Morgunblaðið - 05.01.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.01.2004, Blaðsíða 2
KNATTSPYRNA 2 B MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ BRYNJAR Björn Gunnarsson var á ný í byrj- unarliði Nottingham Forest, eftir fimm leiki á varamannabekknum, og spilaði allan leikinn þeg- ar lið hans lagði WBA að velli, 1:0, í ensku bik- arkeppninni á laugardaginn. Sigurinn var lang- þráður fyrir Forest sem hafði ekki unnið í síðustu ellefu leikjum sínum.  Ívar Ingimarsson sat á varamannabekk Reading sem gerði jafntefli, við Preston, 3:3, á útivelli. Öll sex mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik og Preston gerði fimm þeirra, þar af tvö sjálfsmörk.  Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar í Barnsley nýttu ekki gott tækifæri til að komast í 4. umferðina. Þeir gerðu markalaust jafntefli á heimavelli gegn 3. deildarliðinu Scunthorpe. Guðjón kvaðst sáttur við leik sinna manna, sem hefðu spilað vel, stjórnað leiknum og lagt hart að sér. „En fyr- irgjafir okkar voru slæmar og þegar boltinn kom fyrir markið gerðist ekk- ert. Þetta hefur verið okkar stærsta vandamál í vetur, okkur gengur illa að skora, en við erum þó enn með í keppninni og erum vissir um að við getum unnið þegar liðin mætast aftur,“ sagði Guðjón. Brynjar aftur með og Forest áfram Brynjar Björn TELFORD United hélt merki utandeildaliðanna á lofti í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu á laugardaginn. Telford gerði sér lítið fyrir og sigr- aði 1. deildarlið Crewe á útivelli, 1:0, og skoraði fyr- irliðinn, Lee Mills, sem er þrautreyndur úr deilda- keppninni, sigurmarkið strax á 2. mínútu leiksins. Telford er í 12. sæti úrvalsdeildar utandeildaliðanna. Ian Jeffs lék sinn fyrsta leik með Crewe á tíma- bilinu og Tom Betts var meðal varamanna liðsins. Þeir voru ekki löglegir með Crewe fyrr en um ára- mót þar sem þeir léku með ÍBV út september. Annað utandeildalið, Accrington Stanley, er enn með í keppninni eftir markalaust jafntefli á heima- velli gegn 2. deildarliði Colchester. Accrington er fornfrægt félag sem var efstu deild í upphafi 20. ald- ar en missti sæti sitt í deildakeppninni 1962. Það var endurreist fyrir fáum árum og er í vetur í úrvalsdeild utandeildarliða í fyrsta skipti. Bikarævintýri hjá Telford RIVALDO, hinn kunni brasilíski knattspyrnumaður, hefur samið við Al Ittihad í Sádi-Arabíu til sex mánaða, ef marka má forráðamenn félagsins sem tilkynntu þetta á blaðamannafundi á laugardaginn. En samkvæmt frétt- um frá Brasilíu í gær hafa þeir verið heldur fljótir á sér því talsmaður brasilíska liðsins Cruzeiro segir að samn- ingur við Rivaldo sé nánast í höfn og líklega yrði til- kynnt formlega um hann í dag. Rivaldo var leystur undan samningi sínum við AC Mil- an fyrir skömmu og hefur verið orðaður við mörg félög að undanförnu. Samkvæmt forseta Al Ittihad er Rivaldo væntanlegur til Sádi-Arabíu eftir viku en hann er sagð- ur fá rúmlega 200 milljónir króna í laun fyrir þessa sex mánuði. Umboðsmaður Rivaldos er hinsvegar ekki sátt- ur við þessar fréttir og segir að sinn maður sé á leið til Brasilíu og muni spila þar. „Þetta er búin að vera mikil sápuópera og henni lýkur fljótlega,“ sagði umboðsmað- urinn, Carlos Arini, í gær. Tvö félög segjast örugg með Rivaldo  FRANSKA íþróttadagblaðið L’Equipe skýrði frá því á laugardag að Liverpool hafi fest kaup á Djibril Cisse, sóknarmanni Auxerre og franska landsliðsins í knattspyrnu. Kaupverðið á honum er sagt vera 20 milljónir evra, eða um 1,7 milljarðar íslenskra króna. Samningurinn er til fimm ára og Cisse á að koma til Liv- erpool næsta sumar. Cisse, sem er 22 ára gamall, er markahæstur í frönsku 1. deildinni, hefur skorað 14 mörk í 19 leikjum fyrir Auxerre.  