Morgunblaðið - 06.06.2003, Qupperneq 4
SMÁÞJÓÐALEIKARNIR Á MÖLTU
4 B FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKU kastararnir, Magnús
Aron Hallgrímsson og Óðinn Þor-
steinsson, eru farnir frá Möltu. Þeir
luku keppni fyrsta daginn í frjálsum
– kepptu í kringlukasti og kúluvarpi
og ákváðu að fara heim þegar í stað,
ekki að vera á Möltu fram á sunnu-
dag, en þá heldur íslenski hópurinn
heim.
HAFSTEINN Ægir Geirsson er í
fjórða sæti í siglingum á Laser
Standard-bátum, sem lýkur í dag.
Keppt var tvisvar í gær og var Haf-
steinn í öðru sæti í fyrri keppninni
en í þeirri síðari var hann dæmdur úr
leik fyrir ólöglegar líkamshreyfingar
um borð í bátnum.
HEIMAMAÐURINN Rachid
Chouhal sigraði óvænt í langstökki
karla á Smáþjóðaleikunum, bætti
eigin árangur um 30 sentimetra og
sigraði með því að stökkva 7,50
metra. Íslensku keppendurnir stóðu
sig ekki eins vel. Jónas Hallgríms-
son stökk 6,92 metra og hafnaði í
fjórða sæti en Bjarni Traustason
náði sér alls ekki á strik og varð í 7.
og neðsta sæti ásamt keppanda frá
San Marínó með 6,73 metra.
Í SPJÓTKASTI karla kastaði
Guðmundur Hólmar Jónsson 60,55
metra og varð í fimmta sæti. Móts-
met Sigurðar Einarsson stendur
enn óhaggð frá því 1991 í Andorra,
80,30 metrar.
RAKEL Tryggvadóttir varð í
fjórða sæti í þrístökki, stökk 11,82
metra en átti eitt stökk talsvert
lengra en steig örlítið á plankann og
því var stökkið ógilt.
JÓNAS Egilsson, formaður
Frjálsíþróttasambands Íslands, var
á laugardaginn kjörinn forseti
fræðslunefndar evrópska frjáls-
íþróttasambandsins, en hann var
fyrir nokkru kjörinn í stjórn sam-
bandsins.
SILJA Úlfarsdóttir mætti ekki til
leiks í 400 metra hlaup kvenna sem
fram fór í gærkvöldi, hafði þá nýlega
hlaupið 200 metrana í undanrásum
og sleppti því 400 metrunum.
ÞAÐ er margt nokkuð furðulegt í
sambandi við framkvæmd þessara
Smáþjóðaleika. Í 5.000 metra hlaup-
inu er keppendum venjulega rétt
vatnsglas sem þeir geta sopið úr eða
skvett á sig á leiðinni. En á Möltu var
réttur vatnsbrúsi að keppendum,
sem eru á fleygiferð þegar þeir fá
vatnið, brúsi sem er með tappa á sem
togaður er út til að hægt sé að súpa
úr.
MARTHA Ernstdóttir keppti ekki
í 10.000 metra hlaupi á fyrsta keppn-
isdegi, en ætlar þess í stað að hlaupa
1.500 metrana á morgun. Reynt var
að fá 10 km hlaupinu breytt þannig
að 5 km yrði á undan, en Maltverjar
eru ekki mikið fyrir það að vera lið-
legir.
FÓLK
NÚMI Gunnarsson fagnaði bronsverðlaunum sínum í
200 metra bringusundi líkt og hann hefði unnið sundið
en Númi hefur lítið keppt undanfarin misseri vegna
fótbrots sl. sumar. Hann skartar stóru öri eftir skurð-
aðgerð sem gerð var á hægra fæti hans rétt ofan við
ökkla þar sem bein voru spengd og skrúfuð saman. „Ég
hoppaði fram af kletti í um 6 metra hæð og brotnaði þá
en ég varð að hoppa þar sem vinkona mín hafði fengið
flogaveikiskast,“ sagði Númi en hann er frá Stokkseyri
og hefur tvisvar hætt að æfa sund – í rúmt ár í fyrra
skiptið en hálft ár í það síðara. „Ég ákvað einn góðan
veðurdag að það væri gaman að fara á Smáþjóðaleika,
og ég henti mér í laugina á ný og fór að æfa eins og vit-
leysingur.“ Númi er 23 ára gamall og hefur tekið þátt
tvívegis áður á Smáþjóðaleikum þar sem hann náði í
tvenn verðlaun. Hann stundar nuddnám, auk þess sem
hann er sundþjálfari hjá Ægi og æfir þar sjálfur. „Ég
er mjög ánægður með að hafa náð þessu bronsi hér á
Möltu og það dugir mér í bili þar sem ég hafði verið
lengi frá keppni vegna meiðsla. Ég er því ekkert að
rembast við lágmarkið fyrir heimsmeistaramótið í júlí
eða Ólympíuleikana á næsta ári, þetta er fínt í bili,“
sagði Númi Gunnarsson.
Bringusundið virðist vera sérgreiníslenska liðsins þar sem Íris
Edda Heimisdóttir sigraði í 200
metra sundi á 2.38,22
mínútum og önnur
varð Erla Haralds-
dóttir á 2.43,42 mín.
Þess má geta að
Ragnheiður Runólfsdóttir á móts-
metið sem hún setti árið 1999 en það
er 2.35,87.
