Morgunblaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR
2 C FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
Crozier sagði upp
ADAM Crozier, framkvæmdastjóri enska knattspyrnusambands-
ins, sagði starfi sínu lausu í gær. Crozier, sem kom til starfa hjá
sambandinu fyrir þremur árum, ákvað að hætta vegna deilna við
forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar en mikill styr hefur stað-
ið milli stjórnarmanna samtaka úrvalsdeildarinnar og Croziers
um hin ýmsu mál sem snerta úrvalsdeildina og enska landsliðið.
„Mér þykir sárt að yfirgefa starf sem ég hef haft gaman af að
sinna en ég held að ég geti sagt að ég geti hætt með sæmd,“
sagði Crozier þegar hann tilkynnti ákvörðun sína.
Crozier var maðurinn sem réð Svíann Sven Göran Eriksson
sem landsliðsþjálfara og fékk miklar ákúrur hjá mörgum fyrir
að ráða erlendan þjálfara til enska landsliðsins í fyrsta sinn.
Gagnrýnisraddirnar voru fljótt kveðnar í kútinn enda hefur
Eriksson staðið sig vel og er geysilega vinsæll á meðal ensku
þjóðarinnar. Crozier mun gegna starfi framkvæmdastjóra þar til
eftirmaður hans verður ráðinn.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin:
Borgarnes: Skallagrímur – UMFG .....19.15
Seljaskóli: ÍR – UMFN.........................19.15
1. deild karla:
Laugardalsh.: Árm./Þróttur – Höttur......20
Ísafjörður: KFÍ – Reynir S. ......................20
Þorlákshöfn: Þór Þ. – Selfoss....................20
BLAK
1.deild kvenna:
Neskaupsstaður: Þróttur – KA........... 20.00
HANDKNATTLEIKUR
Júgóslavía – Ísland 29:34
Borlänge, heimsbikarmótið í Svíþjóð,
World Cup, B-riðill. fimmtud. 31. október
2002.
Gangur leiksins: 0:1, 1:6, 3:6, 3:8, 5:8, 6:13,
8:13, 10:15, 12:15, 12:17,13:17, 13:19, 15:22,
16:23, 19:23, 19:25, 22:28, 25:28, 25:30,
27:30, 28:33, 29:34.
Mörk Júgóslavíu: Zikica Milosavljevic 6,
Ratko Nikolic 5, Nedeliko Jovanovic 4,
Dragan Sudzum 4/3, Nenad Maksic 3,
Mladen Bojinovic 2, Ljubomir Pavlovic 2,
Dusko Milinovic 1, Vladimir Mandic 1,
Ratko Djurkovic 1.
Varin skot: Danijel Saric 15 (þar af 9 til
mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Íslands: Patrekur Jóhannesson 9,
Einar Örn Jónsson 7, Gústaf Bjarnason
7/3,
Aron Kristjánsson 3, Guðjón Valur Sig-
urðsson 3, Róbert Sighvatsson 1, Sigfús
Sigurðsson 1, Heiðmar Felixson 1, Ólafur
Stefánsson 1, Gunnar B.Viktorsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 18
(þar af 6 til mótherja), 8 (2) langskot, 6 (2)
hraðaupphlaup, 2 (1) lína, 2 (1) gegnum-
brot.
Utan vallar: 16 mínútur.
Dómarar: Svein Olav Öie og Oyvind Tog-
stad frá Noregi, hræðilega slakir og
mjög áberandi hlutdrægir.
Áhorfendur: 1.178.
Rússland – Þýskaland........................ 28:31
Alexnadre Toutchkine 7, Alexel Rastvort-
sev 6 – Christian Zeitz 8, Pascal Hens 6.
Staðan:
Þýskaland 3 3 0 0 89:72 6
Rússland 3 1 0 2 98:91 2
Júgóslavía 3 1 0 2 85:96 2
Ísland 3 1 0 2 82:95 2
A-riðill
Frakkland – Egyptaland ................... 29:23
Cédric Burdet 7, Stéfhane Platin 3 –
Hussein Zaki 9, Said Hussein 2, Saber Be-
lal 2.
