Morgunblaðið - 02.07.2003, Blaðsíða 5
hljómtækin, sem eru með geislaspil-
ara og átta diska geymsluhólfi, og
þar eru einnig rofar fyrir skriðstill-
inguna sem er með fjarlægðarskynj-
ara. Þetta er þægilegur búnaður sem
virkar þannig að ökumaður velur sér
hraða. Þegar bíllinn nálgast síðan
annan bíl á undan sem er á minni
hraða hægir skriðstillingin sjálf-
krafa á bílnum til samræmis við
þann sem er á undan og heldur ávallt
ákveðinni fjarlægð milli bílanna.
Aukist hraði bílsins á undan sér
skriðstillingin um að hraða bílnum
aftur upp í hinn valda hraða. Fjar-
lægðarskynjarinn gefur auk þess
hljóð- og ljósmerki í mælaborðinu
þegar verið er að leggja bílnum í
stæði og annar slíkur skynjari er í
afturstuðara.
Sætin í Phaeton eru sérkapítuli.
Þægindin eru algjör og stillingar-
möguleikar margir. Á langkeyrslu er
þægilegt að lengja í setunni eða setja
af stað mjóbaksnudd en auk þess
umlykja sætin líkamann og halda
honum skorðuðum í akstri. Hnak-
kapúðarnir í aftursætunum eru með
rafstýringu þannig að farþegar þar
finna nákvæmlega þá stillingu á
þeim sem hentar þeim.
Phaeton er með hljóðlátustu bílum
sem undirritaður hefur ekið. Þegar
lykillinn hefur verið lagður frá sér í
eitthvert hólfið er þrýst á ræsi-
hnappinn og það rétt heyrist murr í
tólf strokka orkubúntinu. Síðan
heyrist ekki meira í henni nema ekið
sé með valskiptingunni á háum snún-
ingi. Vega- og vindhljóð heyrist alls
ekki. Bíllinn flýtur yfir ójöfnur og
akstursþægindin standast saman-
burð við bestu bíla í þessum flokki.
Phaeton er eini bíllinn í lúxusbíla-
flokknum með tólf strokka vél og
fjórhjóladrifskerfi. Í raun er þarna
um að ræða tvær V-6 vélar sem eru
soðnar saman með slagrými upp á
sex lítra. Þaðan kemur líka W-lög-
unin á vélinni. VW státar af því að
framleiða fyrirferðarminnstu tólf
strokka vél í heimi.
Hljóðlát aflaukning
BMW býður alls ekki fjórhjóla-
drifskerfi í 7-línunni og Mercedes
Benz einungis með V8-vélinni. Upp-
takið í Phaeton er í einu orði sagt
skuggalegt. Maður þrýstist aftur í
sætinu og hröðunin á sér engu að síð-
ur stað á undarlegan hljóðlátan hátt.
Þetta er samt ekki mesta hröðun í
fólksbíl sem undirritaður hefur upp-
lifað – hún er umtalsvert meiri í
Porsche Cayenne Turbo og auðvitað
911 Turbo – en miðað við stærð og
þyngd bílsins er hún meiri en menn
eiga yfirleitt að venjast. Það er þó
engan veginn hægt að líkja akstri á
Phaeton saman við sportbílana frá
Porsche – Phaeton er í allt öðrum er-
indagjörðum og á að höfða til þeirra
sem vilja ferðast um í sem allra
mestum þægindum. Þarna er mýktin
aðalatriðið en sportlegir taktar í
aksturseiginleikum eru síður til
staðar.
Bíllinn er á 18 tommu hjólum og
með eitthvert magnaðasta bremsu-
kerfi sem undirritaður hefur upplif-
að. Að framan eru 365 mm stórir
bremsudiskar og 335 mm að aftan og
kæling er á öllum diskum. Auðvitað
er þarna líka að finna rafeindabúnað
eins og ABS, EPDB og auk þess er
spólvörn og stöðugleikastýring stað-
albúnaður í bílnum.
Hvað kosta svo herlegheitin? Ell-
efu komma sjö milljónir króna,
skráning innifalin.
Skjár fyrir miðstöð og loftkælingu aftursætisfarþega.
W12-vél VW er sú fyrirferðarminnsta.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 B 5
bílar
Hægt er að stilla fjöðrunina á fjóra mismunandi vegu.
gugu@mbl.is
ÞAÐ stóð mikið til á kvartmílu-
brautinni í Hafnarfirði síðastliðinn
sunnudag þar sem fram átti að
fara keppni. Þegar til kom var
keppninni frestað en engu að síður
voru vélar þandar og brautin brun-
uð í tímatöku eins og myndir
Sverris Vilhelmssonar bera með
sér. Keppninni sem átti að fara
fram sl. sunnudag hefur verið
frestað til 26. júlí en næsta keppni
fer fram 12. júlí nk.
Morgunblaðið/Sverrir
Ingólfur Arnarson var vitaskuld mættur í bláu grindinni sinni.
Á kvartmílu-
brautinni
Einn af öflugri bílunum í kvartmílunni, Volvo-kryppa. Kryppan er með titaníum-grind sem yfirbyggingin er hengd utan á.
Áhuginn leynir sér ekki þegar kíkt er undir vélarhlífina.
Þórður Tómasson tók æfingu á Kryppunni. Hann hefur
sjálfur flutt inn langöflugasta keppnisbíl landsins, Promo
Camaro, sem líklega verður í kringum 1.500 hestöfl.