Morgunblaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 C 3 ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ Í KUMITE Sunnudaginn 02. nóvember kl. 11:00 Fylkishöllinni við Fylkisveg 6 Úrslit hefjast kl. 15:00 Komdu og fylgstu með bestu karatemönnum landsins í frjálsum bardaga! KARATESAMBAND ÍSLANDS ÍÞRÓTTIR  GÚSTAF Bjarnason skoraði tíma- mótamark í leiknum gegn Júgóslöv- um í Borlänge í gærkvöldi. Þriðja mark hans í leiknum var 300. lands- liðsmark hans, en Gústaf hefur skor- að 304 mörk með landsliðinu.  GÚSTAF er sá landsliðsmaður sem hefur skorað flest mörk í lands- leik – hann skoraði 21 mark er Ís- lendingar skelltu Kínverjum á Sel- fossi 1997, 31:22.  GÚSTAF skoraði síðast mark í Póllandi 16. mars, er Ísland vann Pólland í æfingaleik, 28.23.  ÍSLENDINGAR hafa oft haft góð tök á Júgóslövum í gegnum tíðina og á EM í Svíþjóð í byrjun árs fögnuðu íslensku leikmennirnir sigri á þeim, 34:26. Þá skoraði Ólafur Stefánsson 10 mörk og Gústaf lék ekki með. Ein- ar Örn Jónsson skoraði þá 8 mörk, en hann skoraði sjö í gærkvöldi.  BANDARÍSKI landsliðsmaðurinn Claudio Reyna leikur ekki meira með Sunderland á leiktíðinni. Reyna meiddist á hné í leik Sunderland og Bolton á mánudagskvöldið og í gær kom í ljós að krossbönd í hnénu slitn- uðu sem þýðir að hann verður frá í átta mánuði.  FULHAM stendur vel að vígi eftir 3:0 sigur á móti Dinamo Zagreb á útivelli í fyrri viðureign liðanna í 2. umferð UEFA-keppninnar í knatt- spyrnu. Króatarnir misstu leikmann að velli með rautt spjald á 32. mínútu og fjórum mínútum síðar skoraði Lu- is Boa Morte fyrsta mark Fulham. Steve Marlet og Barry Hayles bættu við tveimur mörkum í seinni hálfleik.  EYJÓLFUR Sverrisson lék allan tímann í vörn Herthu Berlin sem sigruðu Apoel Nicosia, 1:0, á Kýpyr þar sem varamaðurinn Bartosz Karwan skoraði sigurmarkið þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.  HERMANN Hreiðarsson lék allan tímann í vörn Ipswich sem sigraði Slovan Liberec frá Tékklandi, 1:0, en þetta var fyrsti leikur Ipswich undir stjórn Joe Royle. Vamaðurinn Darren Bent skoraði sigurmarkið um miðjan síðari hálfleik. Ipswich hefur átt góðu gengi að fagna á heimavelli sínum í Evrópukeppninni og er ósigrað á Portman Road í 39 leikjum.  HANNES Þ. Sigurðsson sat á varamannabekk Viking sem tapaði fyrir Celta Vigo á Spáni, 3:0.  HARRY Kewell tryggði Leeds sig- urinn á ísraelska liðinu Hapoel Tel Aviv á Elland Road þegar hann skor- aði eina mark leiksins á 82. mínútu.  SVÍINN Henrik Larsson var hetja Celtic en þessi mikli markaskorari skoraði eina mark leiksins þegar Celtic bar sigurorð af Blackburn á heimavelli sínum í Glasgow. FÓLK . - m m r k r Íslenska liðið fékk sannkallaðaóskabyrjun í gær. Guðmundur Hrafnkelsson gaf tóninn með því að verja í tvígang mjög vel, Patrekur átti skot í stöngina áður en fyrsta markið kom. Eftir átta mín- útna leik var staðan 6:1 fyrir Ísland og allt virtist ætla að ganga upp. Júgóslavar fóru langt út á móti Ólafi Stefánssyni en það var leyst skemmtilega með því að setja hann á miðjuna sem leik- stjórnanda langt aftur á velli. Hann ógnaði mikið og losaði þannig um aðra og í vörn var barist af krafti og einlægni og hraðaupphlaupin keyrð eins og áður – á fullri ferð. Mun- urinn á þeim nú og í fyrri leikjum var að ef útséð var um að hægt væri að skora í fyrstu tilraun var hægt aðeins á og skynsemin látin ráða. Þetta gekk eins og í sögu. Hættumerki gerði vart við sig eftir fjórtán mínútur þegar hræði- lega hlutdrægir og lélegir norskir