Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 12
12 B MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ bílar VW Sharan 1.8 Turbo F.skr.d. 28.06.2002, ek. 56 þús. km., 5 dyra, 6 gíra, 7 manna bíll. Verð 2.580.000 Í ÁR eru 80 ár síðan BMW-mótorhjól komu fyrst á markað. Og fyrir rúm- um tveimur áratugum skópu BMW- verksmiðjurnar í Bæjaralandi svo að segja nýja gerð mótorhjóls: stórt ferða-enduro-hjól. Það hét þá BMW R80 G/S. Þetta hjól, sem í raun opnaði yfirleitt möguleikann á því að halda í sannkölluð langferðalög á mótorhjóli, hefur verið þróað og betrumbætt í áföngum síðan. Nútímaútgáfan af þessu hjóli, BMW R 1150 GS, hefur um árabil verið mest selda mótorhjól á stærsta mótorhjólamarkaði Evr- ópu, þ.e. á heimamarkaði BMW í Þýzkalandi. Og unnið samanburðar- reynsluakstra í virtustu mótorhjóla- tímaritum ár eftir ár eftir ár. Þeir eru ófáir, þýzku ferðamenn- irnir sem lagt hafa leið sína um vegi og hálendi Íslands á svona hjólum. Enda vart finnanlegt farartæki á tveimur hjólum sem er betur fallið til að skila ökumanni – og farþega og far- angri – af öryggi og áreiðanleika í gegnum slík ferðalög. Það kann því að undra að enginn hefur sinnt því að selja Íslendingum þessi fjölhæfu hjól, sem svo vel hafa reynzt til ferðalaga hérlendis. Orðstír BMW-mótorhjóla er þó það mikill, að fullyrða má að flest íslenzkt mótorhjólaáhugafólk þekki til þessara hjóla, þrátt fyrir að enginn sé virkur innflytjandinn. Það var því kærkomið tækifæri sem blaðamanni bauðst nú á haust- dögum, að prófa sem nýtt svona hjól, sem einkaaðili flutti til landsins. Traustvekjandi „ranadýr“ Það fyrsta sem kemur upp í hug- ann þegar BMW R 1150 GS er skoðað í návígi er hversu mikill „karakter“- gripur er hér á ferð. Engar málamiðl- anir. Traustvekjandi. Og það er stórt. Sumir myndu jafnvel segja klunna- legt. Það leynir sér ekki hvers vegna viðurnefnið „ranadýr“ hefur festst við þessi hjól í umfjöllun þýzkra mótor- hjólablaðamanna um þau. Ranalegt efra frambrettið teygir sig fram frá stýrinu og yfir því tróna, mjög fram- arlega, misstór framljósin, mælaborð- ið og vindhlífarskyggnið. Deila má um hversu falleg þessi hönnun er, en eitt er víst að hún gefur hjólinu mikinn karaktersvip. Það sem þó sker þetta hjól frá öðr- um „venjulegum“ hjólum er fyrst og fremst þrennt: útstæðir strokkar box- er-vélarinnar, lokað drifskaft og svo- nefnd telelever-fjöðrun að framan í stað hefðbundinna gaffalhöggdeyfa. Það er heldur ekki hefðbundið stell eða burðarrammi í hjólinu, heldur er vélarhúsið sjálft aðalburðarstykki hjólsins, og á það eru fram- og aftur- hluti hjólsins festir. GS-týpan af R-línu BMW er ann- ars ótvírætt af ætt enduro-hjóla; fjöðrunin há, teinafelgur, breitt stýri og ökumaður situr uppréttur. Auk þess er tankurinn stór og minnir á keppnisútgáfu hjólsins, sem á síðustu tveimur áratugum hefur verið fá- dæma sigursæl í París-Dakar-eyði- merkurrallinu fræga. Sem þýðir að hjólið kemst langar vegalengdir án þess að þurfa að hafa viðkomu á benz- ínstöð. Allur frágangur er hinn vandaðasti og stemmir við gæðaorðstír BMW. Og þegar maður fer að kynnast hjól- inu rennur upp fyrir manni hve marg- ar smáatriðalausnir eru þaulhugsað- ar. Þá lærir maður líka að meta allan útbúnaðinn, svo sem ABS-hemlakerf- ið, telelever-fjöðrunina og þægindi eins og hita í stýrishandföngunum og svo til viðhaldslaust drifskaftskerfið í stað opinnar drifkeðju. Þetta síðast- nefnda atriði gerir líka að verkum að það er jafneinfalt að skipta um dekk að aftan og á bíl. Þegar sett er í gang finnst hvernig hreyfingar stimplanna í boxervélinni toga lítillega í hjólið til hliðanna. Hjól- ið er vissulega stórt og mikið og pláss- ið gott. En þegar tekið er af stað kem- ur á óvart hve meðfærilegt hjólið er; hjálpast þar að merkilega þýðgeng boxervélin sem skilar miklu togi strax við lágan snúning og fjöðrunarkerfið, sem t.a.m. léttir öllum höggum af stýrinu og leiðir þau – með hjálp telelever-armsins – inn undir mitt hjólið, þar sem framdemparinn er. Hjólið er heldur alls ekki eins þungt og ætla mætti; með 22 l benzíntank- inn fullan vegur það rétt um 250 kg. Það hjálpar manni líka að hafa ekki áhyggjur af þyngdinni þegar maður veit hve einfalt er að reisa hjólið við, fari það á hliðina. Þetta eintak er útbúið veltigrind, en jafnvel án henn- ar er hjólið