Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR 2 B FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ LARS Høgh, sem lék 8 landsleiki fyrir Dani og var lengi varamarkvörður fyrir Peter Schmeichel í landslið- inu, hefur verið ráðinn til starfa hjá Færeyingum fyrir landsleikina á móti Íslandi og Þjóðverjum. Högh mun starfa með færeysku landsliðs- markvörðunum í 9 daga en hann hefur á síðustu árum þjálfað hjá dönsku ung- mennalandsliðunum og rek- ið nokkra knattspyrnuskóla. Høgh sagði í samtali við færeyska dagblaðið Sosial- urin að hann væri ánægður með að hafa fengið þetta tímabundna verkefni í Fær- eyjum. „Þetta er mjög spennandi verkefni og ég mun gera allt sem ég get til þess að búa færeysku mark- verðina sem best undir leik- ina á móti Íslandi og Þýska- landi.“ Høgh telur mjög mik- ilvægt fyrir Færeyinga að ná góðum úrslitum á móti Ís- landi. „Færeyingar verða að koma mjög einbeittir til leiks á móti Íslendingum og mikilvægt er fyrir þá að ná góðum úrslitum í Reykjavík. Sjálfstraust Færeyinga verður að vera mikið á móti Þjóðverjum og besta leiðin til þess að það gerist er að fá góð úrslit á Íslandi.“ Lars Høgh aðstoðar Færeyingana JÓHANNES Karl Guð- jónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, telur ólíklegt að hann verði hjá Aston Villa á næstu leiktíð. Jóhannes lék ellefu leiki í ensku úrvals- deildinni með Aston Villa á síðustu leiktíð og skoraði tvö mörk og þótti standa sig ágætlega. Jóhannes er samningsbundinn Real Betis en vill komast burt frá Spáni. David O’Leary hefur tekið við sem knatt- spyrnustjóri hjá Aston Villa en hann virðist ekki hafa áhuga á að kaupa Jóhannes. „Ég hef ekkert heyrt frá David O’Leary og því finnst mér ólíklegt að Villa muni kaupa mig. Ég tel að hann hafi aðra leikmenn í huga sem hann vill fá til félagsins. Ég var bjartsýnn á að Villa myndi ganga frá samningi við mig þar sem stjórnin hafði lýst yfir áhuga á að fá mig. Einnig höfðu aðdá- endur Villa látið í ljós að þeir vildu að ég yrði keyptur til félagsins,“ sagði Jóhannes við Morgunblaðið í gær. Aðpurður hvort hann hefði heyrt um áhuga frá öðrum liðum sagðist hann hafa heyrt af áhuga hjá Manchester City og Portsmouth, en for- ráðamenn þeirra liða hefðu ekki haft samband við sig. Ólíklegt að Jóhannes verði hjá Aston Villa GUNNAR Einarsson, mið- vörður KR-inga í knattspyrn- unni, fór meiddur af leikvelli gegn KA á þriðjudag. Liðbönd tognuðu í hné Gunnars og hann lék ekki síðari hálfleik- inn. „Sjúkraþjálfararnir segja mér að ég geti náð leiknum gegn Val í næstu umferð. Ég vona það að þetta reynist rétt hjá sjúkraþjálfurunum því ég er ekki nógu góður eins og staðan er núna,“ sagði Gunn- ar í samtali við Morgunblaðið í gær. Veigar Páll Gunnarsson, fé- lagi Gunnars í KR-liðinu, á við sömu meiðsli að etja. Gunnar líklega með gegn Val BIKARMEISTARAR Fylkis hefja titilvörn sína með því að fara til Húsavíkur og leika við heimamenn í Völsungi í 32-liða úrslitum Bikar- keppni KSÍ, VISA-bikarkeppn- innar. Aðalsteinn Víglundsson þjálfari Fylkis segir að Völsungur sé sýnd veiði en ekki gefin. „Ég er nokkuð sáttur. Við ætlum okkur hiklaust að verja þessa dollu og okkur langar til að verða eitt fárra liða sem tekist hefur að verða bikarmeistari þrjú ár í röð. En það er langt frá því að vera sjálfgefið að fara til Húsavíkur og vinna. Völsungar eru með gott lið og hafa verið að standa sig vel. Ég veit að þeir hafa unga og spræka stráka þannig að þetta verður hörkuleikur.