dómarar ráku Sigfús Sigurðsson út- af öðru sinni fyrir nákvæmlega ekki neitt, eins og í fyrra sinnið. Sigurð- ur Bjarnason kom í vörnina í stað Sigfúsar, sem hefur leikið stórkost- lega í vörn í þessu móti, og átti Sig- urður fínan leik. Júgóslavar náðu að minnka mun- inn niður í þrjú mörk, fyrst og fremst venga þess að íslensku leik- mennirnir náðu ekki fráköstum eft- ir að Guðmundur varði vel. Þannig fékk liðið á sig þrjú mörk um miðbik fyrri hálfleiks og staðan var 9:6. Þá komu fjögur íslensk mörk í röð og Guðmundur var iðinn við að skipta inn leikmönnum. Heiðmar Felixson kom í sóknina og Aron Kristjánsson einnig. Júgóslavar reyndu hvað þeir gátu, skiptu um markvörð en ekk- ert gekk. Munurinn samt aðeins fjögur mörk, 17:13 í leikhléi. Íslendingar gerðu tvö fyrstu mörk síðari hálfleiks og komust í 23:16 eftir átta mínútur. Nokkur losarabragur var á sóknarleiknum á þessum tíma enda voru Íslendingar oftast einum færri og Júgóslavar tóku tvo menn úr umferð og press- uðu framarlega á aðra þannig að staðan var erfið. Sókn Júgóslava var slök á þessum tíma og bjargaði það málunum. Þegar hálfleikurinn var hálfnaður kom Sigfús inn í vörnina á ný og hafði ekki verið þar lengi þegar dómararnir sáu eitthvað sem eng- inn annar sá og ráku hann í bað. Sigfús reyndi af stakri kurteisi að þakka dómaranum fyrir leikinn um leið og hann fór af velli – alls ekki dónalegur – en Norðmaðurinn blessaður leit ekki við Sigfúsi sem fór útaf með treyjuna sína í hengl- um, hefur sjálfsagt rifið hana sjálf- ur því ekki var dæmt á Júgóslav- ana. Íslenska liðinu tókst að halda muninum og fimm marka sigur var staðreynd. Það er ekki hægt annað en taka ofan fyrir íslenska liðinu að þessu sinni. Þótt ekki væri nema að hafa ekki látið dómarana eyðileggja leik sinn. Það er raunar áhyggjuefni hvernig dómurum er raðað niður á leiki. Úkraínumennirnir voru látnir dæma leik Rússa og Þjóðverja og Norðmenn okkar leik, eðlilegra hefði verið að snúa þessu við þannig að ekki sé boðið upp á þá hættu að menn séu hlutdrægir. En því miður hefur þetta verið svona í handbolt- anum lengi og verður sjálfsagt áfram. Guðmundur átti fínan leik eins og í fyrrakvöld, en nú hverfur hann á braut og Birkir Ívar og Hlynur verða að standa vaktina í síðustu tveimur leikjunum um helgina. Pat- rekur fór mikinn í leiknum og var sannur fyrirliði þegar á reyndi. Ar- on átti fínan leik og hornamennirnir voru mjög sterkir, Gústaf, sem kom inn í byrjunarliðið í fyrsta sinn, að auki öruggur á vítalínunni. Morgunblaðið/Mikael Forslund „Hvert ert þú að fara?“ gætu íslensku leikmennirnir Sigfús Sigurðsson, Patrekur Jóhannesson og Aron Kristjánsson verið að segja þegar þeir taka góðkunningja Íslendinga, Nedeljlo Jovanovic, traustum tökum. Íslendingar skelltu Júgóslövum í Borlänge ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik lagði það júgóslavneska, 34:29, í síðasta leik riðlakeppninnar á heimsbikarmótinu í Svíþjóð í gærkvöldi. Sigurinn var langþráður en um leið sannfærandi og sanngjarn og það er greinilegt að liðið er á réttri leið því leikur þess í gær var mun betri en tveir fyrri leikir þess. Hins vegar er óþarfi að ofmetnast því enn er ýmislegt sem má laga og leikmenn gera enn of mikið af mistökum í sókninni þótt þeim fækki stöðugt á milli leikja. Svíar verða mótherjar Íslendinga á laugardaginn í Gautaborg.                            !" #" $     % & ' ()* +             Skúli Unnar Sveinsson skrifar frá Svíþjóð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.