hannað þannig að því á ekki að verða meint af því að fara á hliðina og með því að nýta sér vog- arstangaraflið sem fæst með því að grípa um endann á stýrinu er lítið mál að lyfta því á réttan kjöl. Þannig að lendi ökumaður í því að festa hjólið í sandi eða drullu er lausnin sú að henda hjólinu á hliðina, fylla upp í hol- una þar sem hjólið gróf sig niður, rétta það aftur við og aka áfram. Klettstöðugt Þegar komið er út úr borgarum- ferðinni á krókóttan íslenzkan þjóð- veg fara aksturseiginleikar hjólsins fyrst að skína fyrir alvöru. Hjólið er svo klettstöðugt á ferð, hvort sem er á beinum vegarköflum eða í beygjum að það undrar ekki hvað keppinaut- arnir hafa átt erfitt með að skáka því sem þetta hjól hefur að bjóða. Boxer- vélin rífur hjólið áfram á liggur við hvaða snúningi sem er, en hún vill helzt ekki láta snúa sér yfir 7.000 snúninga; þá er titringur orðinn til- finnanlegur. Þetta er „torkari“ sem hvetur ökumann til afslappaðs akst- ursstíls – hægt er að leyfa sér leti- legar skiptingar, engin þörf á að halda vélinni á háum snúningi eins og marg- ar (fjögurra strokka) mótorhjólavélar krefjast. En vegna þess hve fjöðrunin „get- ur“ mikið og miðlar ökumanni mikilli öryggistilfinningu, sama hvernig und- irlagið er, getur þetta hjól sannarlega skilað manni áfram. Þar á bremsu- kerfið einnig mikinn hlut að máli. BMW var fyrsti mótorhjólaframleið- andinn til að bjóða upp á ABS-hemla, og þetta er kerfi sem sannarlega virk- ar. Það samtengir fram- og aftur- bremsurnar og ef þörf er á að nauð- hemla nægir að taka duglega í fram- bremsuhandfangið og þá er eins og varpað sé út akkerum; hjólið stað- næmist áður en maður veit af, og ger- ir það eins og það hafi ekkert fyrir því. Til dæmis dýfist það svo til ekkert niður að framan, þar sem framfjöðr- unararmurinn færir hemlunarátakið inn undir mitt hjólið. Hægt er að af- tengja kerfið með einum takka, sem er ráðlegt í torfærum. Loks er vert að nefna töskukerfið sem fylgir hjólinu og gerir það klárt í langferðir. Mjög einfalt og fljótlegt er að smella töskunum á og af hjólinu, og þær trufla ekki jafnvægi þess á ferð. Burðarþol hjólsins er yfir 200 kg. Í stuttu máli er BMW R 1150 GS ferðahjól sem sannarlega stendur undir nafni, en er jafnframt meðfæri- legra en mann grunar þegar það er fyrst barið augum. Þetta er vel smíð- að og traust mótorhjól sem býr yfir mjög fjölbreyttum hæfileikum. Þetta er fullorðinshjól fyrir ferðaglaða. Það má geta þess að á næsta ári er væntanleg næsta uppfærsla af þessu metsöluhjóli BMW, sem mun heita R 1200 GS, þar sem rúmtak vélarinnar vex lítið eitt. Annars litlu breytt. Þar sem ekkert er virkt umboðið fyrir BMW-mótorhjól hérlendis er erfitt að fullyrða hvað svona hjól myndi kosta nýtt, hingað komið. Grunnlistaverð í Þýzkalandi er um 11.000 evrur, andvirði 980.000 kr., að meðtöldum 16% virðisaukaskatti. Morgunblaðið/Kristinn Maður og vél tilbúin í hvað sem er — kílómetrarnir mega koma. Og eins og sjá má er nóg pláss fyrir farþega og farangur. Fullorðinshjól fyrir ferðaglaða REYNSLUAKSTUR BMW R 1150 GS Auðunn Arnórsson Hinn snjalli Paralever-einarmur að aftan, með innbyggðu drifskaftinu. Telelever-fjöðrunararmurinn að fram- an heldur höggum frá stýrinu. Vél: Loft-/olíukæld tveggja strokka fjórgengis-boxer- vél. Einn knastás og fjórir ventlar á strokk. Rúmtak 1.130 cm³. Rafeindastýrð innspýting. 85 hestöfl (62,5 kW) við 6.750 sn/mín. Tog 98 Nm við 5.250 sn/mín. Hröðun: um 4,5 sek. úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Hámarkshraði um 194 km/klst. Drifkerfi: vökvastýrð þurr- kúpling, 6 gíra kassi (6. yfirgír), lokað drifskaft. Uppbygging og fjöðrun: Vélarhús berandi. Tele- lever-armfjöðrun að fram- an, heilsteyptur ál-ein- armur (Paralever) að aftan, með innbyggðu drifskafti. Miðlæg fjöðrun, stiglaust stillanleg með snúnings- hjóli. Fjöðrunarvegalengd framan: 190 mm, aftan 200 mm. Stærð hjólbarða: framan 110/80 ZR (eða B) 19, aftan 150/70 ZR (eða B) 17. Hemlar: tvöfaldir diskar að framan, einfaldur að aftan, rafeindastýrt ABS-hemla- læsivarnarkerfi. Mál og vog: Hjólhaf 1.509 mm, gaffalhalli 62,9°. Sætishæð 860 eða 840 mm (stillanleg). Lengd 2.189 mm. Þyngd full- tankað um 250 kg. 22 l tankur (4 l vara). Leyfð hámarksþyngd 460 kg. BMW R 1150 GS auar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.