Morgunblaðið - 05.01.2004, Blaðsíða 4
ÍÞRÓTTIR
4 B MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ANDREA Gaines, þjálfari og leikmaður kvennaliðs Njarðvík-
ur í körfuknattleik, er ekki komin til landsins eftir jólafrí og
óvíst er hvort og þá hvenær hún kemur. Samkvæmt upplýs-
ingum Njarðvíkinga er hún í fangelsi í Maryland en þangað
fór hún 18. desember. Málavextir liggja ekki alveg fyrir en
samkvæmt þeim upplýsingum sem Njarðvíkingar hafa fengið
var skilríkjum hennar stolið í fyrra og svo virðist sem einhver
misindismaður noti þau nú í Flórída og þar er hún ákærð fyrir
að stela bíl.
Njarðvíkingar segja að allt hennar fas hér á landi hafi að-
eins bent til að þarna væri hin vænsta stúlka á ferð.
Gaines hefur leikið vel með Njarðvíkingum í vetur, gerði
23,3 stig að meðaltali í tíu leikjum í deildinni, tók þar 103 frá-
köst og átti 71 stoðsendingu. Án hennar átti lið Njarðvíkur
enga möguleika gegn toppliði ÍS á laugardaginn og steinlá á
heimavelli, 46:84.
Þjálfari Njarðvíkinga
í fangelsi
GRINDVÍKINGAR hafa fengið bandaríska
stúlku til liðs við kvennalið sitt í körfuknatt-
leik. Kesha Tardy lék sinn fyrsta leik með
Grindvíkingum á laugardaginn, lenti á
Keflavíkurflugvelli klukkan 16 og var mætt
til leiks í Keflavík klukkan 17.15. Hún var
stigahæst gestanna, gerði 16 stig auk þess
að taka sjö fráköst, en Keflavík vann leikinn
örugglega, 70:50.
Þá er ljóst að Daniel Trammel verður
ekki meira með karlaliði Grindavíkur í vet-
ur. Ákveðið var að framlengja ekki samn-
ing hans þar sem hann þótti ekki nægilega
sterkur sóknarmaður. Grindvíkingar eru
komnir með nýjan leikmann í sigtið en ekki
var búið að ganga frá neinu í gær.
Grindvíkingar
bæta við sig
HAUKAR hafa fengið annan Bandaríkja-
mann til liðs við sig í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik karla. Sá er Whithey Rob-
inson, lítill og snaggaralegur bakvörður
sem er æskuvinur Michaels Manciels, leik-
manns Hauka. Þeir léku saman tvö síðustu
árin í háskólaboltanum vestra og þekkjast
því vel, bæði innan vallar og utan. „Það
verður gaman að sjá hvernig þetta kemur
út, þeir eru góðir félagar og þetta er í
fyrsta sinn sem við tökum svona „par“ ef
svo má að orði komast,“ sagði Reynir
Kristjánsson, þjálfari Hauka, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Robinson verður með
Haukum á fimmtudaginn þegar liðið tekur
á móti Keflvíkingum í bikarkeppninni.
Robinson
til Hauka
Grindvíkingar mættu ákveðnari tilleiks í upphafskaflanum og
leiddu eftir fimm mínútna leik 14:20.
Njarðvíkingar
breyttu þá leikaðferð
sinni og spiluðu
pressuvörn og eftir
hvert skorað víti
spiluðu þeir hraðan sóknarleik sem
hentaði Páli Kristinssyni og Guðmundi
Jónssyni mjög vel og skoruðu þeir
hverja körfuna á fætur annarri. Í þess-
um leikkafla skoruðu Njarðvíkingar
tólf stig í röð og breyttu stöðunni úr
24:24 í 36:24. Grindvíkingar áttu í mikl-
um erfiðleikum með að svara þessu og
gerðu mikið af mistökum á þessum
kafla.
Í öðrum leikhluta kemur Halldór
Karlsson með góða innkomu og mikla
baráttu í leik heimamanna. Darrel
Lewis og Páll Axel Vilbergsson reyndu
hvað þeir gátu að svara þessu en
Njarðvíkingar voru alltaf skrefi á und-
an. Guðmundur Jónsson spilaði hreint
út sagt frábærlega í fyrri hálfleik og
skoraði fimm þriggja stiga körfur.
Staðan í hálfleik var 57:46.
Í seinni hálfleik héldu heimamenn
forrystuni allan tímann. Í byrjun
fjórða leikhluta virtust Grindvíkingar
vera að taka við sér og náðu að minnka
forystuna niður í átta stig. Undir lok
leiksins var staðan 98:90. Þá kom góð-
ur kafli hjá Ólafi Aroni Ingvasyni sem
tók tvö mjög mikilvæg fráköst og gaf
þrjár gullfallegar stoðsendingar sem
tryggðu Njarðvík endanlega sigurinn.
