Morgunblaðið - 29.05.2003, Page 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
SIGURÐUR Einarsson, stjórn-
arformaður Kaupþings Búnaðar-
bankans hf., segir rétt að upplýs-
ingar um á hvaða gengi
yfirtökutilboð Kaupþings í JP
Nordiska yrði hafi ekki legið fyrir í
júní á síðasta ári, þótt almennt hafi
þá verið ljóst að Kaupþing myndi
yfirtaka JP Nordiska, enda hafi
engin ákvörðun verið tekin um
gengi yfirtökutilboðsins á þeim
tímapunkti. Efnahagsbrotadeild
sænsku lögreglunnar gerði húsleit
í fimm löndum á þriðjudag vegna
gruns um að sex einstaklingar hafi
stundað innherjaviðskipti vegna
bréfa í sænska bankanum JP
Nordiska á síðasta ári skömmu áð-
ur en Kaupþing gerði yfirtökutil-
boð í bankann.
Sigurður segir að lítil viðskipti
hafi verið með bréf í JP Nordiska
og þótt hinir grunuðu hafi átt yfir
90% allra viðskipta með bréfin á
tímabilinu hafi það ekki verið mikil
viðskipti í sjálfu sér. „Miðað við
mína vitneskju sé ég ekki að það
hafi verið hægt að misnota ein-
hverjar upplýsingar,“ segir Sig-
urður.
Að hans mati hefur það komist
til skila í fjölmiðlum, bæði á Íslandi
og í Svíþjóð, að rannsóknin beinist
ekki gegn Kaupþingi heldur við-
skiptavinum fyrirtækisins. Hann
undanskilur þó sænska viðskipta-
blaðið Dagens Industri sem að
mati Sigurðar hefur verið óvægið í
garð Kaupþings frá því fyrirtækið
keypti hlut í JP Nordiska.
Blaðamaðurinn Peter Benson
ráðlagði á sínum tíma eigendum
JP Nordiska að skipta ekki bréf-
um sínum í Kaupþingsbréf í grein í
DI og í dálki í blaðinu í gær rifjar
hann þau ummæli upp og segir að
lögreglurannsóknin nú þurfi ekki
að koma á óvart. Í sama dálki segir
Benson að þetta sé ekki í fyrsta
skipti sem fólk tengt Kaupþingi er
rannsakað af lögreglunni en einn
af stjórnarmönnum í Kaupþingi sé
grunaður um efnahagsbrot.
Ekkert hæft í skrifum DI
Sigurður segir ekkert hæft í skrif-
um Bensons og bætir við að hann
ætti að skammast sín.
Sigurður segir að fyrrverandi
stjórnendur JP Nordiska hafi
einnig horn í síðu kaupþings-
manna og hafi m.a. látið útbúa
skýrslu um Kaupþing, að ein-
hverju leyti byggða á samtölum
við 10-15 álitsgjafa á Íslandi, alla
utan Kaupþings, og síðan dreift
skýrslunni til sænskra fjölmiðla,
fjármálaeftirlitsins og Kauphallar-
innar í Stokkhólmi. Sigurður hefur
þó ekki trú á að lögreglurannsókn-
in nú sé í orsakasambandi við
þessa skýrslu, en hún er full af
rangfærslum, að sögn Sigurðar.
Þekktur kaupsýslumaður
Í frétt Dagens Industri um málið í
gær er því haldið fram að þekktur
sænskur fjármálamaður sé einn af
þeim sex grunuðu en að hinir séu
Íslendingar, allir tengdir Kaup-
þingi í Lúxemborg. Heimildar-
menn DI segja að aðeins fáir hafi
vitað upp á hvað yfirtökutilboðið
ætti að hljóða og því hafi enn frek-
ar verið haldið leyndu vegna þess
að yfirtakan var fjandsamleg.
