Morgunblaðið - 05.01.2004, Síða 1

Morgunblaðið - 05.01.2004, Síða 1
2004  MÁNUDAGUR 5. JANÚAR BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A NJARÐVÍKINGAR STÖÐVUÐU SIGURGÖNGU GRINDVÍKINGA / B4 FABIAN Barthez, landsliðsmarkvörður Frakka í knattspyrnu, byrjaði vel með Marseille á laug- ardaginn en hann er kominn þangað sem láns- maður frá Manchester United. Marseille tók á móti Strasbourg í fyrstu umferð bikarkeppn- innar og þar þurfti að grípa til vítaspyrnu- keppni eftir framlengdan leik þar sem staðan var 1:1. Barthez gerði sér lítið fyrir og varði tvær af vítaspyrnum Strasbourg og skoraði síð- an sjálfur úr einni af spyrnum Marseille, sem vann 4:3. „Ég er búinn að bíða vikum saman eft- ir því að fá að spila, fannst ég vera undir dálít- illi pressu og þetta var eins og að hefja ferilinn upp á nýtt. Það var búist við miklu af mér og ég vildi ekki valda neinum vonbrigðum. Ég hef tapað talsverðu niður undanfarna mánuði og fyrir markvörð er það sérstaklega erfitt,“ sagði Barthez við franska sjónvarpið eftir leikinn. Barthez varði tvö víti og skoraði FANNAR Ólafsson, landsliðsmiðherji í körfu- knattleik, spilar með Keflvíkingum það sem eftir er keppnistímabilsins og verður lögleg- ur með þeim frá og með 12. janúar. Fannar skipti yfir til Keflvíkinga í síðasta mánuði þegar möguleiki var á að af þessu gæti orðið en vegna kennaraverkfalls við háskóla hans í Bandaríkjunum hefur nám hans farið úr skorðum. Þetta var staðfest á heimasíðu Kefl- víkinga í gær og sagt að Fannar myndi ljúka námi sínu í viðskiptafræði hér á landi en hann hefur dvalið í Bandaríkjunum undanfarin þrjú ár. Fannar er 25 ára gamall og lék með Kefla- vík í þrjú ár í úrvalsdeildinni, frá 1997 til 2000, samtals 64 leiki. Síðasta tímabilið þar gerði hann 10,2 stig og tók 4,5 fráköst að meðaltali í leik. Samkvæmt heimasíðu Kefl- víkinga hefur hann gert 9,9 stig og tekið 7,7 fráköst að meðaltali í leik með IUP-háskól- anum í vetur. Fannar hefur leikið 37 lands- leiki fyrir Íslands hönd og ljóst að hann mun styrkja lið Keflvíkinga verulega. Fannar með Keflavík JÓHANNES Gíslason, knattspyrnumaður frá Akranesi, gekk um helgina til liðs við 1. deild- arlið Vals og skrifaði þar undir þriggja ára samning. Jóhannes er 21 árs og hefur spilað 18 leiki með Skagamönnum í úrvalsdeildinni, flesta þeirra meðan hann var 17–18 ára gam- all, en hann hefur misst mikið úr vegna meiðsla síðustu árin og lék t.d. engan deilda- leik á síðasta tímabili. Jóhannes til Valsmanna Mér líst vel á mig hjá Fram og það erugreinileg merki um að félagið ætlar sér meira en á undanförnum árum. Það er von á tveimur til þremur sterkum leikmönnum til við- bótar, auk þess sem mikill efniviður er til staðar hjá félaginu. Reyndar tel ég að Framarar hefðu alls ekki þurft að vera í þessari fallbaráttu síð- ustu árin, það hefur búið meira í liðinu en það,“ sagði Þorvaldur. Hann hefur spilað með KA undanfarin fjögur ár og var áður í herbúðum félagsins frá unga aldri til 1997, þegar hann gekk til liðs við Leift- ur og síðan Öster í Svíþjóð. „Það er vissulega erfitt að fara frá KA og Akureyri, mér hefur lið- ið vel þar, en nú er komið að breytingum. Ég skil mjög sáttur við KA-menn eftir góð ár, liðið hefur fest sig í sessi í úrvalsdeildinni og farið langt í bikarnum, og aðeins vantað herslumun- inn.“ Þorvaldur lék sinn fyrsta leik í efstu deild ár- ið 1992, þá 18 ára gamall, en KA féll úr deildinni það sumar og lék ekki aftur þar fyrr en 2002. Hann á að baki 30 leiki með KA í efstu deild og skoraði í þeim 6 mörk. Árið 1997 lék hann með Leiftri í deildinni og skoraði þá 8 mörk í 14 leikjum. Tímabilin 2000 og 2001 gerði Þorvald- ur síðan 21 mark fyrir KA í 34 leikjum í 1. deild. Þorvaldur Makan Sigbjörnsson kominn til liðs við Fram „Skil sáttur við KA-menn eftir góð ár á Akureyri“ ÞORVALDUR Makan Sigbjörnsson, fyrirliði KA, skrifaði undir þriggja ára samning við Fram á laugardaginn, eins og sagt var frá í blaðinu í gær. Þorvaldur sagði við Morg- unblaðið eftir að samningurinn var frágenginn að hann ætti von á að Fram myndi vegna betur næsta sumar en á undanförnum árum þar sem liðið hefur hvað eftir ann- að sloppið naumlega við fall úr úrvalsdeildinni. TÚNISBÚAR unnu óvæntan sigur á alþjóð- legu handknattleiksmóti sem fram fór á þeirra heimavelli í Túnis um helgina. Túnis- búar, sem halda heimsmeistarakeppnina á næsta ári, sigruðu Svía 30:28 og lögðu einnig Tékka að velli en biðu lægri hlut fyrir Frökk- um. Svíar sigruðu Frakka, 27:26, og Tékka, 33:29, en urðu að sætta sig við annað sætið vegna innbyrðis úrslitanna gegn heimamönn- um. Tékkar sigruðu Frakka, 22:21, og urðu því í þriðja sæti en báðar þjóðir fengu 2 stig. Magnus Wislander gat ekkert leikið með Svíum á mótinu og tvísýnt er hvort hann verður búinn að ná sér af tognun, sem hann varð fyrir í síðasta mánuði, þegar úrslita- keppni Evrópumótsins hefst síðar í þessum mánuði. Þegar liggur fyrir að Ljubomir Vranjes, Martin Frändesjö og Andreas Lars- son verða fjarri góðu gamni hjá Svíum vegna meiðsla. Túnisbúar lögðu Svía Morgunblaðið/Stefán Stefánsson Hið árlega nýárssund fatlaðra barna og unglinga fór fram í Sundhöll Reykjavíkur í gær. Á myndinni eru verðlaunahafarnir Guðrún Lilja Sigurðardóttir úr SH/ÍFR, Jóna Dagbjört Pétursdóttir úr ÍFR, sem vann Sjómannabikarinn fyrir besta afrek mótsins, og Karen Björg Gísladóttir úr Firðinum. Fyrir aftan þau standa Árni Magnússon félagsmálaráðherra, sem afhenti bikarinn, og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasambands fatlaðra. Nánar um mótið á B7.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.