Morgunblaðið - 14.08.2003, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2003 C 3
NÚR VERINU Allt til línu- og handfæraveiða
Línur, krókar, ábót, beitningavélar,
handfæravindur o.fl.
Sími 898 7127
Skútuvogi 6
www.sjo.is
Í framhaldi af þessu má nefna að vegna sér-
stöðu sinnar í sjávarútvegi er Ísland fullkom-
inn samstarfsaðili fyrir Marokkó, hvort sem
það yrði í samvinnufyrirtækjum eða uppbygg-
ingu skipasmíðastöðvar. Það eru mörg svið
sem löndin geta unnið saman á eins og rann-
sóknir, menntun og þekking og aukið vinnslu-
virði afurðanna. Nú þegar hefur komið fram
mjög sterkur pólitískur vilji til þess að sam-
starf af þessu tagi geti hafizt og ég er sjálfur
sannfærður um að svo verði. Meðan á heim-
sókn minni stóð fékk ég tækifari til að ræða við
hinn íslenzka starfsbróður minn, Árna M.
Mathiesen, aðila úr einka geiranum, fulltrúa
Hafrannsóknastofnunar og ég hef undirritað
rammasamning ásamt Árna um samstarf þjóð-
anna. Mér hefur einnig verið sýndur sá heiður
að vera boðið heim til forseta Íslands, Ólafs
Ragnars Grímssonar. Ég er snortinn af þess-
um heiðri en í honum felast ákveðin skilaboð
sem undirstrika vilja Íslendinga til samvinnu
við okkur. Ég er því mjög ánægður með heim-
sóknina og vil gjarnan koma aftur til að kynn-
ast landi og þjóð enn betur,“ segir Tayeb
Rhafes, sjávarútvegsráðherra Marokkó.
Rhafes var hér á landi í fimm daga og kom
víða við. Hann kynnti sér menntun í sjávar-
útvegi, hafrannsóknir, starfsemi Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins, Fiskistofu, Land-
helgisgæzlunnar og Útflutningsráðs Íslands.
Hann fór í heimsókn til Brims á Akranesi, fór á
Fiskmarkað Suðurnesja, heimsótti bátasmiðj-
una Trefjar, kynnti sér sjávarútveginn í
Grindavík og heimsótti Marel og SÍF.
Mikil tækifæri
Marokkómenn færðu efnahagslögsögu sína út í
200 sjómílur árið 1981, úr 70 sjómílum. Við út-
færsluna fengu þeir umráðarétt yfir fiskistofn-
um, miklum auðlindum sem þeir hafa einsett
sér að nýta til hagsbóta fyrir Marokkó. Mar-
okkómenn hafa tekið stjórn allra veiða innan
lögsögunnar í sínar hendur en til þess að geta
nýtt auðlindina skynsamlega og gert sem mest
verðmæti úr þeim afla sem á land berst þarf að
taka á mörgum þáttum í atvinnugreininni.
Flest skipin í Agadir
Árið 1990 stóð ríkisstjórn Marokkó fyrir viða-
miklum breytingum á hafnarmálum landsins.
Fyrir 1992 var stærsti hluti úthafsveiðiflota
Marokkó með hafnaraðstöðu í Las Palmas á
Kanaríeyjum. Vegna þessara aðgerða var
mestallur flotinn kominn með hafnaraðstöðu í
Marokkó 1992 og er höfnin í Agadir heimahöfn
flestra skipa úthafsveiðiflotans. Fiskihafnir í
Marokkó eru alls 28, þar af eru 20 hafnir við
Atlantshaf og átta við Miðjarðarhafið og er
sjávarútvegur einna mestur í Laayoune, Tan
Tan, Agadir, Dakhla og Casablanca. Helstu
tegundir sem veiðast eru smokkfiskur, sard-
ínur, túnfiskur, makríll, ansjósur og skelfiskur.
