Morgunblaðið - 06.06.2003, Side 3
SMÁÞJÓÐALEIKARNIR Á MÖLTU
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 B 3
BRENTON
Birmingham hef-
ur samið við
enska körfu-
knattleiksliðið
London Towers
til næstu tveggja
ára. Brenton hef-
ur leikið með
Rueil í frönsku 2.
deildinni í vetur,
en hann er ekki með íslenska lands-
liðinu á Smáþjóðaleikunum á Möltu
þar sem deildakeppninni lauk um
sl. helgi í Frakklandi.
Brenton lék með Njarðvík og
Grindavík, en verður í herbúðum
Towers næstu tvö árin.
Brenton
til London
Towers
Brenton
ÞAÐ hefur verið í nógu að
snúast hjá flestum íþrótta-
mönnunum sem keppa á Smá-
þjóðaleik-
unum. Sumir
keppa raunar
aðeins í einni
einstaklings-
grein á meðan
aðrir keppa í
allt að níu
greinum eins
og dæmi er
um í sundinu
en þar er Örn
Arnarson skráður í níu grein-
ar með boðsundunum. Tveir
sundkappar eru skráðir í átta
greinar, Kolbrún Ýr Kristjáns-
dóttir og Ómar Friðriksson,
en aðrir færri greinar.
Í frjálsíþróttunum eru þær
Sunna Gestsdóttir og Silja Úlf-
arsdóttir skráðar í fimm
greinar hvor og eru þá boð-
hlaupin talin með. Sigurbjörg
Ólafsdóttir er skráð til leiks í
fjórum greinum.
Það verður mikið að gera
hjá Sunnu á morgun því þá
keppir hún í þremur greinum,
langstökki og síðan í boð-
hlaupunum, 4x100 og 4x400
metra. Það er byrjað á lang-
stökkinu og vonandi verður
það búið áður en Sunna þarf
að skipta um skó og skella sér
í boðhlaupið.
Örn
keppir
í níu
greinum
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
körfuknattleik tapaði gegn Kýpur,
49:66, í öðrum leik liðsins á Smá-
þjóðaleikunum en í fyrsta leiknum
tapaði íslenska liðið gegn heima-
mönnum – Möltu. Líkt og í fyrsta
leik íslenska liðsins var síðari hálf-
leikurinn liðinu erfiður en staðan var
27:27 í hálfleik en í þriðja leikhluta
skoraði íslenska liðið aðeins átta stig.
Birna Valgarðsdóttir var atkvæða-
mest í íslenska liðinu með 13 stig,
Signý Hermannsdóttir kom þar
næst með átta stig líkt og þær Rann-
veig Randversdóttir og Hildur Sig-
urðardóttir, Erla Þorsteinsdóttir 4,
Helga Þorvaldsdóttir 4, Kristín
Blöndal 2, Hanna Kjartansdóttir 1,
Sólveig Gunnlaugsdóttir 1, Svandís
Sigurðardóttir, Alda Leif Jónsdóttir,
Marin Karlsdóttir.
Í mínum huga eru þetta Ólympíu-leikar og ég hefði ekki fengið þetta
tækifæri án þess að fá íslenskan rík-
isborgararétt. Ég er
afar stoltur af að vera
hluti af íslenska
landsliðshópnum og
þessi keppni er mik-
ilvæg fyrir okkur sem lið – við ætlum
okkur að ná í gullið hér á Möltu enda
eru tíu ár síðan Ísland vann Smá-
þjóðaleikana,“ sagði Damon og lagði
áherslu á að um Ólympíuleika væri að
ræða.
Damon lék á Spáni eftir að hafa
unnið alla þá titla sem í boði voru á Ís-
landi með Keflvíkingum sl. vetur og
hefur hann hug á því að leika á Spáni
næsta vetur ef álitleg tilboð koma upp
á borðið.
„Við eigum mikla möguleika á
þessu móti þrátt fyrir að það vanti
marga leikmenn að þessu sinni.“ En
Brenton Birmingham, Jón Arnór
Stefánsson og Keith Vassell eru ekki
í íslenska liðinu að þessu sinni.
