Vísir - 09.01.1981, Blaðsíða 28

Vísir - 09.01.1981, Blaðsíða 28
* 4 » wssm Föstudagur 9. janúar 1981 síminnerðóóll VEBUR- SPÁ DAGSINS Kl. 6 i morgun var 973 mb lægð út af Norður-Noregi á hreyfingu austur en hæðar- hryggur á Grænlandshafi og um 970 mb lægð suður af Baffinslandi sem hreyfðist aust-norðaustur. í nótt eða fyrramálið fer að hlýna fyrir vestan land. Veðurhorfur næsta sólarhring. Suöurland til Breiöafjarðar: Norðvestan 2—4 og skýjað með köflum en gengur i vaxandi sunnanátt og þykknar upp í nótt. Vestfirðir og Strandir og Norðurland vestra: Hægviðri og sumstaðar él í fyrstu, geng- ur i sunnan 4—6 og þykknar upp i nótt. Norðurland eystra og Austurland að Glettingi: Norðvestan 6—8 en viða 9 á Austurmiðum og él i fyrst en fer að lægja siðdegis. Austfirðir:Norðvestan 6—7 og sumstaðar él norðan til i fyrstu en fer að lægja siðdegis Suðausturland: Norðan 3—5 og léttskýjað. VEÐRIÐ HÉR 0G ÞAR Veður kl. 6 i morgun: Akureyri skýjað -h5, Bergen snjóél 1, Helsinki rigning 1, Kaupmannahöfn rigning 2, Reykjavik skýjað -=-4, Stokk- hólmur alskýjað 4, Þórshöfn snjóél 1. Veöur kl. 18 i gær: Aþenarigning 5, Berllnskýjað h-7, Chicago heiðsk'irt h-7, Feneyjar heiðskirt h-3, Frankfurt þokumóða h-3, Nuuk alskýjað h-2, London mistur 9, Luxemborg þoku- móða3, Las Palmasskýjað 19, Mallorka hálfskýjað 7, Montreal skafrenningur h-19, Paris súld 2, Róm heiðski.rt -5-1, Malaga léttskýjað 13, Winnipeg snjókoma -=-14. LOKÍ segir Sjómannafélag Reykjavikur kallar loforð rikisstjórnar- innar „piss upp i vindinn”. Árni Gunnarsson talar um „skítseyðishátt” ráðherra. Þessi vökvakennda stjórn- málaumræða er vissulega nýjung I skammdeginu. „MJOG ERFITT AR FARA ÞESSA LEIR" seglr úómsmálaráðherra um tillögu Ragnars Arnalds um breytingu á úrskurði kjaradóms „Ég held að það sé mjög erfitt að fara þessa leiö, því það er ekkert þægilegt að ógilda það sem dómstólar ákveða”, sagði Friðjón Þórðarson, dómsmála- ráðherra, þegar Visir spurði hann i morgun álits á tillögu Ragnars Arnalds, fjármálaráð- herra.er hann lagði fram á fundi rikisstjórnar i gær. Þar vakti fjármálaráðherra máls á þvi, að rikisstjórnin ó- gilti niðurstöður Kjaradóms um kjör þingmanna, með bráða- birgðalögum. Yrði löggjöfin sett til að kaup þingmanna yrði i samræmi við þá stefnu i launa- málum, sem rikisstjórnin boð- aði á sinum tima, meðal annars með tilliti til opinberra starfs- manna. „Þessi tillaga var rædd litii- lega á rikisstjórnarfundi i gær, en þar tóku menn ekki beina af- stöðutilhennar, þ.e. hvorki með eða á móti”, sagði dómsmála- ráðherra. Aðspurður, hvort ein- hverjar aðrar hugmyndir hefðu komiðfram varðandi þetta mál, kvað hann sér ekki vera kunn- ugt um að svo væri. A rikisstjórnarfundinum i gær var skipuð nefnd, er skal kynna sér umrætt mál og kynna niður- stöður sinar á næsta rikisstjórn- arfundi, sem haldinn verður á þriðjudaginn kemur. 1 henni eiga sæti Friðjón Þórðarson, dómsmálaráðherra, Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra og Ingvar Gislason, menntamála- ráðherra. —JSS Ljósadýrð á Akureyri. Visismynd: ÞL. Sáttafundur á morgun í hátakjaradeilunni ingaviðræður. 