Morgunblaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 8
FJÖRUTÍU og tvö þúsund miðar á
landsleik Dana og Norðmanna í und-
ankeppni EM í knattspyrnu, sem
fram fer á Parken í Kaupmannahöfn
á laugardaginn, seldust upp á 41
mínútu. Danska knattspyrnu-
sambandið hefur brugðist við áhuga
dönsku þjóðarinnar með því að sett-
ur verður upp risaskjár í tívolí
skemmtigarðinum og reiknað með
að mörg þúsund manns mæti í tív-
olíið og slái þar með tvær flugur í
einu höggi.
Mikið taugastríð er í gangi vegna
leiksins og hafa Danir og Norðmenn
skipst á föstum skotum sín á milli og
hafa dagblöðin BT í Danmörku og
Verdens Gang í Noregi farið þar
fremst í flokki. Þá gekk blaðamaður
frá Dagbladet í Noregi svo langt að
klæða eitt af þjóðartáknum Dana í
norsku landsliðstreyjuna, sjálfa haf-
meyjuna, við misjafnar undirtektir
Dana.
Norðmenn tróna á toppi 2. riðils
með 10 stig, Danir eru í öðru með 7,
Rúmenar og Bosnímenn hafa 6 og
Lúxemborgarar eru án stiga.
Hafmeyjan klædd í norsku landsliðstreyjuna
FRANSKI landsliðsmaðurinn
Sylvain Wiltord, 29 ára, er tilbúinn
að skrifa undir nýjan samning við
Arsenal. Eftir að landi hans Thierry
Henry gerði nýjan samning á dög-
unum, er Wiltord tilbúinn að skrifa
undir fjögurra ára samning.
MARK Holland landsliðsmaður
Íra sem leikið hefur með Ipswich er
á leið til Portsmouth. Ipswich hefur
samþykkt 750.000 punda tilboð frá
Harry Redknapp, stjóra Ports-
mouth sem leikur sem kunnugt er í
úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
CLAUDIO Caniggia, leikmaður
Glasgow Rangers, fær ekki endur-
nýjaðan samning hjá skosku meist-
urunum. Caniggia sem er orðinn 36
ára gamall, gerði 21 mark á nýaf-
stöðnu tímabili. Caniggia er Argent-
ínumaður og sló eftirminnilega í
gegn í heimsmeistarakeppninni 1990
á Ítalíu.
SKY SPORTS sjónvarpsstöðin
hefur valið þá leikmenn sem stóðu
upp úr á síðastliðnu keppnistímabili í
ensku knattspyrnunni. Að valinu
stóðu Rodney Marsh, George Best,
Alan Mullery og Charlie Nicholas
ásamt áhorfendum stöðvarinnar.
RUUD Van Nistelrooy, leikmaður
Englandsmeistara Manchester
United var valinn bestur með yfir-
burðum. Thierry Henry, Arsenal,
varð annar og Gianfranco Zola,
Chelsea, þriðji. Knattspyrnustjóri
ársins var David Moyes, Everton.
CARLO Cudicini, Chelsea, var
valinn markvörður ársins. John
O’Shea, Manchester United, var
efnilegastur. Bestu kaupin gerðu
Bolton á Jay-Jay Okocha.
MARK ársins gerði Ruud van
Nistelrooy gegn Fulham á Old Traf-
ford. Mark Eiðs Smára Guðjohn-
sens gegn Leeds var í fjórða sæti að
mati Sky Sports.
BARCELONA hefur að undan-
förnu gefið til kynna að liðið ætli að
bjóða í David Beckham, leikmann
Manchester United. En nú hefur
Ted Beckham, faðir Davids, þver-
tekið fyrir þessar sögusagnir og seg-
ir son sinn vilja vera áfram hjá Eng-
landsmeisturnum.
STEVE McManaman, leikmaður
Real Madrid, vill leika áfram með
liðinu á næstu leiktíð. McManaman á
eitt ár eftir af samningi sínum við
Madrid, en hann hefur aðeins verið
sex sinnum í byrjunarliði í deildar-
keppninni á tímabilinu. „Auðvitað
myndi ég vilja hafa spilað meira en
ég stefni samt á að vera áfram hjá
Madrid á næstu leiktíð,“ sagði
McManaman.
CHRISTIAN Gross hefur sagt upp
starfi sínu sem þjálfari Basel í sviss-
nesku knattspyrnunni. Gross gekk
mjög vel með Basel á þeim tíma sem
hann var við stjórnvölinn. Gross
þjálfaði Tottenham á árum áður.
STUART Taylor, markvörður
Arsenal, hefur trú á því að hann geti
leyst David Seaman af hólmi sem að-
almarkvörður Arsenal, en Seaman
leikur með Manchester City á næstu
leiktíð. „Ég hef trú á því að ég geti
orðið aðalmarkvörður Arsenal á
næsta tímabili. Ég býst við að nýr
markvörður verði keyptur til liðsins
en hann mun þurfa að berjast við
mig um markmannstöðuna,“ sagði
Taylor.
