Morgunblaðið - 08.11.2002, Side 3

Morgunblaðið - 08.11.2002, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2002 C 3 Firma- og hópakeppni í Fífunni Unglingaráð HK heldur firma- og hópakeppni sunnudaginn 24. nóvember nk. í hinu glæsilega knattspyrnuhúsi Fífunni. Hér gefst knattspyrnuhópum tækifæri á að spreyta sig við bestu aðstæður. Keppt verður í 7 manna liðum og verða 4-5 leikir á lið í riðlakeppni auk úrslitaleikja. Þátttökugjald er 15.000. kr á lið. Þátttökutilkynningar berist til: Siggeirs Siggeirssonar s. 897 4026, netfang: siggeir@nyherji.is Vilmars Péturssonar s. 891 9999, netfang: vilmar@img.is Gunnars Sigurðssonar s. 895 5112, netfang: gunnar.sigurdsson@isb.is ÍÞRÓTTIR  HANNES Þ. Sigurðsson skoraði eitt mark hjá Árna Gaut Arasyni, þegar Rosenborg vann Viking í æf- ingaleik í ABRA-höllinni í gær, 5:3. Hannes kom inná sem varamaður og lék seinni hálfleikinn með Viking og náði að jafna á 51. mín., 2:2.  LUIZ Felipe Scolari, sá sem stýrði brasilíska landsliðinu til sigurs á HM í knattspyrnu í sumar hefur verið boðið að taka við starfi landsliðsþjáf- ara Portúgals, en Scolari hætti með brasilíska liðið að loknu heimsmeist- aramótinu. Umboðsmaður Scolaris vildi ekki staðfesta boðið í gær en viðurkenndi að nokkur boð hefðu komið frá Evrópu og verið væri að fara yfir þau.  ANTONIO Oliveira, sem stýrði portúgalska landsliðinu á HM var sagt upp í mótslok og síðan hefur Agostinho Oliveira stýrt landsliðinu en hann var aðeins ráðinn í stuttan tíma. Portúgal mætir Skotlandi í vináttulandsleik 20. nóvember nk.  SLÆMT gengi Bayern München virðist skapa spennu í herbúðum liðsins. Slagsmál á milli leikmanna brutust út á æfingasvæði Bayern í gærmorgun – og áttust franski leik- maðurinn Bixente Lizarazu og Kró- atinn Robert Kovac við, en Lizarazu hóf átökin með því að saka Kovac um gróft samstuð.  OTTMAR Hitzfeld, þjálfari Bayern, stöðvaði æfinguna og fór með leikmennina til búningsklefa. Hann sagði síðan að Lizarazu yrði sektaður um 860 þús. ísl. kr., fyrir að hefja átökin. Hitzfeld sagði að uppá- koman sýndi honum að leikmenn sín- ir væru með lífsmarki – fyrir átökin gegn meistaraliði Dortmund.  JOHN Toshack, fyrrverandi leik- maður Liverpool og þjálfari Real Madrid, var mættur til Rómar í gær til viðræðna um að taka við ítalska 2. deildarliðinu Catania.  FULHAM skráði nafn sitt í sögu- bækurnar, er liðið vann Bury í deild- arbikarkeppninni á miðvikudags- kvöldið, 3:1. Ellefu leikmennirnir sem byrjuðu leikinn, komu frá ellefu löndum. Þjálfarinn, Frakkinn Jean Tigana, tefldi fram leikmönnum frá England, Skotlandi, Wales, Norður- Írlandi, Írlandi, Kamerún, Dan- mörku, Jamaica, Japan, Lettlandi og Marokkó. Á varamannabekknum sátu leikmenn frá Portúgal, Argent- ínu og Frakklandi.  LAURENT Robert, franski út- herjinn hjá Newcastle, verður frá keppni í fjórar vikur. Hann kinn- beinsbrotnaði í deildarbikarleik gegn Everton. Þess má geta að hann tók þátt í vítaspyrnukeppni kinn- beinsbrotinn, þar sem meiðsl hans komu ekki í ljós fyrir en á sjúkrahúsi eftir leikinn, 3:3. FÓLK Marel segir í viðtali við sama fjöl-miðil að honum hafi litist vel á allar aðstæður hjá félaginu. „Þetta er spennandi kostur og eftir að hafa talað við fyrrverandi samherja minn hjá Stabæk, norðmanninn Tommy Svindal Larsen, sýnist mér að allt sé í stakasta lagi hjá liðinu,“ sagði Mar- el. „Ég hef ekki heyrt neitt frá Nürn- berg og þeir ræddu engin samnings- atriði við mig, enda er ég samningsbundinn Stabæk næstu tvö árin og held mig við þá staðreynd þar til annað kemur í ljós,“ bætti Marel við. Økern segir ennfremur að Stabæk hafi greitt um 33 milljónir ísl. kr. fyr- ir Marel og að margt geti breyst á stuttum tíma á þessum vettvangi. „Við erum rólegir og erum ekki ugg- andi um okkar hag þótt ekki hafi bor- ist tilboð. Ég hef tekið þátt í mörgum sölum og kaupum á knattspyrnu- mönnum og slíkir hlutir geta tekið skamman tíma þegar sest er niður við samningsgerð,“ sagði Økern. Jan Økern, stjórnarformaður Stabæk Ekkert tilboð frá Nürnberg VIÐ höfum ekki heyrt neitt frá forráðamönnum Nürnberg,“ segir Jan Økern, stjórnarformaður norska úrvalsdeildarliðsins Stabæk, við staðarblaðið Budstikke í gær er hann var inntur eftir viðbrögðum þýska liðsins vegna Marels Baldvinssonar sem