Bestu menn Njarðvíkur voru Páll
Kristinsson sem skoraði 29 stig og tók
8 fráköst, Friðrik Stefánsson sem
skoraði 15 stig og tók 12 fráköst, Bren-
ton Birmingham sem skoraði 19 stig
og Guðmundur Jónsson sem skoraði
17 stig, öll í fyrri hálfleik. Hjá Grinda-
vík voru það Páll Axel Vilbergsson og
Darrel Lewis ásamt Þorleifi Ólafssyni.
„Ég er mjög sáttur við þennan leik,
við spiluðum mjög vel. Ég var mjög
ánægður með hvernig Ólafur og Guð-
mundur spiluðu. Svo spilaði allt liðið
glimrandi körfubolta hér í kvöld. Þetta
gerir líka deildina skemmtilegri að
vinna hér í kvöld,“ sagði Friðrik Ragn-
arsson, þjálfari Njarðvíkur, í leikslok.
Hamar lagði Keflvíkinga
Hamar vann sinn fyrsta sigur fráupphafi á Keflvíkingum í
Hveragerði, 94:91, í gærkvöldi. Áður
hafði Hamar einung-
is unnið Keflavík
einu sinni, árið 2000 í
undanúrslitaleik í
bikar. Leikurinn var
jafn frá upphafi til enda og voru loka-
mínúturnar æsispennandi þar sem
Keflvíkingar jöfnuðu 87:87 einni og
hálfri mínútu fyrir leikslok, eftir að
hafa verið 10 stigum undir skömmu
áður. Þrátt fyrir að Derrick Allen
skoraði 36 stig og tæki 27 fráköst af
41 Keflvíkinga tapaði liðið og munaði
miklu að Keflvíkingar misnotuðu 7
vítaskot í 4. leikhluta.
„Þetta var liðssigur hjá okkur og
okkar hernaðaráætlun, að halda
leiknum jöfnum og vinna í lokin, gekk
upp. Ef Keflvíkingar ná að vinna upp
gott forskot á það lið sem þeir eru að
keppa við ekki mikla möguleika á
sigri og það vildum við koma í veg fyr-
ir. Allir leikmenn liðsins tóku þátt í
leiknum hjá okkur og stóðu sig frá-
bærlega, þá sérstaklega Hjalti Jón
Pálsson, sem er nýkominn úr þriggja
mánaða leyfi. Það eru ekki margir
leikir sem við höfum unnið á hreinum
hæfileikum en því meira sem við berj-
umst aukast sigurlíkurnar,“ sagði
Pétur Ingvarsson, þjálfari Hamars.
„Við vorum lélegir, drullulélegir og
sjálfum okkur verstir. Það var allt lé-
legt hjá okkur í kvöld, bæði vörnin og
sóknin, þetta var skammarlegur
körfubolti sem við buðum upp á.
Menn brenndu af vítum, misstu bolt-
ann, tóku ekki frí skot þegar þau gáf-
ust og hnoðuðust þess í stað inn í vörn
Hamars og misstu boltann. Við gerð-
um í raun allt í kvöld sem á ekki að
gera. Við mætum Haukum í bikarn-
um á fimmtudaginn og menn fengu
ærlega flengingu í kvöld til að vakna
fyrir þann leik,“ sagði Guðjón Skúla-
son, þjálfari Keflavíkur, eftir leikinn.
Enn sigrar Snæfell
Snæfell vann Tindastól, sem lék ánKristins Friðrikssonar, 78:71 í
gærkvöldi. Gestirnir léku upphafs-
mínúturnar mjög vel
og voru mun betur
stemmdir en heima-
menn, sem voru dá-
litla stund að finna
taktinn. Fyrri hálfleikurinn var hin
ágætasta skemmtun, hraður körfu-
bolti, barátta og fín hittni á báða bóga.
Var ekki að sjá að leikmenn væru að
koma úr jólafríi.
Liðin skiptust á um að hafa foryst-
una allan fyrri hálfleikinn, en Snæfelli
tókst þó að hafa fjögur stig yfir í leik-
hléi, 48:44. Á fyrstu fimm mínútunum
í síðari hálfleik náðu heimamenn að
auka forskotið í 15 stig og virtust ætla
að kafsigla gestina. Þessi kafli var
mjög góður í vörn hjá Snæfelli og náði
liðið einnig nokkrum góðum hraða-
upphlaupum. Eins og hendi væri veif-
að snerist leikurinn við; Tindastóll
bætti vörnina og Hólmararnir klúðr-
uðu hverri sókninni á fætur annarri. Í
lok þriðja leikhluta voru gestirnir
komnir með muninn í 6 stig og héldu
áfram að minnka hann í byrjun þess
fjórða. Um miðjan lokafjórðunginn
komust gestirnir yfir, 67:69, og mikil
spenna komin í leikinn. Við þetta tóku
leikmenn Snæfells vel við sér og
reyndust Tindastólsmönnum ofjarlar á
lokamínútunum.
