Morgunblaðið - 09.02.2004, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 B 7
Derrick Allen var að sjálfsögðu
glaður í búningsherbergi Keflavík-
urliðsins eftir sigur þess í Bik-
arkeppni KKÍ. Félagar hans spör-
uðu ekki stóru orðin til þess að lýsa
leik hans, 29 stig og 20 fráköst, en
Allen var ekki á því að hann væri
nú þegar kominn í hóp bestu er-
lendu leikmanna Keflvíkinga frá
upphafi.
„Ég hef séð leiki með Keflavík
þar sem margir mjög góðir leik-
menn hafa komið við sögu. Ég lék
aldrei með Damon Johnson, en mið-
að við þá leiki sem ég hef séð með
honum þá er hann gríðarlega góður
leikmaður. En ég reyni ávallt að
gera mitt besta.“
Leikur þú alltaf á sama hraða frá
upphafi til enda?
„Já, ég kann ekki annað. Það
skiptir engu máli hvort það er gegn
2. deildarliði eða frönsku stórliði.
Ég gef mig í leikinn frá fyrstu mín-
útu og hef gaman af því sem ég er
að gera. Þetta er fyrsta tímabilið
mitt hér á landi en ég bjóst við að
deildin væri erfið. Umboðsmaður
minn hafði sagt mér frá því að hér
væri leikinn góður körfubolti og
hér fengi ég tækifæri til þess að
verða enn betri. Ég var heppinn að
lenda hjá liði eins og Keflavík og
við ætlum okkur að vinna alla þá
titla sem í boði eru í vetur. Íslensku
strákarnir standa sig vel. Þeir
leggja mikið á sig til þess að verða
betri og við sem erum atvinnumenn
verðum að sýna hvað í okkur býr í
hvert sinn sem mætum á æfingu.“
„Ég var heppinn að lenda
hjá liði eins og Keflavík“
KARLALIÐ Keflavíkur varð á
laugardag fyrsta félagið í áratug til
að verja bikarmeistaratitil sinn en
þeir afrekuðu slíkt hið sama árið
1993 og 1994. Keflavík vann enn-
fremur tvöfalt í Höllinni í fjórða sinn.
Þá vann Keflavík tvöfaldan bikarsig-
ur 1993, 1994 og 1997 en KR (1977)
og ÍS (1978) eru einu félögin sem
hafa afrekað slíkt.
KEFLAVÍK hefur unnið bikar-
meistaratitilinn fimm sinnum og í
fyrsta sinn árið 1993 er liðið lagði
Snæfell, 115:76. Árið 1994 vann liðið
Njarðvík, 100:97. KR var lagt árið
1997, 77:66, Snæfell á ný í fyrra,
95:71, og nú Njarðvík, 93:74.
ÁRNI Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, var í athyglisverðum
búningi á bikarúrslitaleik karla en
það var keppnistreyja sem var sam-
ansett úr búningum beggja liða.
SÖNGVARINN Kalli Bjarni sem
sigraði í Idol Stjörnuleit á Íslandi
söng nokkur lög fyrir leik Keflavík-
ur og Njarðvíkur. Og hann var aftur
á ferðinni í hálfleik.
FANNAR Ólafsson, miðherji
Keflavíkur, gat ekki leikið með lið-
inu að þessu sinni en hann brotnaði á
þumalfingri fyrir nokkrum vikum.
Fannar telur að hann verði ekki klár
í slaginn fyrir en eftir tvær til þrjár
vikur til viðbótar.
EGILL Jónasson lék ekki með
Njarðvíkingum í bikarúrslitaleikn-
um en hinn 2,14 metra hái miðherji á
við veikindi að stríða og óljóst hve-
nær hann verður með á ný.
FÓLK
Morgunblaðið/Þorkell
Arnar Freyr Jónsson lét mikiðað sér kveða með liði Kefla-
víkur í sínum fyrsta bikarúrslita-
leik, enda pilturinn aðeins tvítug-
ur, og á framtíðina fyrir sér. Arnar
Freyr fékk að vita það rétt fyrir
leikinn að hann yrði í byrjunarlið-
inu og var greinilegt að hann hafði
búið sig vel undir átökin enda
skoraði hann 20 stig, gaf 9 stoð-
sendingar og „stal“ knettinum
fimm sinnum frá Njarðvíkingum.
„Ég vissi ekki hvort ég fengi að
spila mikið, en hafði farið í gegn-
um leikinn margoft í huganum áð-
ur en Guðjón og Falur tilkynntu
byrjunarliðið. Það var eins og allt
gengi upp í þessum leik. Ég skor-
aði auðveldar körfur í upphafi
leiksins og sjálfstraustið var í
botni eftir það. Þetta er án efa eft-
irminnilegasti leikur sem ég hef
leikið fram til þessa. Það skipti
engu máli hver var í vörninni gegn
mér í dag, ég fór bara framhjá
þeim,“ sagði Arnar Freyr og
skellihló enda fylgdust félagar
hans í Keflavíkurliðinu vandlega
með þegar „nýjasta stjarna“ liðs-
ins var tekin tali. Spurður hvort
titlinum yrði fagnað innilega sagði
Arnar Freyr:
„Nei, ætli við tökum ekki bara
spólu og höfum það huggulegt.“
Gunnar Einarsson, fyrirliði
Keflvíkinga, var afar sáttur við
dagsverkið.
