Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 8
8 B MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
U
m 108 manns á Íslandi eiga Harley Dav-
idson-mótorhjól og á þessu ári hafa verið
seld 19 ný hjól þessarar gerðar. Sig-
tryggur Kristófersson hjá Harley Dav-
idson á Íslandi segir að það sé lífsstíll að eiga Harl-
ey. Og hann talar af ástríðu um þessi bandarísku
mótorhjól og allt sem þeim tengist.
Þegar gengið er inn í salinn á Grensásvegi, sem
var sérstaklega innréttaður samkvæmt forskrift
Harley í Bandaríkjunum, blasir strax við V-Rod-
hjólið, sem kom fyrst á markað 2001. Þetta er
byltingarkennt hjól af hálfu Harley Davidson að
mörgu leyti. Fyrir það fyrsta er það afar fram-
úrstefnulegt í laginu og í öðru lagi var ný tækni
notuð við hönnun grindarinnar, svokölluð „hydra-
bend“-aðgerð, sem felst í því að grindin er beygð
með vatni undir háþrýstingi. Það sem vinnst með
þessu er að engar skarpar beygjur verða í grind-
inni. Oftast eru mótorhjól hönnuð á þann veg að
mótorinn er hannaður eftir grindinni en í þessu til-
viki var grindin hönnuð eftir mótornum. Auk þess
er mótorinn í hjólinu smíðaður í samstarfi Harley
Davidson og Porsche. Sigtryggur segir að vélin
hafi verið fimm ár í hönnun og keyrð í yfir 6.000
km í bekk áður en hún var sett í fjöldaframleiðslu.
Hún er 1.133 rúmsentimetrar að slagrými og skil-
ar 115 hestöflum. Vélin er með 60° halla og vatns-
kæld en til þessa hefur Harley alltaf haft 45° halla
á vélunum og loftkælingu. Mestan heiður af hönn-
un hjólsins á Willy G., sem er barnabarn Dav-
idsons og aðalhönnuður fyrirtækisins. Hjólið kost-
ar tæpar þrjár milljónir króna.
Nú hefur það heyrst að Harley sé bilanagjarn?
„Ég get sagt þér að það kemur oftast nær frá
þeim mönnum sem eiga sér þann draum að eign-
ast Harley, en munu líklega aldrei eignast hann,
en setja alltaf út á hann. Frá því við byrjuðum
1999 höfum við selt tæplega 60 hjól og við höfum
ekki fengið eitt einasta inn vegna framleiðslugalla.
Ég man eftir tveimur hjólum sem komu inn ári
eftir að við afhentum þau með bilaða startrofa.
Harley fór næstum á hausinn 1980–’81, en eftir
þann tíma fór bilanatíðnin verulega að lækka.
Fram að þeim tíma voru gæðin vissulega ekki upp
á það mesta. Þetta er orðin allt önnur framleiðsla í
dag enda skilar fyrirtækið methagnaði ár eftir ár,“
segir Sigtryggur.
Í salnum er líka Heritage Softtail Classic sem
hefur verið framleitt óbreytt í sextán ár. Harley
framleiðir aldrei meira en 220–240 þúsund hjól á
ári, þar af hafa um 26 þúsund hjól verið fyrir Evr-
ópumarkað.
Sigtryggur segir að mikil vakning sé meðal
fólks núna og áhugi í tengslum við mótorhjól.
Þetta megi m.a. rekja til þess að aðflutningsgjöld
voru lækkuð fyrir tveimur árum sem gerði kaup á
mótorhjólum fýsilegri. Nú er til dæmis hægt að fá
Harley Davidson-hjól á frá um einni milljón og
upp í 3,2 milljónir króna. „Tíðarfarið skiptir líka
miklu máli því nú eru menn farnir að geta verið á
hjóli í allt að níu mánuði á ári. Í fyrra lögðum við
hjólunum t.d. bara í fimm vikur.“
Harley Davidson Sportster kom fyrst á markað
1957 og hefur verið framleiddur því sem næst
óbreyttur síðan. Eitt slíkt hjól má sjá hjá Harley
Davidson á Grensásveginum. Hann fæst með 883
rúmsentimetra vél og 1.200 rúmentimetra. 2004
kemur ný týpa sem er með örlítið breyttri vél og
stærri bensíntank. En í grundvallaratriðum er
þetta sama hjólið. Þarna er líka gulur Fat Boy,
sem Sigtryggur á sjálfur. „Hann varð heimsfræg-
ur þegar Arnold Schwarzenegger fór fram af
brúnni á slíku hjóli í hlutverki Terminator 2. Það
er hlutfallslega dýrara en önnur hjól eingöngu
vegna vinsælda hjólsins. Það kostar 2.750.000 kr.
og er með 1.450 cc vél.“
Þess má geta að starfræktur er eigendaklúbbur
Harley Davidson hér á landi og stendur hann fyrir
einni ferð til Evrópu á hverju ári með hjólin.
Áhugasömum er jafnframt bent á www.harleyda-
vidson.com.
Lítið breytist með árunum hjá Harley; klass-
ískar línur og slaglangar vélar er það sem gildir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VRSCA V-Rod er nýjasta hjólið frá Harley. Það er með heilum álfelgum, loftkældri vél sem þróuð var
í samstarfi við Porsche og grind sem er beygð með háþrýstu vatni.
Afturbarðinn á þessu hjóli er næstum
eins og á meðaljepplingi.
Sigtryggur Kristófersson hjá Harley Davidson
á Íslandi á hippanum, Heritage Softtail Classic.
Um 108 Harley-eigendur á Íslandi
Sagt er að það sé lífsstíll að eiga Harl-
ey Davidson. Frægð þessara hjóla er
mikil og tengingin við hippatímann og
ýmsar bandarískar kvikmyndir skemm-
ir ekki fyrir. Til marks um lífsstílinn og
ástríðuna má geta þess að þá stuttu
stund sem blaðamaður stoppaði hjá
umboðinu á Grensásvegi sat þar einn
nýbakaður Harley-eigandi og borðaði
nestið sitt í sjónfæri við nýja hjólið sitt,
Heritage Softtail Classic.
Fat Boy er eitt vinsælasta hjólið
frá Harley Davidson.