Morgunblaðið - 14.01.2003, Side 4
IGOR Kostic, sonur þjálfarans
Lúkasar Kostic, lék með Eyjamönn-
um á æfingamótinu í Reykjaneshöll-
inni um helgina. Kostic varði mark
ÍBV í fjarveru Birkis Kristinssonar.
Eyjamenn eru með Igor til reynslu
en hann hefur leikið með Víkingi og
spilaði tvo leiki með liðinu í 1. deild-
inni í fyrra.
RASMUS Larsen, landsliðsmað-
ur Grænlands í handknattleik, er á
leið til danska stórliðsins GOG en
hann hefur til þessa leikið með
Odense í neðri deild þar í landi.
Bróðir hans og lykilmaður græn-
lenska landsliðsins, Jacob Larsen,
leikur með GOG en þeir bræður
mæta Íslendingum á HM í Portúgal
í næstu viku.
MICHAL Tonar, tékkneski
handknattleiksmaðurinn sem á sín-
um yngri árum lék með HK, er enn
að gera það gott. Tonar, sem er
hættur með landsliði Tékka, skoraði
11 mörk í seinni hálfleik þegar lið
hans, Aue, vann Bad Neustadt,
35:33, á útivelli í þýsku 2. deildinni.
TONAR hefur verið helsti
markaskorari Aue í vetur og lið hans
er í 6. sæti í suðurriðli deildarinnar,
tveimur stigum á eftir Friesenheim,
liði Atla Hilmarssonar og Halldórs
Sigfússonar, sem er í þriðja sæti.
STEVE Bruce, stjóri Birming-
ham, sem á undanförnum dögum
hefur fengið fjóra nýja leikmenn til
liðs við sig er ekki búinn að loka pen-
ingabuddunni. Nú hyggst hann
bjóða Arsenal 1 milljón punda í
varnarmanninn Matthew Upson
sem fá tækifæri hefur fengið, enda
margir öflugir varnarmenn fyrir í
herbúðum Arsenal.
LANDSLIÐ Ísraels í knatt-
spyrnu mun leika heimaleik sinn
gegn Frökkum í undankeppni Evr-
ópukeppninnar á Artemio Franchi
leikvanginum í Flórens á Ítalíu.
Af öryggisástæðum fær Ísrael
ekki að leika á heimavelli sínum og
hefur knattspyrnusamband landsins
komist að samkomulagi við ítalska
liðið um að fá „húsaskjól“ í tveimur
leikjum, gegn Frökkum 2. apríl og
gegn Kýpur 30. apríl. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem lið frá Ísrael leikur
heimaleiki sína í Flórens því Hapoel
Tel Aviv lék gegn enska úrvalsdeild-
arliðinu Leeds Utd. í 2. umferði
UEFA-keppninnar í nóvember á sl.
ári í Flórens.
KÍNVERJAR tilkynntu í gær að
knattspyrnulandslið þeirra undir
stjórn Hollendingsins Arie Haan
myndi mæta heimsmeistaraliði
Brasilíu í vináttulandsleik hinn 12.
febrúar nk. Leikurinn fer fram í Ól-
ympíuþorpinu Guangdong þar sem
80.000 áhorfendur munu troðfylla
áhorfendastæðin. Allar helstu
stjörnur Brasilíu, Ronaldo, Ronald-
inho, Rivaldo, Roberto Carlos og
Cafu, verða með ef þeir eru heilir en
kínverska knattspyrnusambandið
greiðir Brasilíumönnum rúmlega
100 milljónir ísl. kr. fyrir að koma
með sitt sterkasta lið til Kína. Þetta
verður fyrsti leikur kínverska liðsins
undir stjórn Haan og það sama gildir
um Brasilíu sem leikur í fyrsta sinn
undir stjórn Carlos Alberto Parr-
eira sem tók við af Luis Felipe Scol-
ari.
