Morgunblaðið - 23.05.2003, Side 6
6 B FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
F
RIÐBERT Friðbertsson,
framkvæmdastjóri sér-
vörusviðs Kaupáss, segir að
Bodum-verslunin sé í eigu
Kaupáss, en verði rekin í
nánu samstarfi við Bodum.
„Til þess að opna svona búð þarf að
uppfylla kröfur Bodum um rými, inn-
réttingar, lýsingu og vöruúrval. Búð-
in er algerlega hönnuð af Bodum, það
á bæði við um innréttingar og útlit.
Starfsmenn Bodum settu innrétting-
arnar upp og röðuðu vörum í hillur.
Afgreiðslufólkið í versluninni fékk
sérstaka þálfun hjá Bodum og mun
ganga í merktum fötum við af-
greiðslu. Þá er gert ráð fyrir að
fulltrúar Bodum komi reglulega í
heimsókn og fylgist með því að allt sé
eins og fyrirtækið krefst.“
Friðbert segir að Bodum leggi
áherslu á að vörunni sé rétt stillt upp
og að starfsfólkið sé hæft. Það á að
kunna að nota allt sem selt er í versl-
uninni og geta veitt viðskiptavininum
hluta af „Bodum-reynslunni“, það er
að gæðin og þjónustan séu fullkomin.
En hvernig kom Bodum-verslunin í
Húsgagnahöllinni til?
„Hugmyndin kviknaði seint á síð-
asta ári,“ segir Friðbert. „Bodum hef-
ur opnað meira en fimmtíu búðir utan
Danmerkur og við vissum að fyrir-
tækið hafði áhuga á að koma hingað.
Eftir fyrstu samtöl okkar var ljóst að
við næðum saman. Þetta samstarf
hefur farið mjög vel af stað.“
Vel þekkt vörumerki
Friðbert bendir á að vörumerkið
Bodum sé vel þekkt hér á landi, þótt
það hafi ekki mikið verið auglýst.
Vörur frá Bodum hafa fengist hér í
takmörkuðum mæli í áranna rás.
Eins hafa Íslendingar kynnst merk-
inu erlendis og ekki síst af lestri
dönsku blaðanna. Það er því viðbúið
að margir fagni því að eiga aðgang að
allri framleiðslu fyrirtækisins hér á
landi.
„Danirnir voru ekki búnir að vera
hér nema í tvo daga, að setja versl-
unina upp, þegar fólk var farið að
hringja og spyrja hvenær búðin yrði
opnuð,“ segir Friðbert. „Við höfum
góða reynslu af að selja danskar
vörur, bæði húsgögn og annað. Dönsk
hönnun og vörugæði höfða sterkt til
Íslendinga.“
Friðbert segir að vel megi líta svo á
að með opnun Bodum-verslunarinnar
sé Húsgagnahöllin að koma til móts
við aukinn áhuga á húsbúnaði og bús-
áhöldum. „Athygli fólks hefur í aukn-
um mæli beinst að því að gera heim-
ilin hugguleg. Þetta á ekki einungis
við um Ísland heldur sér maður að
víða á Vesturlöndum eru sjónvarps-
þættir um hús og húsbúnað, mat-
reiðslu og annað slíkt, með vinsælasta
efni sem boðið er upp á. Við sjáum
það einnig hér að fólk er reiðubúið að
fjárfesta í heimilum sínum.“
Húsgagnahöllin hefur lengi lagt
megináherslu á sölu húsgagna. Að
sögn Friðberts er verslunin að auka
sölu á ýmissi smávöru og er þannig að
svara sívaxandi eftirspurn frá við-
skiptavina. „Fólk hefur keypt hér
húsgögn og spurt eftir smávörunni.