Svíþjóð – Danmörk..............................25:33
Magnus Wislander 5, Johan Petterson 4 –
Michael Knudsen 5, Lars Christiansen 5.
Staðan:
Frakkland 3 2 1 0 77:69 5
Danmörk 3 2 0 1 82:75 4
Svíþjóð 3 1 1 1 74:80 3
Egyptaland 3 0 0 3 72:81 0
KNATTSPYRNA
UEFA-bikarkeppnin, 2. umferð, fyrri leik-
ir:
APOEL (Kýp.) – Hertha........................ 0:1
Dinamo Zagreb (Kró.) – Fulham .......... 0:3
Sparta Prag – Denizlispor (Tyr.) .......... 1:0
Ferencváros (Ung.) – Stuttgart ............ 0:0
Sturm Graz (Aus.) – Levski (Búl.) ........ 1:0
Partizan (Júg.) – Slavia Prag................. 3:1
Ipswich – Slovan Liberec (Ték.) ........... 1:0
Leeds – Hapoel Tel-Aviv (Ísr.).............. 1:0
National Búkarest (Rúm.) – París SG.. 0:2
Celtic – Blackburn................................... 1:0
Fenerbahce (Tyr.) – Panathinaikos ...... 1:1
Lazio – Crvena Zvezda (Júg.)................ 1:0
Austria Vín – Porto ................................. 0:1
Anderlecht – Midtjylland (Dan.) ........... 3:1
Vitesse (Hol.) – W. Bremen ................... 2:1
Alavés (Spá.) – Besiktas (Tyr.).............. 1:1
Boavista (Spá.) – Famagusta (Kýp.)..... 2:1
Parma – Wisla (Pól.) ............................... 2:1
PAOK (Gri.) – Grasshoppers ................. 2:1
Malaga – Amica Wronki (Pól.) .............. 2:1
Celta (Spá.) – Viking............................... 3:0
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla. Intersportdeildin, 5.
umferð 31. okt. 2002.
Hamar – Keflavík 83:137
Hveragerði:
Gangur leiksins: 4:0, 8:10, 10:26, 11:28,
13:31, 19:37, 23:47, 29:56, 34:56, 37:63,
37:66, 37:70, 52:87, 54:92, 56:92, 60:102,
71:114, 73:119, 74:123, 76:128, 78:131,
81:137, 83:137.
Stig Hamars: Svavar Birgisson 23, Svavar
Páll Pálsson 20, Lárus Jónsson 11, Robert
O’Kelly 8, Marvin Valdimarsson 6, Gunn-
laugur Hafsteinn 4, Pétur Ingvarsson 4,
Hallgrímur Brynjólfsson 4, Ægir Gunn-
arsson 2, Magnús Sigurðsson 1.
Fráköst: 21 í vörn – 11 í sókn.
Stig Njarðvíkur: Damon S. Johnsson 30,
Gunnar Einarsson 29, Guðjón Skúlason
26, Magnús Þ. Gunnarsson 15, Falur J.
Harðarson 11, Kevin S. Grandberg 10,
Sverrir Þór Sverrisson 8, Davíð Þ. Jóns-
son 4, Jón Nordal Hafsteinsson 2, Þor-
steinn Ó. Húnfjörð 2.
Fráköst: 15 í vörn – 23 í sókn.
Villur: Hamar 16 – Keflavík 23.
Dómarar: Sigmundur M. Herbertsson og
Einar Einarsson.
Áhorfendur: Um 180.
Tindastóll – KR 73:85
Sauðárkrókur:
Gangur leiksins: 5:5, 9:18, 18:22, 22:28,
25:36, 29:38, 29:41,33:45, 40:47, 41:50,
45:52, 52:56, 57:58, 63:60, 65:62, 65:68,
66:73, 70:75, 70:85, 73:85 .
Stig Tindastóls: Clifton Cook 26, Maurich
Carter 17, Michail Antropov 15, Einar
Örn Aðalsteinsson 11, Sigurður G. Sig-
urðsson 3, Helgi Viggósson 1.
Fráköst: 29 í vörn, 11 í sókn.
Stig KR: Darrel Flake 34, Ingvaldur M.