Í liði Snæfells lék Hlynur Bærings-
son manna best, eins og hann hefur
gert undanfarið, öflugur á öllum svið-
um og barðist af miklum dugnaði.
Dondrell Whitmore átti ágætan dag,
sérstaklega þegar leið á leikinn, en get-
ur gert mun betur. Lýður Vignisson
stóð vel fyrir sínu og er liðinu mikil-
vægur á móti svæðisvörn. Corey Dick-
erson átti fína spretti en var mistækur
á milli. Sigurður Þorvaldsson traustur
að vanda en lenti í villuvandræðum.
Hjá gestunum lék nýi erlendi leik-
maðurinn, Nick Byod, mjög vel, tók
11 fráköst og skoraði 31 stig og styrk-
ir liðið mikið. Clifton Cook lék einnig
ágætlega þótt skorið hafi stundum
verið hærra. Þessir tveir leikmenn
skoruðu alls 52 stig af 71 stigi liðsins
alls.
Jólasteikin í aðalhlutverki
Jólasteikin og áramótagleðin hafagreinilega lagst vel í leikmenn
Breiðabliks og KR. Leikur þessara liða
í Smáranum í Kópa-
vogi bar þess öll
merki að leikmenn
hafa haft það fullnáð-
ugt um hátíðarnar því
ekki tókst þeim að sýna fína takta, ef
undan er skilinn síðasti fjórðungur
leiksins þegar KR-ingar áttu frábæra
rispu og skildu heimamenn eftir svo
um munaði. Vesturbæingar lönduðu
léttum 21 stigs sigri, 68:89.
Það var nokkuð létt yfir mönnum í
upphafi leiksins, liðin skoruðu samtals
45 stig, voru mörg hver af glæsilegri
gerðinni og sex þriggja stiga körfur.
Munurinn á liðunum var aðeins eitt
stig, 23:22, Breiðabliki í vil. Það virtist
því margt benda til þess að framundan
væri skemmtilegur leikur. Svo fór þó
ekki. Annar fjórðungur leiksins var
vægast sagt dapur, aðeins 28 stig skor-
uð og aðeins 3 stig skoruð úr 16 víta-
skotum liðanna. KR-ingar sýndu á
þessum kafla heldur meiri baráttu og
höfðu sanngjarna 5 stiga forystu í leik-
hléi, 34:39.
Sjálfsagt hafa þjálfarar beggja liða
lesið hressilega yfir sínum mönnum í
hálfleik, ræða Inga Þórs Steinþórsson-
ar, þjálfara KR, hefur þó verið öllu
magnaðri því lærisveinar hans skor-
uðu fyrstu 8 stigin í þriðja fjórðungi og
lögðu með því grunninn að sigri sínum.
Breiðabliksliðið gerði hvað það gat til
að minnka muninn en skorti til þess
bæði kraft og dug. KR hafði 11 stiga
forystu eftir þriðja fjórðung, 48:59, og í
síðasta hluta leiksins keyrðu þeir
hreinlega yfir Blikana skoruðu þá 30
stig gegn 20 og fögnuðu sigri.
Það var fyrst og fremst munur á lið-
unum í fráköstum, og þá sérstaklega í
síðustu tveimur leikhlutunum, sem réð
úrslitunum. KR-ingar hirtu 53 fráköst í leikn-
um, þar af 35 í vörninni, en Breiðablik hélt sig
nær meðaltalinu með 43 fráköst.
Josh Murray, sem lék sinn fyrsta leik í liði
KR eins og Trevor Diggs, fór á kostum í liði
KR í síðasta leikhlutanum en hann skoraði
alls 23 stig.
Góður endasprettur ÍR-inga
Hart var barist í Seljaskóla þegar ÍR-ingar tóku á móti Þór frá Þorlákshöfn
í gærkvöldi. Bæði liðin eru í neðri hluta
deildarinnar og hvorugt
hafði unnið sigur síðan í
annarri umferð mótsins.