Bodum líkar vel að starfa í þessu um-
hverfi, þar sem fólk kemur að leita að
hlutum í heimilið. Markmið okkar er
að fólk fái sem flest til heimilisins hér
í húsinu. Húsgögnin, eldhúsáhöld,
hluti í baðherbergið og meira að segja
matvöru!“ Friðbert segir að Hús-
gagnahöllin hafi lengi átt mjög gott
samstarf við danska framleiðendur
og þar beri hæst húsgagnafyrirtækið
Idé Möbler. Nú eykst úrvalið enn af
dönskum vörum. „Auk Bodum verður
hér deild með ljósum frá Fritz Han-
sen, úrval af vörum úr burstuðu stáli
frá Zone og glervara frá Idé Möbler.“
Við höfum lagt áherslu á að vera
með vandaðan og hagkvæman hús-
búnað á góðu verði. Bodum er einnig
upptekið af því.
Ekta fjölskyldufyrirtæki
Bodum er fjölskyldufyrirtæki og
jafngamalt íslenska lýðveldinu, stofn-
að 1944. Stofnandinn, Peter Bodum,
fékkst í fyrstu við innflutning á krist-
al og mokkabollum frá Austur-
Evrópu. Bodum fór út í eigin fram-
leiðslu 1958 og fyrsta varan var kaffi-
kanna úr gleri, Santos, sem enn er
framleidd. Peter Bodum lést 1967 og
þá tók sonur hans Jörgen, við stjórn-
artaumum og er enn við stjórn.
Pressukaffikannan, the Bistro, kom á
markað 1974 og hefur notið mikilla
vinsælda. Bodum opnaði fyrstu sér-
verslun sína í London 1986. Nú er
Bodum-verslanir víða að finna.
Flaggskip þeirra er Bodum Hus í
Kaupmannahöfn.
Jörgen Bodum starfar eftir þeirri
reglu að góð hönnun ætti ekki að vera
dýr. Vörur Bodum séu til dæmis um
það, hagkvæm í notkun og fallega út-
lítandi. Hann segir að verslanir Bod-
um séu eins og litlar tilraunastofur
fyrirtækisins, þar sem hægt er að
kynna nýjar framleiðsluvörur og sjá
viðbrögð viðskiptavina. Þar fái fyrir-
tækið einnig tillögur viðskiptavinanna
og hugmyndir að nýjum framleiðslu-
vörum.
Bodum hefur ekki síst fengist við
gerð áhalda sem notuð eru við kaffi-
og tedrykkju. Markmið fyrirtækisins
er að vera í fremstu röð á því sviði á
heimsvísu. Auk kaffikanna, tepotta,
bolla og drykkjarmála selur Bodum
einnig sérbrennt og malað kaffi og
valið te. Bodum framleiðir allar sínar
vörur í Evrópu, en hefur ekki valið að
fara til landa þar sem ódýrara vinnu-
afl er að fá. Þungi framleiðslunnar er
í Danmörku, en einnig á fyrirtækið
málmhlutaverksmiðju í Portúgal og
Melior-verksmiðjurnar í Frakklandi.
Friðbert segir að forráðamenn fyrir-
tækisins leggi áherslu á danska
ímynd fyrirtækisins og að viðhalda
henni. Innan þess ríki sannur fjöl-
skylduandi og allir starfi eins og í
einu teymi.
En hvernig verður verðlagningin
hér á landi samanborið við útlönd?
„Verðið verður mjög sambærilegt
við verðið í Danmörku,“ segir Frið-
bert. „Vegna þess hve verslunin hér
er ný vildu þeir hjá Bodum að allar
nýjustu vörurnar yrðu hér til sölu. Til
dæmis fengum við nýstárlegan teket-
il, eins og ættaðan úr 1001 nótt, sem
var að koma á markað. Fólkið sem
vann við að stilla upp vörunum hafði
ekki séð hann fyrr en hér. Þessi te-
ketill er ekki kominn í bæklinga fyr-
irtækisins og hefur ekki fengist til
þessa í Danmörku.“
Starfsfólk kom frá Bodum í Danmörku til að setja upp
innréttingar fyrirtækisins og raða vörum í hillurnar.
Bodum leggur mikið upp úr hönnun og á það jafnt við um
umbúðir og innihald.