Hafsteinsson 14, Steinar P. Magnússon
10, Arnar S. Kárason 8, Óðinn Ásgeirsson
6, Skarphéðinn Ingason 4, Magnús Helga-
son 4, Jóel Sæmundsson 3, Tómas Her-
mannsson 2.
Fráköst: 25 í vörn, 14 í sókn.
Villur: Tindastóll 25, KR 23.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Einar
Skarphéðinsson.
Áhorfendur: 305.
Snæfell – Breiðablik 95:81
Stykkishólmur:
Gangur leiksins:12:11, 20:11, 24:14, 32:19,
32:21, 34:29, 39:33, 45:39, 52:41, 58:45,
67:49, 75:55, 75:59, 75:65, 79:72, 81:72,
81:75, 86:77, 95:81.
Stig Snæfells: Jón Ólafur Jónsson 28,
Hlynur Bæringsson 21, Clifton Bush 20,
Helgi Reynir Guðmundsson 12, Lýður
Vignisson 7, Sigurbjörn Þórðarson 7.
Fráköst: 23 í vörn – 21 í sókn.
Stig Breiðabliks: Kenny Tate 26, Pálmi F.
Sigurgeirsson 23, Friðrik Hreinsson 16,
Loftur Einarsson 8, Þórólfur H. Þor-
steinsson 4, Jón Arnar Ingvarsson 2,
Valdimar Helgason 2.
Fráköst: 19 í vörn – 17 í sókn.
Villur: Snæfell 14 – Breiðablik 22.
Dómarar: Jón Bender og Eggert Þ. Að-
alsteinsson skiluðu sínu hlutverki með
ágætum.
Áhorfendur: 210.
Valur – Haukar 73:84
Hlíðarendi:
Gangur leiksins: 2:0, 2:8, 8:15, 15:19,
21:19, 21:27, 26:27, 26:30, 30:30, 32:45,
38:47, 42:52, 49:52, 49:61, 53:64, 55:69,
58:73, 63:82, 64:84, 73:84.
Stig Valur: Laverne Junior 23, Ragnar N.
Steinsson 12, Ólafur M. Ægisson 10, Ægir
H. Jónsson 9, Hjörtur Þ. Hjartarson 8,
Bjarki Gústafsson 7, Hinrik Gunnarsson 4.
Fráköst: 22 í vörn – 15 í sókn.
Stig Haukar: Stevie Johnson 35, Marel Ö.
Guðlaugsson 13, Ottó Þórsson 10, Sævar
I. Haraldsson 8, Ingvar Guðjónsson 7,
Predra Bojovic 6, Þórður Gunnþórsson 3,
Halldór Kristmannsson 2.
Fráköst: 26 í vörn – 6 í sókn
Villur: Valur 24 – Haukar 12.
Dómarar: Georg Andersen og Bjarni
Gaukur Þórmundsson.
Áhorfendur: 87.
Í KVÖLD
ÞJÓÐVERJAR lögðu Rússa í síðustu
umferð B-riðilsins á heimsbik-
armótinu í Svíþjóð í gærkvöldi, 31:28
Sigur þeirra var sannfærandi þrátt
fyrir að dómararnir frá Úkraínu
gerðu allt sem þeir gátu til að að-
stoða Rússa. Þjóðverjar luku því leik
með fullt hús stiga eitt liða og eru
með markatöluna 89:72.
Leikur liðanna var skemmtilegur
en mun meira sást af mistökum hjá
Þjóðverjum að þessu sinni og ef til
vill vegna þess að þeir misstu tvo
mikilvæga menn út af snemma leiks
eftir að þeir voru hreinlega slegnir í
gólfið af rússnesku vörninni án þess
að dómararnir sæju ástæðu til að
sýna viðkomandi gult spjald en rautt
spjald hefði verið eðlilegt í báðum til-
vikum.
Þjóðverjar byrjuðu á að ganga vel
út á móti Toutchkine en stórskyttan
hinum megin, Rastvortsev nýtti sér
það vel og gerði sex mörk í fyrri
hálfleiknum en í síðari hálfleik höfðu
Þjóðverjar betri gætur á honum og
sáu til þess að hann skoraði ekki
mark.
