Morgunblaðið - 21.01.2004, Page 4

Morgunblaðið - 21.01.2004, Page 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ bílar 480 8000 SELFOSSI Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is 480 8000 Toyota Land Cruiser 100 TDI 35" árg. 2000, ek. 104 þús., sjálfsk., leður, lúga, TEMS. Verð 5.390 þús. Subaru Forester Turbo árg. 1998, ekinn 93 þús., sjálfsk., dráttarkr. Áhv. 1.150 þús. Tilboð 1.450 þús. Honda CRV árg. 1998, ekinn 74 þús., 5 gíra, dráttarkr. Verð 1.150 þús. Renault Megane 1600 Break W/G árg. 2000, 5 gíra. Verð 1.090 þús. Toyota Landcruiser 90 VX 33" árg. 2000, ekinn 193 þús., sjálfsk., Common rail, leður. Verð 2.950 þús. Hyundai Terracan GLX 35" árg. 2003, ekinn 1 þús., sjálfsk. Verð 4.050 þús. TALSVERÐUR þróttur virðist ríkjandi í Land Rover um þessar mundir, sem nýlega setti á markað gerbreyttan Range Rover. Á bíla- sýningunni í Detroit sýndi fyrirtækið hugmyndajeppann Range Stormer, sem vakti verðskuldaða athygli, og nýlega kom jafnframt á markað önn- ur kynslóð jepplingsins Land Rover Freelander. Framundan er síðan grundvallarbreyting á Discovery. Land Rover hefur undanfarin misseri verið að feta sig inn á svo- kallaðan „premium“-markað, sem felur í sér að meira er lagt í hönnun og búnað bílanna og þess sér jafn- framt stað í hærra verði. Nýi Free- lander-inn er til marks um þetta. Honum var reynsluekið á dögunum í SE-gerð og með dísilvél. Mikið breyttur í útliti Útlitslega er um mikið breyttan bíl að ræða, en samt er haldið í grunnformin sem strax í upphafi voru vel heppnuð. Freelander er að mati undirritaðs með fallegri jepp- lingum sem á markaði eru. Margt hefur nýi bíllinn fengið lánað frá Range Rover, eins og t.a.m. tvöfald- ar framlugtirnar en framendinn er í alla staði vel heppnaður á nýja bíln- um og aðgreinir hann svo um munar frá keppinautunum. Grillið er fremur lítið og situr inni í þykkum bita sem endar undir bílnum sem hlífðar- panna – reyndar úr plasti. Slíka pönnu er einnig að finna aftan á bíln- um. Á þykkum framstuðurunum eru þokuljós og útstæðir brettakantar úr svörtu plastefni eru yfir hjólunum. Bíllinn virkar kraftalegur en um leið fágaður. Sömu utanmál Þótt um aðra kynslóð sé að ræða er hér þó fyrst og fremst á ferðinni andlitslyfting því Freelander er eins og eldri gerðin í öllum málum og boð- ið er upp á sömu vélarlínuna, þ.e. 2ja lítra dísilvél, 1,8 lítra bensínvél og V6 bensínvél. Aðrar stórar breytingar er ný inn- rétting, sem einnig sækir margt til Range Rover. Stýrið er fremur lítið og þykkt og þægilegt að handfjatla. Fjarstýring fyrir hljómtæki eru í stýrinu. Sætin eru með góðan hlið- arstuðning og í SE-gerðinni eru þau klædd alcantara-efni, sem minnir mest á rúskinn, og á hliðum er leður. Engin hæðarstilling er á sætunum, sem er ókostur, því ökumaður situr hátt og þeir sem eru hávaxnir hefðu þurft að eiga þess kost að lækka set- una. Freelander er jepplingur í besta skilningi þess orðs. Hann er með sí- tengdu fjórhjóladrifi og fæst bæði handskiptur og sjálfskiptur. Sjálf- skipta gerðin var prófuð og býður Land Rover upp á skemmtilega, fimm þrepa sjálfskiptingu með hand- skiptivali. Athygli vekur hönnunin á gírstangarhnúðnum og frágangur- inni í kringum