CISSE kom til Liverpool í gær til að gangast undir læknisskoðun en kvaðst ekki vera búinn að skrifa und- ir samning, enda gæti hann það ekki þar sem hann væri samningsbund- inn Auxerre til 2005. „En ég leik örugglega með Liverpool á næsta tímabili,“ sagði Cisse.  BRASILÍSKI varnarmaðurinn Juan er farinn aftur frá Arsenal til Fluminense í heimalandi sínu. Juan náði aldrei að vinna sér sæti í liði Arsenal og var um tíma lánsmaður hjá Millwall.  THOMAS Gravesen, danski miðjumaðurinn hjá Everton, fór meiddur af velli gegn Norwich á laugardaginn. David Moyes, knatt- spyrnustjóri Everton, kvaðst vonast eftir því að hann yrði tilbúinn þegar lið hans mætir Arsenal í úrvalsdeild- inni á miðvikudagskvöld.  ROMAN Abramovich, eigandi Chelsea, sagði um helgina að Christian Chivu, rúmenski varnar- maðurinn hjá Roma á Ítalíu, væri efstur á sínum óskalista. „Við þurf- um á Chivu að halda, og við munum bjóða betur í hann en Manchester United,“ sagði Rússinn, sem hefur áhyggjur af varnarleik Chelsea.  CHIVU er 23 ára og hefur leikið með Roma í eitt ár. „Ég er undrandi á þessum mikla áhuga og það er heiður að vera eftirsóttur af tveimur stórum félögum eins og Manchester United og Chelsea,“ sagði Chivu. Forráðamenn Roma segja hinsvegar að ekki komi til greina að selja hann.  CHRIS Kirkland, markvörður Liverpool, verður lengur frá keppni vegna fingurbrots en talið var í fyrstu. Hann þarf að gangast undir aðgerð og leikur ekki næstu tvo mánuðina. Jerzy Dudek, varamark- vörður, var um helgina orðaður við þýska liðið Herthu Berlín og stað- festi að félagið hefði sýnt sér áhuga.  ALEX Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, staðfesti við Mail on Sunday í gær að hann hefði mikinn hug á að fá Arjen Robb- en, 19 ára hollenskan landsliðsmann, frá PSV Eindhoven. Robben kom í skoðunarferð til ensku meistaranna á föstudag. „Við höfum áhuga, það liggur ekkert fyrir ennþá en við von- umst eftir því að geta samið við PSV,“ sagði Ferguson. FÓLK Lið Charlton, sem vann nágranna-slagi gegn Chelsea og Totten- ham um jólin, var ekki svipur hjá sjón gegn baráttuglöðum grönnum þeirra úr Kent-héraði, suðaustur af London. Forráðamenn Gillingham voru afar ósáttir við kollega sína hjá Charlton fyrir leikinn, en þeir dreifðu ókeypis aðgöngumiðum á heimaleiki sína í úr- valsdeildinni á svæði sem liggur á milli félaganna og tilheyrir Kent. Charlton virtist eiga auðveldan leik fyrir höndum þegar heimamenn skor- uðu sjálfsmark eftir aðeins 35 sek- úndur. Gillingham, sem lék án níu sterkra leikmanna, tók hins vegar leikinn í sínar hendur og skoraði þrí- vegis á næstu 35 mínútum. Tommy Johnson, fyrrverandi sóknarmaður Celtic og Aston Villa, gerði jöfnunar- markið. Mark Carltons Coles á síð- ustu mínútunni breytti engu fyrir Charlton, 3:2 varð niðurstaðan og sig- ur Gillingham var verðskuldaður. Hermann lék allan leikinn í vörn Charlton og hefur oft spilað betur, eins og segja má um alla samherja hans. Scott Parker lék ekki með Charlton vegna veikinda og miðvall- arspil liðsins var fyrir vikið ekki upp á marga fiska. „Við vorum hreinlega ekki með og Gillingham beitti sömu aðferð gegn okkur og við höfum gert með góðum árangri gegn stóru liðunum í úrvals- deildinni. Þeir gáfu okkur engan frið og voru alltaf á undan í