Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2002 B 3 egja gum í 2:0 fullu man fleik. t og vo á mátt , en að ss að . Ís- síðar kafli voru mörk stöð- m og a að m og ið, í skot. l var gat ninni sínu allt , Ís- land minnkaði muninn í tvö mörk 17:19. Nú hófst hræðilegur kafli þar sem Rússar hreinlega skutu íslenska liðið á kaf. Alexandre Toutchkine og Alexei Rastvortsev fóru hreinlega á kostum og skutu, stundum úr kyrr- stöðu, af ríflega 10 metra færi og allt lak inn. Þess á milli var keyrt í botn í hraðaupphlaupum og Íslendingar dönsuðu með án þess að ráða við það. Skynsamlegra hefði verið að reyna að hægja á leiknum og reyna að minnka muninn. Rússar gerðu sex mörk í röð og átta mínútur liðu þar til íslenska liðið náði að skora og þá komu þrjú íslensk mörk í röð og vonin kviknaði á ný. En það átti ekki fyrir Íslendingum að liggja að standa í Rússum að þessu sinni. Munurinn varð mestur 13 mörk en Gústaf Bjarnason skoraði tvö síðustu mörkin úr hraðaupphlaupum og ell- efu marka tap varð staðreynd. Ólafur virkaði þreyttur Framan af leiknum var allt í lagi hjá íslenska liðinu. Þó hefði mátt sjá örlítið meiri grimmd í vörninni, sér- staklega við að ná lausum boltum, þar höfðu Rússar alltaf vinninginn. Í sókninni vantaði meiri vandvirkni og að ljúka sókninni með góðu skoti. Patrekur fyrirliði Jóhannesson fór fyrir liðsmönnum sínum og skoraði grimmt. Gunnar Berg Viktorsson, sem lék vinstra megin, ógnaði ágæt- lega en meiri ógn vantaði á hægri vængnum hjá Ólafi Stefánssyni. Engu að síður átti hann fínar send- ingar sem áhorfendur höfðu gaman af, en Ólafur virkaði þreyttur í leikn- um. Hornamennirnir, Guðjón VAlur og Einar Örn, voru mjög virkir og ógnandi. Það er fátt hægt að segja um síð- ari hálfleikinn, hann var í einu orði sagt hræðilegur og útreiðin sem liðið fékk hjá Rússum í raun háðugleg. Hverju svo sem um er að kenna gerðu leikmenn sig seka um allt of mikið af mistökum, sendingar voru slæmar en rétt er að taka fram að nokkrum sinnum fengu menn mjög góð markskot sem misfórust, þannig að þetta var ekki alslæmt. Færin komu en skotin voru slök og kristall- ast það líklegast í því að öll fjögur vítaköst íslenska liðsins fóru for- görðum. Undir lok leiksins var íslenska lið- ið nokkuð furðulega skipað. Gústaf í vinstra horninu, þá Sigurður Bjarna- son, Aron Kristjánsson, Heiðmar Felixsson og Einar Örn í horninu og á línunni Róbert Sighvatsson. Sá síð- astnefni kom sterkur inn í sóknina þegar hann leysti Sigfús af. Á bekkn- um voru sem sagt Patrekur, Ólafur, Guðjón Valur og Gunnar Berg, fjórir úr byrjunarliðinu. Morgunblaðið/Mikael Forslund kominn framhjá Igor lavrov og skorar eitt af fjórum mörkum sínum með nda knöttinn framhjá Andrey Lavrov, markverði Rússa.  STEFÁN Arnaldsson og Gunnar Viðarsson dæmdu leik Dana og Frakka á Heimsbikarmótinu í hand- knattleik þar sem Frakkar fögnuðu sigri í spennandi leik, 24:22. Frakkar voru 5 mörkum yfir í hálfleik, 13:8, en Dönum tókst að jafna í 21:21 og eftir það var allt á suðupunkti.  ELLERT B. Schram verður eftir- litsmaður á leik Ipswich og Slovan Liberec í UEFA-keppninni í knatt- spyrnu sem fram fer á Portman Road í Ipswich annað kvöld. Þá verður Sigurður Hannesson dóm- araeftirlitsmaður í leik Leeds og Hapoel Tel Aviv sem fram á Elland Road annað kvöld.  JÓHANNES Karl Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Real Betis sem vann 1:0 sigur á Viktoria Zizkov í UEFA-keppninni í knattspyrnu Tékklandi í gær.  ARNAR Gunnlaugsson var heldur ekki í leikmannahópi Dundee United sem sigraði Airdrie í skosku deilda- bikarkeppninni.  