Morgunblaðið - 05.05.2003, Blaðsíða 1
Birgit Engl, austurríska
landsliðskonan í liði ÍBV.
Morgunblaðið/Sverrir
AUSTURRÍSKU landsliðskon-
urnar í handknattleik, Sylvia
Strass og Birgit Engl, munu leika
áfram með Íslandsmeisturum ÍBV
á næstu leiktíð en þær gengu frá
nýjum eins árs samningi við meist-
arana um helgina. Anna Yakova
og Alla Gorkorian verða sömuleið-
is báðar um kyrrt í Eyjum en þær
eiga tvö ár eftir af samningum sín-
um við liðið. Einu breytingarnar
sem fyrirséðar á Eyjaliðinu á
næstu leiktíð eru þær að fyrirlið-
inn Ingibjörg Jónsdóttir og mark-
vörðurinn Vigdís Sigurðardóttir
hætta en þær hafa tekið ákvörðun
um að leggja skóna á hilluna.
Strass og
Engl áfram
með ÍBV
2003 MÁNUDAGUR 5. MAÍ BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ENDURREISN ÍTALSKA BOLTANS / B6
ÍSLENDINGAR unnu til tvennra
gullverðlauna á Norðurlanda-
mótinu í júdó sem fram fór í Stokk-
hólmi í Svíþjóð og lauk í gær.
Bjarni Skúlason sigraði í -90 kg
flokki og Anna Soffía Víkingsdóttir
gerði slíkt hið sama í -78 kg flokki.
Gígja Guðbrandsdóttir keppti í
-70 kg flokki og vann til brons-
verðlauna líkt og Þormóður Jóns-
son en hann tók þátt í +100 kg
flokki.
Í opnum flokki kvenna bætti
Gígja um betur og krækti í silfrið
en Anna Soffía varð þriðja í þeim
flokki.
Íslensku keppendurnir fengu því
tvenn gullverðlaun, ein silfur-
verðlaun og þrenn bronsverðlaun.
Svíar, Norðmenn, Finnar, Danir
og Íslendingar tóku þátt í liða-
keppni samhliða einstaklings-
keppninni og þar stóðu Finnar sig
best. Svíar fengu silfur og íslenska
sveitin fékk bronsið. Danir enduðu
í fjórða sæti og Norðmenn í fimmta
og neðsta sæti.
Bjarni og
Anna Soffía
með gull
Reuters
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, gat leyft sér að fagna í gær en með sigri
Leeds á Arsenal urðu hans menn Englandsmeistarar í 15. sinn. Ferguson sprautar hér kampavíni
í höfuðstöðvum Manchester United á Old Trafford í gær. Kampavínsflöskurnar eru átta eða jafn-
margar og liðið hefur unnið titilinn undir hans stjórn á síðustu 11 árum.
FRIÐRIK Ingi Rúnarsson þjálf-
ari íslenska karlalandsliðsins í
körfuknattleik mun á þriðjudag
tilkynna landsliðshóp sinn sem
tekur þátt í undirbúningi liðsins
fyrir Smáþjóðaleikana sem fram
fara á Möltu í byrjun júní. Frið-
rik Ingi sagði í gær að nokkrir
leikmenn sem hann hafði hug á
að velja í hópinn hefðu helst úr
lestinni og má þar nefna besta
leikmann Íslandsmótsins í vetur,
Helga Jónas Guðfinnsson, sem
ætlar sér að leika knattspyrnu í
sumar með Grindvíkingum líkt
og í fyrra.
„Ég virði ákvörðun Helga Jón-
asar en ég er ekki ánægður með
hans val og vildi geta valið hann í
liðið sem fer til Möltu,“ sagði
Friðrik í gær en auk Helga Jón-
asar er ljóst að Sævar Sig-
mundsson, Ingvaldur Magni
Hafsteinsson, Hreggviður
Magnússon og Jakob Sigurðar-
son munu ekki verða í leikmann-
hópi Íslands að þessu sinni.
Reglur fyrir Smáþjóðaleikana
eru rýmri hvað varðar leikmenn
sem eru með tvöfalt ríkisfang og
þar með getur Friðrik Ingi valið
alla þá leikmenn sem hann telur
eiga heima í liðinu og fræðilega
séð má hann velja þá Damon
Johnson, Brenton Birmingham,
Keith Vassell, Kevin Grandberg
og Leon Purdue. Hinsvegar er
ljóst að Keith Vassell mun ekki
gefa kost á sér í verkefnið og allt
eins gæti farið svo að Brenton
væri enn að leika með liði sínu
Rueil í frönsku 2. deildinni. Eins
og áður segir verður leikmanna-
hópurinn tilkynntur á morgun og
er allt eins líklegt að Damon
Johnson verði sá eini af þeim
sem nefndir voru til sögunnar
með tvöfalt ríkisfang í landsliðs-
hópnum.
Æfingahópur kvennalandsliðs
Íslands mun einnig verða til-
kynntur á morgun.
Helgi Jónas gefur
ekki kost á sér
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
LANDSLIÐSMAÐURINN Jón Arnór Stef-
ánsson sem leikið hefur með þýska 1. deild-
arliðinu Trier í vetur mun ekki leika fleiri leiki
með liðinu í umspili sex liða um fjögur laus sæti
í 1. deild. Jón Arnór er meiddur á hné og mun
fara í speglun af þeim sökum á næstu dögum,
annað hvort hér á Íslandi eða í Þýskalandi.
Trier á enn eftir að leika sex leiki í umspilinu
en Jón Arnór lék í tvær mínútur í tapleik liðs-
ins s.l. föstudag en var ekki með í sigurleik
þess í gær.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins ætl-
ar Jón Arnór að reyna að ná sér góðum af
meiðslunum áður en Smáþjóðaleikarnir hefj-
ast á Möltu sem hefjast í byrjun júní. Samn-
ingur hans við Trier gildir aðeins út leiktíðina.
Frá Möltu til Dallas
Þess má geta að Jón Arnór og Helgi Magn-
ússon fyrrverandi félagi hans úr KR sem nú
leikur með háskólaliði í Bandaríkjunum munu
leika með úrvalsliði skipuðu leikmönnum frá
Norðurlöndunum í sumar. Það er fyrrverandi
leikmaður Njarðvíkur, Pete Philo, sem stend-
ur að heimsókninni en liðinu stýrir Friðrik
Ragnarsson þjálfari Njarðvíkur.
Jón Arnór í
aðgerð á hné