Morgunblaðið - 01.11.2002, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 01.11.2002, Qupperneq 4
 GUÐMUNDUR Hrafnkelsson landsliðsmarkvörður heldur til Ítal- íu í dag þannig að það vera þeir Ív- ar Birkir Guðmundsson og Hlynur Jóhennsson sem verja íslenska markið í tveimur síðustu leikjunum í heimsbikarkeppninni í Svíþjóð.  ANDRÉS Kristjánsson, fyrrver- andi landsliðsmaður úr Haukum, er aðstoðarmaður íslenska hópsins á mótinu, en hann hefur búið lengi í Svíþjóð og er öllum hnútum kunn- ugur innan sænska handknattleiks- sambandsins. Dóttir hans, Emma, sem er sautján ára, starfar líka við mótið, en hún er ein þeirra sem skráir niður tölfræðilegar upplýs- ingar í leikjunum í B-riðli sem leiknir eru í Borlänge og Ludvika.  SIGFÚS Sigurðsson er búinn að vera veikur síðan hann kom til Sví- þjóðar á mánudaginn. Hann hefur samt látið sig hafa það að spila og það er varla hægt að sjá á honum innan vallar að hann sé veikur. Það er hann engu að síður, með hita, höfuðverk og hálsbólgu þannig að kraumar hressilega í honum. Sigfús tekur þessu þó með stóískri ró: „Þetta er yndislegt líf,“ sagði hann glottandi þegar hann fór upp á hót- elherbergi til að hvíla sig eftir morgunverð í gærmorgun.  ÁTTA leikmenn mættu á æfingu í gærmorgun, ekki vegna þess að hinir hefðu ákveðið að skrópa held- ur gaf Guðmundur Þ. Guðmunds- son landsliðsþjálfari þeim sem mest hafa leikið frí. Þeir sem æfðu í gær voru markverðirnir Hlynur og Birkir Ívar og Gústaf Bjarnason, Snorri Steinn Guðjónsson, Heið- mar Felixson, Gunnar Berg Vikt- orsson, Aron Kristjánsson og Sig- urður Bjarnason.  HRAFNHILDUR Skúladóttir fór mikinn með liði Tvis Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni í handknatt- leik í fyrrakvöld og skoraði 10 mörk. Það dugði skammt því Holstebro tapaði, 35:24, og án stiga eftir átta umferðir.  ÞJÁLFARAR NBA-liðsins Dallas Mavericks, feðgarnir Don og Donn- ie Nelson sátu á veitingastað í Dallas og horfðu á lið sitt leggja Memphis Grizzlies að velli á útivelli í fyrsta leik liðanna á keppnistíma- bilinu. Feðgarnir voru klæddir í röndótta samfestinga að hætti fanga og voru einnig með stálkúlu festa með keðju við fótinn.  MEÐ þessu vildu þeir mótmæla tveggja leikja banni sem þeir fengu eftir að hafa horft á leikmenn í Júgóslavíu sem voru ekki gjald- gengir í háskólavalið. Mjög stífar reglur eru þess efnis í NBA-deild- inni. Nelson-feðgarnir notuðu tæki- færið og söfnuðu fé á veitingastaðn- um til styrktar krabbameinssjúkum börnum í Dallas.  TERRY Yorath, knattspyrnu- stjóri Sheffield Wednesday, sagði upp starfi sínu í gærmorgun, dag- inn eftir að lið hans tapaði fyrir Mil- wall í ensku 1. deildinni og er nú í þriðja neðsta sæti. Í leikslok gerðu stuðningsmenn Sheffield Wedn- esday hróp að Yorath og þar með fékk hann nóg, en nokkru fyrir leik- inn hafði Yorath sagt að hann væri ekki á förum frá félaginu.  ÍSLENSKA knattspyrnukonan, Eyrún Oddsdóttir, setti met með háskólaliði sínu Southern Birming- ham í Alabama í Bandaríkjunum. Eyrún gaf 25 stoðsendingar á leik- tíðinni sem er nýtt skólamet.  BOLTON hefur ákveðið að danski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu Stig Töfting komi til greina eins og hver annar í liðið þrátt fyrir að hafa hlotið fjögurra mánaða fangelsis- dóm fyrir að hafa gengið í skrokk á tveimur mönnum á veitingastað í Kaupamannahöfn í sumar. FÓLK Guðmundur varði fantavel og þaðer mjög jákvætt og svo keyrð- um við á hraðaupphlaupin en hægð- um á okkur á réttum tíma núna, keyrðum þau ekki alveg eins og undanfarið. Það munaði miklu að missa Sigfús úr vörninni en Sigurður var alveg þokkalegur og það er aldrei að vita hvernig hefði farið ef Sigfús hefði náð að standa vörnina allan tím- ann.