Morgunblaðið - 24.04.2003, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 24.04.2003, Qupperneq 4
4 C FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Við Hrútey í útjaðri Blönduóss er verið að leggja drög að Opnum skógi í tengslum við samnefnt verkefni. „Skógurinn er í eyjunni Hrútey og unnið er að því núna að gera hann að- gengilegri en verið hefur. Hann er búinn að vera tengdur við land með göngubrú frá 1988 og þá voru lagðir göngustígar um eyjuna,“ segir Páll Ingþór Kristinsson formaður Skóg- ræktarfélags A-Húnvetninga. „Það hafa raunar lengi verið brýr út í Hrútey en þær hafa hlotið mis- jöfn örlög, Blanda, sem er jökulá, tók t.d. steyptan brúarstöpul með sér veturinn 1957-58. Bráðabirgðabrú var þá komið fyrir út í eyjuna, – raf- magnsstaurar voru lagðir milli lands og eyjar til þess fyrst og fremst að skógræktarfólk gæti komist út í Hrútey til að sinna gróðursetningu.“ – Hvenær hófst gróðursetning í eyjunni? „Það var árið 1942 og þá varð gróð- ursetningarfólkið að vaða með plönt- urnar út í eyjuna. Það var Stein- grímur Davíðsson skólastjóri sem hafði forgöngu í þessu máli. Hann var Sjálfstæðismaður eins og Jón Ísberg fyrrverandi sýslumaður okkar og Steingrímur fékk Jón til að fara út í eyjuna ásamt nokkrum skátum sem hann var foringi fyrir og þeir gróð- ursettu þá nokkar birkiplöntur. Þetta var upphafið að skóginum í Hrútey. Mest var hins vegar gróðursett á ára- bilinu 1958 til 1975.“ – Hvaða tré eru þarna flest? „Það er birkið, það er langmest af því þarna en í áranna rás hefur stafa- fura og rauðgreni líka orðið áberandi í skóginum. Svæðið sem gróðursett hefur verið í er tíu hektarar að stærð og í því eru um 20 þúsund tré, það hæsta er sitkagreni sem er 8,25 metr- ar á hæð. Vegna fyrirhugaðra göngustíga þarf að fara að grisja skóginn. Eyjan er fólkvangur síðan 1975 og þess vegna eru framkvæmdir í henni háð- ar ýmsum skilyrðum. Hún er lokuð frá 20. apríl til 20. júní vegna fugla- varps. Í mýri á eyjunni er talsvert gæsavarp og mikið verpir þarna líka af ýmsum skógar- og mófuglum. Straumendur eru líka þarna á sveimi og ýmsar aðrar fuglategundir.“ – Var Hrútey einhvern tíma í byggð? „Nei, en hún var lengi eign Hjalta- bakka, stundum nýtt til beitar. Hún virðist hafa verið friðuð árið 1933 og eftir það fóru menn fljótlega að hugsa um þennan stað sem góðan fyrir skógrækt. Ekki hefur eyjan þó notið algjörs friðar frá þessum tíma, kveikt hefur verið í sinuflóka þarna og ým- islegt fleira drifið á daganna. Þegar brúin sem nú er út í Hrútey var vígð 1988 var það gert um leið og Blönduós fékk bæjarréttindi. Á móti Hrútey, norðan við hana og neðan þjóðvegar er sumarbústaða- byggð og tjaldsvæði, þaðan er áætlað að gera göngustíg yfir að brúnni út í eyjuna og einnig er ráðgert að bæta aðkomumöguleika fyrir bíla að þessu svæði og fjölga, endurbæta og breikka gönguleiðir í eyjunni. Einnig á, eins og á öðrum stöðum þar sem verður Opinn skógur, að koma fyrir upplýsingaskiltum um eyjuna og um- hverfið, svo og borðum og bekkjum svo fólk geti látið fara vel um sig í fögru umhverfi. Hrútey er krafmikill og heillandi staður vegna skógarins meðal annars og kraftsins í jökulánni Blöndu. Sú saga hefur gengið að fyrsti íbúi Blönduóss sem var kaupmaður hafi annað hvort fallið í ána af hestbaki eða verið hrint í hana af öðrum kaup- manni sem vildi ná yfirráðum yfir verslun á svæðinu. Allténd lét hann líf sitt við Klifamýri eftir drykkjuferð frá Hnjúkum, þetta gerðist árið 1877, ári eftir að Blönduós byggðist. Síðan hafa hrafnar orpið þarna á klettasyllu og má sjá til þeirra frá útsýnisstað í Hrútey.“ Heillandi umhverfi í Hrútey Úr skóginum í Hrútey en gróðursetning hófst þar 1942. Til stendur að opna aðgengi að Tunguskógi í botni Skutulsfjarðar við Ísafjarðarbæ en sl. haust hófst undirbúningsvinna að þessu verk- efni. „Farið var að gróðursetja þarna tré upp úr 1950 en þarna var fyrir þróttmikið kjarrlendi eða skógur, enda er nafnið Tunguskógur eld- gamalt,“ segir Magdalena Sigurð- ardóttir formaður Skógrækt- arfélags Ísafjarðar. „Það á að leggja góðan göngu- stíg gegn um greniskóginn í átt að botni Tungudals. Jafnframt verður lagður stígur gegnum gömlu gróðr- arstöðvarnar neðan Skógarbrautar. Þarna verða sett upp upplýs- ingaskilti um skóginn, umhverfið og kennileiti, ásamt fánastöngum svo mynda megi fánaborg. Líka verður komið fyrir tréborðum með sambyggðum sætum.