Vísir - 07.04.1981, Side 15
14
VÍSIR
Þriöjudagur 7. april 1981
Þriöjudagur 7. april 1981
VISIR
15
- segir Arnór Pétursson. ípróttafélagi
fallaðra i Reykjavík
„Vildi geta
tekii að-
stðöuna
upp á land!”
LEIÐINNI TIL EYJfl"
- segir Sigurrós Osk Karlsdóttir. íprðttaiélagi tatlaðra á Akureyrl
„Eg er mjög ánægð með mótiö i
allastaöi. Þaðhefur gengið vel og
aðstaða hér er afar góð”, sagði
Sigurrós Ósk Karlsdóttir, Iþrótta-
félagi fatlaöra, Akureyri, i sam-
tali við Visi.
„Þetta mót er likt öðrum að þvi
leytinu til, að það er hvorki erfið-
ara né léttara. Þetta er búið að
ganga svona upp og niöur hjá
mér, ég er búin að fá tvenn gull-
verölaun og eitt brons, og komst i
úrslit f tvíliðaleik i borðtennis, en
i þeirri grein hef ég aldrei keppt
áður.
Ég varð svolitið sjóveik á leið-
inni til Eyja, en þaðer gleymt. Eg
er mög þakklát fyrir að fá að
komast til Vestmannaeyja til að
heilsa upp á ættingja og vini, en
ég hef aldrei komið til Eyja áður.
Aölokum langar mig til þess að
þakka öllum fyrir þær góðu mót-
tökur,sem viðhöfum fengið hér”.
..VflRÐ SJÓVEIK fl
gerandi. Dæmin eru svo beint
fyrir framan okkur hér á mótinu.
Sum hver gátu varla bjargað sér
með einföldustu hluti, en nú
keppa þau hörkuleiki, til dæmis i
borðtennis og ýmsu öðru. Þetta
sannar, að iþróttir eru ekki siðri
lækningaaðferð en margt annað.
Það var svolitiö um sjóveiki á
leiðinni út. Ég fann þó ekki fyrir
þvi, enda gamall sjómaður. Mig
langar svona i lokin að þakka sér-
staklega Hjálparsveit skáta fyrir
þeirra einstöku þjónustu við okk-
ur. Þeir hafa ávallt verið tilbúnir
i hvaða snatt sem er, við erum
búin að fara i ferð um Eyjarnar
með þeim og það er búið að vera
mikið að gera.”
Texti: Guö-
mundur þB.
Ólafsson
Myndir: Guö-
mundur Sig-
fússon
Llf on llör á
lanflsmðli lallaðra
Vestmannaeyja, auk fjölmargra
einstaklinga, unnu þarna frábært
og mikið starf.
Þvi má nærri geta, aö mikið
lif hefur verið á mótstað.þegar á
þriðja hundrað manns, keppend-
ur, aðstoðarmenn og dómarar
voru i keppni og störfum.
Eins og áöur sagði gekk keppni
mjög vel og lauk keppni i siöustu
greininni, bogfimi, klukkan 19:30
á sunnudag. Þá var ekki til set-
unnar boðið, þvi að lokahófið átti
að hef jast klukkan 20 i samkomu-
húsinu. Bæjarstjórn Vestmanna-
eyja bauð til hófsins og voru um
260 gestir i veislunni.
Sveinn Tómasson, forseti bæj-
arstjórnar, setti hófiö, en veislu-
stjóri var Heigi Hjálmarsson, for-
seti Junior Chamber, Vest-
mannaeyjum. Eftir boröhaldið,
þar sem matreiðslumenn hússins
og Skútan sáu um kræsingar, fór
fram verðlaunaafhending. Ct-
hlutaö var fyrstu, öðrum og
þriöju verðlaunum i hverri grein,
auk veglegs farandsbikars til sig-
urvegara. Kiwanisklúbburinn
Esja i Reykjavik gaf alla verð-
launagripi og þótti þviviöhæfi, að
Höskuldur Kárason, mótstjóri i
bocchia og fyrrverandi Kiwanis-
maöur úr Esju, afhenti verðlaun-
in.
Þaö var mjög ánægjulegt að
fylgjast með afhendingu þessari,
svo og mótshaldinu öllu. Anægjan
og þakklætið skein úr hverju and-
liti og ekki dvinaði kætin, þegar
dansleikurinn hófst. Þrumustuð
hjá diskótekinu Þorgerði og þeg-
ar Visismenn yfirgáfu samkomu-
húsiö klukkan tvö um nóttina, var
enn verið að dansa.
Það var almannarómur eftir
mótið, að vel hafi tekist mót þetta
sem var prufukeyrsla fyrir Norð-
urlandamótið i sundi, sem verður
haldið i Eyjum seinast i júni. 1-
þróttamiðstöðin i Vestmannaeyj-
um er eina mannvirkiö á öllu fs-
landi, sem getur haldið slikt mót.
— ATA —
Bocchia er vinsæl keppnisgrein hjá fötluöum en einhverra hiuta vegna hefur hún ekki öölast vinsældir utan Iþróttafélaga fatlaöra.
Mikiö mælt og mikiö pælt og á meöan bföa bocchia-keppendurnir spenntir eftir niöurstööunni.
reyndar flestar greinarnar á Landsmóti fatlaöra I Vestmannaeyjum.
„Þið hafið alveg frábæra að-
stöðu hér. Ég vildi helst. að ég
gæti tekið þetta allt saman með
mér upp á land”, sagði Arnór
Pétursson, íþróttafélagi fatlaðra
i Reykjavik.
„Þetta er búið að vera fyrir-
myndar mót og það sem kannski
er ánægjulegast við þetta allt
saman er. að þeim fjölgar alltaf,
sem taka þátt i þessum mótum.