Jakob Jóhann Sveinsson og Númi
Gunnarsson kræktu í gull- og brons-
verðlaun í 200 metra bringusundi, þar
sem Jakob kom í mark á 2.18,88 mín-
útum en Númi var á 2.25,78 mín.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir og Eva
Hannesdóttir komust á verðlaunapall
í 50 metra skriðsundi en Kolbrún varð
önnur á 26,83 sekúndum og náði jafn-
framt Ólympíulágmarki í greininni.
Eva varð þriðja á 27,19 sekúndum.
Örn Arnarson varð annar í 50
metra skriðsundi á 23,40 sekúndum
en Heiðar Marinósson varð fjórði í
sundinu á 24,40 sekúndum.
Louisa Ísaksen varð önnur í 200
metra skriðsundi á 2.08,84 mínútum
en Eva Hannesdóttir varð sjötta á
2.14,40 mín. Í 200 metra skriðsundi
karla varð Ómar Friðriksson sjöundi í
úrslitasundinu á 1.59,67 mín.
„Góður skóli fyrir þá yngri“
Steindór Gunnarsson, landsliðs-
þjálfari í sundi, sagði að samkeppnin í
sundinu væri meiri nú en áður þar
sem sundmenn frá löndum á borð við
Rússland hefðu fengið ríkisfang m.a.
hjá Mónakó.
„Væntingar okkar til Smáþjóða-
leika eru alltaf miklar og við viljum
vinna sem flest verðlaun. Þetta mót er
góður skóli fyrir þá sem yngri eru,
þeir eldri fá einnig tækifæri til að
skoða hvar þeir standa á hverjum
tíma og við tökum þetta mjög alvar-
lega,“ sagði Steindór en dagarnir geta
verið langir hjá keppendum. „Það eru
undanrásir á morgnana, við förum
heim á hótel um hádegið og erum far-
in á ný á keppnisstað um klukkan
þrjú en keppnin stendur í tvo tíma á
hverjum degi frá klukkan sjö til níu.
Krakkarnir eru mjög þreyttir eftir
keppnisdagana og það gefst lítill tími
til þess að hvetja aðra keppendur í
öðrum greinum hér á Möltu,“ sagði
Steindór.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sundstúlkurnar Íris Edda Heimisdóttir og Erla Haraldsdóttir,
kátar með gull- og silfurpeninga í 200 metra bringusundi.
Jakob Jóhann
stefnir á úrslit
í Barcelona
JAKOB Jóhann Sveinsson varð annar í
fyrradag í 200 metra bringusundi en
hann gerði betur í gær er hann kom
fyrstur í mark. Jakob hefur tekið þátt á
Smáþjóðaleikum þrívegis áður en kom
að Möltu og segir Jakob sem æfir með
Ægi að hann ætli sér að ná góðum ár-
angri á Heimsmeistaramótinu sem fram
fer í Barcelona í lok júlí á þessu ári. „Ég
varð í þrettánda sæti á síðasta HM og
stefni á að komast í A-úrslit að þessu
sinni en það verður erfitt. Ég þarf lík-
lega að synda á 2.16,00 til þess að kom-
ast í úrslit en það er um einni og hálfri
sekúndu frá Íslandsmetinu.“ Jakob er
19 ára gamall og æfir eins og allir sund-
menn gríðarlega mikið en hann sagðist
vera frekar „þungur“ að þessu sinni eft-
ir erfiðar æfingar undanfarna mánuði.
Nældu sér í fjögur gull, fjögur silfur og tvö brons
Strákarnir komu í
mark á nýju meti
ÞAÐ bar hæst í gær hjá íslenska sundlandsliðinu á Möltu í gær að
íslenska karlasveitin setti Íslandsmet í 4x100 metra fjórsundi er
þeir komu fyrstir í mark á tímanum 3.51,32 mínútum en gamla met-
ið var 3.53,04. Örn Arnarson synti fyrsta sprettinn, Jakob Jóhann
Sveinsson tók þar við en þeir Ómar Friðriksson og Heiðar Mar-
inósson syntu lokasprettina. Kvennasveit Íslands sigraði einnig í
4x100 m fjórsundi eftir að sveit Lúxemborgar var dæmd úr leik.
Anja Jakobsdóttir, Íris Edda Heimisdóttir, Kolbrún Ýr Kristjáns-
dóttir og Eva Hannesdóttir skipuðu íslensku sveitina. Íslendingar
fengur fern gullverðlaun í gær, fjögur silfur og tvö brons.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
frá Möltu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Jakob Jóhann Sveinsson í 200 metra bringusundi.
ÞAÐ er að mörgu að hyggja hjá kepp-
endum, þjálfurum og fararstjórum á
Smáþjóðaleikum sem og öðrum íþrótta-
mótum. Hitinn og sólin gleðja marga
sem koma til Möltu en flestir keppendur
á leikunum fara varlega í sólböðin og
hjá sundliðinu ríkir heragi hvað sólina
varðar. „Við öðluðumst ekki vinsældir á
meðal keppenda þegar við ákváðum að
banna þeim að sóla sig. Þeir hafa samt
sem áður skilning á þessu þar sem sól-
böðin hjálpa þeim ekki þegar ofan í
laugina er komið,“ sagði Steindór
Gunnarsson, landsliðsþjálfari í sundi.
Númi Gunnarsson fékk þó að bera á sig
sólaráburð við keppnissundlaugina í
gær þar sem hann hefur lokið keppni.
Steindór bannar
sólböð
Góð endurkoma
hjá Núma
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Númi Gunnarsson fagnaði bronsinu vel í 200
metra bringusundi á Möltu í gær.