FÓLK
Leikur San Antonio Spurs ogNew Jersey Nets var jafn í
fyrri hálfleik, staðan 42:42. Í seinni
hluta þriðja leiks-
hluta áttu leikmenn
San Antonio frábær-
an leikkafla, þar
sem Duncan og bak-
vörðurinn Toni Parker fóru á kost-
um. San Antonio skoraði 16 af síð-
ustu 20 stigum leikhlutans og ólíkt
sumum fyrri leikjum liðsins und-
anfarið – átti Spurs ekki í vandræð-
um með að halda góðu forskoti leik-
inn út. Þeir Duncan og Parker
skoruðu samtals 22 stig í leikhlut-
anum – gegn sautján stigum leik-
manna Nets.
Gregg Popovich, þjálfari Spurs,
hefur eflaust lesið yfir leikmönnum
sínum í hálfleik. Leikur þeirra batn-
aði til muna eftir það. „Við lékum
betur bæði í vörn og sókn og náðum
að skapa mun betri færi. Duncan
lék frábærlega fyrir okkur og þá
var ég sérstaklega ánægður með
David Robinson, sem gaf okkur alla
þá krafta sem hann hefur yfir að
ráða. Það var ótrúlegt að sjá hvað
hann gat gert. Það eru ekki allir
þrjátíu og átta ára gamlir menn
sem geta leikið það eftir,“ sagði
Popovich stoltur af sínum mönnum
– á fundi með fréttamönnum eftir
leikinn.
Duncan var tvímælalaust maður
leiksins, með 32 stig, tók 20 fráköst,
var með sjö varin skot og átti sex
stoðsendingar. „Ég fékk boltann í
miklu betri stöðu í sókninni eftir
leikhlé og nýtti mér það. Samherjar
mínir gerðu vel – að koma boltanum
til mín er ég var á réttu róli. Það
var lykillinn að velgengni okkar í
leiknum,“ sagði Duncan.
Toni Parker lék einn sinn besta
leik í úrslitakeppninni, var með 16
stig og gamli sjóarinn David Rob-
inson setti 14 stig, varði fjögur skot
og tók sex fráköst.
Lykillinn að sigri San Antonio var
að leikmenn liðsins náðu að setja vel
upp í sóknarleiknum í seinni hálf-
leik, en það gerði það að verkum að
leikmenn Spurs náðu að stjórna
hraðanum.
Kenyon Martin var stigahæstur
hjá Nets – með 21 stig og þá tók
hann tólf fráköst. Leikstjórnandinn
Jason Kidd átti afleitan leik í sókn-
inni. Hann skoraði aðeins úr fjórum
af tuttugu skotum sínum – með
stökkskotum utan af velli. Kidd
verður að vera mun atkvæðameiri í
öðrum leik liðanna í nótt, ef Nets
ætla sér sigur.
Byron Scott, þálfari Nets, var yf-
irvegaður á fundinum með frétta-
mönnum eftir leikinn. „Við lékum
ekki svo illa í seinni hálfleiknum, en
það var mun meiri orka í leik leik-
manna Spurs eftir leikhlé. Þeir
börðust einfaldlega miklu betur en
við og sú barátta gerði út um leik-
inn,“ sagði Scott.
Við Morgunblaðsmenn höfum oft
gert góðlátlegt grín að gengi lið-
anna úr austurdeildinni í lokaúrslit-
unum undanfarin ár. Sigur Spurs
var 17. sigur vesturdeildarliðsins af
síðustu 21 leikjum á fjórum und-
anförnum árum. Leikmenn Nets, þá
sérstaklega Jason Kidd, verða að
vera atkvæðameiri í að brjóta niður
vörn San Antonio til að fá fleiri
sniðskot og betri færi. Þetta var að-
eins fyrsti leikurinn og allt getur
enn gerst, en ef Nets tapar öðrum
leiknum er þessi rimma búin.
Reuters
Tim Duncan sækir að körfu New Jersey Nets, þar sem Kenyon Martin er til varnar, en Jason Kidd fylgist með.
Í NÝJASTA hefti Sports
Illustrated, víðlesnasta íþrótta-
tímariti Bandaríkjanna, er spurt
með feitu letri: Hver getur
stöðvað Tim Duncan? Ef marka
má leik hans í fyrstu úrslita-
rimmu San Antonio Spurs gegn
New Jersey Nets, er svarið:
ENGINN! Stórleikur Duncans
skóp öruggan sigur San Anton-
io, 101:89. Duncan hefur leikið
betur með hverjum leiknum í úr-
slitakeppni NBA-deildarinnar
og sýndi á miðvikudagskvöld af
hverju hann hefur verið kosinn
leikmaður ársins í deildinni
undanfarin tvö ár.
Hver getur
stöðvað
Duncan?
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Bandaríkjunum