1 gær var haldinn sáttafundur i kjaradeilu rikisverksmiðjanna og stóð hann til miðnættis. Annar fundur hefur verið boðaður kl. 2 i dag. —JSS Bátasjómenn og útvegsmenn hafa verið boðaðir til fundar hjá rikissáttasemjara á morgun, laugardag, Hafa viðræður legið niðri siðan fyrir jól og hefur þar ráðið mestu um óánægja útvegs- manna með ihlutun rikisvaldsins i samningamálum. Alþýðusamband íslands hefur fordæmt viðræðutregðu útvegs- manna og segir m.a. i ályktun, sem samþykkt var á miðstjórnar- fundi i gær, að ASÍ taki eindregið undir kröfu sjómanna um samn- Storhækkun a bif- reiðagjöldum Bileigendur eru sem fyrr ó- þrjótandi tekjulind fyrir rikissjóð og nú hefur orðið stórhækkun á verði þeirrar þjónustu sem Bif- reiðaeftirlit rikisins veitir. Mest varð hækkunin á nýskráningar- gjaldi eða úr 16.800 gömlum krón- um i 290nýkrónur, sem svarar til 29 þúsund gamalla króna. Þáhækkaði gjald fyrir eigenda- skipti úr 8.400 gkrónum i 140 ný- krónur og bifreiðaskattur sem tollstjóri innheimtir hækkaði úr 7.100 gkr. i 86 nýkrónur. Hjá fjármálaráðuneytinu fékk Visir þær upplýsingar að gjöld þessi væru innheimt samkvæmt aukatekjureglugerð. Væri venja að endurskoða gjaldskrána um hver áramót og hækkun væri á- kveðin með tilliti til verðlags- þróunar nýliðins árs. —SG Siasaðist á höfði og hálsi Umferðarslys átti sér stað um klukkan 15 i gær rétt aust- an við Núpa i Ölfusi. Vöruflutningabifreið þurfti að nauðhemla, þar sem drátt- arvél og hestur voru framund- an á glerhálum veginum. Pallbill sem á eftir kom, náði ekki að hemla jafn snögglega og lenti aftan á vöruflutninga- bifreiðinni, með þeim afieið- ingum að farþegi, sem var i fremri bilnum, slasaðist á höfði og hálsi, og var fluttur á sjúkrahús. —AS íkveikjutii- rauní húsi á Laugavegi Tilraun til ikveikju var gerð á húsi við Laugaveg 29, á mið- nættii nótt,en þar mun prent- smiðja vera staðsett. Gluggi var brotinn og eldur borinn að blaðhrúgu fyrir innan glugg- ann. Vegfarandi sem átti leið hjá um miðnætti varð var við eld- inn, gerði lögreglu og slökkvi- liði viðvart og tindi siðan blöð- in út úr húsinu. Varð þvi ekki eldsvoði úr ikveikjutilraun- inni, en milliveggur sviðnaði. —AS Fieiri menn í fíkniefnadeild Fikniefnadeild lögreglunnar fékk til liðsbótar við sig 2 starfsmenn nú um áramótin. Að sögn Sigurjóns Sigurðs- sonar lögreglustjóra var gengið frá þessum tveimur stöðum fyrir endanlega af- greiðslu fjárlaga 1981. Nú eru þvi starfandi 7 starfsmenn við fikniefnadeildina og mun sá áttundi að öllum líkindum bætast i hópinn á næstunni vegna sérstaks verkefnis. —AS Enn í gæslu Annar barþjónanna, sem kærðir voru fyrir að útþynna áfengi viðskiptavina Hótel Esju, var enn I gæsluvarðhaldi rannsóknarlögreglunnar i gærkvöldi. Hinn barþjónninn hefur játað á sig verknaðinn og var sleppt úr haldi á mið- vikudaginn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.