Morgunblaðið - 06.06.2003, Page 7

Morgunblaðið - 06.06.2003, Page 7
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 B 7 ÚRSLIT KNATTSPYRNA 1. deild karla Víkingur R. – HK ................................ 1:0 Stefán Örn Arnarson 62. Keflavík – Afturelding........................ 3:0 Hólmar Örn Rúnarsson 15., 68., Þór- arinn Kristjánsson 44. Staðan: Víkingur R. 4 3 1 0 7:2 10 Keflavík 4 3 0 1 11:6 9 Þór 3 2 1 0 6:3 7 HK 4 1 2 1 4:3 5 Afturelding 4 1 2 1 2:4 5 Haukar 3 1 1 1 4:6 4 Njarðvík 3 1 0 2 5:6 3 Stjarnan 3 0 2 1 4:6 2 Leiftur/Dalvík 3 0 1 2 1:4 1 Breiðablik 3 0 0 3 1:5 0 Markahæstir: Magnús S. Þorsteinsson, Keflavík......... 3 Daníel Hjaltason, Víkingi ....................... 2 Hólmar Örn Rúnarsson, Keflavík.......... 2 Högni Þórðarson, Njarðvík .................... 2 Ingi Hrannar Heimisson, Þór ................ 2 Jóhann Þórhallsson, Þór......................... 2 Óskar Örn Hauksson, Njarðvík ............. 2 Stefán Örn Arnarson, Víkingi ................ 2 Stefán Gíslason, Keflavík ....................... 2 Vilhjálmur R. Vilhjálmss., Stjörnunni... 2 Þórarinn Kristjánsson, Keflavík............ 2 Efsta deild kvenna Landsbankadeild Þróttur/Haukar – Valur..................... 1:5 Anna Björg Björnsdóttir 27. – Kristín Ýr Bjarnadóttir 46., 67., 81., Dóra Stefáns- dóttir 13., Íris Andrésdóttir 69. Stjarnan – FH ...................................... 3:0 Harpa Þorsteinsdóttir 22., 45., 57. Staðan: KR 4 3 1 0 20:3 10 Valur 4 3 1 0 12:5 10 ÍBV 4 3 0 1 20:7 9 Stjarnan 4 2 0 2 8:6 6 Breiðablik 4 2 0 2 7:11 6 FH 4 1 0 3 3:7 3 Þór/KA/KS 4 1 0 3 4:14 3 Þróttur/Haukar 4 0 0 4 2:23 0 Markahæstar: Ásthildur Helgadóttir, KR ..................... 7 Hrefna Jóhannesdóttir, KR ................... 7 Olga Færseth, ÍBV ................................. 7 Mhairi Gilmour, ÍBV............................... 5 1. deild kvenna A RKV – HK/Víkingur ............................ 1:1 HSH – ÍR............................................ 2:11 Staðan: HK/Víkingur 3 2 1 0 7:1 7 RKV 3 2 1 0 9:5 7 ÍR 3 1 0 2 14:7 3 Breiðablik 2 1 1 0 0 3:2 3 Fjölnir 2 1 0 1 2:2 3 Þróttur/Haukar 2 1 0 0 1 1:3 0 HSH 3 0 0 3 5:21 0 KNATTSPYRNA 1. deild karla: Kópavogur: Breiðablik - Haukar ..............20 Akureyri: Þór - Njarðvík ...........................20 Garðabær: Stjarnan - Leiftur/Dalvík.......20 2. deild karla: Siglufjörður: KS - ÍR .................................20 Helgafellsvöllur: KFS - Tindastóll ...........20 Fjölnisvöllur: Fjölnir - Selfoss ..................20 Þróttarvöllur: Léttir - Sindri ....................20 Garður: Víðir - Völsungur..........................20 3. deild: Tungubakkav.: Grótta - Bolungarvík .......20 Grýluvöllur: Hamar - Leiknir R. ..............20 Sandgerði: Reynir S. - ÍH..........................20 Selfoss: Árborg - Freyr .............................20 Laugardalur: Afríka - Ægir ......................20 Grenivík: Magni - Neisti H........................20 Boginn: Vaskur - Snörtur..........................20 Blönduós: Hvöt - Reynir Á. .......................20 Seyðisfjörður: Huginn - Höttur ................20 Djúpivogur: Neisti D. - Fjarðabyggð.......20 Vopnafjörður: Einherji - Leiknir F. .........20 1. deild kvenna: Smárah.: Breiðab.