Morgunblaðið - 03.09.2003, Blaðsíða 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
SUZUKI í Bretlandi stóð fyrir frum-
sýningu 22. ágúst síðastliðinn á glæ-
nýju mótorkrosshjóli sem væntan-
legt er á markað síðar á þessu ári.
Suzuki RMZ hefur verið beðið með
mikilli eftirvæntingu enda hér á ferð
næsta kynslóð fjórgengis mótor-
krosshjóla. Orðrómur og myndir af
hjólinu hafa verið að leka út á
Netinu síðastliðnar vikur og mán-
uði og kynt þannig undir spennuna í
kringum þetta gula millivigtarhjól.
Þegar ég fékk símtal um að mér væri
boðið að koma til Bretlands í
reynsluakstur þurfti ég ekki að
hugsa mig tvisvar um. Til að fá sem
besta og fjölbreyttasta yfirsýn yfir
nýju Súkkuna slóst fyrrverandi Ís-
landsmeistari í mótorkrossi, Reynir
Jónsson, með mér í för.
Samstarf Suzuki og Kawasaki
Það var á síðasta ári að orðrómur
um samstarf Suzuki og Kawasaki
var staðfestur. Upp úr þessari sam-
vinnu urðu til tvö ný fjórgengishjól,
Kawasaki KX 250F og Suzuki RMZ
250 sem á blaði virðast vera eitt og
sama hjólið fyrir utan litinn á plast-
inu. Hinsvegar, mörgum að óvörum,
hafa þessi tvö hjól komið misvel út úr
reynsluakstri í Japan og er ástæðan
sú að þótt hönnunin sé að grunni sú
sama hafa framleiðendurnir, Kawa-
saki og Suzuki, kosið að reka ein-
hverja endahnúta á framleiðsluna
hvor með sínu lagi.
Hjól eru hönnuð og framleidd með
mismunandi markmið í huga og í til-
felli Suzuki RMZ var markmiðið ein-
faldlega að vinna heimsmeistaratitil í
mótorkrossi. Hönnuðir RMZ lögðu
áherslu á að skapa hjól með lága vigt
og lágan þyngdarpunkt og náðu því
fram í mjög léttri grind úr stál-
blöndu, (sem ber sterkan Kawasaki
svip), nýjum álafturgaffli, léttmálm-
shlutum í mótor, nýju ólíukerfi,
(SASS), þar sem mótor og gírkassa-
olía er aðskilin svo fátt eitt sé upp
talið. Einnig losuðu hönnuðir hjóls-
ins það undan áhrifum mótorbremsu
sem einkenndu fjórgengishjól forð-
um daga.
Öll óþarfa þyngd skorin niður
Gangsetning er gríðarlega stór
hluti heildarmyndarinnar þegar
komið er á fjórgengishjóli í keppni.
Mörg nútímahjól koma með raf-
starti. En þar sem Suzukimenn
höfðu það að leiðarljósi að skera alla
óþarfa þyngd af hjólinu kemur það
ekki með rafstarti heldur hinni hefð-
bundnu startsveif. Hjólið hefur sjálf-
virkan þjöppulétti en auk þess hand-
virkan búnað fyrir heistart eins og
flest önnur fjórgengishjól í dag.
Blöndungurinn, (Keihnin FCR 37),
er svo þannig úr garði gerður að
hann er tengdur kveikjukerfi þar
sem búnaður skynjar stöðu bensín-
gjafar og breytir kveikjutímanum
eftir aðstæðum til að fá sem bestan
bruna út úr hjólinu.
Að utan sýnist mótorinn vera sér-
lega lítill og nettur en það er tilkomið
vegna þess að strokkurinn liggur að
hluta ofan í vélarhúsið. (Mynd 2).
Strokkurinn er einnig úr álblöndu
sem er hentugur við hitaleiðni sem
þýðir betri þétting milli strokks og
stimpilhringja sem á endanum skilar
sér sem aukið afl. Gíranir eru 5.
Suzuki hefur löngum komið með
Showa-fjöðrun en er nú á Kayaba
dempurum bæði að framan og aftan
en aftari endinn á Súkkunni er
glæný hönnun, spennandi og miðar
að því að létta hjólið um leið og virkni
afturfjöðruninnar eykst.
Engar nýjungar
Við fyrstu sýn eru þó engar stór-
kostlegar nýjungar á ferðinni. Flest
það sem RMZ kemur með hefur sést
áður í einni eða annari mynd. Það
sem skiptir höfuðmáli þegar nýtt
mótorhjól kemur á markað er ekki
hversu fallegt eða nýstárlegt það er,
heldur hvernig þeir hlutir sem hjólið
samanstendur af virka saman, s.s.
fjöðrun, bremsur, mótor o.s.frv.