Heimamenn voru sterkari
á lokasprettinum og fóru
með öruggan sigur af hólmi, 95:79, eftir að
aðeins munaði tveimur stigum á liðunum í
hálfleik, 47:45. Miklar breytingar hafa verið
hjá Þórsliðinu en nýr spilandi þjálfari, Ro-
bert Hodgson, og leikstjórnandi, Nate
Brown, spiluðu báðir sinn fyrsta leik. Þeir
áttu báðir góðan leik og hleyptu nýju lífi í
leik Þórsara. Brown skoraði 22 stig og
Hodgson 20. Botninn datt hins vegar úr leik
gestanna í þriðja leikhluta og það nýttu bar-
áttuglaðir ÍR-ingar sér vel og gerðu út um
leikinn. Eiríkur Önundarson var stigahæst-
ur ÍR-inga með 25 stig en skoraði 11 stig í
síðasta fjórðungnum. Næstur kom Eugene
Christopher með 24 stig. „Loksins féll sig-
urinn okkar megin, við náðum að komast í
gegnum ákveðinn múr í þriðja leikhluta en
leikur okkar hefur oftar en ekki dottið niður
Grindvíkingar
stöðvaðir
Bre
Davíð Páll
Viðarsson
skrifar
Helgi
Valberg
skrifar
Ríkharður
Hrafnkelsson
skrifar
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Andri
Karl
skrifar
NJARÐVÍK varð í gærkvöldi fyrst liða til að leggja Grindvíkinga í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik karla. Þeir grænklæddu höfðu betur,
sigruðu 104:95, en staða efstu liða breytist ekkert við þessi úrslit.
ÞEIR Falur Harðarson og Jón
Nordal Hafsteinsson voru ekki með
Keflvíkingum gegn Hamri í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í gær-
kvöldi. Guðjón Skúlason, sem þjálf-
ar Keflavík ásamt Fal, átti þó von á
að Jón yrði klár í næsta leik, en hins
vegar væri meiri spurning með Fal
hvenær hann yrði tilbúinn.
EPLUNUS Brooks, leikmaður
kvennaliðs ÍR í körfuknattleik, var
ekki mætt til leiks á laugardaginn
þegar ÍR mætti KR. Einhver mistök
urðu við bókun á flugi fyrir hana til
landsins og því missti hún af leikn-
um. Án hennar átti ÍR litla mögu-
leika gegn KR og steinlá, 38:77.
ÞRÓTTUR úr Vogum vann kæru
þá sem félagið sendi til dómstóls
KKÍ vegna leiks félagsins við B-lið
Ármanns/Þróttar í 2. deildinni í
körfuknattleik. Ármann/Þróttur
notaði leikmann sem ekki var á
skýrslu og var það jafnframt 11.
leikmaðurinn sem tók þátt í leikn-
um. Ármann/Þróttur vann 76:68 en
Þrótti úr Vogum hefur verið dæmd-
ur 20:0 sigur.
STEVE Howard skoraði 37 stig
fyrir Skallagrím sem sigraði Val,
93:78, í uppgjöri efstu liða 1. deildar
karla í körfuknattleik sem fram fór í
Borgarnesi á laugardaginn. Gjorgji
Dzolev var atkvæðamestur Vals-
manna með 21 stig. Skallagrímur er
nú með tveggja stiga forskot á
Fjölni og Val á toppi 1. deildar.
FJÖLNIR vann nauman sigur á
botnliði Hattar á Egilsstöðum,
87:84. Hjalti Vilhjálmsson skoraði
mest fyrir Fjölni, 27 stig, en Lav-
erne Smith skoraði 26 stig fyrir
Hött.
ÞJÓÐVERJAR unnu auðveldan
sigur á Austurríki, 33:20, í vináttu-
landsleik í handknattleik sem fram
fór í Augsburg í gær. Torsten Jan-
sen og Daniel Stephan skoruðu
mest fyrir þýska liðið, 5 mörk hvor.
SHAQUILLE O’Neal, körfubolta-
risinn hjá Los Angeles Lakers,
meiddist í byrjun leiks gegn Seattle
í NBA-deildinni um helgina og spil-
aði ekki meira með. Tvísýnt er með
næstu leiki hjá honum, sem kemur
sér illa fyrir Lakers því Karl Mal-
one er einnig frá vegna meiðsla.
Seattle vann leikinn, 111:109.
DIRK Nowitzki, þýski risinn,
skoraði 31 stig fyrir Dallas sem
sigraði Minnesota, 119:112. Jón
Arnór Stefánsson var ekki í leik-
mannahópi Dallas en hann hefur
ekki ennþá fengið tækifæri í leik í
deildinni.
ALLEN Iverson, stigahæsti leik-
maður NBA-deildarinnar, getur
byrjað að spila á ný með Phila-
delphia 76ers frá og með deginum í
dag. Hann hefur misst af síðustu 10
leikjum liðsins vegna meiðsla í hné
en án hans hefur lið 76ers tapað sjö
leikjum af tíu. Þó tókst því að sigra
meistara San Antonio á útivelli um
helgina.
FÓLK