Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 C 5
Uppgræðsla skógar hófst áRauðhóli við Fagurhóls-mýri árið 1951. Þærplöntur gróðursetti Guðjón
Jónsson sem fæddur er og uppalinn á
bænum.
„Ég setti niður nokkrar plöntur en
aðeins tvær þeirra lifðu án þess þó að
vaxa neitt í 40 ár,“ segir Guðjón.
„Árið 1991 brá hins vegar svo við
að þessar plöntur, umvafðar lúpínu,
tóku að vaxa og nú er önnur þeirra,
sitkagreniplanta, orðinn 2,42 metrar
en hitt var birkiplanta og er hún nú
orðin að 1,92 metra háu tré.
Um 1970 sáði ég birkifræi við hól-
inn og lúpínu. Lengi vel óx aðeins lúp-
ína, en 1991 sáust fáeinar birki-
plöntur á strjálingi, sumar utan
lúpínusvæðisins og þær eru lifandi
enn. Þá vaknaði hjá heimamönnum
áhugi á að girða þetta svæði á nýjan
leik og stækka það. Þetta var fært í
tal við Svein Runólfsson land-
græðslustjóra og niðurstaðan varð sú
að hann tók að sér að fá landið allt
friðað ofan hringvegar og túna á Fag-
urhólsmýri og næstu jörðum, Hofi,
Hofsnesi og Hnappavöllum.
Fyrsta landgræðslufélagið
Hinn 1. nóvember 1992 var stofnað
Landgræðslufélag Öræfinga. Auk
heimamanna á öllum bæjum gengu í
það sem styrktarfélagar flestir þeir
sem fæddir voru í sveitinni, þótt
brottfluttir væru, og fleiri velunnarar
hennar. Þetta var fyrsta land-
græðslufélagið sem stofnað var á
landinu samkvæmt nýsettum lögum
um þetta efni. Vorið 1993 var lokið við
að girða svæðið og var girðingin raf-
tengd hinn 7. maí það ár.
Vettvangur Landgræðslufélagsins
er sveitin öll. Ég var löngu fluttur frá
Fagurhólsmýri en kom þar að verki
með fólkinu mínu. Hlutverk mitt var
aðallega með fernum hætti. Í fyrsta
lagi var um að ræða landgræðslu, að
græða upp land sem hafði verið í
auðn síðan Öræfajökull gaus 1362. Í
öðru lagi að koma upp skjólbeltum,
sem nú er reyndar sums staðar farið
að kalla skjólskóga. Í þriðja lagi
ákvað ég að koma upp reit birkitrjáa
til fræsöfnunar og velja þangað ein-
vörðungu tré af allra besta stofni en
jafnframt er þetta líka landgræðsla.
Loks er ég að fegra landið, einkum
næst bænum, og þar bendi ég sér-
staklega á Rauðhól, sem er forn eld-
stöð.“
Er þetta birki farið að bera fræ?
„Nei, plönturnar eru mjög ungar,
þær elstu gróðursettar 1998. En birk-
ið sem Landgræðslufélagið gróð-
ursetti á völdum stað 1993 hefur bor-
ið mikið af fræi í tvö til þrjú ár.
Skjólbeltin gefa hins vegar mjög góð-
ar vísbendingar. Fram að þessum
tíma var því alls ekki trúað að tré
gætu vaxið á Fagurhólsmýri vegna
næðings. Þarna er að jafnaði nokkuð
hvasst en þó ekki byljaveður. Nú eru
elstu plöntur í skjólbeltinu orðnar
meira en mannhæð, besti víðir yfir 3
metra.“
Er landgræðslan sem þú sinnir að
mestu bundin við skógrækt?
„Já, að meginhluta er gert ráð fyrir
að þarna verði tré, studd af lúpínu, í
fyrstu þótt mörgum þyki nokkurt
djarfræði að setja þarna niður trjá-
plöntur. Við eldgosið 1362 féll gíf-
urlega mikið af glóandi vikri yfir
þetta land og brenndi allan gróður af
þurrlendi og lagði byggð og gróður í
grenndinni í eyði. Á eftir gróðrinum
fór jarðvegurinn niður í lægðir og
sumt út á haf, svo víðast eru eftir nak-
in sker, þakin stórgrýti á strjálingi.
Ekkert greri upp nema í einstaka
lægðum, annars staðar eru í mesta
lagi nokkrar mosaþembur og lyng.
