Morgunblaðið - 30.10.2002, Síða 4
GUÐMUNDUR Ingvarsson, for-
maður Handknattleikssambands Ís-
lands, var á Keflavíkurflugvelli á
sama tíma og þeir úr landsliðshópi
Íslands, sem tekur þátt í heimsbik-
arkeppninni í Svíþjóð, voru að halda
af landi brott. Ferðaáætlun Guð-
mundar var ekki sú sama, því miður,
að hans sögn. Guðmundur, sem er
einn af framkvæmdastjórum Ingv-
ars Helgasonar hf., var á leið til Jap-
ans á bifreiðasýningu.
BJARNI Geir Viðarsson og Unnar
Hólm Ólafsson, knattspyrnumenn,
hafa framlengd samninga sína við
ÍBV um tvö ár og gilda nýju samn-
ingarnir til til ársloka 2004. Þá eru
Eyjamenn í samningaviðræðum við
Bjarnólf Lárusson, en samningur
hans við ÍBV rennur út um næstu
mánaðamót.
BRYNJAR Valdimarsson og Jó-
hannes R. Jóhannesson eru báðir í 6.
sæti í sínum riðlum á heimsmeist-
aramóti áhugamanna í snóker sem
nú stendur yfir í Kaíró í Egypta-
landi. Jóhannes á einn leik eftir en
Brynjar hefur lokið keppni. Hvor-
ugur kemst í 32-manna úrslit í
mótinu.
SUNE Agerschou, danski lands-
liðsmarkvörðurinn í handknattleik,
er hættur hjá Magdeburg. Hann
skrifaði um helgina undir þriggja
ára samning við Skjern í heimalandi
sínu en Agerschou hefur ekki staðið
undir væntingum hjá Magdeburg og
hefur ekkert spilað með liðinu á
þessu tímabili.
GUNNAR Andrésson skoraði 4
mörk fyrir Kadetten Schaffhausen
þegar liðið tapaði 33:26 á útivelli í
svissnesku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik um síðustu helgi. Kadetten
Schaffhausen er í fjórða sæti deild-
arinnar með 12 stig úr 10 leikjum.
BJARTUR Máni Sigurðsson var
með 2 mörk þegar lið hans, Ending-
en, tapaði, 30:27, á útivelli fyrir TV
Suhr í svissnesku úvalsdeildinni.
Endingen er í næst neðsta sæti með
3 stig. Wacker Thun er efst í deild-
inni með 18 stig.
ÁRMANN Smári Björnsson getur
leikið með Brann á laugardaginn
þegar liðið leikur við Sandefjord um
sæti í úrvalsdeild norsku knatt-
spyrnunnar. Áður hafði komið fram í
norskum fjölmiðlum að Ármann
gæti ekki tekið þátt í leiknum vegna
þess að hann þarf að taka próf í skóla
hér heima, en Ármann leggur stund
á nám í tækniteiknun.
ÁRMANN hefur fengið frestað
einu prófi þannig að hann getur tek-
ið þátt í fyrri leik liðanna sem fram
fer á laugardag, en leikurinn er
Brann sérlega mikilvægur því það
berst nú um áframhaldandi sæti í úr-
valsdeildinni. Þjálfari Brann er Teit-
ur Þórðarson.
LÁRUS Orri Sigurðsson lék með
varaliði WBA gegn Man. City á
mánudag. Þótti Lárus standa sig vel
í leiknum sem WBA tapaði, 2:1.
THOMAS Myhre, markvörður
Sunderland, meiddist í læri gegn
Bolton í fyrrakvöld. Af þeim sökum
veðrur hann frá keppni í a.m.k. tvær
vikur, en þetta eru samskonar
meiðsli og hann varð fyrir í leik með
norska landsliðinu fyrir skömmu.
Meiðsli Myhre auka enn á erfiðleika
Sunderland því Tomas Sörensen
markvörður liðsins er einnig meidd-
ur og verður ekki til stórræðanna
fyrr en í byrjun næsta árs.
