Morgunblaðið - 24.01.2003, Page 8
AUÐLESIÐ EFNI
8 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LEIÐTOGAR Frakklands og
Þýskalands sögðu á
miðvikudag að þeir vildu að
allt yrði gert til að koma í veg
fyrir stríð í Írak.
Bandaríkja-menn hafa
brugðist illa við þessum
orðum.
Jacques Chirac, forseti
Frakklands, og Gerhard
Schröder, kanslari
Þýskalands, hafa sagt að
þeir vilji að Íraksdeilan verði
leyst með friðsamlegum
hætti. Sögðust þjóðirnar vera
sammála um að Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna þyrfti
að ákveða hvort hefja ætti
stríð við Íraka. Schröder
sagði á þriðjudag að
Þjóðverjar myndu ekki styðja
ályktun sem heimilaði hernað
gegn Írökum. En Þjóðverjar
eiga fulltrúa í Öryggisráðinu.
Þessar yfirlýsingar
mæltust illa fyrir í
Bandaríkjunum. Ráðamenn
þar telja vopna-eftirlit í Írak
tilgangslaust. Segja þeir
öruggt að Saddam Hussein
forseti Íraks ætli ekki að
afhenda vopn sín. Donald
Rumsfeld,
varnarmála-ráðherra
Bandaríkjanna, telur þó að
flest ríki Evrópu standi með
Bandaríkja-mönnum.
„Þjóðverjar hafa verið til
vandræða og Frakkar hafa
verið til vandræða,“ sagði
ráðherrann. Hann bætti við
að flest ríki Evrópu stæðu
með Bandaríkja-mönnum en
ekki Frökkum og Þjóðverjum.
Þessar þjóðir væru fulltrúar
„hinnar gömlu Evrópu“ sem
nú hefði breyst.
Frétta-skýrendur telja
margir að alvarlegur
klofningur sé kominn upp í
Íraks-málinu.
Deilan
um Írak
magn-
ast
Reuters
Írösk börn á mótmælafundi sem efnt var til í Írak í vikunni.
Í bakgrunni er mynd af Saddam Hussein.
Í GÆR var þess minnst að
þrjátíu ár voru frá því eldgosið
í Heimaey hófst. Eldgosið
hófst 23. janúar árið 1973.
Fyrr í vikunni voru krakkar í
Barnaskóla Vestmanna-eyja
að skrifa bréf um gosið í
Vestmanna-eyjum. Þau
pökkuðu líka vikri úr gosinu í
umslög sem þau sendu í alla
grunnskóla á landinu,
samtals næstum 180 skóla.
Vikur er eitt af þeim
gosefnum sem dreifðust um
eyjuna í eldgosinu.
Hjálmfríður Sveinsdóttir
skólastjóri segir að börnin
vilji með bréfinu minna önnur
börn á gosið. En foreldrar
margra barna í skólanum
upplifðu sjálf gosið þegar þau
voru lítil. Þá segir hún að
börnin séu líka að þakka
góðar móttökur sem börn úr
Vestmanna-eyjum fengu í
skólum landsins þegar fór að
gjósa.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Nemendur í Barnaskóla Vestmannaeyja pakka vikri og senda
kveðjur í barnaskóla landsins.
30 ár liðin frá
gosinu í Eyjum
ÍSLENDINGAR sýndu
yfirburði þegar þeir skelltu
Áströlum með fjörutíu marka
mun í fyrsta leik sínum á
heimsmeistar-amótinu í
handknattleik í Portúgal. En
leiknum lauk 55:15. Þar
með settu leikmenn
íslenska liðsins heimsmet í
marka-skorun. En aldrei áður
hefur lið náð að skora 55
mörk í leik á HM. Íslendingar
settu einnig HM-met er þeir
skoruðu 32 mörk úr
hraðaupphlaupum í leiknum.
AP
Guðjón Valur Sigurðsson
skorar eitt af fjórtán mörkum
sínum gegn Ástralíu.
Met á met
ofan á HM
ÍSLENDINGABÓK, eini
ættfræðigrunnurinn í
heiminum sem nær yfir heila
þjóð, var settur á Netið um
síðustu helgi. En þar geta
Íslendingar fengið ókeypis
upplýsingar um sjálfa sig,
ættir sínar og ættingja fram í
þriðja lið. Þeir geta þá einnig
rakið ættir sínar saman við
aðra einstaklinga sem eru
skráðir í grunninum.
Í Íslendingabók er að finna
upplýsingar um meira en
95% allra Íslendinga sem
hafa verið uppi frá því fyrsta
Íslendingabók geymir upplýsingar um ættir Íslendinga
Tugir þúsunda
sækja um að-
gang að vefnum
Morgunblaðið/Kristinn
Tómas Ingi Olrich mennta-
málaráðherra fræddist um
forfeður sína á Netinu.
manntalið var gert árið 1703.
Bókin inniheldur í heildina
upplýsingar um 700.000
einstaklinga. Kári
Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar,
vonast til þess að
Íslendingabók auki
ættfræðiáhuga Íslendinga.
Áhugi almennings á
Íslendingabók hefur verið
mikill það sem af er. Hafa
tugir þúsunda manna nú
þegar skráð sig sem
notendur vefjarins. Til að fá
aðgang að Íslendingabók
þarf að sækja um lykilorð og
notendanafn með því að skrá
inn kennitölu á
upphafs-síðunni. Vefslóðin
er: www.islendingabok.is.
SÝNINGAR á hátísku-fatnaði fyrir næsta vor og sumar
hafa staðið yfir alla vikuna. Tískusýningarnar fara
fram í París, sem er oft kölluð háborg tískunnar.
Margir frægir hönnuðir og tískuhús hafa sýnt í
vikunni. Chanel, Christian Lacroix, Dior og Valentino
eru þeirra á meðal. Ímyndunaraflið fær oftast að
njóta sín til hins ýtrasta á hátísku-sýningunum. Enda
geta flestir einungis ímyndað sér að eignast
hátísku-flík. Hátísku-föt eru nefnilega mjög dýr.
Fötin eru oft skrautleg og flókin. Flíkurnar minna oft
jafnmikið á listaverk og nothæfa flík. Raunverulega
listin er sú að finna jafnvægið þarna á milli.
Reuters
John Galliano hannaði
þessa skrautlegu flík.
Hátíska í París
Netfang: auefni@mbl.is