Tilraunareitir mínir dreifast á 200
hektara lands sem ég gat lengst af
ekki sinnt nema með löngum hléum
sökum vanheilsu þannig að upp-
græðslan gengur hægt. En skjólbelt-
ið er farið að sjást álengdar, þar sem
ég byrjaði með það. Rauðhóll er nú
algróinn þeim megin sem snýr að
veginum. Það er lúpína sem þekur
hann og trjáplöntur ýmsar eru óðum
að koma upp úr lúpínubreiðunni,
birki, greni og fleira og sjálfsprottin
blóm.“
Ég hef lært mikið af þessu starfi
Hvaða hafa komið fjármunir til
þessarar starfsemi?
„Landgræðslan lagði til girðinguna
og fleira og Skógrækt ríkisins og
Landgræðsluskógar hafa lagt til
plöntur og fleiri hafa stutt verkið
drengilega. En mikinn hluta kostn-
aðarins hef ég lagt til sjálfur.“
Hefur þú verið einn í þessu?
„Ég hef notið mikillar hjálpar
frænda míns, Tryggva Sigurðssonar,
við gróðursetningu og bróðir minn
Sigurgeir og Helgi sonur hans hafa
rétt mér hjálparhönd, m.a. flutt allt
tað sem ég þarf á að halda frá báðum
bæjunum á Fagurhólsmýri og jarð-
veg þar sem nauðsyn krafði. Á hinum
bænum á Fagurhólsmýri bjó frænka
mín Guðrún Sigurðardóttir sem veitti
mér fæði og húsaskjól meðan heilsa
hennar leyfði, en hún er nú látin.“
Hefur þetta starf verið lærdóms-
ríkt hvað snertir gróðursetningu í
rýrt land?
„Ég hef sjálfur lært afar mikið af
þessu verki en ég hafði lært nokkuð
áður, ég hafði komið að skógrækt áð-
ur, m.a. farið í skiptiferð til gróð-
ursetningar til Noregs 1952. Og ég
fékk mikla aðstoð m.a. hjá rannsókn-
arstöðinni að Mógilsá við að velja
efnivið, en á þessum tíma voru menn
þar einmitt að leita að bestu klónum
víðis og aspa frá Alaska og lögðu mér
til fyrstu plönturnar í þessa ræktun.
Það var afar mikils virði. Og hjá Birni
Jónssyni fyrrum skólastjóra lærði ég
að vinna þannig að setja tað í holur
fyrir hverja plöntur og gróðursetja
beint í taðið ef því var að skipta, – þó
ekki fyrr en það er orðið ársgamalt,
svo og að setja hlífar við plönturnar
fyrstu misserin. Þetta hvort tveggja
er alveg nauðsynlegt í svona rýru og
vindasömu landi.“
Hvaða plöntutegundir hafa reynst
best?
„Það eru víðiklónin Mjölnir og
Njóla og af öspum er það Keisari. Ég
fékk þessar víðiplöntur í upphafi á
Mógilsá og hefði ég haft skjólbeltið
eingöngu úr þeim væri það allt þétt
og vöxtulegt en ég fékk ýmsa aðra
klóna með sem reyndust verr og þess
vegna er skjólbeltið skörðótt.
Sitkagreni verður aðaltegund í
skjólbeltum, birki til landgræðslu en
margar aðrar tegundir reyndar eftir
því sem við verður komið. Fræi hefur
lítillega verið sáð beint í, birki og
stafafuru, og verður reynt áfram, en
þá verður að vökva það fyrstu árin, að
minnsta kost á vorin. Víðast hvar er
svo skraufþurrt þegar ekki rignir og
er fræi og ungplöntum það ekki
minna böl en vindurinn.“
Ungt sitkagreni í Rauðhól.
Sjálfsprottin burnirót sem tók að vaxa í Rauðhól eftir að lúpínan varð fullvaxin.
Elsta skjólbeltið í landi Fagurhólsmýri. Fremst á myndinni er stærsta sitkagrenitréð, 145 sentimetrar sumarið 2002.
Rauðhóll eins og hann leit út þegar Guðjón setti niður fyrstu hríslurnar þar.
Uppgræðsla við
Fagurhólsmýri
Morgunblaðið/Árni Torfason
Guðjón Jónsson frá Fagurhólsmýri.
Við Fagurhólsmýri er land
rýrt og lítt fallið til skóg-
ræktar. Þar fer þó fram
merkilegt ræktunarstarf.
Guðjón Jónsson segir
hér sögu uppgræðslu
þarna og reynslu sinnar
af þessu starfi.
Uppgræðs la