Morgunblaðið - 08.11.2002, Page 1
2002 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
LÁRUS ORRI GEFUR ÁFRAM KOST Á SÉR Í LANDSLIÐIÐ / C3
FORRÁÐAMAÐUR norska úrvalsdeildarliðsins
Stabæk, Tom Schelvan, staðfesti í gær í samtali
við Morgunblaðið að Tryggvi Guðmundsson og
Marel Baldvinsson yrðu báðir í landsliðshópi Ís-
lands sem mætir liði Eistlands í vináttulands-
leik, 20. þessa mánaðar í Tallinn. Schelvan
sagði að skeyti þess efnis hefði borist frá Knatt-
spyrnusambandi Íslands, KSÍ, á dögunum.
Tryggvi hefur ekki verið í landsliðshópi Íslands
í undanförnum leikjum en fær nú tækifæri á ný
hjá Atla Eðvaldssyni landsliðsþjálfara. Tryggvi
klæddist landsliðsbúningnum síðast í Bodö í
Noregi í maí, er hann kom inná á 81. mín. í jafn-
teflisleik gegn Noregi, 1:1. Hann hefur leikið 29
landsleiki og skorað átta mörk í þeim.
Atli kallar
á Tryggva
NJARÐVÍKINGAR
eiga von á bandarísk-
um körfuknattleiks-
manni um næstu helgi
sem á að fylla skarð
Pete Philo sem hefur
komist að samkomu-
lagi við liðið um að
samningi við hann
verði rift. Philo þarf
að gangast undir að-
gerð á hné á næstunni
vegna meiðsla. Frið-
rik Ragnarsson, þjálf-
ari Íslandsmeistara-
liðsins, sagði í gær að
búið væri að komast að
samkomulagi við bak-
vörðinn G.J. Hunter
sem er 31 árs og hefur
komið víðar við á ferli
sínum sem atvinnumað-
ur í Evrópu. Að auki
hefur Keflvíkingurinn
Þorsteinn Húnfjörð til-
kynnt félagaskipti í
Njarðvík en Þorsteinn
er hávaxinn og sterkur
miðherji og sagði Frið-
rik það happafeng að
fá slíkan leikmann upp í
hendurnar.
Þórður hefur verið úti í kuld-anum með landsliðinu í meira
en eitt ár. Hann lék síðast með því
á Möltu í aprílmánuði 2001 og skor-
aði fjórða markið í 4:1 sigri Íslend-
inga eftir að hafa komið inná sem
varamaður. Hann var í landsliðs-
hópnum í næstu tveimur leikjum
þar á eftir, gegn Möltu og Búlg-
aríu, sem báðir fóru fram hér á
landi í júní 2001, sat á varamanna-
bekknum en kom ekkert við sögu í
þeim leikjum. Þórður lýsti opinber-
lega yfir ónægju sinni með því að
vera ekki í byrjunarliðinu í um-
ræddum leikjum og síðan hefur
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari,
ekki séð ástæðu til að velja hann
fyrr en nú.
Þórður, sem hefur leikið mjög
vel með Bochum á leiktíðinni, á að
baki 42 leiki með íslenska landslið-
inu og í þeim leikjum hefur hann
skorað tvö mörk.
Þeir bræður hafa ekki verið sam-
an í leikmannahópi síðan þeir léku
með Genk í Belgíu fyrir fjórum ár-
um. Þess má geta til gamans að
þrír bræður hafa áður verið í lands-
liðshópi Íslands og léku þá saman
gegn áhugamannalandsliði Eng-
lands í Wimbledon 1963, 0:4. Það
eru þeir Hörður, Bjarni og Gunnar
Felixsynir, gamalkunnir leikmenn
KR-liðsins.
Heimasíða Stokes greinir frá því
í gær að Pétur Hafliði Marteinsson
hafi eins og Bjarni Guðjónsson ver-
ið valinn í íslenska landsliðshópinn
en ekki Brynjar Björn Gunnarsson.
Brann hefur ekki fagnað sigri í
deildinni frá því árið 1963 og síðasti
titill liðsins var árið 1982 í bik-
arkeppninni.
Miklir fjárhagslegir hagsmunir
voru í húfi fyrir Brann sem dregur
á eftir sér skuldahala sem nemur
um 770 milljónum ísl. kr., en með
sigrinum er talið að tekjur liðsins
verði um 100–200 milljónum meiri
en ef liðið hefði fallið í 1. deild.
MIKLU fargi var létt af stuðnings-
mönnum norska úrvalsdeildarliðs-
ins Brann á miðvikudag er liðið bar
sigurorð af Sandefjord, 2:1, í síðari
leik liðanna um laust sæti í úrvals-
deild að ári. Um 11 þúsund stuðn-
ingsmenn Brann fögnuðu langt
fram eftir kvöldi líkt og liðið hefði
unnið meistaratitil, og í lok leiks
var heljarmikil flugeldasýning á
heimavelli liðsins. Þess má geta að
Nokkur óvissa hefur verið um
framtíð Teits Þórðarsonar, þjálfara
Brann, en Ivar Hanestad, stjórn-
arformaður Brann og maðurinn
sem réð Teit til starfsins, segir við
Bergens Tidende að Teitur sé ekki
syndaselurinn á leiktíðinni. „Við
seljum þrjá af lykilleikmönnum
liðsins í upphafi tímabilsins og þeir
sem komu í staðinn eru ekki sama
gæðaflokki og ekki við Teit að sak-
ast,“ segir Hanestad og lofar því að
Teitur verði áfram þjálfari liðsins
til ársins 2004. Margir leikmenn
liðsins hafa sagt að Teitur sé rétti
maðurinn í starfið en styrkja þurfi
liðið í vörn sem sókn ætli liðið sér
stærri hluti. Aftenposten hrósar
Teiti fyrir að hafa gefið ungum
leikmönnum tækifæri og aðeins
einn „aðkomumaður“ hafi skilað
sínu, Ármann Smári Björnsson.
Teitur Þórðarson fagnar eftir að Brann hafði lagt Sandefjord að velli á miðvikudagskvöldið í Berg-
en, 2:1, og tryggt áframhaldandi sæti sitt í norsku úrvalsdeildinni. Sjá viðtal við Teit á C4.
„Teitur er ekki syndaselurinn“
Philo fer frá
Njarðvíkingum
Friðrik
Ragnarsson
Þórður, Bjarni
og Jóhannes
í landsliðinu
ÞÓRÐUR Guðjónsson, leik-
maður þýska úrvalsdeildarliðs-
ins Bochum, er í íslenska lands-
liðshópnum í knattspyrnu sem
mætir Eistum í vináttulandsleik
í Tallin í Eistlandi 20. þessa
mánaðar ásamt bræðrum sín-
um, Bjarna og Jóhanni Karli.