ÍVAR Ingimarsson lék síðustu 10 mínúturnar fyrir Wolves sem burst- aði Gillingham, 4:0. Nathan Blake skoraði þrennu fyrir Úlfanna.  HELGI Valur Daníelsson var ekki í leikmannahópi Peterbrough í leik liðsins á móti Tranmere í ensku 2. deildinni.  JOHN Gregory, knattspyrnustjóri Derby, hefur sent „silfurrefinn“ Fabrizio Ravanelli í leyfi fram yfir næstu helgi. Ravanelli fór heim til Ítalíu í fríinu, en mikil óvissa ríkir um framtíð hans hjá enska 1. deildar liðinu.  NICK Barmby, leikmaður Leeds, neitar því staðfastlega að hafa verið með kynþáttafordóma í garð George Boateng er þeim lenti saman í leik Leeds og Middlesbrough um síðustu helgi. Enska knattspyrnusambandið ætlar að rannsaka málið. Barmby sagði í samtali við sjónvarpsstöðina Sky að hann hefði ekki sagt neitt misjafnt um Boateng og því til sönn- unar segir hann að eftir viðureignina hafi Boateng beðið sig afsökunar á að það kastaðist í kekki þeirra í mill- um í leiknum. FÓLKÞEIR voru ekki öfundsverðir ís-lensku markverðirnir, Guðmundur Hrafnkelsson og Birkir Ívar Guð- mundsson, þegar þeir vörðu markið gegn Rússum í Borlänge í gær- kvöldi. Þeir þurftu að hirða knöttinn 39 sinnum úr netinu hjá sér, þegar íslenska landsliðið tapaði með ellefu marka mun, 39:33. Þetta eru mesti markafjöldi sem Ísland hefur fengið á sig í landsleik í handknattleik – nýtt markamet, en þrisvar áður hafði Ísland fengið á sig 33 mörk í landsleik. Fyrst í leik gegn Suður- Kóreu í Laugardalshöllinni 1987, 33.28. Þá í leik gegn Tékkóslóvakíu í Besancon í Frakklandi 1993, 33:26. Síðast í leik gegn Svíum – í undan- úrslitum Evrópukeppni landsliða í Stokkhólmi fyrr á árinu, 33:22. Guð- mundur Hrafnkelsson hefur tekið þátt í öllum þessum leikjum. Mesti ósigur sem Íslendingar hafa mátt þola í landsleik – var 15 marka tap fyrir Sovétmönnum í Tbilisi 1970, 32:17. Þá má geta þess að 67 mörk hafa áður sést í landsleik – 1987 í Laug- ardalshöllinni, þegar Suður-Kóreu- menn voru lagðir að velli 36:31. Rússar settu markamet ugleg útreið gn Rússum sliðinu á heimsbikarmótinu er ekki rir Rússum, 28:39, eftir að staðan í enska liðið lék þokkalega í fyrri hálf- vörnin og markvarslan brást lengstum ög mikið af villum og Rússarnir nýttu meðal annars 13 mörk úr hraðaupp- ÞAÐ hefur ekki farið framhjá þeim sem hafa fylgst með handknattleik og körfuknattleik, að áhorfenda- fjöldi á leikjum hefur fallið geysi- lega í vetur og á mörgum leikjum hafa verið hálftóm hús, allt niður í 20 áhorfendur á leik. Það vakti til dæmis athygli í Reykjanesbæ á dögunum, þegar aðeins tæplega 300 áhorfendur komu til að sjá Ís- landsmeistara Njarðvíkur og Kefl- víkinga, sem mættu þeim í úrslit- um um meistaratitilinn sl. keppnis- tímabil. Það var sláandi sl. föstudags- kvöld, að aðeins tæplega 40 áhorf- endur mættu í Víkina til að sjá gamla stórveldið Víking í leik gegn Gróttu/KR og um 50 áhorfendur sáu liðsmenn Selfoss, sem fylltu íþróttahúsið á Selfossi fyrir fáein- um árum, í leik gegn Aftureldingu. Sama var upp á teningnum þegar Fram fékk ÍBV í heimsókn í Safa- mýrina á mánudagskvöld og um 70 áhorfendur sáu körfuknattleiks- menn Njarðvíkur í leik gegn Val í Njarðvík sama kvöld. Aðalástæðan fyrir fækkun áhorfenda er offramboð á leikjum og þá er gæðamunur á liðum geysi- legur. Munurinn á betri liðum og þeim slökustu er alltof mikill – lið sem eiga alls ekki heima í sömu deild eru að leika. Tólf lið leika í úrvalsdeildinni í körfuknattleik karla og fjórtán í 1. deild í handknattleik karla. Það er oft búið að benda á að til að koma á skemmtilegu Íslandsmóti þyrfti að leika 8 liða efstu deild, með t.d. fjórfaldri umferð og sleppa úrslita- keppninni. Þjóðverjar reyndu úr- slitakeppni í handknattleik fyrir nokkrum árum, sem gekk ekki upp. Þegar þeir sáu að áhorfend- um fækkaði á deildarleikjum, hættu þeir strax við úrslitakeppn- ina. Það er komið svo að forkeppnin skiptir litlu sem engu máli og færri áhorfendur mæta á leikina, en áð- ur. Á síðustu 12 dögum hafa farið fram 65 kappleikir hjá liðunum í efstu deild kvenna og karla í í hand- og körfuknattleik. 