-2 -Þróttur/Haukar-2 ..18 Í KVÖLD Aðstæður til knattspyrnuiðkunarvoru hinar bestu en þrátt fyrir það var leikurinn heldur bragðdaufur lengst af. Gestirnir úr Kópavoginum byrjuðu leikinn mun betur. Zoran Panic átti fyrsta færi þeirra strax á 4. mínútu er hann óð upp hægri kantinn en fast skot hans fór rétt framhjá marki Víkinga. Tíu mín- útum síðar mátti Ögmundur Rúnars- son, markvörður Víkinga, hafa sig all- an við að verja skot Harðar Más Magnússonar sem fór mikinn í upp- hafi leiks. Haraldur Ómarsson, leik- maður Víkings, varð að fara meiddur af velli á 20. mínútu og í hans stað kom Egill Atlason. Þessi breyting virkaði sem vítamínsprauta á Vík- ingsliðið sem jók sóknarstyrk sinn verulega og var Egill sérlega ógnandi úti á hægri kantinum. HK-ingar beittu skyndisóknum og á 35. mínútu fékk Þorsteinn Gestsson besta færi hálfleiksins er hann slapp aleinn inn- fyrir vörn Víkinga en skot hans hafn- aði í fangi Ögmundar markvarðar. Víkingar komu mjög vel stemmdir út í leikhléi og gerðu harða hríð að marki HK. Á 62. mínútu skoraði Þor- steinn Gestsson sigurmark Víkinga eftir að hafa fengið sendingu innfyrir vörnina frá miðjumanni HK. Þor- steinn þakkaði pent fyrir sig og renndi boltanum af öryggi framhjá Gunnleifi Gunnleifssyni markverði. Víkingar héldu áfram að sækja og þeir Daníel Hjaltason og Egill Atla- son voru nærri því að bæta við marki á 22. mínútu.Víkingar bökkuðu nokk- uð á sama tíma og meiri og meiri ör- vænting færðist í leik HK, boltinn hætti að fara í gegnum miðvallarleik- mennina en varnarmenn freistuðu þess í stað að senda langa bolta fram á sóknarmennina. Þetta skilaði HK ekki neinu og leikurinn fjaraði smám saman út. Leikurinn í heild sinni var ekkert augnayndi. Bæði lið eiga meira inni en þau sýndu í þessum leik. Víkingar voru nokkuð seinir í gang en eftir því sem leið á leikinn sýndu þeir styrk sinn og verða án efa í toppbaráttunni í sumar. Sölvi Ægir Ottesen, Stefán Örn Arnarson og Egill Atlason léku best í liði Víkinga. HK-ingar hafa far- ið vel af stað í deildinni í sumar og voru taplausir með fimm stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Í þessum leik mættu þeir ofjarli sínum en nái þeir að halda sama krafti og þeir sýndu fyrstu tuttugu mínútur leiks- ins verða þeir sýnd veiði en ekki gefin í leikjum sumarsins. Guðbjartur Har- aldsson, Zoran Panic og Gunnleifur Gunnleifsson markvörður léku best í liði HK. Maður leiksins: Egill Atlason, Vík- ingi. Keflvíkingar sannfærandi Þeir sem bjuggust við spennandileik í gær þegar Keflvíkingar tóku á móti Aftureldingu urðu fyrir miklum vonbrigðum. Keflvíkingar mættu mjög grimmir til leiks eftir tapið gegn Þór og ætluðu sér öll þrjú stigin sem í boði voru. Keflvík- ingar léku mjög skemmtilega knatt- spyrnu, sigruðu 3:0, og átti Aftureld- ing fá svör við leik þeirra. Aðstæður voru góðar í Keflavík- inni í gær til knattspyrnuiðkunar. Logn var og völlurinn mátulega blautur. Það var aðeins fyrstu fimm mínúturnar að jafnræði var með lið- unum en eftir það tóku Keflvíkingar öll völd á vellinum. Strax á 10. mínútu áttu þeir mjög hættulega sókn þegar Hólmar Rún- arsson átti fast skot í stöng Aftureld- ingar og þaðan barst boltinn út til Stefáns Gíslasonar sem skaut föstu skoti á markið en Axel markvörður varði vel. Það var svo á 15. mínútu að vörn Aftureldingar brást og Hólmar Rúnarsson skoraði fallegt mark fyrir heimamenn. Eftir markið tóku heimamenn öll völd á vellinum og á tímabili voru allir leikmenn Aftureld- ingar komnir yfir á sinn vallarhelm- ing til að verjast. Heimamenn fengu fullt af færum en Axel markvörður varði þau skot sem hittu á rammann. Alveg undir lok fyrri hálfleiks sóttu heimamenn hratt upp vinstri kantinn og sendi Adólf Sveinsson boltann fyr- ir markið. Þar stóð Þórarinn Krist- jánsson einn og óvaldaður inni í víta- teig Aftureldingar og skallaði boltann yfir Axel í markinu. 