“ Íslandsmeistarar KR mæta HK á Kópavogsvelli, en annars var drátt- urinn þannig: Húsavík: Völsungur - Fylkir Kópavogur: HK - KR Akranes: ÍA 23 - Stjarnan Ísafjörður: BÍ - Haukar Sauðárk.: Tindastóll - Keflavík Njarðvík: Njarðvík - Þróttur Vestmannaeyjar: KFS - ÍBV Egilsstaðir: Höttur - FH Siglufjörður: KS - Afturelding Akranes: Deiglan - Víkingur Reykjavík: ÍR - Fram Tungubakki: Númi - Valur Seyðisfjörður: Huginn - ÍA Selfoss: Selfoss - KA Garður: Víðir - Þór Keflavík: Keflavík 23 - Grindavík Í Eyjum verður athyglisverð við- ureign heimaliðanna KFS og ÍBV. Leikdagar eru 13. og 14. júní. SKONDIÐ atvik gerðist þegar dregið var í 32-liða úrslit Bik- arkeppni KSÍ í gærdag. Þegar langt var liðið á dráttinn og að- eins sjö lið voru eftir í hattinum, tóku KSÍ-menn eftir því að eina kúlu vantaði – aðeins 31 kúla var í hattinum. Varð þá að draga upp á ný og fengu öll liðin, sem höfðu verið dregin út í fyrri drætt- inum, nýja mótherja nema 23 ára lið Keflavíkur og Grindavík. Þau drógust saman í bæði skiptin. Þau lið sem drógust saman í fyrri drættinum voru, ÍA U23- Afturelding, Númi-ÍA, Völsung- ur-Víkingur R., Höttur-Stjarnan, Víðir-KR, HK-Þróttur.R, ÍR- Þór A., Selfoss-FH, Huginn-ÍBV, Njarðvík-Fram, Keflavík U23- Grindavík. Bikarmeistararnir, Fylkir, voru meðal þeirra liða sem voru ekki dregnir í fyrri drættinum. Varð að draga tvisvar  TÍU fatlaðir sundmenn frá Ís- landi taka þátt í opna breska sund- meistaramótinu sem hefst í dag í Sheffield í Englandi: Kristín Rós Hákonardóttir, Bjarki Birgisson, Guðrún Lilja Sigurðardóttir og Pálmi Guðlaugsson, sem keppa í flokkum hreyfihamlaðra, og Gunn- ar Örn Ólafsson, Anton Kristjáns- son, Jón Gunnarsson, Bára B. Er- lingsdóttir, Karen Björg Gísladóttir og Lára Steinarsdóttir, sem keppa í flokki þroskaheftra.  LÍKLEGT er að Christian Gross taki við þjálfun hjá þýska úrvals- deildarliðinu Schalke. En auk Gross þykir Felix Magath, fyrrver- andi þjálfari Stuttgart, líklegur í starfið.  RAUÐU spjöldin voru enn á lofti í bikarkeppni KSÍ í fyrrakvöld þegar 23 ára lið KR og ÍA áttust við. Í framlengingu voru tveir KR-ingar, Valþór Halldórsson markvörður og Kjartan Finnbogason, reknir af velli. Skagastrákar sigruðu, 5:3, og fá fyrstudeildarlið Stjörnunnar í heimsókn í 32 liða úrslitunum.  BELGÍSKA tennisstúlkan Just- ine Henin-Hardenne kom heldur betur á óvart þegar hún lagði Ser- enu Williams að velli í undanúrslit- um á opna franska meistaramótinu í gær 6:2, 4:6, 7:5. Hún mætir löndu sinni Kim Clijsters í úrslitum og er það í fyrsta skipti í sögunni sem Belgíumenn mætast í úrslitaleik. Þess má geta til gamans að Henin- Hardenne tapaði fyrir Venus, syst- ur Serenu, í úrslitaleik á Wimble- don-mótinu fyrir tveimur árum.  GEORGE Burley gerði í gær tveggja ára samning við Derby. Burley, 47 ára, gerðist knatt- spyrnustjóri liðsins undir lokin á sl. keppnistímabili. Í gær skrifaði hann undir tveggja ára samning. Burley var valinn knattspyrnu- stjóri ársins í ensku úrvalsdeildinni 2001 er Ipswich varð í fimmta sæti undir hans stjórn. FÓLK REIKNAÐ er með að um 700 stuðn- ingsmenn færeyska landsliðsins verði á Laugardalsvellinum og hefur Færeyingafélagið hér á landi skipu- lagt dagskrá á morgun. Færeying- arnir ætla að hittast í Sjómanna- heimilinu í Brautarholti 29 í Reykjavík klukkan 13 og þar verður hitað upp fyrir leikinn. Meðal annars verður andlitsmálning fyrir börn. Færeyingar fjölmenna Íslenska landsliðið æfði á Laugar-dalsvelli í gærdag en æfingin