Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 C 3
JÚGÓSLAVNESKU körfuknatt-
leiksmennirnir Darko Ristic og Mil-
os Ristic verða ekki með Skallagrími
gegn Val í fallslagnum í úrvalsdeild-
inni í kvöld, þótt þeir séu komnir
með leikheimild frá KKÍ. Bræðurnir
hafa enn ekki fengið atvinnuleyfi hér
á landi og eru því ekki komnir til
landsins.
VALUR Ingimundarson, þjálfari
Skallagríms, sagði við Morgunblaðið
í gærkvöld að það væri mjög baga-
legt að vera án Júgóslavanna því
mikil meiðsli hefðu herjað á lið sitt.
Hann átti þó von á að allir aðrir yrðu
með í þessum mikilvæga leik í kvöld.
FINNUR Thorlacius úr Fram var
í gær kjörinn formaður samtaka úr-
valsdeildarliða karla í knattspyrnu
og tekur við af Rúnari Arnarsyni frá
Keflavík. Með honum í stjórn eru
þeir Vignir Þormóðsson úr KA og
Pétur Stephensen frá FH.
BALDUR Bjarnason lék á ný með
Fram í gærkvöld þegar liðið tapaði,
5:3, fyrir ÍA í fjögurra liða mótinu í
Egilshöll. Baldur, sem er 33 ára og á
10 landsleiki að baki, lagði skóna á
hilluna fyrir þremur árum en tók þá
fram að nýju í haust og gerði á dög-
unum eins árs samning við Fram.
ALBERT Arason, knattspyrnu-
maður frá Ólafsfirði, er genginn til
liðs við 1. deildarlið Aftureldingar.
Albert lék 26 leiki með Leiftri í efstu
deild og í sumar spilaði hann 16 leiki
með Leiftri/Dalvík í 1. deildinni.
Honum var vikið úr leikmannahópi
liðsins fyrir lokaleiki þess í deildinni.
HAUKAR munu eftir áramótin
tefla fram erlendum leikmanni í
kvennaliði sínu í körfuknattleik.
Stúlkan sú heitir Katrina Crenshaw
og verður þrítug á næsta ári. Hún
kemur frá Nevada í Bandaríkjunum
en hefur undanfarin ár leikið í Ísrael,
Belgíu og nú síðast í Sviss.
DANSKI landsliðsmaðurinn í
handknattleik, Nikolaj Jacobsen,
sem leikur með Kiel í Þýskalandi,
mun ekki leika með Dönum á HM í
Portúgal vegna meiðsla í hné.
TORBEN Winther, landsliðsþjálf-
ari, hefur valið í HM-liðið. Kasper
Hvidt, Ademar Leon, og Peter
Nørklit, Altea, eru markverðir. Aðr-
ir leikmenn: Søren Stryger, Flens-
burg, Christian Hjermind, Ciudad
Real, Claus Flensborg, Kolding,
Klavs Bruun Jørgensen, GOG, Joac-
him Boldsen, Flensburg, Claus Møll-
er Jakobsen, Altea, Michael V.
Knudsen, Skjern, Torsten Laen,
GOG, Lars Krogh Jeppesen, Flens-
burg, Lasse Boesen, Kolding, Lars
Christiansen, Flensburg, Morten
Bjerre, Kiel, Lars Jørgensen, Altea,
og Kristian Gjessing, Skjern.
JAN Fegter, fyrirliði þýska hand-
knattleiksliðsins Flensburg, hefur
gert 2ja ára samning við Wilhelms-
havener, lið Gylfa Gylfasonar, og fer
þangað að þessu tímabili loknu.
HANS-PETER Briegel, fyrrum
landsliðsmaður Þjóðverja í knatt-
spyrnu, verður næsti landsliðsþjálf-
ari Albaníu. Briegel staðfesti í gær
að einungis væri eftir að ganga frá
formsatriðum og hann tæki við liðinu
um áramót. Briegel er 47 ára og lék
72 landsleiki fyrir Þýskaland en
hann stýrði síðast liði Fenerbache í
Tyrklandi, þar sem hann hætti
störfum síðasta vor.
STUART Taylor, þriðji markvörð-
ur enska knattspyrnuliðsins Arsen-
al, er fingurbrotinn og verður frá
keppni í mánuð. Þetta er bagalegt
fyrir ensku meistarana því David
Seaman á við þrálát nárameiðsli að
stríða og Rami Shaaban er úr leik til
áramóta vegna tognunar í læri.
