fimm vikur DAGUR Sigurðsson, fyrirliði landsliðsins, mun ekki leika með á heimsbikarkeppninni í Svíþjóð – er tognaður á nára. Dagur kom alla leið frá Japan, en þangað er um tólf klukkustunda flug og ætl- aði að vera með í tveimur fyrstu leikjum liðsins, við Rússa í gær- kvöldi og Þjóðverja í dag. Síðan þurfti hann að fara til Japans á ný til að leika þar með liði sínu, Wakunaga, í deildarkeppninni. „Þetta er alveg hræðilegt og ég er mjög svekktur yfir þessu,“ sagði Dagur í samtali við Morg- unblaðið þar sem hann fylgdist með félögum sínum á æfingu í gærmorgun. „Ég hef miklar áhyggjur af meiðslunum vegna þess að það er nokkuð strangt prógram framundan hjá mér í Japan. Við eigum að leika annan og þriðja nóvember og fram að áramótum eru fjórtán leikir,“ sagði Dagur. Hafðir þú eitthvað fundið fyrir eymslum í nára áður en þú komst hingað til Svíþjóðar? „Nei, þetta hefur ekkert plagað mig, en ætli ég hafi ekki beitt mér eitthvað rangt í gær með þessum afleiðingum. Eftir alla fyrirhöfnina við að koma til að leika hér tvo leiki, gerist þetta. Ég er gríðarlega vonsvikinn,“ sagði Dagur. Dagur ekki með í Svíþjóð KRISTINN Jakobsson hefur fengið verðugt verk- efni sem milliríkjadómari í knattspyrnu en hann mun halda til Vínar í dag þar sem hann dæmir leik Austria Vín gegn Porto frá Portúgal í 2. umferð UEFA-bikarsins, á Ernst Happel-leikvanginum á morgun. Auk hans verða Pjetur Sigurðsson og Eyjólfur Finnsson aðstoðardómarar í leiknum en Garðar Örn Hinriksson verður fjórði dómari leiksins. „Þetta er stærsta verkefni sem ég hef fengið til þessa í Evrópukeppni og það verður án efa skemmtileg umgjörð á þessum leik,“ sagði Kristinn í samtali við Morgunblaðið. Kristinn dæmir í Vínarborg Það var algjör óþarfi að tapasvona stórt. Ég var þokkalega sáttur við fyrri hálfleikinn þrátt fyrir að menn gerðu ákveðin mistök þar. Um síðari hálfleik er í raun afskaplega lít- ið að segja, hann var í einu orði sagt hræðilegur og Rúss- ar nýttu sér vel öll þau mistök sem við gerðum,“ sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari eftir ellefu marka tap fyrir Rússum í fyrsta leik íslenska landsliðsins á heimsbikarmótinu í Svíþjóð, 39:28. „Ef við förum yfir leikinn raun- hæft þá spilaðist megnið af fyrri hálfleiknum mjög vel. Við vorum yfir og vörn og sókn var í góðu lagi. Þeir komust yfir og við jöfnuðum 15:15 og ég var þokkalega sáttur við gang mála. Svo náðu þeir þriggja marka forystu eftir sóknir þar sem við flýtt- um okkur of mikið og töpuðum bolt- anum með klaufalegum mistökum. Tvö víti fóru forgöðum og þar liggur í raun munurinn á liðunum í fyrri hálfleik. Í síðari hálfleik fjaraði ein- hverra hluta vegna undan okkur, bæði í vörn og sókn og niðurstaðan varð þessi sem sést. Þetta segir okk- ur aðeins að við verðum að bæta okk- ur til muna ef við ætlum að halda okkur á meðal sterkustu þjóða, það er alveg ljóst og það er líka ljóst að markverðir okkar verða að verja meira en þeir gerðu í dag. Við fengum átján mörk á okkur í fyrri hálfleik en við verðum að hafa í huga að við keyrðum upp hraðann og leikurinn var hraður og sóknirnar margar. Vörn okkar datt niður á köflum en var oftast í ágætu standi í fyrri hálfleiknum. Við gerðum mörg mistök þar sem þeir refsuðu okkur með hraðaupphlaupum og þegar þannig er og markvarslan engin þá er ekki von á góðu. Þegar menn skora af tíu metra færi og meira verður vörnin óörugg og við verðum að vinna betur saman.“ Nú var sóknin ekki nægilega beitt og mikið af mistökum, hverju er um að kenna? Er þetta æfingaleysi eða þreyta hjá leikmönnum? „Ég veit ekki alveg hvað á að segja við þessu. Gunnar Berg er náttúr- lega nýr sem burðarás í sókninni og eðlilega koma einhverjar fleilur þar. Án þess ég ætli að kenna því um nið- urstöðuna hér í kvöld þá eru fimm mánuðir síðan við lékum saman og það þarf einhvern tíma til að spila okkur saman. Við einfaldlega hittum ekki á það í dag og náðum ekki að fylgja eftir ágætum fyrri hálfleik.“ Morgunblaðið/Mikael Forslund Ólafur Stefánsson náði sér ekki á strik gegn Rússum í Borlänge. Hér taka þeir Viatcheslav Gorpichine og Igor Lavrov hann föstum tökum. Einar Örn Jónsson fylgist með átökunum. Óþarflega stórt tap Skúli Unnar Sveinsson skrifar frá Svíþjóð MAGNÚS Gylfason var seint í gærkvöldi ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðs ÍBV í knattspyrnu og er samningur hans til tveggja ára. Magnús hefur þjálfað 17 ára landslið pilta í nokkur ár og hefur verið aðstoðarmaður Ólafs Þórðarsonar, þjálfara 21 árs landsliðsins. Þá hefur Magnús þjálfað bæði 2. og 3. flokk hjá KR. Viðar Elíasson, formaður knatt- spyrnudeildar ÍBV, segir á heimasíðu ÍBV mikinn létti að búið sé að ganga frá þjálfaramálunum en Eyjamenn eru síðasta liðið í úrvalsdeildinni til að ganga frá þjálfaramálum sínum. Eyjamenn hafa á undanförnum dögum verið að gera nýja samninga við yngri leikmenn liðsins og þeir stefna að því að styrkja leikmannahóp sinn fyr- ir næsta sumar en liðið hefur missti Kjartan Ant- onsson í Fylki og þá hafa Hlynur Stefánsson og Ingi Sigurðsson gefið það út að þeir hafi lagt skóna á hilluna. Magnús þjálfar ÍBV

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.