“ Hvaða trjátegundir eru algeng- astar í Tunguskógi? „Mest er í þessum skógi af sitkagreni, einnig dálítið af lerki, rauðgreni og stafafuru. Í bland við þessar tegundir er svo hið gam- algróna birkikjarr.“ Er mikill áhugi á Opnum skógi hjá ykkur þarna fyrir vestan? „Já, skógræktarfólk hér er mjög ánægt með þann styrk sem veittur hefur verið frá Olís og Alcan til þessa verkefnis, sem er hluti verk- efnisins Opinn skógur sem hrint hefur verið af stað fyrir tilhlutan Skógræktarfélags Íslands í sam- starfi við fyrrgreinda aðila og skóg- ræktarfélög á tilteknum svæðum. Þetta er mjög þarft og gott verk sem þarna er verið að vinna og það gjörbreytir möguleikum almennings til þess að njóta skógarumhverf- isins.“ Tunguskógur gerður aðgengilegur Tunguskógur sem gróðursettur var á árunum 1952–60. Kolviður er hugmynd að nafniá sjóði sem stofnaður hefurverið til þess að vinna aðkolefnisbindingu með skógrækt, en aukin gróðurhúsaáhrif eru eitt alvarlegasta umhverfis- vandamál sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag. Það eru Fræbbl- arnir sem standa fyrir þessari sjóðs- stofnun ásamt Skógræktarfélagi Ís- lands og Landvernd. „Sjóðurinn er stofnaður til minn- ingar um Joe Strummer söngvara í Clash sem dó á þorláksmessu árið 2002. Hann vann ötullega að því að listamenn á Bretlandseyjum styddu við skógrækt til bindingar á kolefni (CO2),“ segir Helgi Briem bassaleik- ari í hljómsveitinni Fræbblarnir. „Joe Strummer var sérstaklega mikill áhugamaður um skógrækt og reiknaði út hvert gramm af kolefn- ismengun sem hann olli með t.d. framleiðslu á geisladiskum, akstri í bílum og fleiru og setti niður tré í samræmi við þá útreikninga. Hann var meðlimur og styrktaraðili í Fut- ure forests en sá félagsskapur hefur að markmiði að gróðursetja tré til komefnisbindingar til að vinna gegn gróðurhúsaáhrifunum“ Fólk getur „bætt fyrir syndir sínar“ með því að gefa fé í sjóðinn Kolvið Hvernig er ætlunin að Kolviður svonefndur muni koma að þessum málum? „Skógræktarfélag Íslands ætlar að koma því svo fyrir að fólk geti með tiltölulega einföldum hætti styrkt sjóðinn og þannig „bætt fyrir syndir sínar“ hvað snertir mengun umhverfisins. Það verður gróðursettur skógar- undur í vor en ekki er alveg ákveðið ennþá hvar borið verður niður.“ Ert þú mikill áhugamaður um skógrækt? „Ég er umhverfissinni og kann vel við skógrækt og er fylgjandi upp- græðslu og skógrækt. Ég hef aðeins fengist við að setja niður tré. Gít- arleikari okkar Fræbblanna, Arnór Snorrason, er skógfræðingur og hef- ur unnið við bæði rannsóknir, ráð- gjöf og skógræktarmál um áratuga skeið.“ Hefur þú fundið fyrir meðbyr hvað snertir þennan nýja sjóð? „Já við höfum fundið fyrir miklum áhuga fólks á þessu. Margir virðast hafa hugsað um þetta en ekki haft aðstöðu til þess sjálfir að gróð- ursetja en vilja leggja málefninu lið. Þá er upplagt að geta lagt fé af mörkum og fengið sérfræðinga til þess að vinna að gróðusetningunni.“ Fer fram söfnun í þessu skyni? „Við höfum þegar haldið tónleika þessu málefni til styrktar og þá söfn- uðust 100 þúsund krónur sem verða stofnfé Kolviðar. Miðað við að hvert tré kosti 200 krónur, um það bil, þá dugar þessi upphæð fyrir um 500 trjám.“ Ert þú mikill aðdáandi Clash? „Já ég er mikill aðdáandi Clash og varð það strax þegar ég heyrði fyrst þeirra tónlist, sem var önnur platan sem þeir gáfu út. Þetta er uppá- haldshljómsveitin mín enn í dag. Joe Strummer var hugsuður og rokkari mikill. Hann var nýlega fimmtugur þegar hann dó. Eftir að Clash hætti 1985 þá gaf hann út sólóplötur og söng m.a. í Pogues og eigin hljóm- sveit Mescalero.“ Kolviður – minningarsjóður um Joe Strummer í Clash Joe Strummer Morgunblaðið/Golli Karlar f.v.: Arnór Snorrason (gítar), Helgi Briem (bassi), Valgarður Guðjónsson (söngur og gítar) og Stefán Guðjónsson (trommur). Konurnar eru Brynja Scheving, Kristín Reynisdóttir og Iðunn Magnúsdóttir (bakraddir). Aukin gróðurhúsaáhrif eru mikið áhyggjuefni okkar tíma. Samtökin Future forests hafa stutt skógrækt til bindingar á kolefni. Joe Strummer í Clash studdi þetta mál- efni og nú hafa Fræbbl- arnir ásamt Skógrækt- arfélagi Íslands og Landvernd stofnað sjóð í sama augnamiði. Rætt var við Helga Briem um sjóðinn Kolvið og fyrir- hugað starf hans. Minn ingars jóður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.