Búsáhöld frá Bodum
Morgunblaðið/Árni Torfason
F.v.: Friðbert Friðbertsson, framkvæmdastjóri sérvörusviðs Kaupáss, og
Haukur Þórðarson, rekstrarstjóri, í nýju Bodum-versluninni.
Bodum-sérverslun er ein
þeirra nýjunga sem mun
blasa við viðskiptavinum
Húsgagnahallarinnar við
opnunina á morgun.
Undanfarin ár hefur Bod-
um opnað fjölda sér-
verslana utan Danmerk-
ur og mun verslunin í
Húsgagnahöllinni vera
52. í röðinni.
VERSLUNIN Intersport er stærsta
íþróttavöruverslun landsins, í rúm-
lega tvö þúsund fermetra rými.
Verslunin er hluti af stærstu sport-
vöruverslunarkeðju í heimi sem
starfar í 26 þjóðlöndum og er með
rúmlega 5 þúsund verslanir út um
allan heim, með höfðustöðvar í
Sviss. „Við líkt og aðrar Intersport-
verslanir í heiminum kaupum vörur
okkar á sama stað,“ segir Þorgeir
Jónsson, innkaupastjóri Intersport.
„Lögð er áhersla á að vera með gott
verð og vandaðar vörur og mikið
vöruúrval.“
Stærsta íþróttaskódeild
landsins
Líkt og í öðrum verslunum Inter-
sport býður verslunin á Bíldshöfða
upp á íþótta- og útvistarfatnað og
annan sportlegan fatnað, að sögn
Þorgeirs. „Fólk þarf þó ekki að vera í
íþróttum til að finna fatnað við hæfi í
versluninni eða öðrum verslunum
Intersport hér á landi,“ segir hann
en Intersport er einnig með verslun í
Smáralind og í Kjarnanum á Sel-
fossi.
Á Bíldshöfðanum er að finna
merki eins og Nike, Adidas og Puma
svo einhver séu nefnd. „Við erum
með stærstu íþróttaskódeild á land-
inu þar sem við erum að selja meðal
annars skófatnað frá þessum merkj-
um auk annars íþróttafatnaðar. Við
erum einnig með útivistardeild og
innan hennar er stór veiðideild en í
þeirri deild fæst allt til stangaveiði
og skotveiði.“
Sérfræðingar í hverri deild
Það kemur fram hjá Þorgeiri að
forráðamenn verslunarinnar leggja
mikið upp úr góðri þjónustu og hafa
því sérfræðinga í hverri deild sem
geta ráðlagt viðskiptavinunum um
kaup á vörum sem duga við hinar
ýmsar aðstæður.
„Við erum með stærstu og glæsi-
legustu útivistardeild landsins sem
hefur reynda menn innanborðs, sem
gjörþekkja allt sem viðkemur úti-
vist. Einnig bjóðum við upp á
stærstu veiðideild landsins þar sem
Ólafur Kr. Ólafsson ræður ríkjum og
hann gefur þeim ráð sem vilja, en í
þeirri deild fæst allt sem viðkemur
stangaveiði. Í veiðideildinni erum
við meðal annars að selja vörur frá
Elbe, norskar veiðivörur, sem eru
með vörumerki meðal annars frá
Rapala og VMC, Shimano, Vangen
og fleiri framleiðendum. Þessar
vörur hafa reynst mjög vel.
Vinsældir línuskauta eru sífellt að
aukast og erum við með stóra deild
þar sem við seljum línuskauta á
sumrin og hokkískauta á veturna.
Hvað varðar línuskauta þá erum við
Með réttum búnaði getur útilegufólk látið eins og það hafi aldrei farið úr húsi,
svona hér um bil. Starfsmaður íþróttavöruverslunarinnar Intersport bregður á leik.
Stærsta
íþróttavöru-
verslun
landsins
Verslunin Intersport á Bíldshöfða 20 var sett á
laggirnar um miðjan apríl 1998 og hefur notið
mikilla vinsælda síðan. Þar er að finna helstu
merkin í íþróttafatnaði og stærstu íþróttaskó- og
veiðideild landsins.