Leikurinn var lengstum í járnum
þó svo að Rússar næðu undirtökunum
í fyrri hálfleik og höfðu um tíma
fjögurra marka forystu, 12:8. Rússum
gekk jafn erfiðlega að nýta sér þegar
þeir voru einum fleiri en það gerðist
í heilar átta mínútur í leiknum. Vörn
Þjóðverja varð enn sterkari þegar
þessi staða kom upp og virðist það
henta þeim vel að leika einum færri.
Í síðari hálfleik náðu Þjóðverjar
mjög góðri byrjun og gerðu tíu mörk
í fyrstu tólf sóknunum, staðan 21:24
fyrir Þjóðverja. Rússar náðu að
minnka muninn en aldrei að jafna
hvað þá að komast yfir, til þess voru
Þjóðverjar of sterkir.
Markahæstur hjá Þjóðverjum var
Christian Zeitz með 8 mörk, Pascal
Hens gerði 6 og Christian Schwarzer
5. Hjá Rússum var Toutchkine með 7
mörk og Rastvortsev 6.
Fullt hús hjá
meisturunum
Hafnfirðingar náðu strax betritökum á leiknum á Hlíðarenda,
en Valsmenn gáfu allt sem þeir áttu
til að ná einhverjum
tökum. Það skilaði
þeim 21:19 forystu
þegar átta mínútur
voru liðnar af fyrsta
fjórðungi en þá fór að halla á ógæfu-
hliðina. Vörn þeirra gliðnaði um of og
það nýttu gestirnir sér til hins ýtrasta
þar sem Stevie Johnson fór á kostum
auk þess að hittni heimamanna var
verulega ábótavant. Valsmönnum
gekk aðeins betur rétt fyrir hlé og var
staðan í hálfleik 47:38 fyrir Hauka.
Síðari hálfleikur fór rólega af stað,
sérstaklega tóku Hafnfirðingar það
rólega og Valsmönnum tókst að
minnka muninn í þrjú stig, 52:49. Þá
loks drógu Haukar upp sokkana.
Hægt og bítandi náði liðið saman og
Valsmenn áttu ekkert svar við því.
Þeir reyndu að herða á vörninni en
það kostaði margar villur og skilaði
litlum árangri. Þegar munaði tuttugu
stigum slökuðu Haukar á klónni en
sigurinn var ekki hættu.
„Við vinnum ekki mörg lið með
þessari vörn,“ sagði Bergur Már Em-
ilsson, þjálfari Vals. Valsmenn mættu
vissulega tilbúnir í slaginn en tókst
ekki að sýna sparihliðarnar. Vörnin
hélt ekki nógu vel og þegar skotin
rötuðu ekki nógu oft í körfuna var
ekki hægt að búast við sigri. Bestur
var Laverne Junior og að ósekju hefði
hann mátt láta meira til sín taka.
„Ég er ánægður með að landa sigri
því Valsmenn sýndu rækilega þegar
þeir unnu Njarðvík að þeir geta bitið
frá sér enda tók okkur rúmar þrjátíu
mínútur að losa þá frá okkur,“ sagði
Reynir Kristjánsson, þjálfari Hauka,
eftir leikinn. Stevie Johnson skoraði
tæplega helming stiga Hauka.
Fyrsti heimasigur Snæfells
Snæfell sigraði Breiðablik í Stykk-ishólmi með 95 stigum gegn 81.