Sænsk blöð hafa ekki nafn-
greint Svíann, sem tengist málinu,
en segja að hann sé þekktur kaup-
sýslumaður í Gautaborg og hafi
áður verið meðal helstu eigenda
JP Nordiska. Fréttastofan Direkt
hefur eftir honum að lögregla hafi
spurt hann nokkurra spurninga en
að hann hafi ekki átt nein viðskipti
með bréf í JP Nordiska eftir 11.
júní á síðasta ári. Rannsókn
sænskra yfirvalda nær til við-
skipta er áttu sér stað eftir 10.
júní. „Mér þykir þetta allt vera hið
undarlegasta mál“ er haft eftir
manninum. Hann segist hafa
áhyggjur af því að umræða um
málið kunni að hafa slæm áhrif á
þau fyrirtæki er hann rekur. „Það
eru fyrirtæki sem ganga vel og það
væri leiðinlegt ef þetta myndi
spilla fyrir þeim.“
Sé ekki að misnota
hafi mátt upplýsingar
Stjórnarformaður Kaupþings gagnrýnir harðlega umfjöllun sænskra fjölmiðla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
H E I M U R I N N
Hrun á fast-
eignaverði?
Seðlabankar hafa lítið svigrúm
til að bregðast við ástandinu
FASTEIGNAVERÐ í heiminum mun
hrynja í nánustu framtíð ef mark er takandi
á könnun sem breska tímaritið The Econom-
ist lét gera í sex þróuðum ríkjum, þar á með-
al Bandaríkjunum. Hrunið mun hafa mun al-
varlegri afleiðingar í för með sér fyrir
efnahagslíf heimsins en niðursveiflan sem
varð á hlutabréfamörkuðum um allan heim
hafði, en enn sér ekki fyrir endann á henni.
Múrsteinar og steypa
Vegna hins slæma árferðis á hlutabréfa-
mörkuðum hefur þótt gáfulegra að fjárfesta
í múrsteinum og steypu en hlutabréfum,
enda hefur fasteignaverð hækkað upp úr
öllu valdi um heim allan. Segir tímaritið að
núna sé fólk þó að byrja að átta sig á því að
heimili þeirra eru ekki eins verðmæt og það
batt vonir við að þau yrðu og fólk sé byrjað
að velta fyrir sér hvort að fasteignaviðskipti
séu eina rétta fjárfestingin eftir allt saman.
Í greininni segir að þar sem vextir séu
þegar svo lágir hafi seðlabankar miklu
minna svigrúm en venjulega til að vernda
efnahagslífið gegn áföllum sem verða við
hrun á fasteignaverði.
Vextir í Bandaríkjunum í dag eru 1,25%
og undirliggjandi verðbólga er 1,5% og fer
lækkandi. Í greininni segir að ef lækkun á
fasteignaverði fylgdi samdráttur í neyslu
gæti seðlabankinn ekki lækkað vexti öllu
meira til að hleypa lífi í efnahaginn.
Dýrast að búa í London
Í skýrslu The Economist kemur einnig fram
að dýrasta borgin að búa í, nú í dag, er Lond-
on, þar á eftir kemur New York og þá Tókýó.
The Economist ráðleggur því fólki í þess-
um sex löndum í það minnsta, að bíða með
húsakaup þar til verð hefur lækkað. Þeir
sem hins vegar eiga íbúð en verða að flytja af
einhverjum ástæðum ættu að selja og leigja
íbúð þar til verðið lækkar á markaðnum.
Í lok greinarinnar segir að í heimi þar sem
að verðbólga er nánast engin geti menn ekki
gert ráð fyrir miklum hagnaði af fjárfest-
ingum, hvorki af fasteignum né hlutabréfum.
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Hin raunsanna mynd?
Íslensk reikningsskil og staða reikningsskila 4
Breytt siðferði, ekki verra
Spilling ekki vaxandi vandamál 8
HVAÐ ÞÝÐIR
STJÓRNARSÁTTMÁLINN?