Morgunblaðið - 18.10.2003, Page 2

Morgunblaðið - 18.10.2003, Page 2
BÖRN 2 C LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Spurningar: 1. Hvert er stærsta líffæri mannslíkamans? 2. Hvað eru margir vöðvar í mannslíkamanum? 3. Hvað eru mörg bein í mannslíkamanum? 4. Hvað er mikið blóð í líkama fullorðins manns? 5. Hvað er blóðið lengi að fara hring í æðakerfi mannsins? 6. Hvað slær hjartað oft á mínútu? 7. Hvað andarðu oft á einum sólarhring? 8. Hvað er heilinn þungur? 9. Á hvaða aldri er mannslíkaminn best á sig kominn? 10. Hvað segjum við að meðaltali mörg orð á dag? Við vinnslu spurninganna var stuðst við bókina Alfræði unga fólksins. Hversu vel þekkirðu líkama þinn? Fyrir nokkur hundruð árum þegar Gustav III var konungur Svíþjóðar deildu vitrir menn í landinu um það hvort kaffi eða te væri óhollara heilsu manna. Konungurinn greip þá til þess ráðs að fá tvo fanga, sem voru eineggja tvíburar, til að skera úr um málið. Samið var um það við fangana að dauðadómi þeirra yrði breytt í lífstíðarfangelsi gegn því að annar þeirra drykki ákveðið magn af kaffi á dag og hinn drykki sama magn af tei. Niðurstaða tilraunarinnar bendir hins vegar hvorki til þess að te né kaffi sé mjög skaðlegt heilsu manna því tedrykkju- maðurinn lést ekki fyrr en hann var orðinn 83 ára og kaffi- drykkjumaðurinn ekki fyrr en nokkrum árum síðar! Konungurinn lést hins vegar langt á undan bræðrunum og fékk því aldrei að vita niðurstöðu tilraunar sinnar. Te eða kaffi? Fáar íþróttir reyna meira á fjölhæfni mannslíkamans en fimleikar. Í fimleik- um reynir á styrk, jafnvægi og samhæf- ingu líkamans og því er fimleikaþjálfun fjölþættari en þjálfun margra annarra íþróttagreina. Róshildur Agla Hilmarsdóttir og Dag- ur Ingi Albertsson eru bæði tíu ára og æfa fimleika hjá Fimleikafélaginu Björk í Hafnarfirði. Róshildur byrjaði að æfa fimleika þegar hún var að verða fjögurra ára en Dagur er búinn að æfa fimleika frá því hann var sex ára. „Ég byrjaði í dansi þegar ég var lítil en mér fannst það ekkert sérstakt,“ segir Róshildur. „Svo stakk mamma upp á því að ég færi í fim- leika og mér fannst það strax mjög skemmtilegt.“ Vill helst alltaf vera í húsinu Róshildur er á fimleikaæfingum fimm sinnum í viku en Dagur æfir þrisvar í viku þar sem hann er líka í handbolta, golfi og skátunum. Róshildur segir að fimleikarnir taki eiginlega allan hennar frítíma og að þar sem hún þurfi oft að læra mikið hafi hún lítinn tíma til að leika sér. „Stundum verður maður þreyttur á þessu og langar ekki á æfingu en svo langar mig líka oft á æfingu þegar ég þarf ekki að fara,“ segir hún. „Mig langar bara eiginlega alltaf til að vera hér í húsinu.“ Hvað gerið þið á æfingum? „Núna erum við að keyra öll áhöldin af því við erum að fara að keppa um helgina en oftast tökum við eitt eða tvö áhöld fyrir.“ Bogahesturinn erfiður Eru æfingarnar erfiðar? Róshildur: „Já, sumt er rosalega erfitt og þegar maður er á þriggja tíma æfing- um og á fullu allan tímann þá verður maður rosalega þreyttur. Það fer samt svolítið eftir því hvað það eru margir á æfingum. Ef það eru margir þá þarf maður að bíða á milli og þá getur maður hvílt sig.“ Dagur: „Sumt er mjög erfitt en mér finnst bæði gaman að æfa og keppa þó maður sé alltaf svolítið stressaður fyrir keppnir.“ Hvað er skemmtilegast? Dagur: „Mér finnst skemmtilegast í gólfæfingum en bogahesturinn er erfið- astur bæði af því að það reynir svo á handleggina og svo er það svo mikil tækni.“ Róshildur: „Mér finnst sláin og tvíslá- in erfiðastar en skemmtilegast í stökki.“ Minna hræddur nú en áður Eruð þið aldrei hrædd? Dagur: „Jú stundum. Ég var samt miklu hræddari einu sinni en ég er núna.“ Ráðleggið þið öðrum krökkum að fara í fimleika? Róshildur: „Já, það er samt svolítið leiðinlegt hvað maður þarf að hætta snemma. Ég mundi vilja halda endalaust áfram. Þegar maður er búinn að finna sér svona góða íþrótt þá vill maður bara vera alltaf í henni.“ Fimleikar eru góð íþrótt Morgunblaðið/Árni Sæberg Róshildi finnst skemmtilegast að gera æfingar við tónlist. Morgunblaðið/Árni Sæberg Degi finnst gaman að keppa þótt hann sé alltaf stressaður fyrir keppni. Málarinn á myndinni er í hálfgerðum vandræðum þar sem ein af myndunum hans lenti óvart á sýningu með myndum annars málara. Getið þið hjálpað honum að finna réttu myndina með þessar vísbendingar að vopni? a) Það eru engin dýr á myndinni. b) Það er bara ein manneskja á myndinni. c) Það eru engin ský á myndinni. Hvaða mynd á málarinn? Svar: Myndin er númer 7. Vissuð þið að fullorðið fólk er alltaf að stækka? Samkvæmt mælingum lengist fullorðið fólk að meðaltali um 2 cm á hverri nóttu. Það gengur þó saman aftur eftir að það rís úr rekkju og nær sinni fyrri hæð á nokkrum klukkutímum. Svefninn lengir manninn Svör 1. Húðin 2. 650 3. 206 4. Um fimm lítrar 5. Um mínútu 6. 60 til 150 sinnum 7. 23.000 sinnum 8. Um 1.3 kíló 9. Þegar hann er 18 til 25 ára. 10. 6.000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.