Sjáið til dæmis þá þroskaheftu.
Margir telja, að þeir eigi heima á
stofnunum og ekkert sé fyrir þá
Fatlaöir, islenskir lyftingamenn eru f stööugri framför og standa eriendum keppinautum sinum fylliiega
snúning.
Þriðja íslandsmót
fatlaðra hófst i Vest-
mannaeyjum á laugar-
daginn með setningu
forseta bæjarstjórnar
Vestmannaeyja, Sveins
Tómassonar. Keppt var
i f jórum greinum, sundi,
bogfimi, borðtennis og
bocchia. Einnig var opið
mót í lyftingum. Kepp-
endur voru frá sjö fé-
lagasamtökum, eða 99
samtals.
Keppendur og aðstoðarmenn
komu með Herjólfi á föstudag,
þar sem ekki var fært með flugi
til Eyja þann dag. Margir fóru
þar i sina fyrstu sjóferð og urðu
margir sjóveikir i austanstrekk-
ingnum. Þetta gerði það aö verk-
um, að ekki var hægt að setja
mótið á föstudag eins og til stóð,
heldur var það sett á laugardag.
Það var Iþróttabandalag Vest-
mannaeyja, meö formanninn
ÓskarSigurpálsson I fararbroddi,
sem stóð fyrir mótinu að þessu
sinni.
Mótið hófst með keppni i sundi,
en siðan rak hver greinin aðra.
Margt var um manninn i iþrótta-
miðstööinni um helgina og er sér-
staklega gott til þess að vita, að
þar gátuallir farið ferða sinna, en
eins og kunnugt er voru Vest-
mannaeyingar svo framsýnir, er
iþróttamiðstöðin var byggð, að
gera ráð fyrir, að þar gætu allir
fariö um, hvort sem þeir væru
fatlaðir eða ekki.
Mótshaldið gekk mjög vel, og
töldu talsmenn mótsins, að
stærstan þátt i þvi ætti sú frábæra
aðstaöa,sem Eyjamenn byðu upp
á. Margir aðilar lögðu sitt af
mörkum til að vera keppenda
yrði sem ánægjulegust i Eyjum,
Iþróttabandalag Vestmannaeyja,
Hjálparsveit skáta, Sjálfsbjörg,
Þroskahjálp, nemendur Gagn-
fræðaskólans i Vestmannaeyjum,
Junior Chamber og bæjarstjórn
Fjöldamargir fylgdust meö sundkeppninni, sem var spennandi eins og
„Besla landsmót
fatlaðra lll bessa"
- segir Þrðstur Guöjonsson, ípróttatélagi
fatlaöra á Akureyrí
„Mótið hefur gengið mjög vel
og hefur verið vel undirbúið”,
sagði Þröstur Guðjónsson, I-
þróttafélagi fatlaðra á Akureyri,
en hann var mótstjóri i bogfimi.
„Þetta er þriöja landsmótið
sem við höldum og get ég fullyrt,
að þaö hefur hvergi gengið betur.
Það sem ég tel helst vera ástæð-
una fyrir þvi, hversu vel hefur
gengið, er tvimælalaust sú fyrir-
myndaraðstaða, sem boðið er upp
á. öll gólf eru á sama fleti, hvort
sem um er að ræða sundstað, i-
þróttasal, kaffiteriu eða fundar-
herbergi,” sagði Þröstur.
OKKUR TOKST
AB LEYSA ÖLL
VANDAMALIN
- segir Oskar Sigurpáisson. lormaður IBV
„Mótshaldið fór vel fram og
það tókst að leysa öll þau vanda-
mál, sem upp komu”, sagði Ósk-
ar Sigurpálsson, formaður i-
þróttabandalags Vestmannaeyja.
„Það er ekki svo erfitt að
standa fyrir sliku móti, þegar
jafn-margir aðilar vinna ósér-
hlifið starf, eins og hér hefur ver-
iö gert.
Þetta er að sjálfsögðu mikilvæg
reynsla fyrir Norðurlandamótið.
Við höfum lært mikið af þessu
mótshaldi og ég er bjartsýnn á, að
ekki takist siður til, þegar að
Norðurlandamótinu kemur.
Ég vil að lokum þakka öllum
þeim, sem lögðu hönd á plóginn
nú um helgina og vænti þess, að
allir verði i startholunum þegar
að Norðurlandamótinu kemur i
sumar”, sagði óskar Sigurpáls-
son.
„Mlkilvæg
reynsia fyrir
Norðuriandamólið
- segír Sigurður Magnússon. formaður
ípróttasamuands fatlaðra
„Það var mikil tilhlökkun ao
koma hingaö til Eyja, enda er
alltaf gott að heimsækja Eyja-
skeggja”, sagði Sigurður Magn-
•ússon, formaður Iþróttasam-
bands fatlaðra.
„Mótshald þetta tel ég vera
mikilvæga reynslu fyrir Noröur-
landamótiö i sundi, sem haldið
verður hér i júni. Aðstaðan hér er
sú besta, sem til er á landinu öllu
og er þar ekki einungis átt við i-
þróttaaöstöðuna, heldur einnig
hina góðu félagslegu aðstöðu, svo
sem kaffiteriu, félagsheimili og
fleira.
Mót þetta hefur gengið mun
beturen nokkurt annað mót, sem
við höfum haldið fram að þessu.
Vil ég sérstaklega þakka þeim
Óskari Sigurpálssyni, formanni
IBV, Höskuldi Kárasyni, svo og
hinum ýmsu félagasamtökum og
öllum Vestmannaeyingum, sem
eiga svo rikan þátt i hversu vel
tókst til”, sagði Sigurður Magn-
ússon.