Vísir - 13.06.1981, Side 2
2
Laugardagur 13. júní 1981
VÍSLR
skotspóhum
Privatflug
með Pálma
Frá Sauðárkróki heyrðum
við, að þegar leitin stóð sem
hæst aðTF-ROM á uppstigning-
ardag hafi verið fundur sjálf-
stæðismanna þar i bæ með Geir
Hallgrimssyni. Þangað norður
gerði sér sérstaka ferö Pálmi
Jónsson ráðherra landbónaðar-
mála til aö hafa uppi mótmæli.
Mótmælandinn þurfti siðan eðli-
lega að komast aftur til höfuö-
staðarins. Heyrðu menn i leitar-
vélum aö kallað var á vél flug-
málastjómar og flugmanni þar
flutt þau skilaboð að hætta leit á
tilteknum tima, lenda á Sauðár-
króki og taka upp eitt stykki
ráðherra og fljUga honum til
Reykjavikur...
Fljótur
Kristján
Okkur er sagt að eitthvað séu
menn ekki alveg ánægðir með
hvað Kristján Benediktsson
oddviti framsóknarmanna I
borgarstjórn er seinn til að
segja af eða á um hvort hann
ætli að hætta fyrir næstu kosn-
ingar. Þegar hefur verið hugað
að mönnum og nU siðast var
skipuð nefnd hjá fulltrUaráði
framsóknarfélaganna i Reykja-
vik til að fjalla um hvernig staö-
ið skuli að málum fyrir næstu
kosningar. Þaö hefur vakið eft-
irtekt, að einn nefndarmanna er
Gestur Jónsson lögfræðingur
Skaptasonar, sem mjög hefur
veriðnefndur sem arftaki Krist-
jáns. Þykir þetta draga Ur lik-
um fyrir þvi að Gestur hyggist
stefna á oddvitasætið...
Kristján Ben i ráðuneyti?
Aðeins meira um ágætan odd- embættis Birgis Thorlacius
vita framsóknarmanna. Ein- handa Kristjáni en Birgir mun
hver sagði að litið hefði verið til kominn fast að eftirlaunaaldri...
Geir i SUS?
Væringar hafa verið um
framboðsmál fyrir næsta þing
Sambands ungra Sjálfstæöis-
manna í haust-. Pétur Rafnsson
hafði verið nefndur sem áhuga-
maður um eigið framboð en
hann mun nU orðinn fráhverfur.
Tvö nöfn heyrast nU einkum
nefnd í formannskjöri Geir
Haarde hagfræðingur og Einar
K. Guðfinnsson varaþingmaður
Ur Bolungarvík...
Július
ákveðinn
Sumir eru harðákveðnir. JUli-
us Hafstein stórkaupmaður og
formaður Handknattleikssam-
bands íslands er sagður kominn
á fUll sving með undirbUning
prófkjörsbaráttu. Ekki telja
menn ólildegt að hann treysti
mjög á fulltingi HSt i barátt-
unni...
Umbi Ritzau
MagnUs Guðmundsson Kaup-
mannahöfn er nU ekki lengur i
Kaupmannahöfn heldur höfum
við heyrt að hann hafi tekið að
sér að vera umboðsmaður
Ritzau fréttastofunnar hér á ts-
landi. Ritzau mun siðar senda
fréttir MagnUsar af Islandsmál-
um viða um heim, til NTB og
fleiri fréttastofa. MagnUs kem-
ur þvi' til með að stýra stórum
hluta þeirra frétta, sem um-
heimurinn fær af tslandi.
Hávaði i
Magnúsi H
Forstjórastarfið, i Brunabóta-
félaginu var hávaðamál nU i
vikunni eftir að Svavar Gests-
son skipaði Inga R. Helgason
forstjóra i trássi við vilja fram-
kvæmdastjórnar fyrirtækisins.
Framkvæmdastjórnin vildi,
að Asgeir Ólafsson fráfarandi
forstjóri sæti áfram til ársloka
1982. Formaður framkvæmda-
stjórnarinnar er MagnUs H.
