Morgunblaðið - 21.01.2004, Side 2

Morgunblaðið - 21.01.2004, Side 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ bílar STEFÁN Tómasson hefur selt Kia- umboðið á Íslandi til Péturs Kjart- anssonar lögfræðings. Stefán keypti 50% hlut í fyrirtækinu þegar Jöfur hf. var lagt niður haustið 1999. Í maí 2000 keypti hann síðan hlut félaga síns. „Þetta var alveg viðunandi samn- ingur og ég er mjög sáttur,“ segir Stefán, sem ekki vill gefa upp sölu- verðið. „Það má segja það að ég hafi verið búinn að fá nóg af þessu. Auk þess var þetta góður tímapunktur til að selja. Við vorum búnir að klára eldri lager af bílum sem við tókum við af Jöfri og mikill fjöldi nýrra bíla er á leiðinni. Þá er verið að gera breyt- ingar á dreifingarkerfi Kia fyrir Evr- ópu. Nú hafa Norðurlöndin verið sett undir einn hatt, Kia Sweden AB. Við erum reyndar þeir einu, enn sem komið er, sem eru komnir undir þennan hatt fyrir utan Svíana,“ segir Stefán. Stefán segir að þetta leiði til þess að öll samskipti við Kia batni og hald- ið verði úti lager í Malmö þaðan sem bílar fyrir íslenskan markað munu koma. Von er á mörgum nýjum bílum frá Kia á næstu mánuðum. Í mars er væntanlegur Picanto, smábíll í A- flokki, og um svipað leyti kemur bíll í C-flokki, Cerato sem leysir af hólmi Shuma og Sephia. Í október er von á arftaka Sportage-jepplingsins og þá er eitt ár þangað til arftaki Rio kem- ur, sem er bíll sem svipar mjög til Hyundai Getz. „Þetta bar svo brátt að að ég hef ekki haft tíma til þess að hugsa um hvað ég taki mér fyrir hendur. Þetta var ekki bransi sem ég ætlaði í en svona þróaðist málið. Þetta hefur verið afskaplega skemmtilegur tími. Ég tók þátt í uppsveiflunni árið 2000 og síðan í niðursveiflunni 2001 og svo aftur í uppsveiflu. Ég hef því farið einn snúning á þessu eins og sagt er,“ segir Stefán. Hann verður nýjum eig- anda til aðstoðar fyrstu mánuðina. Pétur Kjartansson er menntaður lögfræðingur og rekstrarhagfræð- ingur og hefur starfað að útflutningi mestanpart síðustu 20 ár, m.a. á lýsi og mjöli. Hann segir að nýjum herr- um fylgi nýir siðir en í öllum aðal- atriðum verði reksturinn í óbreyttu formi. „Við ætlum að auka verkstæð- is- og varahlutaþjónustuna. Svo eru að koma nýir bílar á árinu sem höfða kannski til nýrra kaupenda,“ segir Pétur. Pétri líst vel á framtíðina í rekstr- inum. „Það lítur vel út fyrir góða bíla- sölu á árinu. Við ætlum heldur að efla okkar hlut en sem hlutur af heildinni erum við litlir. En við ætlum að sinna viðskiptavinum okkar.“ Pétur segir að það hafi ekki verið hagnaður upp á síðkastið hjá fyrir- tækinu. „Það eru sveiflur í þessu en meiningin er að snúa þessu við. Það fer alveg eftir umfanginu og þeim viðskiptum sem við náum hvort starfsmannafjöldinn verði óbreyttur. Hér er mannskapur sem þekkir mjög vel til sölu, viðhalds og varahluta. Ég er að læra af þeim á fullu núna,“ segir Pétur. Pétur Kjartansson kaupir Kia-umboðið Morgunblaðið/Árni Sæberg Pétur Kjartansson, nýr eigandi Kia-umboðsins í Hafnarfirði. ÞEIR sem ekki eru fæddir alveg í gær velkjast varla í vafa um tengsl- in við gamla Rúgbrauðið þegar þeir sjá myndir af Microbus-hug- myndabíl Volkswagen. Núna er Microbus að breytast úr hug- myndabíl í framleiðslubíl því VW hefur ákveðið að setja hann á mark- að á næsta ári. Línurnar í bílnum minna ekki svo lítið á Rúgbrauðið, sem