Margir opnir bátar
Fiskveiðum Marokkómanna má skipta í
tvennt, annars vegar strandveiði þar sem not-
ast er við þilfars- og opna báta sem eru úr tré
en hins vegar úthafsveiði sem er aðallega
stunduð af frystitogurum. Opnu trébátarnir
eru gríðarlega margir, sennilega upp undir 20
þúsund, og þilfarsbátarnir eru um 2.500 en
frystitogararnir yfir 300.
Fiskmarkaðir í Marokkó hafa tekið miklum
breytingum á undanförnum árum og eru uppi
áætlanir um að tölvuvæða þá til lengri tíma lit-
ið. Flestir fiskmarkaðirnir eru reknir af ríkis-
fyrirtækinu ONP sem nú hefur hafið áætlun
um endurnýjun þeirra.
skila sér til ferkari umsvifa í landi og til upp-
byggingar efnahagslífsins í heild. Marokkó vill
einnig reyna að ná til sín auknum gjaldeyr-
istekjum með útflutningi sjávarafurða og hluti
af því er að auka vinnsluvirði afurðanna.
Á síðasta ári skilaði útflutningur sjávaraf-
urða um 80 milljörðum króna. Markmiðið er
svo að árið 2007 verði þessi upphæð orðin tvö-
falt hærri. Loks er eitt af markmiðunum að
auka fiskneyzlu innan lands. Þrátt fyrir að
Marokkó sé mikil sjávarútvegsþjóð borðar
fólkið ekki mikið af fiski, aðeins um 7 til 8 kíló á
mann á ári, en til samanburðar borða Spán-
verjar 60 til 70 kíló og Japanir 90 til 100 kíló.
Þá er stefnt að því að auka atvinnu í sjávar-
útvegi og markmiðið þar eru 100.000 ný störf á
næstu árum.
Skipasmíðar mikilvægar
Aukin menntun og endurmenntun innan sjáv-
arútvegsins er einnig afar mikilvæg. Loks
leggjum við mikla áherzlu á það að hefja skipa-
smíðar í Marokkó, reisa fullkomnar skipa-
smíðastöðvar bæði til að smíða ný skip og til að
sinna viðgerðum og viðhaldi fiskiskipaflotans.
Marokkó er mikil sjávarútvegsþjóð og á mikla
möguleika í veiðum og vinnslu og eigin skipa-
smíði er nauðsynlegur þáttur til að auka sjálf-
stæði og vöxt útvegsins.
Marokkó hefur alltaf verið opið fyrir
samskiptum við önnur ríki, það er snar þáttur í
þjóðarmenningu okkar. Séu gerðir samningar
við önnur ríki, til dæmis um fiskveiðar, verða
þeir að þjóna hagsmunum okkar. Þar má nefna
samning Marokkó við Evrópusambandið, sem
ekki hefur verið endurnýjaður, vegna þess að
ekki náðist samkomulag um grundvallaratriði
eins og framtíð og þróun sjávarútvegs í
Marokkó. Sú staðreynd að þessi samningur
hefur ekki verið endurnýjaður útilokar á engan
hátt að hægt sé að stofna sameiginleg fyr-
irtæki milli Marokkóa og Frakka, Spánverja
eða Portúgala svo dæmi séu tekin. Þó að
samningurinn hafi ekki verið endurnýjaður
þýðir það ekki að samstarfi við
Evrópuþjóðirnar hafi verið hætt. Marokkó er
algjörlega tilbúið að starfa með þeim sem vilja
koma til landsins og fjárfesta þar og skapa arð
heima fyrir, en ekki eins og áður var þegar vin-
ir okkar í Evrópu komu, veiddu fiskinn og fóru
með hann heima. Samningar af þessu tagi
verða að koma báðum aðilum til góða og leiða
af sér uppbyggingu í útveginum.
hefur hans hátign kon-
kisstjórnin og sjávarút-
ram áætlun til næstu
hvetja sjávarútveginn.
fyrsta lagi að vernda
fbærar veiðar. Það er
ennum hætti, ábyrgum
uleikana, til dæmis með
t af markmiðunum að
Allar veiðar sem eru
u Marokkó ættu því að
Morgunblaðið/Þorgeir Pálsson
Landað úr nótabáti í marokkó.
tarf að hefjast
amning um samstarf og Brim hefur starfsemi þar innan tíðar
!