var opin almenningi. Um 150 krakkar mættu til að fylgjast með æfingunni og þegar henni var lok- ið gáfu landsliðs- mennirnir krökkun- um eiginhandaáritanir á myndir í boði Heklu. Blaðamaður Morgun- blaðsins náði tali af Ásgeiri Sigur- vinssyni eftir æfinguna og spjallaði við hann um verkefnið framundan. Ásgeir ætlar að leggja leikinn upp með þeim hætti að Íslendingar taki frumkvæði strax og sæki á Færey- inga af krafti í byrjun. Eru einhverjir af íslensku leik- mönnunum að kljást við meiðsli? „Arnar Gunnlaugsson tognaði á inn- anverðu læri á æfingu í morgun, en Stefán Stefánsson, sjúkraþjálfari landsliðsins, telur að Arnar eigi að vera tilbúinn fyrir leikinn. Lárus Orri og Jóhannes Karl hafa eitthvað verið að kvarta undan magakveisu en það er ekkert alvarlegt og þeir verða báðir leikfærir á laugardag- inn.“ Hvernig metur þú færeyska liðið? „Færeyingar hafa tekið stórt stökk fram á við knattspyrnulega séð. Þróunin hjá þeim hefur verið mjög jákvæð á síðustu árum og það er greinilegt að dönsku þjálfararnir hafa verið að gera góða hluti með færeyska landsliðið. Þeir eru byrj- aðir að spila knettinum á milli sín en áður fyrr hugsuðu þeir aðeins um að spyrna boltanum eins langt frá marki og þeir mögulega gátu. Hins vegar ef við berum færeyska liðið saman við okkar lið er ekki spurning að við erum sigurstranglegri og eig- um að sigra í leiknum.“ Ásgeir telur ekki að Færeyingar muni leggjast í vörn, heldur muni þeir mæta Íslendingum á miðjum velli og reyna að sækja þegar tæki- færi gefst. Hann veltir sér ekki upp úr því þó að frekar lítil stemning virðist ríkja hjá Íslendingum fyrir leiknum. „Við erum að spila við Fær- eyinga, ekki Englendinga eða slíka stórþjóð. Þessi leikur gefur þrjú stig eins og það eru þrjú stig sem við verðum að taka.“ Hvað segir Ásgeir Sigurvinsson um viðureignina gegn Færeyjum? Morgunblaðið/Golli Þeir léku saman með landsliðinu á árum áður; Guðni Bergsson, sem er nú að kveðja landsliðið, og Ásgeir Sigurvinsson, sem stjórnar liðinu í sínum fyrstu leikjum sem landsliðsþjálfari. Bjartsýnn og fer fram á sigur ÁSGEIR Sigurvinsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, er bjartsýnn fyrir leikinn á móti Færeyjum á morgun kl. 16. „Stemningin í liðinu er mjög góð og viðbrögðin frá leikmönnum hafa verið góð allt frá fyrsta degi. Ég er bjartsýnn fyrir leikinn en eins og fólk veit er þetta leikur sem við verðum að vinna. Það er mikill hugur í leikmönnum og þeir virðast vera tilbúnir í þetta verkefni,“ sagði Ásgeir. Eftir Atla Sævarsson INGI Höjsted, miðjumaðurinn ungi frá Arsenal, verður ekki í landsliðshópi Færeyinga gegn Íslendingum á morgun. Í ljós kom að hann er ekki leik- fær vegna meiðsla og hefur Heðin á Lakjuni, sóknar- maður frá B36 í Þórshöfn, verið sendur til Íslands í stað- inn. Heðin hefur verið einn af marksæknustu leikmönnum í færeysku knattspyrnunni undanfarin ár og hefur átt sæti í landsliðshópnum við og við. Hann tryggði einmitt B36 sigur á Skála, 1:0, í færeysku 1. deildinni á mánudags- kvöldið. Heðin kall- aður inn fyrir Inga KR-konur til Danmerkur KR mætir skosku meist- urunum Kilmarnock ásamt meistaraliðum Danmerkur og Serbíu-Svartfjallalands í riðlakeppni UEFA-bikars kvenna í knattspyrnu. Riðill- inn verður leikinn í Dan- mörku dagana 21.–25. ágúst. Danska liðið verður Fortuna Hjørring eða Brøndby, sem bítast um meistaratitilinn þar í landi þessa dagana. Fylkir fer til Húsavíkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.