„Við lékum að mínu mati einn
besta leik okkar í vetur. Ekkert ís-
lenskt lið hefði unnið okkur í dag.
Svo einfalt er það.
Arnar Freyr var maður leiksins
að mínu mati, og hann hefur sýnt
svona leiki áður, m.a. í Evrópuleik
í Portúgal. Allen var líka frábær,
og sá besti sem hefur leikið undir
körfunni í Keflavíkurbúningi,“
sagði Gunnar.
„Sjálfstraust-
ið var í botni“
Morgunblaðið/Þorkell
Maður leiksins, Arnar Freyr
Jónsson, skorar gegn lands-
liðsmiðherjanum, Friðriki
Stefánssyni úr Njarðvík.
AÐ venju voru bikarúrslitaleikir
karla og kvenna í körfuknattleik í
beinni sjónvarpsútsendingu í Rík-
isútvarpinu. Í einu horni vallarins
var heljarstór krani, sem upp-
tökuvél var fest á endann á. Halldór
Karlsson, leikmaður Njarðvíkinga,
var ekki sáttur við staðsetningu
kranans í eitt sinn er hann reyndi
þriggja stiga skot í horninu þar sem
kraninn var.
Skotið geigaði hjá Halldóri enda
fór knötturinn í kranann sem var í
skotlínunni. Hann lét óánægju sína í
ljós við þann sem stjórnaði kran-
anum og Leifur Garðarsson, dómari
leiksins, lét eftirlitsmann leiksins,
Kristin Albertsson, vita af atvikinu.
Fleira var ekki gert vegna atviksins.
Reyndar er þetta ekki í fyrsta sinn
sem þetta gerist því í bikarúrslita-
leik Snæfells og Keflvíkinga fyrir ári
lenti Lýður Vignisson, leikmaður
Snæfells, í svipuðu atviki.
Halldór skaut í kranann
ÞETTA gekk ekki upp hjá okkur að
þessu sinni. Aðdragandi leiksins var
undarlegur þar sem ég vissi ekki
hvaða leikmenn ég hafði til umráða.
Hvað sem aðrir segja þá var óvissa
með þá Brandon Woudstra og Bren-
ton Birmingham, Páll Kristinsson
var í leikbanni og ég þurfti því að
raða saman „nýju“ liði á nokkrum
dögum. Það virkaði enfaldlega ekki
í þessum leik,“ sagði Friðrik Ragn-
arsson, þjálfari Njarðvíkinga.
Spurður hvort það hefðu verið
mistök að fá Larry Bratcher til liðs-
ins sagði Friðrik að það væri auðvelt
að vera vitur eftir á. „Ég get sagt
það núna eftir leikinn að líklega of-
mátum við eiginleika hans og ég
hefði frekar átt að láta ungu strák-
ana axla meiri ábyrgð í leiknum. En
við tókum ákveðna áhættu í þessum
leik, það tókst ekki. Ég óska Keflvík-
ingum til hamingju með titilinn, þeir
áttu skilið að vinna að þessu sinni.
„Gekk
ekki upp“
HJÖRTUR Harðarson, leikmaður
Keflvíkinga, fékk ekki mikinn tíma
til þess að undirbúa sig fyrir leik-
inn enda stýrði hann kvennaliðinu
til sigurs fyrr um daginn og hamp-
aði þvítveimur bikarmeistaratitlum
á sama deginum. Slíkt er reyndar
ekki nýlunda í herbúðum Keflvík-
inga því Sigurður Ingimundarson,
landsliðsþjálfari karla, afrekaði
slíkt hið sama tvívegis, sem þjálfari
kvennaliðs Keflavíkur og leik-
maður Keflavíkur.
„Ég vissi að þetta yrði langur
dagur en hafði ekki miklar áhyggj-
ur af okkar leik þar sem breiddin
er það mikil og álagið því ekki
gríðarlegt. Þetta verður líklega í
fyrsta og eina skiptið sem ég upp-
lifi tvo bikartitla á sama degi.
Kvennaleikurinn tók á, enda mikil
spenna undir lokin. Ég var því and-
lega tilbúinn í leikinn en það eina
sem vantaði var að ég gæti borðað
fyrir karlaleikinn. Eitt rúnnstykki
með osti og smjöri var það eina
sem ég kom niður fyrir leikinn. En
það virkaði vel. Við vissum að
Brenton Birmingham og Friðrik
Stefánsson áttu að axla ábyrgðina
hjá Njarðvík og við ákváðum að
láta þá aldrei í friði. Undir lok
leiksins voru þeir orðnir lúnir en
okkar lið átti mikið inni,“ sagði
Hjörtur.
Tveir titlar
hjá Hirti
steinsson fögnuðu vel er Gunnar Einarsson fyrirliði hóf bikarinn á loft í fimmta sinn í sögu félagsins.