Morgunblaðið/Guðni Gíslason
sem sjávarútvegs-
rrituðu samning um
rrarnir ræddu á fundi
um, skipasmíða, fisk-
etur orðið að ræða.
starf
Morgunblaðið/Þorgeir Pálsson
ur.
NÚ ER unnið að sameiningu sjáv-
arútvegsfyrirtækjanna Moana
Pacific og Sealord. Með því yrði til
langstærsta sjávarútvegsfyrirtæki
Nýja Sjálands. Á hinn bóginn er það
óttazt að hundruð starfa gætu glat-
azt við sameininguna.
Moana Pacific er í eigu Maora,
frumbyggja eyjanna, en þeir eiga
einnig stóran hlut í Sealord. Nýja
fyrirtækið mun fá nafnið Aotearoa
Fisheries. Velta Moana sem stundar
ísfiskveiðar er 3,7 milljarðar króna
á ári en Selord veltir 28 milljörðum
króna. Sameiginleg velta verður því
yfir 30 milljarðar króna, starfsmenn
verða líklega um 3.000 og fyrirtækið
ræður þá yfir þriðjungi allra afla-
heimilda við Nýja Sjáland.
Innan nýja fyrirtækisins verða
einnig Pacific Marine Farms, Chat-
ham Processing og 50% hlutur í
Prepared Foods. Talið er að við
sameininguna verði það einkum
störf millistjórnenda sem verði í
hættu. Formaður stjórnar Sealord,
Shane Jones, segir að sjávarútvegs-
ráðherra landsins, Pete Hodgson,
hafi samþykkt samruna fyrirtækj-
anna og að hann vonaðist til að hann
gæti tekið gildi fyrsta október næst-
komandi.
Jones segir einnig að vegna erf-
iðleika í Argentínu vegna pólitísks
óstöðugleika hafi ekki tekizt að
koma þar á kvótakerfi við fiskveið-
arnar. Því hafi Sealord orðið að
færa niður hlut sinn í samvinnufyr-
irtækinu Yuken um 870 milljónir
króna. Farið var í fjárfestingar í
Argentínu fyrir þremur árum með
það að leiðarljósi að kvótakerfi yrði
komið á og samvinnufyrirtæki (joint
venture) fengju úthlutað kvóta, sem
myndi gera meira en að greiða fyrir
fjárfestinguna. Svo hefur ekki orðið.
Yuken á fjögur skip, sem hafa
leyfi til veiða innan lögsögu Argent-
ínu á verulegu magni af hokinhala,
lýsingi og smokkfiski.
Stofna risafyrirtæki
Laus störf til sjós
Vegna skólagöngu áhafnar eru eftirtalin störf
laus til umsóknar um borð í Bjarma BA 326 frá
og með 20. ágúst 2003: Yfirvélstjóri, vélavörður,
matsveinn og háseti.
Uppl. gefur skipstjóri í s. 864 2692 og 852 7351.
Fiskur
Viljum kaupa smáan fisk, svo sem ýsu, lýsu
eða ufsa, slægðan með eða án hauss, sjófryst-
an eða ferskan. Sími 896 6098, Gunnar.
RAÐAUGLÝSINGAR
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
ÓSKAST KEYPT
BÁTAR/SKIP
Fiskiskip til sölu
Ljósm. Snorri Snorrason/www.snorrason.is
Björg SU 3, sskrnr. 1935
sem er 123 brúttórúmlesta togskip, smíðað
í Svíþjóð árið 1988. Aðalvél skipsins Caterpillar
705 hö. Skipið selst með veiðileyfi og aflahlut-
deildum skipsins.
Gunnar I. Hafsteinsson, hdl.,
Magnús Helgi Árnason, hdl.,
Hafnarhvoli v/Tryggvagötu,
sími 552 3340, Reykjavík.