MagnUsson Eyjamaður og
krati. Kratar i Eyjum ræöa það
i verbUðum, að hávaðinn i
MagnUsi Ut af þessu máli stafi
af þvi’ að hann hafi ætlað sjálf-
um sér starfið að Ásgeiri frá-
gengnum og hafi MagnUs ætlað
að bUa i haginn fyrir sig i róleg-
heitunum...
r--------------------------------------------
Hjólið og yður mun vel heilsast
Hossa, stíga, detta, bomm
Nokkrar
léttar leið-
beiningar
fyrir
byrjendur i
hjólreiðum
H jólreiðar eru nú að verða ein
af vinsælustu þjóðariþróttum
FrónbUa. Allir, jafnt stórir sem
smáir, kaupa sér reiðhjól. Gljá-
andi, tvihjóla gripi, sem eru
sómi eiganda sinna hvar sem
þeir koma. Og hvaö er hægt að
hugsa sér indælla en innilegt
vináttusamband milli reiðhjóls
og manns. Eða hver man ekki
eftir orðtækinu góða: „Milli
manns, hunds og hjóls hangir
leyniþráður....”
En margir eru byrjendur i
greininni. Og til að auövelda
þeim fyrstu ferðina á splunku-
nýju hjólinu fylgja hér á eftir
nokkrar leiðbeiningar settar
saman af Alþjóðlegu Hjólreiða-
eftirlitsstofnuninni i Prag. Þess
ber að gæta að fara verður vel
eftir leiðbeiningunum og láta
ekki deigann siga, þvi ella er
verr af stað farið en heima set-
ið.
Skref l.Leiðið hjólið gætilega
Ut á autt svæði. Takið yður þar
teinrétta stöðu við hlið hjólsins,
meö báöar hendurnar fast
krepptar um stýriö. Horfið til
himins og einbeitið huganum að
jafnvæginu. Endurtakið æfing-
una tiu sinnum.
Setuæfingar
Skref 2
Og þá er það setuæfingin. At-
Limgerðið getur verið tii margra hluta nýtilegt, eins og sjá má á myndinni. Látið hjólhestana samt ekki
hallast upp að bakhlutanum eins og þar er gert. Þau gætu dottið í götuna við hnykkinn.
hugið að kvenhjól er betur fallið
til að æfa hana heldur en karl-
hjól (með stöngina beint fram)
Setjist nú i hnakkinn, jokið aug-
unum og finnið hvernig fjörtök-
in stinn streyma ljúflega frá
hjólinu milli fótanna og upp eftir
búknum, allt upp i banakringl-
una. Lokið augunum og hossið
yður tiu sinnum.
Stigið hægra fæti varlega á
pedalann og undrist ekki þótt
hjólið taki á sprett áfram. Stigið
í FRÉTTA-
SKUGGANUM
Láki L.
skrifar
nú með vinstra fæti og viti menn
— hjólið dettur og þér með.
Standið strax upp aftur, sparkið
EKKI i hjólið en reynið að
bögglast á bak undir eins, svo
kjarkurinn sviki ekki. Endur-
t’akið: Hossa, stiga, detta,
búmm! Nú er áhorfendaskarinn
á svæðinu trúlega orðinn allfjöl-
mennur og þvi er best að hætta
ella gæti skapast tortryggni
milli yðar og hjólsins sár sem ef
til vill gréri seint.
Brun
Skref 3.
Og þá eru það jafnvægisæf-
ingarnar. Leiðið hjólið efst i háa
brekku. Ekki er verra að
mannaferðir séu töluverðar niö-
ur i henni, eða þá að þar séu
grindverk, skjólgróður og jafn-
vel tjöld. Setjist á hjólið, lokið
augunum og finnið jafnvægið
sem þér æfðuð upp á auða
svæðinu flæða um hverja taug.
Dragið nú fæturna hægt aö yður,
hallið yður áfram og finnið
hvernig hjólið rennur ljúflega af
stað.
1 miðri brekku skal bremsa,
hægtog rólega. Ef hjólið ætlar á
hliðina, hættið þá við að hemla
en beinið sjónum yðar að gang-
andi vegfarendum. Best er að
hafa þá af sverari gerðinni og
stima á þá miðja til að stöðva
hjólið. Ef þeir sleppa allir, er
gott að láta vaða á grindverkið.
Siðan tekur skjólgróðurinn við
en trúlega er hjólið þá á það
mikilli ferð, að ekkert veitir af
einu eða tveim tjöldum til að
stöðva það.
Endurtakið þessa æfingu að
minnsta kosti fimm sinnum.
Þegar þér hafið náð svo mikilli
leikni, að þér getið valið eftir
vild hvort þér stöðvist á fólki
(sem er að þvælast fyrir),
grindverkum, trjám eða tjöld-
um, þá er björninn unninn. Og
þá er ekkert annað, en að skella
sér i hjólreiðatúr með visitölu-
fjölskylduna.
P.s.Munið að slaka aldrei á i
umferðinni. I hægri og vinstri
beygjum getur verið gott að
steyta hnefana og æpa framan i
bilstjórana og gefa um leið
merki i hvaða átt þér ætliö að
beygja.