DENNIS Bergkamp, sóknarmað-
ur Arsenal, slapp með 675 þúsund
króna sekt og aðvörun fyrir atvik í
leik gegn Blackburn á dögunum þar
sem hann virtist stíga á sænska leik-
manninn Nils-Eris Johansson. Hann
fékk ekki þriggja leikja bann eins og
forráðamenn Arsenal óttuðust og
getur því leikið með um jólin.
FÓLK
Morgunblaðið/Golli
ðureign félaganna í Vesturbænum.
LI Eðvaldsson þjálfari íslenska
dsliðsins í knattspyrnu var í hópi
rra 148 landsliðsþjálfara í heiminum
völdu knattspyrnumann ársins að
uðlan Alþjóðaknattspyrnusam-
dsins, FIFA.
tli setti þýska markvörðinn Oliver
hn í fyrsta sæti, Brasilíumanninn
aldo í annað og Brasilíumanninn
aldinho í það þriðja.
onaldo fékk sem kunnugt er flest
væðin í kjörinu. Hann hlaut 387
, Oliver Kahn varð annar með 171
Zidane þriðji með 141 atkvæði.
f öðrum kollegum Atla má nefna að
n Göran Eriksson landsliðsþjálfari
Englendinga var með Brasilíumanninn
Roberto Carlos í fyrsta sæti, Þjóðverj-
ann Michael Ballack í öðru og Zidane í
þriðja.
Luis Felipe Scolari sem gerði Bras-
ilíumenn að heimsmeisturum í sumar,
setti David Beckham í fyrsta, Zidane í
annað og Luis Figo í þriðja.
Giovanni Trappatoni þjálfari Ítala
var með Roberto Carlos í fyrsta sæti,
Oliver Kahn í öðru og Raúl í þriðja
sæti.
Á atkvæðaseðli Rudi Völlers, lands-
liðsþjálfara Þjóðverja, var Zidane í
fyrsta sæti, Brasilíumaðurinn Lucio í
öðru og Ronaldinho þriðji.
Málið í kringum Roland Eradzevar eitt þeirra atriða sem vafð-
ist nokkuð fyrir mér við valið. Það
gekk illa að fá afger-
andi svar og að lok-
um barst það ekki
fyrr en rétt áður en
hópurinn var til-
kynntur. Hefði ekki komið afdrátt-
arlaust svar frá Alþjóðahandknatt-
leikssambandinu er ljóst að ég hefði
þurft að taka annan pól í hæðina,“
segir Guðmundur og bætir því við að
vissulega hefði Hlynur Jóhannesson,
hjá Stord í Noregi, komið til greina í
hópinn, en hann hefði kosið að þessu
sinni að velja Birki Ívar Guðmunds-
son, Elvar Guðmundsson, Guðmund
Hrafnkelsson auk Rolands. „Hlynur
var með okkur á heimsbikarmótinu í
Svíþjóð og veit hvar hann stendur,“
segir Guðmundur ennfremur.
Af sextán manna hópi sem tók þátt
í Evrópukeppninni snemma á þessu
ári eru þrettán í æfingahópnum að
þessu sinni. Bjarni Frostason mark-
vörður var ekki valinn að þessu sinni,
Ragnar Óskarsson, sem er meiddur
og Halldór Ingólfsson gaf ekki kost á
sér af persónulegum ástæðum „Það
er ekkert óeðlilegt að þrettán af sex-
tán leikmönnum sem tóku þátt í EM
séu í hópnum að þessu sinni vegna
þess að allir hafa þeir leikið vel fyrir
sín félagslið á síðustu mánuðum. Pat-
rekur Jóhannesson hefur verið
meiddur en lék deildarleik með Ess-
en í vikunni og fann ekkert fyrir
neinum eymslum þannig að maður
verður að vona það besta.“
Gunnar Berg Viktorsson er e.t.v.
maður sem setja má spurningamerki
við. Hann náði sér ekki á strik með
landsliðinu í heimsbikarmótinu og
ekki verið upp á sitt besta með Paris í
frönsku deildinni á leiktíðinni og m.a.
lítið skorað. Guðmundur segist vilja
gefa Gunnari tækifæri. Hann hafi
skilað góðu starfi fyrir EM og leikið
auk þess talsvert í keppninni. „Ég
hef ákveðið að gefa Gunnari tæki-
færi, við skulum sjá til hvernig hann
spjarar sig á næstu vikum.“
Það er hins vegar ljóst að sú staða
sem Gunnar leikur, skyttustaða
vinstra megin, er nokkurt vandamál í
íslenskum handknattleik í dag, ekki
satt?
