Vísir - 13.06.1981, Blaðsíða 14
14
vism
Laugardagur 13. júni 1981
Ódýrar tjaldferðir um
byggðir og óbyggðir
„Fram til þessa hafa farþeg-
ar okkar verið nær eingöngu út-
lendingar, en þetta er að breyt-
ast. Á siðast liðnu sumri voru
150—200 tslendingar með i ferð-
unum og nú bjóðum við landan-
um að vera með i sumar á ein-
staklega ódýru kynningar-
verði” sagöi Halldór Bjarnason
hjá Feröaskrifstofu Úlfars
Jacobsen i samtali við ferðasið-
una.
Þegar verðskrá yfir ferðir
úlfars er flett kemur strax i ljós
að Halldór fer ekki með neitt
fleipur. Sex daga ferðir kosta
1.350 krónur á mann, 12 daga
ferðir 2.700 og 13 daga íeröir
2.950 krónur. En hvað er innifal-
ið i þessu verði og hvað þurfa
farþegar aö hafa með sér?
„Innifalið er allur akstur,
leiðsögn, matur og gisting i
tjöldum. Fyrir utan gott skap
þarf fólk að hafa með sér svefn-
poka og vindsæng, regnjakka,
hlý nærföt, skó til skiptanna,
bæði létta skó og gönguskó svo
og vaðstigvél”, sagði Halldór.
— En hvernig getið þið boöiö
svona ódýrar ferðir?
„Þetta er sérstakt kynningar-
verð til aö fá fleiri Islendinga til
að slást i förina, fá þá til að
kynnast eigin landi betur. Þar
við bætist, að vegna pantana að
utan verðum við að fastsetja
okkar verð til áramóta og við
ákváðum að lofa landsmönnum
að njóta þeirra gengisbreytinga
sem hafa orðið siðan og lækka
verðið á innanlandsmarkaði.”
Við allra hæfi
Þær ferðir sem hér um ræðir
liggja oft utan alfaraleiða og þvi
vaknar sú spurning hvort það
séu ekki bara þaulvanir fjalla-
garpar og útilifsfólk sem eiga
erindi i slikar svaðilfarir.
Halldór neitaði þessu alfarið:
„Ég man eftir bandariskum
hjónum i einni ferðinni sem
voru með kornabarn, vart orðið
ársgamalt. Ekki er óalgengt að
yngstu farþegar séu fimm til
sex ára og þeir elstu eru allt upp
i hálfniræðir eða eldri. Farþeg-
ar ráða þvi sjálfir hvort þeir
ganga mikið eða ekki, reyna á
sig eða taka það rólega.”
— Frá hvaöa löndum koma
flestir farþega?
„Á undanförnum árum hefur
verið mikið um Hollendinga og
Þjóðverja, talsvert af Frökkum
og slangur af Bretum og Norð-
urlandabúum. Margir eru mikl-
ir náttúruskoðarar og taka
tryggð við landið. Lengri
ferðirnar virðast ætla að vera
enn vinsælli á þessu sumri en i
fyrra og er mikið bókað i þær.
Einnig er nokkuð vel bókað i
styttri ferðirnar, en það er 28.
júni sem lagt verður upp i fyrstu
ferðir sumarsins,” sagði
Halldór Bjarnason.
Sex daga ferðirnar eru um
Borgarfjörð, Landmannalaug-
ar, Eldgjá, Jökullón á Breiða-
merkursandi og Þórsmörk.
Tólf daga ferðir eru hring-
ferðir um landið, fyrstu nóttina
er tjaldað að Brautarholti á
Skeiðum og siðan haldið áfram
austur og norður um, á Snæ-
fellsnes og siðustu nóttina er
gist að Húsafelli. Þrettán daga
ferðir eru siðan annars vegar
um Suður- Austur- og Norður-
land og svo suður Sprengisand
og hins vegar um Vestur- og
Norðurland og suður Sprengi-
sand.
Sæm undur
Guðvinsson
skrifar
Hringflug á
hagstædu
vcrdi
Útlendingar eru fundvisari á
leiðir til aö ferðast ódýrt um
landið en landsmenn sjálfir.
Erlendir ferðamenn hafa hing-
að til nær einir notfært sér
hringferðafargjöld Flugleiða,
en sjálfsagt er fyrir tslendinga
að kynna sér það sem i boði er.
1 þessum hringferðum er flog-
ið með Flugleiðum, Flugfélagi
Austurlands og Flugfélagi
Norðurlands. Svo dæmi sé tekiö
má nefna, að hægt er að fljúga i
þessu hringflugi frá Reykjavik
til Isafjaröar, hafa þar viðdvöi
og fljúga siöan til Akureyrar.
