Vísir - 18.05.1981, Blaðsíða 3
Mánudagur 18. mal 1981
vtsm
3
Leöurkápur
Leöurjakkar
Leöurbuxur
Leöurpils
Leðurvesti
Greiðsluskilmálar við allra
hæfi, 25% útb., eftirstöðvar
samkomulag.
Skallalagabreytlngar með afturvirknl:
„Þella eru ðtæk
vlnnubrögð”
■ seglr lormaöur Félags
lögglltra endurskoðenda
Keppnisliöiö ásamt fararstjórum og leiöbeinendum. Taliö frá vinstri: Guömundur Þorsteinsson
námsstjóri, Siguröur Guömundsson, frá Kópavogi, keppir i vélhjólaakstri, Helgi Sigurösson, Selfossi,’
keppir i vélhjólaakstri, Ólafur Jóhannsson, Garöabæ, reiöhjólaakstur, Þórarinn Sævarsson,
Reykjavik, reiöhjólaakstur, og Sigrún ólafsdóttir, leiöbeinandi i umferöarfræöslu. (Visismynd- Emii
Þór).
Taka pátt í alpjóða
hjðlakeppni í Osló
Fjórir vaskir sveinar munu
keppa fyrir íslands hönd i alþjóö-
legri hjólakeppni sem fram fer i
Oslo í Noregi dagana 19.—22. maí
næstkomandi.
Forkeppnir hafa staðið yfir
hérlendis siðastliðið ár, en keppt
verður bæði i reiðhjóla- og vél-
hjólaakstri. „Þessi keppni er
lokapunkturinn i þeirri viðleitni
að efla verklegar æfingar um-
ferðarfræðslu i skólum”, sagði
Guðmundur Þorsteinsson náms-
stjóri i umferðarfræðslu i samtali
við Visi.
Islendingar hafa undanfarin ár
verið i miðju þeirra þjóða sem
keppt hafa, en þrivegis höfum við
verið efstir Norðurlandaþjóð-
anna. Vélhjólakeppnin hefur ver-
ið haldin i samráði við Bindindis-
félag ökumanna, en Visir birti
einmitt úrslit forkeppnanna sið-
astliðið sumar. Með piltunum
fjórum fara þau Guðmundur
námsstjóri og Sigrún ólafsdóttir
lögregluþjónn i Kopavogi, sem
hefur einnig séð um umferðar-
fræðsluna. A sama stað og hjóla-
keppnin fer fram, verður svo
haldið þing Umferðarráða, sem
þeir Sigurjón Sigurðsson lög-
reglustjóri og Óli H. Þórðarson
hjá Umferðarráði sitja.
AS
„Við mótmæltum þvi, bæði við
ráðherra og nokkra alþingis-
menn, þegar ennþá einu sinni var
lagt fram frumvarp um skatta-
lagabreytingar með afturvirkni,
enda eru þetta ótæk vinnubrögð”,
sagði Kristinn Sigtryggsson, for-
maður Félags löggiltra endur-
skoðenda, er Visir spurði hann
álits á stöðu framtalsmála i at-
vinnurekstri.
„Það sem við bentum sérstak-
lega á er að fyrirtækjum er gert
illmögulegt að starfa eftir fyrir-
framgerðum áætlunum og ná
settum markmiðum, auk þess að
vitanlega verður meiriháttar
truflun á framtalsvinnu og allri
úrvinnslu”, sagði Kristinn, „það
má segja að stjórnvöld berjist
gegn skynsamlegri stjórnun hjá
fyrirtækjum i landinu.”
Þá sagði Kristinn að mjög væri
misjafnt hvernig endurskoðendur
brygðust við þvi, að fyrir lægi
frumvarp um breyttar álagn-
ingarreglur fyrir liðiö ár. Sumir
senduinn framtöl gerð eftir gild-
andi reglum en aðrir biðu eftir
áformuðum breytingum. Næri
útilokað væri þó að biða með öll
framtöl, og þegar miklu væri skil-
aðaf framtölum, sem siðan þyrfti
að breyta, þýddi það væntanlega
mikla vinnu á skattstofunum.
Sá framtalsfrestur sem siðast
var kynntur, rennur út 25. mai
fyrir einstaklinga meö rekstur, en
31. mai fyrir félög.
Framtöl verða sifellt marg-
þættari og eftir breytingar i fyrra
á framtalskerfinu öllu saman, eru
það nærri 40 mismunandi eyðu-
blöð, sem fylla þarf út, mismörg
fyrir hvern og einn eöa hvert fyr-
irtæki, en ekki óalgengt að fyrir
þau þurfi að pára á svona 15—20
eyöublöð hvert.
HERB
Arnarhóil opnaður
á laugardaglnn
Veitingastaðurinn Arnarhóll,
sem Visir sagði frá i föstudag-
blaðinu, verður opnaður laugar-
daginn 23. mai. 1 frásögninni
hafðihins vegar læðst inn sú villa,
að staðurinn hefði verið opnaður
á laugardaginn var. Leiðréttist
þaö hér með.
stoinfundur samlaka
um frjálsan úlvarpsrekslur:
Er útvarpsstðD
SFUI sjðnmáli?
Formleg samtök þeirra sem
vilja frjálsan útvarpsrekstur á ts-
landi hafa aldrei verið til, og þvi
hafa áhugamenn um málið
ákveðið að efna til stofnfundar
Samtaka um frjálsan útvarps-
rekstur (SFU) að Hótel Sögu i
kvöld, mánudaginn 18. mai kl.
20.30.
Gestur fundarins verður bresk-
ur dagskrárgerðarmaður frá
óháða útvarpinu (IBA) i Bret-
landi, Edwin Riddell að nafni.
Hann mun fræða fundargesti um
þróun útvarps i Bretlandi, þar
sem óháðar staðbundnar út-
varpsstöðvar hafa verið settar á
laggirnar við hlið rikisútvarpsins
BBC.
Skráning félaga fer fram á
stofnfundinum, og geta þeir greitt
árgjaldið þar, sem er lágmark kr.
50.- 4
Þá mun Ólafur Hauksson ræða
um aðdraganda að stofnun SFU,
Magnús Axelsson mun ræða um
verkefni samtakanna, og Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson mun
leggja fram stofnsamþykkt og
stýra stjórnarkjöri. Fundarstjóri
verður Jón Ólafsson.
Robin Hood
*4c4<-*<-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-K-K-k-»t-K-*t-k-K-k-ie'k-k'K-K-k-k-k-k4t-»c-»t-k-k-k
i
★
★
i
★
!
★
★
★
★
★
★
★
★
•¥•
¥■
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
3700
Litur: Kakigrænt leöur
Verö kr.: 295.-
PÓSTSENDUM
STJÖRNUSKÓBÚÐIN *
. ..............................._ 1
^♦-g-g-H-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K
Laugavegi 96 (við hliðina á Stjörnubiói).
Simi 23795.
vmfmm
fEbSMN
WRftfUMti S- "2.0*60
OPÍÞI-t AUA ÞMA
/AU&ARCA6A fXAHLIO-IZ