BRYAN Robson, fyrrverandi
knattspyrnustjóri Middlesbrough,
segist hafa áhuga á að taka við knatt-
spyrnustjórn hjá Stoke. Hann hefur
ekki stýrt liðið síðan honum var sagt
upp hjá Middlesbrough í fyrra. „Ég
tel mig vera kláran í slaginn á ný og
reiðbúinn að ræða við stjórn Stoke
hafi hún áhuga á að kalla mig til
starfans,“ sagði Robson í gær.
FÓLK
Helgi áfram með
Njarðvíkurliðið
HELGI Bogason hefur verið endurráðinn þjálfari 1. deild-
arliðs Njarðvíkur í knattspyrnu og gekk á dögunum frá
tveggja ára samningi. Helgi tók við liði Njarðvíkur fyrir síð-
asta tímabil og þreytti þá frumraun sína sem meistaraflokks-
þjálfari en hann var áður aðstoðarþjálfari í Grindavík. Njarð-
víkingar sluppu inn í 2. deildina í mars sl. þegar Leiftur og
Dalvík sameinuðu lið sín, og þeir gerðu sér lítið fyrir og náðu
öðru sæti deildarinnar. Þeir leika því í næstefstu deild næsta
sumar, í fyrsta skipti í 17 ár. Að sögn Leifs Gunnlaugssonar,
formanns knattspyrnudeildar Njarðvíkur, er gert ráð fyrir
mjög litlum breytingum á leikmannahópi félagsins.
ÓLAFUR H. Kristjánsson, fyrrver-
andi leikmaður með FH-liðinu í
knattspyrnu, sem er nú þjálfari hjá
danska liðinu AGF, fór með hinum
þjálfara liðsins, Poul Hansen, til
Belgíu til að fylgjast með Lokeren í
leik gegn Antwerpen á mánudags-
kvöldið, sem fór 2:1. Þeir félagar
fóru til að njósna um Íslendingana
þrjá sem leika með Lokeren – lands-
liðsmennina Arnar Þór Viðarsson,
Arnar Grétarsson og Rúnar Krist-
insson. „Við höfum augun opin fyrir
leikmönnum sem við teljum að geti
styrkt okkar lið. Það er ljóst, að við
fórum ekki akandi til Belgíu í þeim
eina tilgangi að horfa á knattspyrnu-
leik,“ sagði Poul Hansen í viðtali við
blaðið Stiften í Árósum.
Hansen og Ólafur H. sáu Papy
Okitankoy Kimoto, 26 ára, frá
Kóngó, skora bæði mörk Lokeren.
Hann verður laus mála hjá liðinu
næsta sumar.
Ólafur H. njósnar
um Íslendinga
Öll mörkin í leik Deportivo ogBayern litu dagsins ljós í síð-
ari hálfleik. Victor kom heimamönn-
um í forystu á 54. mínútu en Perú-
búinn Santa Cruz kveikti von í
brjósti Bæjara þegar hann jafnaði
metin stundarfjórðungi fyrir leiks-
lok. Þjóðverjarnir reyndu allt hvað
þeir gátu til að knýja fram sigur en
allt kom fyrir ekki. Spánverjarnir
náðu skyndisókn á lokamínútunni
sem lauk með því að Hollending-
urinn marksækni, Roy McKaay,
skoraði sigurmarkið á 89. mínútu
leiksins.
Franska liðið Lens gerði sér lítið
fyrir og sigraði AC Milan, 2:1, en
Mílanóliðið var fyrir leikinn með
fullt hús stiga. Mörkin komu á 18
mínútna kafla. Úkraínumaðurinn
Andriy Shevchenko kom AC Milan
yfir á 32. mínútu, með sínu fyrsta
marki í Meistaradeildinni í ár, en
Daniel Moreira jafnaði níu mínútum
síðar og Nígeríumaðurinn John Ut-
aka skoraði svo sigurmarkið á 49.
mínútu. Lens á enn möguleika á að
komast áfram og til þess að verður
liðið að vinna Bayern München og
stóla á að Deportivo tapi fyrir AC
Milan.
Newcastle eygir von
Strákarnir hans Bobby Robsons í
Newcastle halda enn í vonina um að
komast áfram í aðra umferð eftir 2:1
sigur á Dynamo Kiev þar sem Alan
nokkur Shearar skoraði sigurmark-
ið úr vítaspyrnu 20 mínútum fyrir
leikslok. Á sama tíma tryggði Juv-
entus sér farseðilinn í aðra umferð-
ina með 2:0 sigri á Feyenoord.