2:0 í hálf- leik, heimamönnum í vil. Seinni hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri endaði, þ.e. að Keflvíkingar voru mun meira með boltann. Gestirnir úr Mosfellsbæ áttu nokkur hættuleg færi í seinni hálfleik, það besta þegar Ásbjörn Jónsson skaut föstu skoti að marki sem Ómar varði í horn. Kefl- víkingar beittu stungusendingum á fljóta framherja sína og eftir eina slíka slapp Þórarinn Kristjánsson einn innfyrir vörn gestanna og skaut að marki. Axel varði skot hans vel en Þórarinn náði frákastinu og sendi boltann á stöngina fjær. Þar stóð Hólmar einn á auðum sjó og skallaði boltann í autt markið. Keflvíkingar voru mun betri aðil- inn í leiknum og var sigur þeirra fylli- lega verðskuldaður. Í Keflavíkurlið- inu spiluðu allir mjög vel. Á miðjunni voru þeir Jónas Sævarsson og Stefán Gíslason mjög sterkir. Maður leiksins var hins vegar Hólmar Rúnarsson sem átti mjög góðan leik og skoraði tvö mörk. Í liði gestanna var Henning E. Jón- asson duglegur í framlínunni en fékk hins vegar úr litlu að moða. Maður leiksins: Hólmar Rúnars- son, Keflavík. VÍKINGAR héldu sæti sínu á toppi 1. deildar karla í gærkvöldi þegar þeir lögðu nágranna sína úr Fossvoginum, nýliða HK, að velli, 1:0, í Víkinni. Þeir eru með einu stigi meira en Keflvíkingar sem sigruðu Aftureldingu, 3:0. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar Morgunblaðið/Kristinn Haukur Úlfarsson, varnarmaður Víkings, horfir á eftir Þorsteini Gestssyni, sóknarmanni HK, í leiknum í Víkinni, þar sem Víkingar fögnuðu sigri í nágrannaslagnum í gærkvöldi, 1:0. Atli Þorsteinsson skrifar Víkingar áfram á toppi 1. deildar Þrjú mörk Hörpu Þorsteinsdótturdugðu Stjörnunni til að leggja FH að velli, 3:0, í Garðabænum í gærkvöldi og fleyta Garðbæingum upp stigatöfluna í efstu deild kvenna í knatt- spyrnu. Reyndar fengu Stjörnustúlkur fleiri færi til að bæta við en Hafnfirðingarnir færri, samt nokkur en ekkert gekk. Harpa verður 17 ára í lok júní og er að spila sitt annað ár í meistara- flokki. „Við höfum lengi beðið eftir að ná okkur á strik því við byrjuðum ekki alveg nógu vel,“ sagði Harpa en hún hefur ekki skorað þrennu í efstu deild áður. „Maður kemur sterkur inn í næsta leik en það er samt bara nýr leikur, sem þarf að vinna. Von- andi verða þrennurnar fleiri, ef ekki í sumar þá bara næsta ár.“ Ásamt Hörpu áttu Auður Skúladóttir, Sunna Gunnarsdóttir og Elfa Er- lingsdóttir góðan leik. FH-stúlkur voru ekki alveg með á nótunum til að byrja með en tóku duglega við sér eftir hvert mark. „Það er eins og við þurfum að fá á okkur mark til að taka við okkur,“ sagði Guðlaug Þórhallsdóttir úr vörn FH, sem bjargaði einu sinni á mark- línu en hún var ekki sátt við frammi- stöðu liðsins. „Það gæti verið að við hefðum ofmetnast af góðum sigri á Akureyri eða ágætri frammistöðu á móti Breiðabliki og Val. Við verðum að herða okkur ef við ætlum ekki að falla en við eigum fullt inni.“ Ásamt Guðlaugu voru Valdís Rögnvalds- dóttir og Sigrún Ingólfsdóttir mark- vörður góðar. Þróttur/Haukar stóðu í Val Í Laugardalnum fengu Þróttur/ Haukar topplið Vals í heimsókn. Stúlkurnar í Þrótti/Haukum hafa enn ekki fengið stig í deildinni en tókst halda jöfnu, 1:1, fram í síðari hálfleik. Þá loks tóku Valsstúlkur við sér með fjórum mörkum, þar af skor- aði Kristín Ýr Bjarnadóttir þrennu. Harpa með þrennu Stefán Stefánsson skrifar BJÖRGVIN Sigurbergsson hafnaði í 27.–29. sæti í Europro-golfmótinu sem lauk í Portúgal í gær. Hann lék mjög vel á þriðja og síðasta keppn- isdegi, spilaði á þremur höggum undir pari, eða 68 höggum. Þar með var hann samtals á 212 höggum, eða einum undir pari í heildina. Það skrifast á slæman fyrsta dag þegar hann lék á sex höggum yfir pari en Björgvin lék annan daginn á 67 höggum. Fyrir þennan árangur fékk hann um 65 þúsund krónur í sinn hlut af verðlaunafé mótsins. Björgvin keppir aftur í Portúgal í næstu viku, á Palmares-golfvellinum á Algarve. Góður endir hjá Björgvini

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.