„Ef þessir leikmenn væru með
okkur í dag væri alveg öruggt að við
myndum ná í gullverðlaun en við höf-
um ekki leikið vel það sem af er
mótinu – við eigum mikið inni.“
Damon náði aðeins að æfa með ís-
lenska liðinu í um 30 mínútur áður en
fyrsti leikur liðsins fór fram en hann
hefur fengið það erfiða hlutverk að
stjórna leik íslenska liðsins. „Ég er
víst einn af gömlu körlunum í liðinu
og það er mitt hlutverk að stjórna
hraðanum hjá okkur, en við höfum átt
það til að flýta okkur of mikið og það
hefur haft slæm áhrif á liðið. En ég
veit aðeins að við eigum eftir að slíp-
ast til sem lið og verðum betri með
hverjum leiknum sem líður. Gegn
San Marínó hittum við afar illa en
samt sem áður unnum við leikinn og
það segir mikið um okkur sem lið.“
Damon hefur leikið á Íslandi frá
árinu 1996 þegar hann samdi við
Keflvíkinga, en tímabilið 1997–1998
lék hann með ÍA. Damon sagði að ís-
lenska deildin væri vanmetin og að
hann hefði bætt sig sem körfuknatt-
leiksmaður á undanförnum árum.
„Það er ekki eins mikil samkeppni í
íslensku deildinni og ég átti að venj-
ast frá Bandaríkjunum. Hins vegar
hef ég fengið tækifæri til þess að leika
sem bakvörður og ég er mun betri
skotmaður en ég var áður en ég kom
til Íslands. Ég hef talað við Brenton
Birmingham og Keith Vassell um það
að við séum fulltrúar Íslendinga þar
sem við leikum. Það er okkar hlut-
verk að standa okkur vel þar sem við
leikum þar sem Ísland var góður skóli
fyrir okkur sem leikmenn – þar feng-
um við tækifæri til þess að þroskast.“
Með gott lið í Keflavík
Damon hefur að mestu leikið undir
stjórn Sigurðar Ingimundarsonar frá
því að hann kom til landsins árið 1996
og sagði Damon að Sigurður væri
vanmetinn sem þjálfari. „Við höfum
verið með gott lið í Keflavík undan-
farin ár og margir hafa haldið að það
sé leikur einn að ná árangri með þetta
lið. Það er ekki rétt því það eru marg-
ir sem gera tilkall til þess að spila í
liðinu, það er oft harðar barist á æf-
ingum en í leikjum, keppnisandinn er
ríkjandi hjá liðinu.“ Damon bætti því
við að hann hefði ávallt viljað vinna
allt sem hann tæki þátt í og sá andi
hefði verið til staðar þegar hann kom
til Keflavíkur. „Ég vona að ég geti
haft sömu áhrif í landsliðinu og í
Keflavík. Það á að vera keppni um að
vera í liðinu, það á að vera keppni í
öllu sem við erum að gera og þannig
verðum við betri.“
Framtíðin er óráðin hjá Damon en
hann vonast til að geta leikið í 5–6 ár
til viðbótar en hann er 31 árs gamall í
dag. „Ef ég verð laus við meiðsli og
annað þá á ég ýmsa möguleika á
næstu árum, vonandi í efstu deild á
Spáni. Ef það tekst hef ég náð
ákveðnum markmiðum en þegar ég
hætti að spila sjálfur get ég vel hugs-
að mér að gerast þjálfari. Það á vel
við mig að starfa með börnum og ung-
lingum en við verðum að bíða og sjá
hvað gerist í framtíðinni,“ sagði Dam-
on Johnson.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Damon Johnson hefur leikið vel með íslenska körfuboltalandsliðinu á Möltu.
Damon Johnson lék sína fyrstu landsleiki fyrir Ísland á Möltu
„Á eftir að læra
þjóðsönginn“
„ÉG kann ekki íslenska þjóðsönginn en er að vinna í því að læra
hann,“ sagði Damon Johnson körfuknattleiksmaður sem lék fyrsta
landsleik sinn fyrir Ísland á Möltu gegn heimamönnum sl. mánudag
og hefur Damon enn ekki tapað leik með íslenska landsliðinu en
hann lék sinn þriðja leik í dag gegn Andorra. Damon lenti í talsverðu
basli á ferðalagi sínu frá Spáni áleiðis til Möltu og var hann „síðasti
maður í hús“ en verkfall hjá Air Italia gerði það að verkum að Damon
þurfti að fara frá Barcelona til Kanaríeyja áður en hann kom til Möltu
seint á mánudag. Damon hefur dregið íslenska vagninn í þremur
leikjum liðsins til þessa, stjórnað leik liðsins sem leikstjórnandi.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
frá Möltu
Stúlkurnar
töpuðu
fyrir Kýpur
Örn