Eftir dvöl þar fljúga til Egils-
staða, frá Egilsstööum til
Hornafjaröar og þaðan til
Reykjavikur. Fargjald á mann i
þessu hringflugi er aðeins 1.347
krónurmeö flugvallarskatti,
sem er stórfelldur afsláttur frá
venjulegu miöaverði, ef farmiöi
væri keyptur sérstaklega milli
staðanna.
Það er alveg eins hægt að fara
hringinn austur um eða hafa
færri viðkomustaði, en reiknaö
er meö að fólk dvelji nokkra
daga á hverjum staö. A öllum
ofannefndum viökomustöðum
eru bilaleigur og áætlunarbilar
aka um nágrennið. Nánari upp-
lýsingar eru veittar á skrifstof-
um Flugleiöa um land allt.
Nokkrar af flugfreyjum Flugleiöa i nýju búningunum. Frá vinstri:
Helga óskarsdóttir, Jóhanna Hauksdóttir, Erla Sveinsdóttir, Linda
Rikharðsdóttir og Borghildur Pétursdóttir. (Visism.ÞóG)
Flugfreyjur í
nýjumbúningum
Frá og með þriðjudeginum 17.
júni iklæöast flugfreyjur Flug-
leiða nýjum búningum i bláum
litum. Draktin er dökkblá,
frakki, siðbuxur og hattur, en
blússan er hvit. Blái liturinn er
einnig á svuntu og vesti.
Það er Jón Þórisson i Módel-
magasini sem saumar búning-
ana og þeim fylgja skór, hansk-
ar og hliðartaska. Fiugmenn og
flugvélsstjórar fá einnig nýja
búninga áður en langt um liður.
Grimsey er vinsæli viökomustaöur feröamanna yfir sumariö og þeir geta fengiö sérstakt sklrteini sem
sannar aö þeir hafi fariö noröur fyrir heimskautsbauginn.
Grimseyj arf er ðir
með Drang i sumar
Póstbáturinn Drangur byrjar
Grimseyjarferðir þann 19. júni
og veröur þessum ferðum, sem
ætlaðar eru ferðafólki haldiö
uppi fram yfir miöjan ágúst.
Hægt er að gista i félagsheimil-
inu i Grimsey fyrir þá sem vilja
lengja dvölina i eynni.
A þriðjudögum er farið klukk-
an átta um morguninn frá Akur-
eyri og komið til Grimseyjar um
klukkan 14. Staldrað er við i
eynni til klukkan 18, en þá er
haldið aftur til Akureyrar og
komið þangað um miðnætti.
Föstudagsferðir Drangs erui
svokallaðar miðnætursólarferð-
ir. Farið er frá Akureyri sið-
degis og komið til Grimseyjar
um klukkan 21. Til baka er siðan
siglt á hádegi daginn eftir, laug-
ardag. Gistiaðstaöa er um borð i
Drang og þar eru seldar veiting-
ar.
Fyrir þá sem vilja gista i
landi eða lengja dvöl sina i
Grimsey er svefnpokapláss til
reiðu i félagsheimili eyja-
skeggja og þar eru seldar veit-
ingar til gesta og gangandi.
Ferðin meö Drang fram og til
baka kostar 230 krónur á mann.
A siðasta sumri komust færri en
vildu, en þessar ferðir eru ekki
sist vinsælar hjá félagasamtök-
um og starfsmannahópum.
Ættu þeir sem hyggja á Grims-
eyjarferð með Drang aö panta
Farrýmisskipting evrópskra
flugfélaga er komin út i hálf-
gerðarógöngur, þar sem félögin
nota mismunandi farrými, eða
farrýmisheiti. Nokkur flugfélög
halda enn svonefndu fyrsta far-
rými meðan önnur hafa tekið
upp svokallað „business class”.
Þau flugfélög sem hafa siðar-
nefnda farrýmið eru siðan með
mismunandi reglur svo þetta
vill verða ansi ruglingslegt allt
saman.
Sem dæmi má nefna, að
Lufthansa er með fyrsta far-
rými en Air France hefur tekið
upp „business class”. A flug-
far hið fyrsta. Föstudagsferðun-
um verður haldið uppi til loka
júli, en þriðjudagsferðum fram
til 18. ágúst.
stöðvum i Þýskalandi fá farþeg-
ar með miða á fyrsta farrými
Lufthansa, sérstakt umslag ef
þeir þurfa að skipta yfir á Air
France á leið sinni til Frakk-
lands. Umslaginu er laumað að
farþegum svo litið ber á, en það
hefur að geyma um 100 þýsk
mörk. Þetta eru nokkurs konar
sárabætur fyrir aö þurfa aö
sætta sig við „business class”
hluta leiðarinnar!
Flugfreyjur eru stöðugt undir
smásjá farþega á flugferðum,
enda meira og minna á göngum
vélanna allan þann tima sem
flugferð varir, að minnsta kosti
i millilandafluginu.
Á flugleidum Evrópu:
Ölík farrými
valda ruglingi