31 leikur í körfuknattleik og 34 í handknatt- leik. Forleikir eru yfirleitt ljúfir og spennandi, en þegar þeir eru orðn- ir langdregnir og þurrir, þá er lítil sem engin skemmtun í þeim. For- leikurinn hjá konum og körlum í handknattleik stendur yfir í sex og hálfan mánuð og eru leiknir 182 leikir hjá körlum og 135 leikir hjá konum áður en úrslitakeppnin hefst. Sjö umferðum var bætt við kvennakeppnina frá sl. keppnis- tímabili. Forleikurinn í körfuknatt- leik er styttri, eða fimm mánuðir. Þá eru leiknir 132 leikir hjá körlum og 60 hjá konum. Þetta eru samtals 509 leikir hjá liðum í efstu deild í þessum tveimur íþróttagreinum og síðan má bæta við 124 leikjum í bikarkeppni. Samtals 633 leikir! Það vita allir, að áhuginn fyrir forkeppni er ekki mikil og fer minnkandi. Það er alltaf svo, að það þarf að finna sökudólga, hverj- um er um að kenna. Fámennur hópur hefur ráðist að fréttamönn- um og sagt að ekki sé sýnt eða skrifað nægilega um íþróttina og þá yfirleitt liðin sem þeir leika með. Þessi hópur hefur gleymt því að íþróttamenn eru skemmtikraft- ar og það eru þeir sjálfir sem laða að áhorfendur. Áhorfendur koma til að sjá skemmtilega leiki, þeir mæta ekki aftur og aftur til að horfa upp á leiki sem eru ójafnir og daprir. Það er erfitt að fá áhorf- endur aftur, sem voru góðu vanir – sáu lið sín í meistarabaráttu ár eft- ir ár. Þeir geyma minningarnar um allar skemmtilegu stundirnar – mæta ekki til að sjá lið, sem eru mörgum gæðaflokkum fyrir neðan gömlu hetjuliðin. Þegar út í úrslitakeppni kemur, þá koma áhorfendur. Þá er það orðið of seint fyrir flest lið. Mörg komast ekki í úrslitakeppnina og önnur falla úr leik strax eftir að hafa leikið einn heimaleik. Er lang- ur forleikur ekki dýru verði keypt- ur, fyrir einn leik í úrslitakeppni, eða engan? Sigmundur Ó. Steinarsson Offramboð  *+**', * - *'  ' * **.    %        !/, ' ! " %0 !, 0  "  0 # 0 1+ 0 2" 0 1" 0 ! " 0 !, 0  " 0 # %0 1+ 0 *,-  3**  *   * ' 3*** *   MEISTARAR síðasta heims- bikarmóts, Þjóðverjar, áttu ekki í nokkrum vandræðum í fyrsta leik sínum á mótinu, lögðu Júgó- slava, 31:24, í leik þar sem hrað- inn réð ríkjum og frábær mark- varsla Danijels Saric í marki Júgóslava kom í veg fyrir stærra tap. Þjóðverjar léku flata vörn, mjög ágenga og gerðu 12 mörk úr hraðaupphlaupum og þrjú að auki úr vítaköstum sem fengust í slíkum upphlaupum. Hraði Þjóðverja var mikill og oftar en ekki voru þeir tveir á móti markverði Júgóslavíu sem náði að verja fimm sinnum mað- ur á móti manni eða tveimur. Þýskir náðu snemma foryst- unni, og héldu henni allan tím- ann og staðan í leikhléi var 17:12. Eftir hlé mættu Júgóslav- ar ákveðnir til leiks og Þjóðverj- ar létu yngri og óreyndari leik- menn reyna sig. Júgóslvar gerðu fyrstu þrjú mörkin, 15:17, og fyrsta mark Þjóðverja eftir hlé kom ekki fyrr en eftir 8 mín- útur. Um miðbik hálfleiksins gerðu þeir út um leikinn end- anlega þegar þeir gerðu sjö mörk gegn einu marki Júgó- slava. Meist- ararnir sterkir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.