Það var einungis á fyrstu fimm mín-
útum leiksins sem
Blikarnir héldu í við
heimamenn, en eftir
það höfðu heima-
menn undirtökin það
sem eftir lifði leiks. Um miðjan fyrsta
leikhluta náði Snæfell að keyra upp
hraðann í vörn og sókn. Náðu nokkr-
um góðum hraðaupphlaupum með
Helga Reyni í broddi fylkingar. Á
meðan hlutirnir gengu upp hjá Snæ-
felli þar sem Jón Ólafur Jónsson og
Clifton Bush hittu vel, var leikur
Blika stirður, t.a.m. hékk Kenny Tate
fullmikið á boltanum. Í upphafi ann-
ars leikhluta skiptu gestirnir yfir í
svæðisvörn og tóks þannig að róa
leikinn, sér í hag. Blikunum gekk best
þegar þeim tókst að róa leikinn og
stjórna hraðanum, það er greinilega
leikstíll sem hentar þeim vel. Friðrik
Hreinsson átti ágæta rispu í öðrum
fjórðungi og á þeima kafla tókst gest-
unum að minnka muninn í 5 stig. Á
tímabili í upphafi seinni hálfleiks leit
út fyrir að Blikarnir væru að gefast
upp. Þá fór Snæfellingurinn Jón Ólaf-
ur á kostum í sókninni, en þegar
þarna var komið, höfðu heimamenn
fundið gott svar við svæðisvörn gest-
anna. Fjórði leikhluti hófst með mik-
illi pressuvörn um allan völl hjá Blik-
um og á sama tíma virkuðu Snæ-
fellingar kærulausir. Blikunum,
drifnum áfram af Pálma Frey, tókst
að minnka muninn niður í sjö stig rétt
fyrir miðjan leikhlutann, en þá vökn-
uðu Snæfellingar af værum blundi, og
luku leiknum með góðum enda-
spretti. Í liði Snæfells var Jón Ólafur
Jónsson sjóðheitur í sókninni með sín
28 stig og góða nýtingu, en varnar-
leikinn þarf hann að bæta. Hlynur
Bærings var mjög traustur í leiknum,
bæði í sókn og vörn, var t.d. með 13
fráköst. Helgi Reynir Guðmundsson
lék sinn besta leik í vetur, stjórnaði
sóknarleiknum mjög vel og skoraði
körfur á mikilvægum augnablikum.
Hjá Breiðablik lék Pálmi Freyr Sig-
urgeirsson mjög vel, sérstaklega í
fjórða leikhluta þegar hann virtist
vera að taka leikinn í sínar hendur.
Friðrik Hreinsson átti fínan leik
framan af, hitti vel og var ógnandi í
sókninni, en dalaði þegar leið á leik-
inn. Kenny Tate er mjög öflugur leik-
maður, með mikinn stökkkraft, tekur
mikið af fráköstum og er með mjög
góð skot. Hann mætti þó falla betur
inn í liðsheildina. Loftur Einarsson
stóð vel fyrir sínu, sterkur varnar-
maður og mikill baráttuhundur.
Skotsýning í Hveragerði
Leikmenn Keflavíkur buðu upp áhreina skotveislu í Hveragerði í
gærkvöldi þegar þeir unnu Hamars-
menn með 54 stiga
mun, 83:137. Það
gekk nánast allt upp
hjá Keflavík og haldi
þeir áfram á sömu
braut og í síðustu leikjum, virðist fátt
geta stöðvað þá um þessar mundir.
Keflvíkingar skoruðu alls tuttugu og
eina þriggja stiga körfu í leiknum og
voru þeir með 53% nýtingu í þriggja
stiga skotum í leiknum.
Gunnar Einarsson gaf tóninn strax
í fyrsta leikhluta fyrir Keflavík en
hann skoraði þá 18 stig og lagði grunn
að góðum sigri Keflavíkur. Hann var
síðan hvíldur og við tók Guðjón nokk-
ur Skúlason í þriggja stiga skotunum
og skoraði hann sex þriggja stiga
körfur, en Gunnar fimm stykki úr sex
tilraunum, einstaklega góð nýting. Þó
var í upphafi leiks sem Hamar ætlaði
ekki að gefa tommu eftir, en þegar
leið á leikinn, virtist sem fjaraði und-
an liðinu.
Hamarsmenn náðu sér aldrei á
strik í vörninni, en það var nánast
sama til hvaða bragðs þeir gripu,
Keflvíkingar höfðu alltaf svör á
reiðum höndum og spiluðu hraðan og
lipran sóknarbolta.
Í heildina er erfitt að draga ein-
staka leikmenn Keflavíkur fram fyrir
aðra. Þó voru þeir Damon S. Johnson,
Gunnar Einarsson, Guðjón Skúlason,
Sverrir Sverrisson og Magnús Þ.