Breskir blaðamenn og við tveir fé-
lagarnir höfðum tvö hjól til umráða í
heilan dag og er óhætt að segja að
ekki hafi verið stoppað allan þann
tíma nema ef til vill svona rétt á með-
an hjólin urðu bensínlaus og komum
við Íslendingarnir þar oftast við sögu
enda tregir til að skila hjólunum til
hinna ökumannanna fyrr en bensín-
tankurinn var tómur. Það gerist
stundum þegar hjól eru frumsýnd að
starfsmenn framleiðanda eru óör-
uggir og banna mönnum að gera hitt
og þetta á meðan á akstri stendur.
Suzukimennirnir voru hinsvegar
hinir rólegustu og sáu bara um að
setja bensín á hjólin, stilla fjöðrun,
rétta stýri eftir byltur og gefa okkur
samlokur. Ljóst er að RMZ er vel
unnin afurð frá Suzuki og menn hafa
sterka trú á gripnum.
Reynsluakstur á fjórgengishjólinu Suzuki RMZ 250
Ný fjöðrun en ekkert rafstart
Þórir Kristinsson fékk fyrir skemmstu boð um að
reynsluaka nýju mótorkrosshjóli frá Suzuki, RMZ, nýj-
ustu kynslóð fjórgengis mótorkrosshjóla. Reynir Jóns-
son, fyrrverandi Íslandsmeistari í mótorkrossi, slóst í
för með Þóri til að prófa hjólið í Englandi.
Að utan sýnist mótorinn vera sérlega
lítill og nettur en ástæðan er sú að
strokkurinn liggur að hluta ofan í vél-
arhúsið.
Tilgangurinn með hönnun Suzuki RMZ er einfaldlega að vinna heimsmeistaratitil í mótorkrossi.
vandamál, bara 1–2 spörk án þess að snerta bensíngjöfina og
hjólið komið í gang. Persónulega sakna ég ekki rafstartsins.
Hef ekki áhuga á aukinni þyngd sem því fylgir.
Í heildina verð ég að gefa Suzuki topp einkun. Ég er reyndar
vanur því að aka um á hjóli sem er sérstillt fyrir mig hvað
stærð, þyngd og aksturstíl varðar. Þannig að það voru nokkur
atriði á RMZ sem betur mega fara. En það eru allt atriði sem
auðvelt er að vinna í. Sum hjól eru góð eins og þau koma út úr
verksmiðjunni. Sum hjól þarf mikið að vinna í svo þau verði
góð og í einstaka tilfelli kemur á markað hjól sem aldrei öðlast
góða aksturseiginleika sama hversu miklum tíma og pen-
ingum maður eyðir í það.
Það er mjög misjafnt hversu mikla vinnu ég hef þurft að
leggja í hjól í gegnum árin til að fá þau í það horf sem er við-
unandi fyrir mig í keppni. Það sem heillar mig mest við RMZ er
hversu gott hjólið er beint úr kassanum. Það er ekki oft sem
ég get sagt það, en ég er viss um að það tæki mig ekki langan
tíma að fínstilla þetta hjól til að halda mér í toppbaráttunni í
mótorkrossinu.“
„Ég var verulega hissa. Bjóst ekki við svo miklu af svo litlu
hjóli. Ók hratt án þess að eyða mikill orku í aksturinn. Heild-
arpakkinn er góður. Hjólið passaði mér vel og gott að vinna
á því og færa líkamsþyngdina til. RMZ kemur með svokallað
„nonslip“-sæti en það hjálpar mér að sitja og einnig þegar
ég stend og klemmi fæturna utan um hjólið. Eins og flestir á
svæðinu var ég hissa á því hvað hjólið hefur mikið afl á öll-
um vinnslusviðum. Ég ók Yamaha YZ250F í sömu braut en
það hjól hefur ekki nærri eins mikið afl og RMZ. Ég átti
hvergi í vandræðum með aflið, hvorki út úr sandbeygjum né
á beinum köflum. Ég heyrði félaga mína tala um titring frá
mótor sem leiddi út í stýrin en verð að segja að ég varð
hans ekki var. Ég er vanur allt öðruvísi hjóli, bæði hvað teg-
und og vélarstærð varðar en það tók enga stund að venjast
súkkunni sem þýðir að hönnunin og samræmið milli afls og
fjöðrunar er mjög gott. Hlutföll milli gíra voru mjög góð og
aldrei vandamál með afl. Ég er ekki frá því að hækka mætti
gíringuna örlítið með því að stækka fremra tannhjól um eina
tönn, svo sterkur er mótorinn. Að gangsetja hjólið var aldrei
Hvað segir Reynir Jónsson?
Vél: Eins strokks
fjórgengis, DOCH
(tveggja knastása).
Slagrými: 249
rúmsentimetrar.
Þjappa: 12,6:1.
Ventlar: Fjórir.
Hámarks snúningur á vél:
13.550 snúningar á
mínútu.
Bensíntankur:
7,5 lítrar.
Gírkassi: Fimm gírar.
Framfjöðrun: Kayaba 48
mm, (300 mm slaglengd).
Afturfjöðrun: Kayaba,
(310 mm slaglengd).
Framgjörð/afturgjörð:
21/19.
Þyngd: 92,5 kg.
SUZUKI RMZ 250