ÞÝSKI framherjinn Miroslav
Klose, sem er að pólskum ættum, er
nýjasti framherjinn sem orðaður er
við Manchester United. Breska blað-
ið Daily Mail skýrir frá því í gær að
Sir Alex Ferguson hafi sent fyrir-
spurn til Kaiserslautern um hugs-
anleg kaup liðsins á Klose og herma
heimildir blaðsins að Ferguson sé
reiðubúinn að punga út 5 milljónum
punda fyrir leikmanninn sem skoraði
5 mörk – þar af þrennu í einum leik,
með skalla, fyrir Þjóðverja á HM í
Suður-Kóreu og Japan.
FÓLK
KYLFINGURINN Ernie Els setti
nýtt met á PGA-mótaröðinni í golfi
á mánudag er hann sigraði á
Mercedes-mótinu sem fram fór á
Hawaii. Hinn
33 ára gamli
Els gerði sér
lítið fyrir og
lék á samtals
31 höggi undir
pari og samtals
á 261 höggi.
Joe Durant átti
gamla metið
sem var 29
högg undir
pari, á Bob
Hope Chrysler-
mótinu fyrir tveimur árum.
Þetta er í 11. sinn sem Els sigrar
á PGA-mótaröðinni en hann hristi
af sér KJ Choi frá S-Kóreu og
Bandaríkjamanninn Rocco Mediate
á lokakafla mótsins.
„Á ferlinum hef ég átt góðar risp-
ur af og til en að leika á 31 höggi
undir pari hef ég auðvitað aldrei
gert áður því engum hefur tekist
það áður,“ sagði Els.
Choi setti vallarmet á laugardag
er hann lék á 11 höggum undir pari
eða 62 höggum en hann náði ekki
að fylgja því eftir á sunnudag og
endaði átta höggum á eftir Els líkt
og Mediate.
ANTON Helgi Pálsson og Hlynur
Leifsson, handknattleiksdómarar,
fá kaldar kveðjur á heimasíðu
danska félagsins GOG. Þar eru
þeir sagðir hafa átt sinn þátt í að
koma í veg fyrir að kvennalið
GOG kæmist í 16-liða úrslit EHF-
bikarsins síðasta föstudagskvöld.
GOG, með Hafdísi Hinriksdóttur
innanborðs, vann þá annað danskt
lið, Slagelse, á útivelli, 26:25, en
hafði tapað heimaleiknum, 26:23,
og er því úr leik.
„Blanda af óheppni, einbeiting-
arleysi og íslenskt dómarapar
sem átti marga einkennilega
dóma á síðasta stundarfjórðungn-
um sáu til þess að við kæmumst
ekki áfram,“ segir í frétt um leik-
inn.
Íslenskum dóm-
urum kennt um„ÞETTA er stórkostlegt. Ég
reiknaði ekki með þessum sigri
þegar ég mætti til leiks gegn
Jennifer,“ sagði hin 22 ára þýska
tennisstúlka Marlene Weingärtn-
er, eftir að hún hafði slegið banda-
rísku stúlkuna Jennifer Capriati
úr keppni í fyrstu umferð á opna
ástralska tennismótinu í Mel-
bourne. 12 þús. áhorfendur urðu
vitni að sigrinum – ætluðu varla
að trúa sínum eigin augum. Jenni-
fer, sem er í þriðja sæti á heims-
styrkleikalistanum hjá konum í
tennis, hefur fagnað sigri í tveim-
ur síðustu meistaramótunum í
Ástralíu og þótti sigurstrangleg
nú þriðja árið í röð.
Capriati vann fyrsta settið, 2:6,
en Weingartner, sem er í 90. sæti
á heimslistanum, svaraði með því
að vinna næstu tvö sett, 7:6 og 6:4.
