Vísir - 13.06.1981, Síða 17
17
Laugardágur 13. júril 1981
vísm
36c\e>r
onftmur
einar j^i?
tragi
bass’i
Purrkur Pillnikk
Þeir sem hafa fylgst meö
hvað verið hefur að gerast i tón-
listarbransanum hérlendis að
undanförnu vita hvað Purrkur
Pillnikk er. Og það ættu allir að
vita, þvi Purrkur Pillnikk er ein
merkilegasta hljómsveit sem
komið hefur fram hérlendis.
Velgengni Purrks Pillniks er
með ólikindum. Hljómsveitin
var stofnuð 8. mars sem atriöi á
nemendatónleika i M.H.. Þeir
æfðu upp prógram á einum degi
og voru þá komnir með slatta af
frumsömdu efni.
Þeir sem þarna voru að verki
voru Bragi og Friðrik, sem sjá
um bassa og gitar tþeir hafa
spilað saman öðru hverju siðan
i 2. bekk í Gagnfræðaskóla) As-
geir, trommuleikari sem tók
það hlutverk i fyrsta skipti með
Purrkinum, en hann haföi áður
fengist við bassa, og á fyrstu
æfingunni kom i ljós að Einar
yrði söngvari.
Nú, Purrkur Pillnikk kom
sem sagt fyrst fram i M.H. 9.
mars og siðan þá hefur hljóm-
sveitin komið viða fram, m.a. á
HótelBorg og Satt-hljómleikum
svo eitthvað sé nefnt.
Á þessu stutta tilverutimabili
hljómsveitarinnar hefur hún
tekið upp plötu sem nefnist
„Tilf”, og er það 7 tommu plata
með 10 lögum.
Hljóðritun fór fram i Stúdio
Stemmu og var efnið ekið upp
,,live”. 011 lögin eru mjög stutt,
allt frá hálfri minútu en þeir
segjast segja það sem þeir vilja
að komi fram og ekkert meira.
Eins og fram hefur komiö er
prógram þeirra að öllu lpyti
frumsamið og koma þeir viða
við i textum.
Eins og alltaf þegar ný hljóm-
sveit byrjar þá er byrjað á þvi
að bera hana saman við hina og
þessa. Purrkur Pillnikk hefur
ekki farið varhluta af þvi.
Hljómsveitinni hefur m .a. verið
likt við The Fall og Einari verið
likt við Megas. En ef hlustaö er
á hvað hljómsveitin er aö gera
kemur iljósað Purrkurinn á sér
engan likan. Þetta er bara
Purrkur Pillnikk, hvort sem er
á plötu eöa tónleikum og ef fólk
hrifst af Purrki Pillnikk þá er
ánægjan þeirra.
A tónleikum eru þeir mjög lif-
legir og samt aíslappaöir. Ekk-
ert óþarfa fum eöa fát heldur er
prógramið kýlt áfram af fullum
krafti. Samleikur hljóðfæraleik-
ara er póttþéttur á bakvið
Einar, sem virkar oft reiður og
svo reiður að hann gæti stútað
öllu i kringum sig. Þaö er
gaman að sjá svona unga hljóm-
sveit sem virkar eins og þeir
hafi ekkert gert annað en að
spila.
Hvað framtíðina snertir, þá
er hlé á spilamennsku
Purrks Pilnikks, þar sem Einar
er farinn út með Utangarös-
mönnum, en hann er umboðs-
maður þeirra og heíur verið
nefndur Ayatollah i þeim her-
búðum.
Á meðan á þeirri ferð stendur
fáum við að hlusta á ,,Tilí” og
biðum þar til Purrkur Pillnikk
kemur fram á ný.
KRK