„Það verður að viðurkenna það að
nú um stundir eigum við ekki dæmi-
gerða sterka skyttu á vinstri vængn-
um. Patrekur og Dagur Sigurðsson
hafa að mestu leikið í þessari stöðu að
undanförnu, en hvorugur leikur hana
allajafna með sínum félagliðum. Þar
af leiðandi höfum við með leik okkar
verið að leysa þetta á annan hátt.
Þess vegna meðal annars kalla ég í
Gunnar Berg að þessu sinni svo og
Markús Mána Michaelsson úr Val.“
Hvenær ætlar þú að
fækka leikmönnum í hópn-
um?
„Ég reikna með því að
það verði gert um áramótin,
áður en að leikjunum við
Slóvena kemur í upphafi
næsta árs. Hversu margir
detta úr þá, get ég ekki sagt
um núna, það fer eftir hvort
mikið verður um meiðsli eða
annar vafi um leikmenn.
Eftir leikina við Slóvena
reikna ég síðan með því að
fækka enn meira í hópnum
þannig að hann verði orðinn
sem líkastur þeim hópi sem
fer á HM seinni partinn í
janúar. Niðurskurðurinn
ræðst hins vegar alltaf af
þeim óvissuþáttum sem
ríkja hverju sinni þannig að
það er ekki hægt núna að
gefa upp nákvæmar dag-
setningar á því hvenær end-
anlegur HM-hópur verður
tilkynntur.“
Er líklegt að þú kallir í
leikmenn sem eru nú utan
þessa hóps?
„Það er ekki hægt að úti-
loka það algjörlega. Það fer
eftir því hvað gerist á næstu
vikum.“
Elvar, markvörður með
Ajax/Farum í Danmörku,
var kallaður inn í landsliðs-
hópinn að þessu sinni, en
hann hefur ekki leikið
landsleik í fimm ár. Guð-
mundur segist hafa metið
það sem svo eftir að hafa
séð upptökur af leikjum með Elvari
og einnig eftir samtöl við þjálfara
hans í Danmörku að það sé fyllilega
réttlætanlegt að kalla Elvar til og sjá
hvað í honum býr, landsliðsþjálfari
verði alltaf að skoða alla kosti sem í
boði eru „Það verður síðan að koma í
ljós hvernig Elvar stendur sig þegar
á hólminn verður komið,“ sagði Guð-
mundur.
Sterkasti hóp-
ur sem völ er á
„ÉG tel þetta vera sterkasta hóp
handknattleiksmanna sem við
eigum völ á nú,“ sagði Guð-
mundur Þ. Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknatt-
leik, þegar hann tilkynnti um val
á 26-manna æfingahópi fyrir
heimsmeistaramótið í Portúgal
eftir einn mánuð, af þeim fara
sextán á HM. „Auðvitað hef ég
rætt við fleiri leikmenn en þá
sem nú voru valdir, en þegar
öllu er á botninn hvolft þá ákvað
ég að kalla þessa til leiks.“
Morgunblaðið/Golli
Roland Valur Eradze, landsliðsmarkvörður úr Val.
LANDSLIÐSHÓPURINN, sem hefur
verið kallaðir til æfinga fyrir HM í
Portúgal, er þannig skipaður:
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson, Conversano
Elvar Guðmundsson, Ajax/Farum
Roland Valur Eradse, Val
Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum
Horna- og línumenn:
Guðjón Valur Sigurðsson, Essen
Gústaf Bjarnason, GWD Minden
Einar Örn Jónsson, W.-Massenheim
Sigfús Sigurðsson, Magdeburg
Róbert Sighvatsson, Wetzlar
Róbert Gunnarsson, Århus GF
Logi Geirsson, FH
Bjarki Sigurðsson, Val
Alexander Arnarson, HK
Bjarni Fritzson, ÍR
Útileikmenn:
Gunnar Berg Viktorsson, París SG
Rúnar Sigtryggsson, Ciudad Real
Heiðmar Felixsson, Bidasoa
Snorri Steinn Guðjónsson, Val
Aron Kristjánsson, Haukum
Sigurður Bjarnason, Wetzlar
Patrekur Jóhannesson, Essen
Ólafur Stefánsson, Magdeburg
Dagur Sigurðsson, Wakunaga
Markús Máni Mikaelsson, Val
Einar Hólmgeirsson, ÍR
Jónatan Magnússon, KA
Sextán leikmenn fara á HM.
HM-hópurinn
Eftir
Ívar
Benediktsson
ÍÞRÓTTIR
Atli valdi Kahn