Gunnarsson einna bestir í annars
góðu liði Keflavíkur.
Hjá Hamri spilaði Svavar Birgis-
son vel í sókninni, sem og Svavar
Pálsson. Ljósið í myrkrinu hjá Hamri
var ágæt sókn, en í vörninni réðu þeir
ekkert við Keflvíkingana. „Það var
lítill varnarleikur sem við sýndum
gegn sterku Keflavíkurliði og því fór
sem fór,“ sagði Lárus Jónsson, fyr-
irliði Hamars.
Sanngjarn sigur KR-inga
KR sótti dýrmæt stig til Sauðár-króks, eftir sanngjarnan sigur í
miklum baráttuleik í gærkvöldi,
85:73. Leikurinn
hófst með mikilli bar-
áttu og hraða en
fljótlega tóku gest-
irnir forystuna og eftir nokkurra mín-
útna leik voru þeir komnir í þægilega
stöðu með um tíu stiga forystu. Þann-
ig hélst leikurinn allt til hálfleiks,
Vörn gestanna var mun sterkari en
heimamanna, sem átti lítil svör við
leik Darrel Flake sem var yfirburða-
maður í liði KR.
Heimamenn söfnuðu á sig villum,
Axel kominn með þrjá villur í lok
fyrsta leikhluta, en náðu þó að saxa á
forskotið niður í sjö stig þegar flautað
var til leikhlés.
KR-ingar héldu uppteknum hætti í
upphafi þriðja leikhluta og skoruðu
tíu fyrstu stigin en þá sneru Tinda-
stólsmenn vörn í sókn, þéttu vörnina
og léku sóknarleikinn vel á meðan
vörn KR-inga var nánast í molum og
á nokkrum mínútum skoruðu leik-
menn Tindastóls tuttugu stig á móti
sex og breyttu stöðunni í 61: 58 og
þótti nú áhorfendum sem loks færi að
rofa til eftir erfiðan fyrri hluta.
Í lok þriðja leikhluta var staðan
65:62.
KR-ingar voru hins vegar ekki á
því að gefast upp, og strax í upphafi
síðasta leikhlutans náðu gestirnir aft-
ur yfirhöndinni og létu hana ekki af
hendi til leiksloka.
Mikil harka færðist í leikinn á loka-
mínútunum, og létu heimamenn mót-
lætið pirra sig verulega og fengu á sig
tæknivíti fyrir mótmæli við dómgæsl-
una og lönduðu gestirnir sigri, sem
skapaðist fyrst og fremst vegna yf-
irvegaðs leiks, þar sem sett voru upp
leikkerfi, sem enduðu flest hjá Darr-
el, Ingvaldi eða Steinari, bestu mönn-
um KR-inganna, sem skiluðu boltan-
um í körfuna.
Í liði Tindastóls voru Clifton Cook
bestur en Maurich Carter og Antrop-
ov áttu góðan síðari hálfleik.
Þá kom Einar Örn mjög sterkur
inn í liðið og er ljóst að hinir tveir nýju
leikmenn Tindastóls, sem komu frá
Þór, eiga eftir að styrkja liðið veru-
lega í vetur, þó að þeir séu ekki enn
alveg komnir í takt við þá sem fyrir
eru.
Haukar komu Val
niður á jörðina
VALSMENN náðu ekki að fylgja eftir fræknum sigri á Íslandsmeist-
urum Njarðvíkinga og varnarleikurinn varð þeim að falli þegar
Haukar skelltu þeim niður á jörðina á Hlíðarenda í gærkvöldi í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik, 84:73. Keflvíkingar halda áfram að
ferðast með flugeldasýningar og voru þeir með sýningu hjá Ham-
arsmönnum í hveragerði í gærkvöldi – gerðu 137 stig gegn 83
heimamanna. KR-ingar fögnuðu sigri á Sauðárkróki, 85:73, og leik-
menn Snæfells lögðu Blika að velli í Stykkishólmi, 95:81.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Ríkharður
Hrafnkelsson
skrifar
Helgi
Valberg
skrifar
Björn
Björnsson
skrifar