var við æfingar hjá liðinu um helgina og kom til Noregs á þriðjudag. „Ég veit ekki hvort þetta er taktík hjá Nürnberg að láta ekki heyra frá sér hvort þeir hafi enn áhuga á Marel, eða hvort þetta þýði að þeir hafi misst áhugann á ískenska landsliðsmanninum,“ bætti Økern við. Þar urðu Lárusi Orra á mistök.Hann braut agareglur landsliðs- ins með þeim afleiðingum að hann dró sig út úr landsliðshópnum fyrir leik- inn á móti Litháum sem var fjórum dögum eftir Skotaleikinn. „Ég og mín fjölskylda höfum hugs- að mikið um þetta mál undanfarnar þrjár vikur og í samráði við hana hef ég komist að þeirri niðurstaðu að ég er tilbúinn í slaginn verði til mín leitað að leika fyrir Íslands hönd. Heyrir vonandi sögunni til Ég hef verið í góðu sambandi við Atla og hef fengið góðan stuðning frá honum og KSÍ ásamt því að margir hafa sent mér tölvupóst þar sem þeir segjast standa með mér, sem ég ákaf- lega þakklátur fyrir. Ég vonast nú til þess að þetta leiðindamál heyri sög- unni til og næst þegar fjallað verði um mig verði það á fótboltanótunum,“ sagði Lárus Orri í samtali við Morg- unblaðið í gær. Lárus Orri er ekki í landsliðshópn- um sem mætir Eistum ytra hinn 20. nóvember. Atvikið eftir Skotaleikinn á þar engan hlut að máli heldur ætlar landsliðsþjálfarinn að skoða fleiri leikmenn og fær Lárus Orri frí sem og Brynjar Björn Gunnarsson, svo einhverjir séu nefndir. Lárus Orri gefur áfram kost á sér LÁRUS Orri Sigurðsson, knatt- spyrnumaður hjá enska úrvals- deildarliðinu WBA, hefur tekið þá ákvörðun að gefa kost á sér áfram í íslenska landsliðið í knattspyrnu. Eins og Morg- unblaðið greindi frá á dögunum og vitnaði í heimasíðu leik- mannsins ætlaði hann að gefa sér nokkrar vikur í að ákveða framtíð sína í landsliðinu eftir leiðindauppákomu og eftirmál, sem henni fylgdu, eftir landsleik Íslendinga og Skota í síðasta mánuði. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Lárus Orri Sigurðsson Markamet í Sviss ÞJÁLFARI svissneska knatt- spyrnuliðsins St. Gallen, Thomas Staub, hefur valið að segja starfi sínu lausu eftir að liðið tapaði 3:11 gegn grannliðinu FC Wil á heima- velli en FC Wil vann sér sæti í efstu deild sl. vor. Leikur liðanna fór fram á sunnudag og settu liðin nýtt met í efstu deild í Sviss því aldrei áður hafa 14 mörk litið dagsins ljós á þeim vettvangi. St. Gallen varð svissneskur meistari fyrir tveimur árum en hefur aðeins unnið fjóra af alls átján deildarleikjum sín- um á yfirstandandi tímabili og er í mikilli fallhættu. iego frýja egna nsins a fá sinn hafa m at- vinnumaður á Ítalíu. Málið hefur verið lengi í dómskerfi landsins en um 130 lögfræðingar hafa að und- anförnu unnið í sjálfboðavinnu fyr- ir Maradona til þess að fá botn í málið sem teygir anga sína allt til ársins 1990 er Maradona lék með Napólí. ona áfrýjar AP oel Nicosia frá Kýpur. Eyjólfur Sverr- pa í 3. umferð UEFA-bikarsins. hann hætti þjálfun enska landsliðsins. Tord Grip, nán- asti aðstoðar- maður Eriks- son, sagði í gær að það væri engin trygging fyrir því að Er- iksson endur- skoðaði afstöðu sína til starfs- ins. Vitað er að Eriksson ætlar að krefjast þess á fundinum að for- ráðamenn enska knattspyrnusam- bandsins veiti sér algjöran stuðn- ing í baráttu sinni við félögin sem sum hver hafa neitað að gefa leik- menn eftir í leiki og borið við meiðslum. Undir stjórn Eriksson hefur enska landsliðið leikið þrettán leiki og aðeins tapað einum þeirra, gegn Brasilíu í 8-liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar í sumar. vær- ga á leitt við van ssi í n er natt- Evr- ram- rnu- sínu hald- jálf- efnis sinn sson di að tíð Sven an rædd - att- s- mtíð Sven Göran Eriksson Einar áfram hjá KR STUÐNINGSMENN Ís- landsmeistara KR geta andað léttar því í gær- kvöldi skrifaði Einar Þór Daníelsson, fyr- irliði liðsins, undir nýj- an eins árs samning við vesturbæjarliðið. Samn- ingur hans við KR átti að renna út um áramót- in. Nokkur lið úr úrvals- deildinni sóttust eftir kröftum Einars, þar á meðal Grindavík og ÍBV, en Einar ákvað að halda kyrru fyrir í vest- urbænum. Einar, sem er 32 ára, hefur verið lykilmaður KR-liðsins undanfarin ár. Hann hefur leikið 170 leiki í efstu deild, skorað 42 mörk og á að baki 18 landsleiki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.