svo var nefnt vegna lögunar bílsins, og setti svo eftirminnilega mark sitt á umferðarlandslagið um alla Evrópu allt frá sjötta og langt fram á níunda áratuginn. Bíllinn verður smíðaður í Þýska- landi en fyrst og fremst ætlaður fyrir Bandaríkjamarkað. Ekki kæmi þó á óvart að eftirspurn yrði tals- verð í Evrópu og VW sjái sig knúið að setja hann einnig á markað þar. Hönnuðir bílsins draga enga dul á það að helstu stíleinkenni Microbus eru sótt til gamla Rúgbrauðsins, ekki síst framendinn. Rúgbrauðið var með vélina aftur í sem gerði hönnuðum þess tíma kleift að hafa framendann brattan og án hefð- bundinnar vélarhlífar. Vélin verður að framan í Microbus en engu að síður hefur tekist að halda svip- uðum línum á framendanum. Micro- bus verður lítið með allt annars konar vél en gamla Rúgbrauðið. Þar er rætt um 3,2 lítra, V6 vél, 231 hestafla. Á hliðum bílsins verða stórar rennihurðir sem opnaðar eru með því að þrýsta á hnapp. Bíllinn verð- ur með stórum hjólaskálum þar sem pláss verður fyrir 20 tomm ál- felgur og dekk í stærðinni 245/45 R20. Bíllinn er ákaflega bjartur að inn- an, þökk sé stórum þakgluggum. Bíllinn er ætlaður fyrir bandarískan markað. Ólíklegt er að framleiðslubíllinn verði jafn nýstárlegur að innan. Þótt vélin sé komin fram í er fram- endinn ennþá jafn brattur. Nýtt Rúgbrauð á næsta ári SALA á mótorhjólum jókst tals- vert á síðasta ári. Athygli vekur samt að megnið af hjólunum eru torfæruhjól enda ríkir mikill áhugi hérlendis á öllu sem tengist mót- orhjólasporti. Yamaha er með langmesta markaðshlutdeild í báð- um flokkum og annað stærsta merkið er hið rótgróna bandaríska Harley Davidson.                            !"  #   $ %  !#&#'!())* + ,-   /   *) 01 0* 0( 0) ( 12        ,&3 45 .   /   20 *6 *7 (7 (2 062               !"  #   $ !#&#'!())* Yamaha langmest selt Á SÍÐUSTU bíla- sýningu í Frankfurt snerist allt um af- hjúpun á nýjum 911 Turbo blæjubíl. Þetta þykir stór- viðburður í heima- landi Porsche þótt mörlandanum þyki kannski almennt minna til þess koma, enda ekki á allra færi að eign- ast slíkan kosta- grip. Engu að síður gefst áhugasömum nú kostur á því að berja gripinn aug- um næstu daga því Bílabúð Benna hefur flutt inn einn bíl, sem reyndar þegar er seldur til Evrópu. Bílaáhuga- menn hafa ekki látið þetta fram hjá sér fara og tveir breskir ferðamenn, sem staddir voru hér á landi, kom það ánægjulega á óvart að sjá þennan bíl hér uppi við heimskautsbaug og endaði heimsókn þeirra í Bílabúð Benna með því að þeir keyptu báðir Porsche bíla af fyrirtækinu. Bíllinn er með 3,6 lítra vél sem skilar 620 Nm togi við 2.700–4.600 snúninga á mín- útu. Hestöflin eru mæld 450. Hann er með sex gíra kassa og drifi á öllum hjólum. Þó fer ekki nema 5% af átakinu til framhjól- anna við allan venjulegan akstur en um leið og þörf er á færist allt að 40% af átakinu til fram- hjólanna. Þetta er bíll í algerum sér- klassa hvað varðar hröðun og aksturseiginleika. Hann er 4,1 sekúndu úr kyrrstöðu í 100 km og 8,9 sekúndur úr 0–160 km/ klst. Hámarkshraðinn er 310 km/klst. og hann er ekki nema 2,4 sekúndur að bremsa sig nið- ur í kyrrstöðu úr 100 km hraða. Sem sagt borinn og barnfæddur fyrir þýskar hraðbrautir. Porsche Turbo Cabriolet sýndur Bíllinn er til sýnis hjá Bílabúð Benna næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.