Morgunblaðið - 09.02.2004, Side 12
Fram byrjaði ágætlega í leiknumog hafði frumkvæðið þar til KA
breytti stöðunni úr 6:7 í 11:7. Leik-
urinn jafnaðist á ný
en í stöðunni 12:11
settu heimamenn í
fluggír og höfðu
góða forystu í leik-
hléi, 17:11. Arnór Atlason skoraði
sitt 10. mark í upphafi seinni hálf-
leiks og kom KA í 18:11 en þá fóru
gestirnar að rétta úr kútnum og
minnkuðu muninn í þrjú mörk.
Tíðir brottrekstrar drógu þó
tennurnar úr Fram. Guðlaugur
Arnarsson fékk sína þriðju brott-
vísun, Heimir Ríkarðsson þjálfari
fékk dæmda brottvísun fyrir mót-
mæli og um tíma voru Framarar 3
leikmönnum færri. KA gekk á lagið
og komst í 28:22 en þá skoraði Héð-
inn Gilsson 4 mörk í röð fyrir Fram
á örskömmum tíma og skyndilega
komin spenna í leikinn, staðan
28:26 og 6 mín. eftir. Enn misstu
Framarar mann út af og Árni
Björn Þórarinsson skoraði mikil-
vægt mark fyrir KA og eftir það
var sigurinn í höfn.
Fullyrða má að í liði KA séu tveir
af bestu handknattleiksmönnum
landsins, þeir Arnór Atlason og
Andrius Stelmokas. Arnór er enn í
sama landsliðsforminu og fyrir jól
og skoraði hann 12 mörk í leiknum,
þar af 9 í fyrri hálfleik. Stelmokas
tók við keflinu í seinni hálfleik og
skoraði þá 7 mörk og 9 alls. Hans
Hreinsson varði vel og vörnin var
góð á köflum. Framarar fóru langt
með að jafna leikinn í seinni hálf-
leik þegar Héðinn hrökk í gang og
vörnin sömuleiðis en sóknarleikur
KA riðlaðist mjög er Arnór var tek-
inn úr umferð. Egidijus Petkevicius
var þó besti maður liðsins með hátt
í 20 skot varin. Þá lék Valdimar
Þórsson vel í fyrri hálfleik.
Arnór Atlason var kátur í leiks-
lok. „Við settum okkur það mark-
mið að ná þessum 4 stigum í deild-
inni fyrir bikarleikinn á
þriðjudaginn og það tókst. Mér
fannst við spila vel í leiknum en
vissulega er slæmt að missa foryst-
una svona niður eins og gerðist í
seinni hálfleik. Þetta þurfum við að
laga, sagði Arnór.
Heimir Ríkarðsson, þjálfari
Fram, var afar ósáttur við dóm-
gæsluna í leiknum. „Þetta var
hreinn skandall. Þessir dómarar
ætluðu KA-liðinu sigur og þeir
gerðu allt sem þeir gátu til þess.
Við áttum einfaldlega aldrei mögu-
leika og það er skömm að þessu.
Það er ekkert eðlilegt þegar leik-
maður úr liði andstæðinganna kem-
ur til manns og nánast biðst afsök-
unar á dómgæslunni,“ sagði
Heimir. Framarar þurftu að vera
utan vallar í 22 mínútur í leiknum
en KA-menn í 10 mínútur.
Morgunblaðið/Kristján
Andrius Stelmokas KA-maður skoraði mörk í öllum regnbogans litum í leiknum gegn Fram.
KA-menn á
fljúgandi ferð
ALLT gengur KA-mönnum í hag í upphafi leiktíðar í úrvalsdeildinni
og ljóst að liðið ætlar að vera í toppbaráttunni. Í gær vann liðið Fram
31:28 og þurfa piltarnir úr Safamýrinni að taka sig saman í andlitinu
ef þeir eiga ekki að heltast úr lestinni. Reyndar voru þeir ekki
ánægðir með dómgæsluna í KA-heimilinu og víst gerði það þeim
erfitt um vik að missa menn af velli í gríð og erg.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
PÉTUR Eyþórsson úr Ung-
mennafélaginu Víkverja
bar sigur úr býtum í 92.
skaldarglímu Ármanns sem
haldin var í Hagaskóla í dag
en sex keppendur mættu til
leiks. Pétur fagnaði sigri
eftir að úrslitaglímu við Jón
Egil Unndórsson, KR, sem
hafnaði í öðru sæti en báðir
hlutu þeir 4,5 vinninga.
KR-ingurinn Helgi
Bjarnason varð þriðji en
þrír efstu menn hafa allir
borið sigur úr býtum í
Skjaldarglímunni. Pétur
Eyþórsson í fjórða skiptið
(1999, 2001, 2003 og 2004),
Jón Egill (1984), og Helgi
(1982). Ásgeir Víglundsson,
KR, varð fjórði með 2 vinn-
inga, Helgi Hansen, Fjölni,
fimmti með 1 vinning og
Hlynur Hansen, Fjölni, var
sjötti með engan vinning.