hann – afar smekklegt og nútímalegt, og talsvert í anda Range Rover. Engin raketta Rafmagn er í öllum rúðum og speglum, ágæt hljómtæki með geislaspilara og þarna er líka að finna loftkælingu en miðstöðin er reyndar handstýrð og ekki hægt að velja nákvæmt hitastig. Einnig er í bílnum spólvörn og HDC, svokallað hallaviðhald; búnaður sem stýrir sjálfvirkt hraða og hemlun bílsins þegar farið er niður brattar brekkur. Þá kemur hann á 16 tomma álfelg- um. Athygli vekur þó að ekki eru líknarbelgir nema fyrir ökumann og farþega í framsæti. Hátt verð Eins og áður sagði var Freelander prófaður að þessu sinni með dísilvél. 2ja lítra dísilvélin er með samrásar- innsprautun og því af nýjustu gerð. Hún er fremur lágvær en bíllinn er alls engin raketta með þessari 112 hestafla vél. Upptakið er t.a.m. heilar 14,3 sekúndur, en vélin togar ágætlega og vinnur vel með sjálf- skiptingunni þegar þjóðvegahraða er náð. Bíllinn er líka vel einangraður, jafnt frá vegi, vél og vindgnauði. Fyrir bíl sem á að heita í „prem- ium“-flokki hefði samt mátt búast við meiri búnaði. Jafnvel nokkuð sjálf- sagður búnaður eins og fleiri líkn- arbelgir, hiti í sætum og ögn þróaðri miðstöð, þ.e.a.s. tölvustýrð miðstöð, er ekki til staðar í bílnum. Hvað þá sértækari búnaður, sem þó er farinn að verða algengari jafnvel í bílum, eins og regnnemi í rúðum, aksturs- tölva, hraðastillir og fleira. En það er líka fleira falið í „premium“ en ein- göngu búnaður og það mikilvægasta er kannski smíðagæði, aksturseigin- leikar og afl. Land Rover hefur fram til þessa ekki verið mjög bilanafrír bíll og til eru jepplingar með betri aksturseiginleika í borginni, að mati undirritaðs. Það er því vandséð, enn að mati undirritaðs, hvaða erindi Land Rover á með Freelander í „premium“-flokk, sem þeir virðast ætla sér að gera, altént ef litið er til verðlagningar á bílnum. Prófunar- bíllinn kostar nefnilega tæplega fjór- ar milljónir kr., sem er umtalsvert hátt verð fyrir hvaða jeppling sem er, jafnvel þótt hann sé eins glæsi- legur útlits og Freelander. Framendinn er gerbreyttur á Freelander og sömuleiðis innréttingar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Með hnappi í mælaborði er hægt að opna rúðuna á afturhleranum. Freelander – ekki alveg tilbúinn í „premium“ Bíllinn var prófaður með 112 hestafla samrásardísilvél. Innréttingin er sérlega glæsileg í nýjum Freelander. gugu@mbl.is REYNSLUAKSTUR Land Rover Freelander Guðjón Guðmundsson Vél: Fjórir strokkar, 1.951 rúmsentímetri, 8 ventlar, samrásarinnsprautun. Afl: 112 hestöfl við 4.000 snúninga á mínútu. Tog: 260 Newtonmetrar við 1.750 snúninga á mínútu. Drifkerfi: Sítengt fjórhjóladrif. Gírskipting: Fimm þrepa sjálfskipting með handskiptivali. Hámarkshraði: 161 km/klst. Hröðun: 14,3 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Eyðsla: 11,2 lítrar innanbæjar, 8,6 lítrar í blönduðum akstri. Lengd: 4.437 mm (með varahjóli). Breidd: 2.071 mm (með speglum). Hæð: 1.828 mm (með þakboga). Eigin þyngd: 1.555–1.640 kg eftir búnaði. Minnst veghæð: 18,6 cm. Farangursrými: 546–1.319 lítrar. Verð: 3..950.000 krónur. Umboð: B&L hf. Land Rover Freelander Td4 SE

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.