Marco Di Vaio skoraði bæði mörkin,
sitt í hvorum hálfleik. Juventus hef-
ur 10 stig fyrir lokaumferðina en
baráttan er hörð um annað sætið.
Dynamo Kiev hefur 7 stig, New-
castle 6, eftir tvo sigra í röð, og
Feyennord 5. Í lokaumferðinni fer
Newcastle til Feyenoord og Dyn-
amo Kiev tekur á móti Juventus.
Walesverjinn Gary Speed jafnaði
metin fyrir Newcastle á 58. mínútu
eftir að Úkraínumennirnir höfðu
náð forystu og Sherarer skoraði svo
af öryggi úr vítaspyrnu á 69. mínútu
eftir að brotið var á honum innan
vítateigs.
„Ég á varla orð til að lýsa yfir
baráttukrafti minna manna. Ekki
alls fyrir löngu var búið að afskrifa
okkur í keppninni en með tveimur
frábærum sigrum erum við enn í
möguleika á að komast áfram,“
sagði Bobby Robson, stjóri New-
castle.
Fyrsta tap United í 16 leikjum
Manchester United, með hálfgert
varalið, mátti þola háðuglega útreið
á móti ísraelska liðinu Maccabi
Haifa í F-riðlinum en leikurinn var
háður í Nikósíu á Kýpur. Maccabi
lagði United, 3:0, sem dugði skammt
því Bayer Leverkusen tryggði sér
annað sætið í riðlinum á eftir Man-
chester United með því að leggja
Olympiakos, 2:0. Varnarmaðurinn
Juan skoraði fyrra markið og Bnet
Schneider það síðara úr vítaspyrnu.
Hann fékk tækifæri til að bæta öðru
marki við á lokamínútunni en hon-
um brást bogalistin úr vítaspyrnu.
„Þetta var voru sanngjörn úrslit
og í heildina séð var þetta dapur
leikur af okkar hálfu. Ég var sáttur
við leik minna manna í fyrri hálfleik
en varð fyrir vonbrigðum með
frammistöðu þeirra í seinni hálfleik.
Ísraelsmennirnir voru með tíu menn
fyrir aftan boltann og við komumst
lítt áleiðis gegn þeim,“ sagði Alex
Ferguson, stjóri United, en þetta
var fyrsti tapleikur United í 16
leikjum í Meistaradeildinni.
Mikil spenna er í H-riðlinum fyrir
lokaumferðina. Börsungar héldu
sigurgöngu sinni áfram með 1:0
sigri á Club Brügge en í Tyrklandi
töpuðu heimamenn í Galatasaray
óvænt fyrir Lokomotiv Moskva, 2:1.
Þar með eiga öll þrjú liðin mögu-
leika á að fylgja Barcelona eftir því
Club Brügge hefur 5 stig, Galatas-
aray 4 og Lokomotiv 4.
Í Istanbul komu öll mörkin á
þriggja mínútna kafla seint í síðari
hálfleik. Dmitry Loskov kom Rúss-
unum yfir á 70. mínútu, Hasan Sas
jafnaði tveimur mínútum síðar en
Adam var ekki lengi í paradís því
þremur mínútum eftir mark Sas
skoraði Vaid Evseev sigurmarkið.
Bæjarar í sárum
Reuters
John Utaka er hér að tryggja Lens sigurinn á AC Milan í Frakklandi í gær en Christian Abbiati,
markvörður AC Milan, kemur engum vörnum við, né heldur Thomas Helveg.
BAYERN MÜNCHEN, sem fagn-
aði sigri í Meistaradeild Evrópu
fyrir tveimur árum, er í sárum
eftir 2:1 ósigur á móti Deportivo
La Couruna á Spáni í gær. Tapið
gerði það að verkum að Bæjarar
eru úr leik í Meistaradeildinni
og þar sem Lens sigraði AC Mil-
an er ljóst að Bayern hafnar í
neðsta sæti G-riðilsins sem
þýðir að liðið fær ekki sæti í
UEFA-keppninni.