Yfirdómari á mótinu var
Hörður Gunnarsson.
Pétur vann
Skjaldar-
glímu Ár-
manns í
fjórða sinn
LANDSLIÐSMAÐURINN Tryggvi
Guðmundsson skrifar í dag undir
þriggja ára samning við sænska úr-
valsdeildarliðið Örgryte og þar
með verða þrír íslenskir leikmenn í
herbúðum félagsins. Fyrir eru Atli
Sveinn Þórarinsson, sem gekk til
liðs við félagið fyrir fjórum árum,
og Jóhann Birnir Guðmundsson en
hann skipti yfir í Örgryte frá hinu
norska Lyn á dögunum.
„Ég er feginn að það skuli loks
vera komin niðurstaða hjá mér og
óvissunni sé eytt þó svo að þetta
hafi verið allt annað en það sem ég
ætlaði mér. Hugur minn leitaði til
Englands eða meginlands Evrópu
en meiðslin settu heldur betur strik
í reikninginn hjá mér hvað þetta
varðar,“ sagði Tryggvi við Morg-
unblaðið í gær.
Tryggi hefur leikið undanfarin
sex ár í Noregi, fyrst með Tromsö
og síðan Stabæk, alls 142 leiki og
skoraði 59 mörk í þeim leikjum.
„Ég fer með jákvæðum huga til
Svíþjóðar og ég held að það geti
orðið spennandi að spila í sænsku
deildinni. Áhuginn hefur aukist í
Svíþjóð og eftir því sem ég best veit
er spilaður skemmtilegri fótbolti í
Svíþjóð en í Noregi. Svo skemmir
ekki fyrir að hitta tvo landa sína hjá
Örgryte,“ sagði Tryggvi, sem held-
ur með nýjum félögum sínum í
þriggja vikna æfingaferðlag til
Brasilíu síðar í þessum mánuði en
keppni í sænsku úrvalsdeildinni
hefst í byrjun apríl.
Tryggvi verður sjöundi íslenski
knattspyrnumaðurinn til að klæð-
ast búningi Örgryte. Hinir sex eru
Atli Sveinn Þórarinsson, Jóhann B.
Guðmundsson, Rúnar Kristinsson,
Brynjar Björn Gunnarsson, Sig-
urður Björgvinsson og Örn Ósk-
arsson.
Tryggvi
semur við
Örgryte
KARLALIÐ Skagamanna í knatt-
spyrnu fer í æfingaferð til Þýska-
lands í apríl nk. og er verið að vinna í
því að fá æfingaleiki við varalið þýsku
liðanna Bochum og Dortmund. Ólaf-
ur Þórðarson þjálfari ÍA sagði í gær
að Þórður Guðjónsson, fyrrum leik-
maður ÍA og núverandi leikmaður
Bochum, væri þeim innan handar í
þessu máli sem væri þó á frumstigi
enn sem komið er.
JERRY Sloan, þjálfari NBA-liðsins
Utah Jazz, hefur nú unnið 900 leiki á
ferli sínum sem þjálfari en tímamóta-
leikurinn var gegn Phoenix Suns. Að-
eins átta þjálfarar hafa afrekað það
að vinna 900 leiki en Sloan er á 16 ári
sínu sem þjálfari Utah.
LENNY Wilkens, þjálfari New
York, er með 1.300 sigurleiki á fer-
ilskrá sinni og er efstur á þessum
lista. Don Nelson, Dallas, er með
1.128 sigurleiki. Næstur kemur Pat
Riley, 1.110, Bill Fitch, 944, Red
Auerbach, 938, Dick Motta, 935, og
Larry Brown, Detroit Pistons, 912.
KOBE Bryant lék ekki með Los
Angeles Lakers í NBA-deildinni í
nótt gegn Orlando, vegna meiðsla á
hendi. Bryant skar sig á hendi 29.
janúar er hönd hans fór í gegnum
gler á hurð. Ekki hafa verið gefnar
nánari skýringar á þessu atviki.
GRANT Hill, leikmaður Orlando
Magic, hefur ákveðið að reyna að
leika á ný með liðinu á þessari leiktíð
en hann hefur aðeins leikið 47 leiki á
síðustu þremur árum vegna meiðsla í
ökkla. Hill lék síðast með Magic í des-
ember árið 2002 en hann hefur farið í
þrjár aðgerðir á ökklanum frá því að
hann kom frá Detroit Pistons árið
2001.
LEBRON James, nýliði Cleveland
Cavaliers í NBA-deildinni, segir að
hann muni þiggja boð um að taka
sæti í Stjörnuliði austurstrandarinn-
ar ef einhverjir leikmenn liðsins geta
ekki tekið þátt vegna meiðsla.
ÞAÐ kom flestum á óvart að hann
skyldi ekki vera valinn í liðið af þjálf-
urum deildarinnar og er liðið var til-
kynnt sagði James að hann hefði ekki
áhuga á að taka sæti þeirra sem meið-
ast. En nú hefur honum snúist hugur.
FÓLK