boltann. Þann- ig höfum við spilað í sex ár og nú feng- um við það í bakið. Við lékum illa en ég vil ekki draga úr frammistöðu Gill- ingham, sem vann verðskuldað, og flest lið úrvalsdeildar hefðu lent í vandræðum hér,“ sagði Alan Curb- ishley, knattspyrnustjóri Charlton. Úlfarnir heppnir gegn Kidderminster Harriers Wolves slapp fyrir horn gegn 3. deildarliði Kidderminster Harriers þegar fyrirliðinn Alex Rae jafnaði, 1:1, mínútu fyrir leikslok. Jóhannes Karl Guðjónsson sat á varamanna- bekk Wolves allan tímann. Úlfarnir sluppu heldur betur fyrir horn því 3. deildarliðið, undir stjórn Danans Jans Mölbys, réð ferðinni meginhluta leiksins og yfirspilaði úrvalsdeildar- liðið á köflum. Dave Jones, knatt- spyrnustjóri Wolves, viðurkenndi að sínir menn hefðu vanmetið andstæð- ingana. „Það var eins og þeir héldu að það væri nóg að mæta til leiks. Við hefðum getað stolið sigrinum í blálok- in en það hefði verið mjög ósann- gjarnt,“ sagði Jones.  Duncan Ferguson skoraði tví- vegis úr vítaspyrnum þegar Everton lagði topplið 1. deildar, Norwich, 3:1 á heimavelli sínum.  Portsmouth slapp fyrir horn á heimavelli gegn 2. deildarliði Blackpool. Nígeríski sóknarmaðurinn Aiyegbini Yakubu skoraði sigurmark- ið á lokamínútu leiksins, 2:1. Bolton lenti í vandræðum gegn 2. deildarliði Tranmere á útivelli, í Birk- enhead, hafnarborg Liverpool. Kevin Nolan jafnaði fyrir Bolton þegar 12 mínútur voru til leiksloka, 1:1.  Birmingham, með Mikael Fors- sell í aðalhlutverki, lék Blackburn grátt, 4:0, í slag úrvalsdeildarliðanna á St. Andrews. Sigurinn var sætur fyrir Birmingham sem steinlá með sömu markatölu fyrir Blackburn á heimavelli í deildaleik í desember. Hann var hins vegar dýrkeyptur því Matthew Upson, Stan Lazaridis og David Dunn, leikmenn Birmingham, fóru allir meiddir af velli. Leiknum seinkaði um 35 mínútur þar sem flóð- ljósin á vellinum biluðu í tvígang.  Fréderic Kanoute skoraði öll þrjú mörk Tottenham sem sigraði Crystal Palace örugglega, 3:0, í Lund- únaslag. Kanoute hefur átt í deilum við Tottenham að undanförnu þar sem hann vill spila með Malí í úrslit- um Afríkumótsins síðar í þessum mánuði og til tals hefur komið að hann fari frá félaginu.  Manchester City lék sinn tólfta leik í röð án sigurs en Nicolas Anelka skoraði bæði mörk liðsins þegar það gerði jafntefli, 2:2, við Leicester á heimavelli. Hann jafnaði í tvígang eft- ir að Paul Dickov og Marcus Bent höfðu fært Leicester forystuna.  Middlesbrough skoraði loks eftir fimm markalausa leiki en þurfti sjálfsmark frá 2. deildarliði Notts County til að komast á bragðið. Boudewijn Zenden innsiglaði sigur- inn, 2:0.  Stoke City nýtti ekki yfirburði sína gegn Wimbledon á nýjum heima- slóðum síðarnefnda liðsins í Milton Keynes og varð að sætta sig við jafn- tefli, 1:1. Charlton féll á eigin bragði í Gillingham HERMANN Hreiðarsson og fé- lagar í Charlton geta einbeitt sér að úrvalsdeildinni það sem eftir er vetrar. Þeir féllu óvænt út á fyrstu hindrun í ensku bik- arkeppninni á laugardaginn þegar þeir töpuðu fyrir ná- grönnum sínum í 1. deildarliði Gillingham, 3:2. Þrátt fyrir góða frammistöðu í úrvalsdeildinni á undanförnum árum, þar sem liðið er nú í fjórða sæti, gengur Charlton jafnan illa í bik- arleikjum gegn lægra skrifuðum liðum. AP Eiður Smári sækir að marki Watford í bikarleiknum á laugardaginn en Sean Dyche er til varnar. Eiður skoraði úr vítaspyrnu og var óheppinn að koma Chelsea ekki yfir í lok fyrri hálfleiks.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.