“ Hvernig finnst þér mótið hafa verið? „Ég er auðvitað mjög fúll að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum svona stórt. Það sem hefur virkað hjá okkur í leikjunum hefur virkað mjög vel en svo höfum við klikkað á stutt- um köflum og þá hefur verið rúllað yfir okkur. Mótið er mjög jákvætt fyrir okkur upp á framhaldið að gera og við get- um ekkert nema lært af þessu öllu. Við sjáum til dæmis hvað liðin koma til með að gera á móti okkur í Heims- meistarakeppninni í Portúgal. Það er til dæmis fínt að geta æft þegar ég er tekinn úr umferð og við höfum svör við því og svona mætti lengi telja og við verðum tilbúnir með þetta allt saman á HM. Í heildina er þetta í lagi, vörnin er meira og minna fín og sóknarleikurinn er að koma, það er auðvitað geðveiki að gera um tuttugu tæknileg mistök í einum leik, eins og á móti Rússum,“ sagði Ólafur. Leikur okkar stöðugt betri „Leikur okkar verður stöðugt betri og ég er auðvitað mjög ánægður með sigurinn. Við náðum að hægja aðeins á hraðaupphlaupunum á rétt- um tíma núna þó svo við keyrðum mjög grimmt á þá þegar það átti við,“ sagði Guðmundur Guðmundsson þjálfari léttur á brún í leikslok. „Þrátt fyrir sigurinn er enn mjög margt sem við þurfum að laga en við erum búnir að laga helling og teljum okkur hafa fundið svör við mörgu af því sem var vandamál í fyrsta leikn- um og öðrum leiknum og nú er bara að finna svör við því sem enn má laga. Mótherjarnir reyna að koma í veg fyrir að Patrekur og Ólafur fái bolt- ann þegar þeir tapa honum og reyna þannig að tefja hraðaupplaupin og hefur gengið ágætlega nema í kvöld.“ Er lausnin fundin? „Já, við teljum það. Við fáum Rúnar til að koma í boltann eða vinstri hornamanninn og ég tel að þetta verði ekki vandamál í framtíðinni því ef liðin sækja fram með einn eða tvo menn þá sækjum við á þá fjórir á móti fjórum og það er auðveldara þar sem þá hefur hver leikmaður meira svæði til að vinna á.“ Hvers vegna settir þú Gústaf í byrjunarliðið? „Tja, mér fannst það eðlilegt miðað við hina leikina tvo. Hann er mjög góður leikmaður og ég treysti honum mjög vel og innkoma hans sýnir ákveðinn styrk, það er gott ef menn geta hvílt meira og minna í einn eða tvo leiki og komið síðan mjög sterkir inn þegar kallið kemur.“ Þegar þið voruð einum færri, var sóknarleikurinn stundum nokkuð vandræðalegur, ertu ekki sammála því? „Jú, en þetta er mjög erfitt. Þeir taka tvo úr úmferð og sækja fram- arlega á móti hinum þannig að ef menn ætla að skjóta fyrir utan þá eru það skot af allt of löngu færi. Þetta var mjög erfið staða og við verðum trúlega að fara betur yfir þetta eins og svo margt annað. Við skulum samt ekki gleyma því að við fengum fín mörk út úr þessu. Það var líka mjög til bóta í þessum leik að okkur gekk miklu betur að nýta okkur þau fáu skipti sem við vorum einum fleiri. Sannleikurinn er auðvitað sá að þeg- ar lið hefur ekki komið saman í fimm mánuði þá er auðvitað margt sem er ekki í lagi og þarfnast lagfæringa og endurbóta. Við höfum þurft að nota leikina hér til slíks enda er tilgang- urinn með þátttöku í svona móti fyrst og fremst að lagfæra og það er gert með því að vinna vel á milli leikja og lagfæra það sem miður fór í næsta leik á undan. Við höfum til dæmis far- ið yfir ákveðna hluti með markvörð- unum og það skilaði sér í stórkostleg- um leik Guðmundar í dag og í gær og þannig mætti áfram telja. Nú er Guð- mundur farinn og hinir verða að taka við. Þetta er okkar staða, við eigum menn úti um allan heim að spila og það þýðir ekkert að velta sér upp úr því heldur nota það lið sem við getum notað hverju sinni,“ sagði Guðmund- ur. Ólafur Stefánsson eftir sigurinn á Júgóslövum Morgunblaðið/Mikael Forslund Júgóslavinn Dragan Sudzum nær hér að stöðva Einar Örn Jónsson, en Einar Örn náði oftar að snúa á Sudzum og skoraði sjö mörk. Við náðum að byrja mjög vel „VIÐ byrjuðum vel og náðum að halda þeirri forystu sem við náðum á upphafsmínútunum. En án þess að maður sé að gera lítið úr fínum sigri, gerðum við rosalega mikið af mistökum í þessum leik rétt eins og hinum tveimur, en þau voru samt heldur færri og stóðu yfir í skemmri tíma þannig að við erum á réttri leið,“ sagði Ólafur Stef- ánsson eftir að Júgóslavar voru lagðir að velli á heimsbikarmótinu í Svíþjóð, 34.29. Skúli Unnar Sveinsson skrifar frá Svíþjóð ÍSLENSKA landsliðið mætir Svíum á morgun í Gautaborg og leikur sig- urvegarinn úr þeirri við- ureign við sigurvegarann í viðureign Júgóslavíu og Egyptalands um fimmta sæti á heimsbikarmótinu og þau lið sem tapa leika um sjöunda sætið á sunnudaginn. Í undanúrslitum á morgun leika Þýskaland – Danmörk og Frakkland – Rússland. Sigurveg- ararnir leika síðan til úr- slita og tapliðin um þriðja sætið. Ísland mætir Svíþjóð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.