Jennifer Capriati er
úr leik í Melbourne
ystu í seinni hálfleik og unnu með 25
stigum, 103:78. Ef þetta er það besta
sem Austurdeildarliðin hafa fram að
bjóða er ekki útlit fyrir jöfn loka-
úrslit í júní næstkomandi frekar en
undanfarin ár.
Reyndar halda New Jersey og
Indiana Pacers halda áfram að
styrkja stöðu sína í Austurdeildinni.
Philadelphia 76ers er hins vegar
að gefa eftir og hefur liðið aðeins
unnið tvo af síðustu tíu leikjum sín-
um.
Meistarar Los Angeles Lakers
Á þessu keppnistímabili er ljóstað Sacramento Kings og Dallas
Mavericks eru langbestu liðin. Það
sást best þegar
Sacramento sótti
New Jersey Nets
heim í síðustu viku.
Besta lið Austur-
deildarinnar hafði
ekkert að gera í Vesturdeildarliðið,
sem vann auðveldlega með 36 stig-
um. Boston fékk einnig rassskell-
ingu í Dallas á föstudagskvöld, þar
sem heimamenn náðu 30 stiga for-
eru loksins að taka við sér. Allt fór
eftir bókinni þegar Lakers vann
Miami á heimavelli í fyrrinótt,
106:81, og hafa þar með unnið sex af
síðustu átta leikjum sínum. Það kann
að vera tilviljun, en síðan Shaquille
O’Neal gifti sig um jólin hafa meist-
ararnir leikið mun betur saman.
Líklegra er að áhrif Phils Jack-
sons hafi þar skipt máli, en þjálfar-
inn tók sig til og messaði heldur bet-
ur yfir leikmönnum sínum um
hátíðarnar. Hann jók á ákefð og
fjölda æfinga og hefur verið allt ann-
að að sjá til liðsins síðan. „Ég þurfti
greinilega að ýta við liðinu. Sumir
leikmenn virtust ekki vera með hug-
ann við efnið.
Mér líkar ekki að þurfa að lesa yfir
leikmönnum, en stundum verður
maður að taka í taumana til að ná at-
hygli manna,“ sagði Jackson eftir
æfingu í síðustu viku.
Lakers á enn nokkuð í land með að
ná gæðum Dallas og Sacramento.
Lykillinn að framgöngu liðsins verð-
ur hversu vel meisturunum gengur í
útileikjum á næstunni, en Lakers
hefur aðeins unnið fjóra af átján úti-
leikjum sínum það sem af er.
Portland hefur tekið góðan sprett
undanfarið eftir að þrír leikmenn
voru handteknir á fáum vikum fyrir
áramót. Gamla kempan Scottie Pipp-
en er farinn að stjórna leik liðsins
meira í sókninni. Þegar Pippen leik-
ur yfir 30 leikmínútur hefur Port-
land unnið fjórtán af átján leikjum,
en aðeins sjö af sextán þegar hann
situr á bekknum. Pippen verður laus
frá samningi sínum við Portland í
sumar og hann langar til að enda fer-
il sinn hjá Phil Jackson ef liðinu
gengur ekki vel í úrslitakeppninni.
Pippen á leið til Lakers?
AP
Scottie Pippen, leikmaður Portland Trail Blazers, setur knöttinn í körfuna hjá San Antonio Spurs.
EFTIR því sem lengra líður á deildarkeppnina skýrast línurnar hvað
varðar styrkleika liðanna. Vegna fjölda leikja í NBA-deildinni virðist
oft sem lið falli í ákveðið leikmynstur og væntingar hvað varðar and-
stæðinginn. Þetta verður manni því augljósara sem maður sér fleiri
leiki í eigin persónu. Þegar svo er komið eru það þjálfarar liðanna
sem verða að vinna fyrir kaupinu sínu, annaðhvort til að rífa leik-
menn upp úr dvalanum eða halda þeim við efnið þegar vel gengur.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Bandaríkjunum
Ernie Els
í ham á
Hawaii
Ernie Els