Morgunblaðið - 04.06.2003, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 C 5
bílar
hefur bæði kosti og galla í för með
sér. Kostirnir eru þeir að búnaður-
inn dregur umtalsvert úr eyðslu
bílsins þar sem rafmótorinn notar
aðeins orku þegar verið er að
beygja bílnum. Stýrið er þokkalega
nákvæmt en ókosturinn við raf-
magnsstýrið er sá að svörunin er
dálítið loðin og bíllinn virkar ekki
sérlega jarðtengdur. Þetta ásamt
fremur mjúkri fjöðrun framkalla
aksturseiginleika sem höfða síður
til undirritaðs en aksturseiginleik-
ar hjá helstu keppinautum, þ.e.a.s.
VW Golf, Opel Astra og Ford
Focus, svo dæmi séu tekin. Raf-
magnsstýrið í Stilo er að auki með
sérstakri borgarstillingu, sem gerir
stýringuna léttari sem nýtist mjög
vel þegar lagt er í þröng stæði.
Stilo Multi Wagon er fáanlegur
með tvenns konar vélum í tveimur
útfærslum. Með 1,6 l, 103 hestafla
vél kostar hann í Active-gerð
1.790.000 kr. og 1.950.000 kr. í
Dynamic-gerð. Með 1,8 l vélinni
kostar hann 1.990.000 kr. í Active-
gerð en 2.150.000 kr. í Dynamic-
gerð. Bíllinn er eingöngu fáanlegur
beinskiptur.
Helstu keppinautar eru Ford
Focus, sem kostar með 1,6 l vél
1.810.000 kr., VW Golf Variant 1,6 l
sem kostar 1.940.000 kr., Opel
Astra 1,6 l sem kostar 1.930.000 kr.
og Peugeot 307 XT 1,6 sem kostar
1.845.000 kr.
Skottlokið opnast hátt og þægilegt er að lesta bílinn.
Loftkæling er meðal staðalbúnaðar
í Dynamic.
gugu@mbl.is
Áberandi brot er á vélarhlífinni
sem setur svip á bílinn.
C2 frá Citroën, sá alminnsti frá
franska bílaframleiðandanum, kemur
á markað seinna á þessu ári. Hann
verður strax í boði með fjórum mis-
munandi vélum; þremur bensínvélum
og á meginlandi Evrópu verður hann
líka fáanlegur með lítilli samrásardís-
ilvél. Þá verður hann fáanlegur með
nýjum gírkassa, SensoDrive, sem nú
er einnig verið að kynna til sögunnar í
C3.
C2 hefur dálítið sérstakt útlit. Þeg-
ar litið er á hlið bílsins sést að í honum
eru tvær línur og tekur sú seinni við
þar sem afturhluti bílsins byrjar. Að
innan er hann litríkur og frísklegur. C2
verður fjölhæfur bíll og hægt að
breyta innanrýminu á marga vegu.
Hann er aðeins fjögurra sæta og aft-
ursætin tvö eru á sleða og hægt að
færa þau fram eða aftur eftir þörfum.
Auk þess er að hægt að fella þau niður
í gólfið með einfaldri aðgerð. Hægt er
að hafa C2 á allt að 16 tommu hjólum
og hann er óvenju vel útbúinn miðað
við stærð. Meðal staðalbúnaðar á
sumum mörkuðum er m.a. vökvastýri
sem þyngist með auknum hraða,
sjálfvirk miðstöð, skynjari í baksæti,
skriðstillir og sex líknarbelgir.
C2 er byggður á sömu botnplötu og
C3. Hann er 3,66 m á lengd og 1,66 á
breidd. Hann verður eingöngu fáan-
legur þrennra dyra.
C2 er fjögurra manna.
C2 — sá
alminnsti
frá Citroën Litríkur og frísklegur að innan.
VÉLAR og þjónusta taka að
sér umboð og sölu á öllum vél-
um og tækjum frá John Deere
frá og með 1. ágúst næstkom-
andi.
John Deere er eitt allra
virtasta fyrirtæki heimsins á
sínu sviði en hér á landi er
fyrirtækið þó þekktast fyrir
dráttar- og landbúnaðarvélar.
Auk þess að framleiða vélar
fyrir landbúnaðinn er fyrir-
tækið stórtækt í framleiðslu
og sölu á ýmiskonar smávélum
og iðnaðarvélum og er með
verksmiðjur beggja vegna Atl-
antsála.
Með þessum nýja umboðs-
samningi mun V&Þ enn
styrkja stöðu sína á íslenska
vélamarkaðnum. Aukið vöru-
framboð og sú viðleitni V&Þ
að vera ávallt í fremstu röð
vélainnflytjenda mun skapa
viðskiptavinum fyrirtækisins
betra rekstrarumhverfi með
góðum vélum og góðri þjón-
ustu.
Vélar og
þjónusta
hf. taka
við umboði
fyrir John
Deere
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Undirföt
Náttföt
Frábært úrval
COS
Undirfataverslun • Glæsibæ • S: 588 5575